Morgunblaðið - 30.09.1964, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.09.1964, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagnr 30. sept. 1964 HERMINA BLACK: Eitur og ást Eina leiðin var sú, að spyrja hana. Komast að hvað var að gerast. Hann kveikti í öðrum vindlingi og varð rólegri. En hann var ruglaður og hræðilega reiður — og heiftin beindist eink um að Robin Wayman. En ef hún kærði sig nokkuð um þann náunga, hversvegna hafði hún þá bundizt heitum við Blake? Varla gat hún ímyndað sér að hún elskaði þá báða? Ef Blake hefði haft meiri reynslu af kvenfólki, mundi hann hafa séð, að Corinna gat ekki leikið tveimur skjöldum. En nú sat hann þarna með allt sitt hug- vit og hugboð, og gat ekki ráðið gátuna, sem hamingja sjálfs hans valt á. Klukkutíma síðar náði þjónn- inn hans í hann. — Ég hef verið að leita að yður, pasja, sagði hann. — Ég hélt að þér væruð með gestum prófessorsins. Það er kominn sendimaður til yðar — Til mín? — Hann biður um að fá að tala við yður undir fjögur augu. — Komið þér með hann hing- að. Nú var Blake með sjálfum sér aftur. Það er sennilegt að ég verði að fara héðan þegar í stað, sagði hann við arabiska þjóninn. — Verið þér viðbúinn því, Ali, en minnist ekki á það við nokk urn mann.' Corinna spurði sjálfa sig aft- ur og aftur hversvegna Blake kæmi ekki. Þó honum væri gramt í geði til hennar, var ó- hugsandi að hann stykki svo upp á nef sér að hann kæmi ekki! Og auk þess var það ó- kurteisi við húsráðendurna að sýna sig ekki. Hún spurði einn þjóninn hvort hann hefði séð Ferguson pasja. Maðurinn hristi höfuðið. — Nei. En viljið þér að ég reyni að leita að honum? 37 Corinna sagði að ekki væri þörf á því. Hún vildi ekki vekja uppnám. Og hún fann að hún hafði orðið fyrir móðgun. Ef hann var svo ófyrirgefanlega ó- skynsamur að . . . Kvöldið leið og hún varð ó- rólegri og órólegri. Og eftir að Sandra kom varð samkvæmið glaummeira og tryllingslegra. Corinna hafði aldrei séð hana í þessum ham. Hún hló og dans- aði, duflaði við Pétur og Pál og virtist ekki hafa neinar áhyggj- ur. En einu sinni kom Corinna af tilviljun að henni, þar sem hún stóð úti á svölunum og horfði yfir mánabjartan garð- inn. Og það var svo mikill rauna svipur á henni, að Corinna sagði ósjálfrátt: — Hvað gengur að yður? Eruð þér veik? Sandra leit við og horfði á hana. Augun voru eins og og í manneskju, sem gengur í svefni. En svo hristi hún af sér drung- ann, með auðsjáanlegum erfiðis- munum og svaraði nokkuð hvasst: _ — Vitanlega er ég ekki veik- Ég þurfti bara að fá mér hreint loft . . . Svo sneri hún frá henni og strunsaði inn. En Corinna þóttist viss um að hafa séð tár í augunum á henni. Hvar var Blake? Það var ótrú- legt að hann skyldi hverfa svona. Þegar Corinnu tókst tveim tím- um síðar að losna úr glaumnum til að hvíla sig um stund í her- berginu sínu, fékk hún svarið. Hún hafði verið á þönum síðan klukkan sjö um morguninn — og nú var farið að birta af degi aft ur. Nú gat hún ekki vakað leng ur. Umslag stóð á rönd upp við spegilinn. Hún opnaði það fljótt og gleymdi verkjunum í fótun- um og þreytunni í augunum. Hún varð glaðvakandi er hún las bréf ið. „Kæra Corinna: — Ég hef fengið skilaboð, sem að vísu komu mér ekki á óvart, og verð að fara í ferð núna sam- stundis. Ég er hræddur um að ég geti ekki gefið þér heim- ilisfang mitt, og bréf sem send eru til mín til Kairo, verða lengi á leiðinni til mín. Mig hefði langað til að sjá þig áður en ég fór, en mér var það ómögulegt, eins og í pottinn var búið. En mér finnst rétt að þú fá- ir að vita, að ég sá þig niður frá undir glugganum þínum, eftir að leiksýningunni var lokið í kvöld. Ég taldi rétt- ast að tala ekki við þig eða Wraymann fyrr en seinna. En ég reyndi að ná í hann, og fékk þá að vita að hann hafði líka farið úr samkvæminu, BLAÐADREIFING FYRIR ! Morgunblaðið þarf þegar í stað að ráða fólk til blaðadreifingar í þessi blaðahverfi: Skólavörðustígur — Lauga vegur ‘lægri númer. ^ Laufásvegur hærri númer. 'A Aðalstræti — Sigtún — Meðalholt. •it Gjörið svo vel að hafa samband við afgreiðslu Morgunblaðsins. sími 22480. — Sem betur fer kemur þetta okkur ekkert við. Það er á neðsta hæðinni, sem brennur. öllum á óvart — og að hann muni vera á leið til Englands. Þetta eru þér vitanlega gaml- ar fréttir, og ef til vill var það einmitt ferðalag hans, sem gaf tilefni tii að þið hitt- ust. Ég hélt að ég þekkti hjarta þitt, en ég þori ekki að trúa því lengur. Kannske þekkir enginn maður hjarta konunn- ar. Nú erum við báðir farnir, og þú færð næði til að hugsa málið og afráða hvorn okkar þú ætlar að velja. Þegar ég kem til baka ef ég kem þá til baka — skulum við tala betur um þetta. Og ef þú ósk ar að ég leysi þig frá heiti þínu, þá skal ég láta það eftir þér. Ég ætla mér sem sé ekki, að eiga þig í sameign við ann an mann, svo að þú skalt hugsa þig vel um. Blake Ferguson“. Hún las bréfið aftur og aftur og braut heilann um hvort þeirra væri orðið brjálað, hún eða Blake. Og nú var. hann far- inn ög henni var engin leið að komast að hvar hægt væri að ná til hans, og fá skýringu á þessu. En svo mikið vissi hún, að henni var ógerningur að skilja bréfið hans núna. Það eina sem hún skildi var að hann var farinn án þess að kveðja, og það eina sem henni fannst máli skipta voru þessi orð: — ef ég kem þá til baka. Hún fleygði sér á rúmið með bréfið í hendinni. Gróf höfuðið niður í koddann og grét, eins og hjartað ætlaði að springa. Hún hafði sofið óvært og fundizt að hún gengi óralangan veg til að finna einhvern, sem alltaf hlypi á undan henni. En þegar stúlkan færði henni teið og sólin skein inn um glugg ann, glaðvaknaði hún og mundi undireins hvað skeð hafði. Meðan stúlkan var að hella teinu í bollann sagði hún: — Þetta' var sögulegur dagur í gær. Að hugsa sér þetta: Ferguson og Wrayman báðir farnir. Já, Wray man flaug til Englands, — það er eitthvað út af látnum ætt- ingja. Það var minnzt eitthvað á það í fréttunum í morgun að sir KALLI KUREKI —*—• — * — Teiknari; J. MORA — Hvað tók hann mikla peninga trá þér Skröggur. . — Um átta dollara. — Láttu okkur fá þá, fjárhættu- spiJari. — Þetta er rán Átta dollarar. Korndu með þát — Allt í lagi. Það er ekki um ann- sð að velja. Þú ert með byssuna. Edward Wrayman, sem var mik- ill burgeis í utanríkisráðuneyt- inu, væri dáinn af slysförum. — Fóru þeir saman, Ferguson og hann? — Nei-nei. Wrayman fór fyrst. Ég held að þeir hafi alls ekki ætlað sömu leiðina. — Einmitt það. Þakka yður fyrir. Kannske að ég reyni að fá mér ofurlítinn aukablund. En þegar stúlkan var farin lá Corinna með galopin augun og starði á þilið. Hjartað barðist fast. Hún stakk hendinni undir koddann og las bréf Blakes aft- ur. Hann hélt að hann hefði séð hana með Wrayman. Nú fór henni að skiljast hvað gerzt hafði. Hann hafði séð tvær mann- eskjur saman fyrir utan húsið, og hafði talið víst að þarna væri stefnumót. En hversvegna hafði hann halldið, að þetta væri hún? Allt í einu rann svarið upp fyyrir heenni: Sandra hafði ver- ið í hvítu kvöldkápunni af Cor- innu, og Sandra hafði verið með Robin. Og svo i var Blake farinn, og hélt allt illt um hana. Og hún gat ekki skýrt fyrir honum hvernig í öllu lá, fyrr en hann kæmi aftur. Þetta var hræðilegt ástand. En hún sagði við sjálfa sig, að hann ætti að þekkja hana betur en svo, að hún leyfði öðrum að gæla við sig. Og ef hann elskaði hana á annað borð, var honum skylt að treysta henni. Það var óbæri- legt að hann skyldi fara án þess að biðja hana um skýringu — að hann skyldi dæma hana að órann sökuðu málL Bíddu bara þangað til hann kemur aftur, hugsaði hún með sér. En svo áttaði hún sig á því, að hún gat ekki sagt honum annað en það, að hún hefði ekki verið með Robin Wrayman. Hún fann að hún gat ekki fengið af sér að segja honum hver konan í hvítu kápunni var. Hún hefði fyrst orðið að fá samþykki Söndru til þess — og mundi hún riokkurntíma veita það? i Kópavogur Afgreiðsla IVJorgunblaðsins í Kópavogi er að Hlíðarvegi 61, sími 40748. Garðahreppur Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Garðahrepp er að Hof- túni við Vífilsstaðaveg, sími 51247. Hafnarfiörður Afgreiðsla Morgunblaðsins ( fyrir Ilafnarf jarðarkaupstað er að Arnarhrauni 14, simi 50374. Keflavík Afgreiðsla Morgunblaðsins fyrir Keflavíkurbæ er að Hafnargötu 48. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.