Morgunblaðið - 07.10.1964, Side 3

Morgunblaðið - 07.10.1964, Side 3
3 Míðvikudágtir 7. okt. 1964 MORGU N BLAÐIÐ DAGUR frímerkisins er í dag. í Iðnskólanum stendur yfir mikil frímerkjasýnin.g og heim sóttu blaðamaður og ljósmynd ari Morgunblaðsins hana í gærdag. Margir gestir voru á sýningunni, bæði eldri og yngri og af fleiri en einu þjóð erni. Seld eru frímerki þarna í örkum og á útgáfudagsum- slögum. Starfsmaður Póststofunnar Axel Sigurðsson var að selja Guðbrandi Magnússyni, fyrr- verandi forstjóra Áfengisverzl unar ríkisins, frímerki, er okk ur bar að. „Hvernig gengur salan?“ spurðum við Axel. „Heldur dræint enntþá, en ætli hún færist ekki í aukana á morgun.“ „Kaupir þú mikið, Guð- brandur?" „Nei, engin ósköp. Sjálfur Systir Anna (til vinstri) og systir Klemenzia skoða frímerkin á sýningunnL Á frímerkjasýningu nni í Iðnskólanum er ég ekki atvinnumaður í frimerkjasöfnun. Ég kaupi fyr ir afastrákana mína. Ég á nokkra afastráka, suma í út- löndum. Þrjár dætur mínar eru giftar í útlöndum, eina í Ameríku, eina í Noregi og hina þriðju í Austurríki. Geri aðrir betur. Á tímabili átti ég barnabörn í þremur heimsálf- um. í>að var þegar Björn, son- ur minn, bjó í Japan.“ Ungur piltur var að kaupa fyrsta dags umslög á öðrum sölustað sýningarinnar. Hann heitir Bragi Christiansen og er 14 ára. „Ert þú mikill frímerkja- safnari, Bragi?“ „Nei, ekki get ég sagt það. Ég byrjaði ekki að safna fyrr en ég var orðinn sex ára. Ég er bara að kaupa útgáfudags- frímerki.“ „Safnarðu aðeins úígáfu- dagsfrímerkjum?“ „Nei, nei, ég safna öllum mögulegum frímerkjum.“ „Áttu stórt safn?“ „Nei, bara dálítinn slatta." Meðal þeirra sýningargesta, sem einna niðursokknastir voru í skoðun ýmissa gerða frimerkja, voru tvær nunnur frá Landakoti, þær systir Anna, hjúkrunarkona við Landakotsspítalann og systir Klemenzia, ke'nnslukona við Landakotsskólann. „Safnið þið frímerkjum?“ „Já, við söfnum báðar, „sagði systir Klemenzia. „Ég er íslenzk og safna aðeins ís- lenzkum frímerkjum, en syst- ir Anna, sem er þýzk, safnar allskonar frímerkjum og á mikið safn.“ „Það er nauðsynlegt að hafa eitthvað að dunda við, sem ekkert kemur við vinnunni,“ sagði systir Anna. „Hafið þið mörg önnur slík áhugamál til að vinna að í frístundum ykkar?“ „Já,“ svaraði systir Klem- enzia. „Við gerum ýmislegt. Ég hef mikinn áhuga á öllu tæknilegu. Tæknin er eigin- lega mitt stærsta áhugamál.“ Guðbrandur Magnússon kaupir frímerki banda barnabörnum sinum ai Axel Sigurðssyni. . (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Bragi Christiansen með fyrsta dags umslögin sín. ' 3SÍ, ' l'- \ Kristniboðssamkoma I Laugarneskirkju í kvöld ÞAÐ HEFUR verið venja kristniboðsflokksins „Vorperlu" að efna til kvöldsamkomiu fyrir almenning einu sinni á ári til styrktar kristniboðinu í Konsó. Nú gengst flokkurinn fyrir kristniboðssamkomu í Laugarnes kixkju í kvöld kl. 8.30. Þax tala þau Halla Bachmann, kristni- boði frá Filabeinsströndinni og prófessor Jóhann Hannesson. Má telja víst að kristniboðs- vinir og aðrir, sem vilja kynnast þessu starfi, fjölmenni á þessa samkomu í kvöld. Tekið verður á naóti gjöfum til kristniboðsins. Stjórnarkjör í Verðlagsráði sjávarútvegsins Á ALMENNUM fundi Verð- lagsráðs sjávart 1 .egsins, er haldinn var föstudaginn 2. þ.m. fór fram stjórnarkjör fyrir næ >ta starfsár. Kjörnir voru: Formaður: Ólaf ur Jónsson, fraimkvæmdastjóri, Sandgerði. Ritari: Jón Sigurðs- son, framkvæmdastjóri, Reykja vik. Varaformaður: Valgarð J. Ólafsson, framkvæmdastjóri, Kópavogi. Vararitari: Ingimar Einarsson, lögfræðingirr, Reykja vík. Framkvæmdastjóri ráðsins er Sveinn Finnsson, hdl. (Fréttatilkynning frá Verðlags- ráði sjávarútvegsins). STAK8TEII\IAR Gulldúkatar Nýskipaður. skólastjóra Gagn- fræðaskólans á Akureyri, Sverr- ir Pá'.sson, komist m.a. svo að orði í fyrstu setningarræðu sinni: „Þegar ég og yfirkennarinn vorum að skrifa alla nafnalist- ana, bekkjarskrámar fyrir nokkrum dögum, nafn eftir nafn í langa dálka, hundruð nafna, fannist mér ég sjá tvö spurul augu full eftiifc æntingár og barnslegrar forvitni, bak við hvert nafn — tvo gulldúkata eins og þá, sem Jón bóndi Hreggviðsson á Rein, sagðist eiga heima þegar hann sat í þjófakistunni á Beissastöðum. — Þeir guVdúkatar voru honum helgir dómar. Nú er þessum skóla trúað fyr- ir hundruðum slíkra gulldúkata helgustu dómum og dýrmætustu eign ótal foreldra, tii að svala fróðleiksþorsta þeirra og spurn að einhverju. Með því er skól- anum mikill trúnaður sýndur. Hann vill leitast við að glæða hið góða í hverri barnssál, sem honum er falin, gefa holl ráð. benda á það, sem til heilla horf- ir, svala þekkingarþonsta og glæða hann í senn. Hann ávaxt- ar gulldúkatana, en skólinn er háður mannlegum takmörkunum og getur ekki lofað öðru en við’eitninni. Nú blasa gulldúkat- amir hér við mér, ótal spural augu speglar ótal viðkvæmra sálna og ég segi við ykkur: Megi ykkur líða vel i skólanum. Um það getið þið sjálf ráðið miklu með viðhorfi ykkar til skóla- starfsins. Skólinn á að vera í senn, vinnustofa ykkar og ann- að heimili, sem ykkur þykir vænt um. Guð gefi að dvölin verði ykkur til bfessunar og gæfu“. Tækifærissteína Framsóknar Dagblaðið Vísir fjallar mn Frarrróknarflokkinn í forustu- grein í gær. Þar segir ma:‘ „Það er rétt, að kommúnism- inn hefur náð hér meiri fótfestu en á hinum Norðurlöndunum. En hverjum er það að kenna? Þar á Framsóknarflokkurinn stærstu sökina. Strax þegar öfga menn kommúnista komu héi fram á sjónarsviðið, fyrir um 35—40 árum, fóru sumir leið- togar Frarrróknarflokksins að gera gælur við þá, setja þá i ábyrgðarstöður og hlynna að starfsemi þeirra með ýmsu móti. Þessum fyrrverandi leiðtogum Framsóknar hefur að sönnu síð- ar orðið Ijóist, að þeir höfðu al- ið þann snák við brjóst sér, sem «1 mestrar óþurftar hefur orð- ið í íslenzkum þjóðmáfum fyrr og síðar, en þeir sáu það of seint, og þegar þeir fóru að vara flokfosbræður sína við hættunni, vildu yngri leiðtogarnir ekki hlusta á þá. Afleiðingin er sú, að enda þótt mestu ihaldsöfl landsins séu í Framsóknarflokkn um, er hann öðrum þræði gegn- sýrður af komnvínisma, m.ö.o. öfgarnar bæði til hægri og vinstri. Þessvegna er flokkurinn nú orðinn stefnulaus og aldrei hægt að átta sig á „afstöðu" hans í þjóðmálum." Óþurftarflokkur „Þetta er það, sem Tíminn er að reyna að tefja landsfólkinu trú um að sé öfgalaus milliflokk ur! Eflaust reyna leiðtogarnir að finna eitthvert meðalhóf — einhverja millileið — en það hefur, eins og allir mega sjá, ekki tekizt betur en svo, að flokkurinn er nú stefnulaust við rini í öllum máum, nema því einu, að vinna núverandi stjórn arstefnu sem mest ógagn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.