Morgunblaðið - 13.10.1964, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. okt. 1964
Réttindaiaus bílstjóri
flýöi af slysstað
KLUKKAN 19,30 á sunnudags-
kvöld ók bíll á tvo drengi, 10 og
11 ára, á Fossvogsvegi. Lenti
framendi bílsins á öðrum drengn
um, sem hentist í götuna, en hlið
bílsins straukst við hönd hins
drengsins.
Innbrot og
þjófnaðir
AÐFARANÓTT mánudags var
brotizt inn í húsakynni Bifreiða-
leigunnar Fals á Rauðarárstíg
31 og stolið um 14:500 krónum.
Rúða í glugga á afgreiðslu-
herbergi hafði verið brotin, þar
farið inn og um 5.000 kr. teknar
úr ka9sa, en um 9.000 úr samn-
ingaskjölum, sem geymd voru í
skáp.
Aðfaranótt sunnudags varð
lögregluþjónn var grunsamlegra
mannaferða í Gildaskólanum við
Aðalstræti. Kannaði hann máJið
Og handsamaði tvo menn, sem
brotizt höfðu inn, en ekki höfðu
þeir stolið neinu, þegar að var
komið.
Aðfaranótt laugardags var brot
izt inn í Úra- og skartgripa-
verzlun Magnúsar E. Baldvins-
sonar við Laugaveg. Stolið var
um 60 úrum, að því er eigandi
telur, en ekki er fyllilega vitað
um verðmæti þýfisins, þótt gizk
að hafi verið á 100 þús. kr.
Bílstjórinn „spýtti í“ og ók
á fullri ferð í burtu af slysstaðn-
um, án þess að sinna drengjun-
um. Þeir gátu gefið greinargóða
lýsingu á bílnum, og var lýst
eftir honum í útvarpinu um
kvöldið. Leiddi það til þess að
eigandi bílsins gaf sig fram við
lögregluna og benti á bílstjór-
ann. Var það bróðir eiganda, 16
ára og réttindalaus.
Sá drengjanna, sem skall í göt
una, meiddist á mjöðm og fæti,
en ekki munu þau meiðsii alvar
leg.
Perusala Lions-
klúbbs Kefla-
víkur
í KVÖLD ganga Lions-félagar i
húsin í Keflavík og bjóða ljósa-
perur með sanngjörnu verði.
Er þetta liður í tekjuöflun
klúbbsins vegna starfsemi hans,
en hún beinist einkum að því að
létta þeim stundir, er dvélja á
elliheimilinu Hlévangi og sjúkra
húsinu í Keflavík.
Að sjálfsögðu þurfa margir að
kaupa Ijósaperur fyrir skamm-
degið. Menn skyldu því hafa í
huga, ef þeir nú kaupa perur til
þess að lýsa skammdegið að með
því að kaupa Lions-perur geta
þeir stuðlað að því að enn fleiri
njóti þeirrar birtu.
(Frá Lions-klúbb Keflavíkur).
Kveðjur frá íslandi
til Bandaríkjanna á
degi Leifs heppna
1 TILEFNI dags Leifs
heppna í Bandaríkjunum 9.
október s.I., sendi Guðmund-
ur í. Guðmundssori, uatnrík-
isráðherra, Dean Kusk, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
kveðjur og skilahoð, og ís-
lenzk-ameríska félagið sendi
Lyndon B. Johnson, Banda-
ríkjaforseta, símsktyti í til-
efni dagsins.
Hér á eftir fer fréttatilkynn-
ing frá utanríkisráðuneytinu 10.
okt: um kveðjur vtanríkisráð-
herra íslands til utanríkisráð-
herra Bandarikjanna.
Utanríkisráðherra, Guðmund-
ur í. Guðmundsson, hefur beð-
ið sendifulltrúa Bandaríkjanna
fyrir skilaboð og kveðjur til ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
Dean Rusk, í tilefni af minning-
ardegi Leifs heppnj, Eiríksson-
ar, 9. okt., sem nú og fram-
vegis hefur verið gerður að sér-
stökum hátíðardegi Bandaríkj-
unum samkvæmt úrskurði
Bandaríkjaforseta.
í erindinu, sem utanríkisráð-
herra afhenti sendifulltrúanum
í þessu tilefni segir meðal ann-
ars, að þessi úrskuiður forseta
3andaríkjanna hafi vakið mikla
athygli hjá íslendingum, sem
telji sér það til gildis að hafa
varðveitt í fornbókmenntum sín
um frásagnir um ferðir Leifs
heppna og fund Vínlands.
Ennfremur segir, að þess sé
l'ka minnzt í sambandi við
þennan hátíðardag, með þakk-
læti af hálfu íslenzku þjóðar-
innar, að Bandaríkjaþing hafi
árið 1930, í tilefni a* Alþingis-
hátíðinni, sent íslendújgum að
gjöf myndastyttu af Leifi
heppna með áletrun á fótstálli,
þar sem tekið hafi verið sér-
staklega fram, að það sé sonur
íslands Leifur Eiríksson, sem
fyrstur manna hafi fundið Vín-
land.
ð Skeyti til Johnsons
1 skeyti íslentk-ameriska fé-
lagsins til Lyndons B. Johnson,
Bandaríkjaforseta, 9. okt. s.l. seg
ir:
•— í nafni íslenzk-ameríska fé-
lagsins sendi ég yður þakkir og
kveðjur í tilefni yfirlýsingar yð
ar þar sem þér ákveðið, að 9.
október verði dagur Leifs Eiríks
sonar. Við minntumst dagsins
hér í Reykjavik við styttu hins
mikla sæfara, sem Bandaríkja-
þing gaf íslenzku þjóðinni 1930
með áletruðum þessum minnis-
stæðu orðum: „Leifur Eiríksson,
9onur íslands, sem fann Vín-
landú' Ákvörðun yðar hefur
treyst samstarfið og vináttu-
böndin. Virðingarfyilst Benjá-
mín Eiríksson, forseti íslenzk-
ameríska félagsins.
é Fœddur í Noregi
Mbl barst um heigina skeyti
frá Associated press, þar sem
segir, að í fréttatilkynningu, sem
utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna sendi út snemma í síðustu
viku, stándi m.a., að Leifur Ei-
ríksson hafi verið fæddur í
Noregi og farið til Grænlands
sem sendimaður Noregskonungs.
Surtur breytir
um steinu
Mjög fagurt var að sjá í
gærkvöldi frá Heimaey til
Surtseyjar. Sést irikil hraun-
elfa renna til su V‘usturs og
austurs, en hefur áður ruitn ó
til vesturs og suðvesturs, svo
að Surtsey hefur hulið hrauu
rennslið að mestu, séð fri
Heimiacy. Nú viriist hraunið
renna yfir tagltð, seir. áðui
skyggði á.
Harður árekstur
KLUKKAN 5 á sunnudagsmorg
un varð harður árekstur á mótV
um Réttarholtsvegar og Bústaða
vegar, þegar bíll, sem ók austur
Bústaðaveg, lenti á mikilli ferð
á miðjum bíl, sem kom suður
Réttarholtsveg. Bílarnir skemmd
ust mjög mikið, og tveir farþeg-
ar, sinn í hvorum bíl, slösuðust
eitthvað.
Austur-þýzkur flóttamaðurl
á leið gegnum göng undirj
múrinn í Berlín um síðustu,
helgi. Sem kunnugt er tókst
57 mönnum að flýja um göng'
þessi áður en austur-þýzkir|
landamæraverðir uppgötvuðu,
þau að austan. Nokkrir flótta
menn voru í göngunum, þegar'
fyrstu skotin, riðu af, en engl
Ían þeirra sakaði. Þegar þeir.
voru komnir upp, var göng-J
unum lokað, sem fyrr segir.i
Manni
bjargað
UM klukkan fimm á sunnudags-
morgun áttu tveir lögregluþjón-
ar leið um Óðinsgötu. Sáu þeir
þá reyk leggja út úr húsinu
nr. 6. Brutust þeir inn í húsið
og inn í herbergi, þar sem með-
vitundarlaus maður lá innan um
eld og mikinn reyk. Báru þeir
manninn út og komu honum upp
á Slysavarðstofu, þar sem hann
rankaði við sér. SlökkvIIiðið kom
á vettvang og slckkti, en eldur
var í rúmfötum og í gólfteppi.
Norðurflug -
jómfrúferð nýju
vélarinnar
Akureyri, 12. okt.
TRYGGVI Helgason fór í dag í
fyrstu flugferðina í hinni nýju
flugvél Norðurflugs, TF—JMD.
Sótti hann sjúkling til Vopna-
fjarðar og flutti hingað til Akur-
eyrar. Auk þess tók hann tvo
faþega á Egilsstöðum í baka-
leið. Gekk ferðin í alla staði prýði
lega. — Sv. P.
Afhendir trún-
^ aðarbréf
[INN 8. þ.m. afhenti Thor Thors,
mbassador í Brazilíu, herra for-
eta Brazilíu Humberto de Alen-
ar Castrello Branco, trúnaðar-
►réf sitt sem ambassador, en
ann hefur verið sendiherra
minister) þar í landi síðan 1952
aeð búsetu í Washington.
Athöfnin fór fram í forseta-
öllinni að viðstöddum utanríkis
áðherra Brazilíu, herra Vasco
,eitao da Cunha.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Síldaraflinn oröinn
2.592.905 mál og tu.
Rússar hindra veiðar íslendinga
G Ó Ð síldveiði var sl. viku og
hagstætt veður mestan hluta vik-
unnar.
Veiðisvæðið var 60—70 sjómíl-
ur ASA frá Dalatanga, en á sömu
slóðum hefur verið mikill fjöldi
rússneskra skipa, sem stunda
síldveiðar í reknet, og hafa þau
valdið íslenzkum skipum óþæg-
indum við veiðarnar.
Milli 60—70 skip stunda enn
síldveiðar, en um sama leyti í
Frá Akranesi
Akranesi, 12. ókt.
Vb. Sólfari var einn báta úti
héðan í nótt og fékk 500 tunn
ur af síld úti í Kolluál. Síldin
er afbragðsgóð; ÖT söltuð.
Hér er danska skipið ms. Nord
land Saga, kom á la. gardag, og
losar nú 650 tonn af síldarsalti
til söltunarstöðvanna. í gær-
kvöldi kl. 10 kom ms Arnarfell
með 4.700 tómtunnur undir síld
til söltunarstöðvanna. Ms. Blá-
fell losar hér olíu.
| NA 15 hnútar
[ / SV 50 hnútsr
fyrra var síldveiðum lokið fyrir
Norður- og Austurlandi.
Vikuaflinn nam 69.147 máluna
og tn. og var heildaraflinn orð-
inn sl. laugardag 2.592.905 mál og
tn., sem skiptist þannig eftir
verkunaraðferðum:
í salt 350.849 upps. tn.
í frystingu 39.881 uppm. tn.
í bræðslu 2.202.175 mál.
Helztu löndunarhafnir eru
þessar:
Seyðisfjörður
Raufarhöfn
Neskaupstaður
Siglufjörður
Vopnafjörður
Eskifjörður
Reyðjarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Við Vestmannaeyjar
veiðum almennt lokið
ustu mánaðamót. Um
mál og tn.
451.782
424.002
382.001
282.833
232.123
208.026
155.311
137.291
var síld-
um síð-
15—20
H Sn/Hama
9 U
f'ltj
V Skvrir
S Þrumur
bátar stunduðu þessar veiðar að
jafnaði á timahilinu 1. júni til
septemberloka og öfluðu 168.913
mál. —
(Frá Fiskifél. fslands)
HihiM U Lati ,
NA-áttin var talsvert farin að
minnka í gær. Sunnan lands
var ljómandi veður, nær heið
skírt og allt að 13 st. hiti
(Kirkjubæjarkl.). Norðan-
lands var þokuloft og 1—4
st. hiti. — Lægðin S af Græn
landi komst lítt áfram, og er
líklegt, að hún fari fyrir S
land.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi til kl. 24.00 á mið-
nætti í kvöld:
SV-land til Breiðafjarðar,
SV-mið og Faxaflóamið: A
eða NA kaldi og léttskýjað
í nótt en vaxandi A-átt og
þykknar upp á morgun, all-
hvasst og rigning annað
kvöld.
Vestfirðir, Breiðafj.mið og
Vestfj.mið: Vaxandi A-átt,
viða hvasst og rigning annað
kvöld.
Norðurland, NA-land og
miðin: NA kaldi og þoka eða
súld í nótt. SA stinningskaldi
og bjartara á morgun.
Austfirðir, Austfj.mið og
austurdjúp: NA stinnings-
kaldi og dálítil rigning. Batn
andi á morgun.
SA-land og miðin: N kaldi
og léttskýjað í nótt, SA kaldi
og þykknar upp síðdegis.