Morgunblaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 6
MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. okt. 1964 0 Ungt íslenzkt tónskáld vekur othygli í Finnlandi Helsinki, 7. október, AP. Einkaskeyti írá AP. EITT af staerstu dagblöðum Finnlands birti í dag viðtal við Leif Þórarinsson, ungt ís- lenzkt tónskáld sem kom til Helsinki til að vera við Nor- rænu Tónlistarhátíðina, sem lauk hér í dag. Fer blaðið lof- samlegum orðum um Leif og kveður hann vera með efni- legustu upprennandi tónskáld um á Norðurlöndum nú. í viðtali við „Huvudstads- bladet“ er Leifi lýst sem at- hyglisverðasta og mest áber- andi fulltrúa íslands á tón- listarhátiðinni. „Hann er þrít- ugur“ segir í blaðinu, „en lít- ur ekki út fyrir að vera meira en svona 20 ára. Það kæmi manni ekki á óvart, þótt þessi róttæki ungi maður væri ætt- aður af Finnlandi, Svíþjóð eða Danmörku, og tæplega hefði það verið tiltökumál að held- ur þó hann væri norskur, en hitt má telja til nýlundu að slíkan gest beri að garði frá íslandi. Það er skemmtilegur fyrirboði um að eitthvað sé í aðsigi í tónlistarlífinu þar.“ „Leifur Þórarinsson er mað Leifur Þórarinsson ur mjög ákveðinn í skoðun- um“ segir „Huvudstadsbladet" ennfremur „Og hefur skapað sér örugga yfirsýn yfir tón- listarlífið heima á íslandi og í heiminum yfirleitt. Hann flytur mál sitt skpruglega og af festu og maður verður ekki var við að neitt þjóðarstolt hái honum, (a.m.k. ekki til muna), þegar hann er að lýsa fþví sem áfátt sé í íslenzku tónlistarlífi“, segir blaðið. í gagnrýni um tónlistarhá- tíðina á öðrum stað í blaðinu er rætt um Pál ísólfsson, sem blaðið kallar „The Grand old man“ íslenzkra tónskálda“ og m. a. sagt frá því, að. í þýzku kirkjunni þar hafi verið leikið verk hans, „Ostinatio et fug- hetta“ og hafi það verið „mjög íslenzkt verk og áheyri legt“. Flutningur þess var einnig innan ramma Tónlistar hátíðarinnar í Helsinki, sem eins og áður sagði, lauk á þriðjudag. Bók um íslenzk- ar frdsagnir aí ferðum frd Grænlandi til N.-Ameríku gefin út í Osló Umsókntr óskast um Cleveland-styrk Einkaskeyti frá Associated Press 9. okt. t DAG, á „Degi Leifs heppna“ í Bandaríkjunum, kom út hjá for- lagi Oslóarháskóla ný bók á ensku eftir J. Kr. Tornö, sem fjallar um frásagnir í íslenzkum bókmenntum af ferðum norr- ænna manna frá byggðum þeirra á Grænlandi til N.-Ameríku, 500 árum áður en Kólumbus kom þangað. Ljóst er, að Tornö telur, að íslenzku frásagnirnar af sjó- ferðum hinna norrænu manna, gefi sanna mynd af þeim. Hann er þeirrar skoðunar eins og norski könnuðurinn Helge Ing- stad, að sögurnar séu sannar. En, sem kunnugt er, voru það norr- ænar fornminjar frá því um árið 1000, er Helge Ingstad fann á Nýfundnaland, sem áttu mestan þátt í því að samþykkt var að halda „Dag Leifs heppna“ í Bandaríkjunum. Það er sérfræðinga að dæma um hvort túlkun Tornös á sög- unum er réttari en túlkanir fyrir- rennara hans, en hvað sem því líður, dregur hann fram mörg athyglisverð atriði til rökstuðn- ings kenningar sinnar um sann- leiksgildi þeirra. Meðal atrið- anna, sem Tornö leggur mikla Hrútasýning AKRANESI, 10. okt. f gærkveldi kl. 20.30 var hald in hrútasýning hér. Hrútarnir voru tólf. Fyrstu verðlaun hlutu veturgamall hrútur, Gulur, eign Eyjólfs Búasonar, og tvævetur hrú.tur, Pjakkur, eigandi Valdi- mar Sigurjónsson. Dómari Guð- mundur Pétursson. áherzlu á, er að víkingaskip gátu farið með 11 hnúta hraða, en til þessa hefur verið gert ráð fyrir að þau hafi farið með 6-7 ■k EKKI ÁSTÆÐa TIL ÁSAKANA BREF, sem birtist í Vel- vakanda á sunnudaginn, varð til þess að upplýsa, að viðtal, sem birtist í Mbl. í síðustu viku um að piltur einn hefði séð Bítlamyndina í Tónabíó 30 sinnum, var ekki á rökum reist. Hins vegar hafði piltur sá, sem nefndur var í viðtalinu, verið nokkrum sinnum að sjá myndina þar eð hann leikur á gítar og var að læra lögin í myndinni. Ekki er því ástæða til ásakana, sem bréfritari gat þó ekki vitað um. k LEIFUR HEPPNI Margir hafa hringt og spurt að því, hvort Norðmenn hafi einhvern einkarétt á Leifi heppna. Ekki vitum við til þess að svo sé, en hins vegar hafa Norðmenn lengi eignað sér manninn. Mér skilst, að þetta hafi víða borið á góma að undanförnu — í sambandi við allan áróðurinn, sem Norðmenn höfðu frammi í Bandaríkjun- um á Leifs Eiríkssonar daginn. En við getum engum nema sjálfum okkur um kennt. Ef hnúta hraða. í bók sinni skýrir Tornö frá tveimur ferðum ætt- ingja og afkomenda Leifs heppna frá Grænlandi til N.-Ameríku. Auk þess að gefa lifandi mynd af lífi og rannsóknum þessara manna, gefa frásagnir af ferðum þeirra nokkra hugmynd um hvar Leifur reisti sér búðir, því að mennirnir, sem héldu til N.- Ameríku á eftir honum notuðu þær sem bæ-kistöðvar og héldu þaðan t.d. til Manhattan og suð- ur að Chesapeake-flóa í Norfok. umheimurinn er þeirrar skoð- unar, að Leifur Eiríksson hafi verið Norðmaður, þá ættum við ekki að kenna öðrum en sjálfum okkur — a.m.k. á með- an við hreyfum hvorki legg né lið til þess að breyta því áliti, eða skoðun. ★ KYNNINGARSTARF Þessi fyrsti Leifs Eiríks- sonardagur gaf auðvitað gull- vægt tækifæri, sem Norðmenn notuðu á mjög smekklegan hátt hvað svo sem segja má um aðrar hliðar málsins. Okkur hefði verið í lófa lagið að gera eitthvað hliðstætt, en hér virt- ist bara enginn hafa rænu á neinu slíku. Íslenzk-ameríska félagið var eini aðilinn, sem áttaði sig á þessu — a.m.k. áð- ur en margumræddur dagur var að kveldi kominn. Hér hefur ekki ríkt allt of mikill skilningur á nauðsyn þess að reka áróður og kynn- ingu úti í hinum stóra heimi. Og hans ætti ekki sízt að vera þörf fyrir jafnlítið og óaðlað- andi land, sem ísland hlýtur að vera framandi þjóðum. Það bjargar litlu að ergja sig yfir framtaki annarra. Þessi reynzla ÍSLENZKIR aðilar, tíu alls, hafa nú í þrjú ár tekið þátt í Cleve- land-áætluninni fyrir starfsmenn á sviði æskulýðs- og barnavernd- armála en þátttakendum frá ýms um þjóðum er árlega gefinn kost ur á að kynna sér slíka starfsemi vestan hafs. Var kynningarstarf þetta í upphafi einungis bundið við borgina Cleveland , Ohio, en síðan hafa fleiri stórborgir gerzt aðilar að þessu merka starfi. Nú er hafinn undirbúningur að námsdvöl útlendinga á vegum ClP-áætlunarinnar á næsta ári, og gefst allt að þrem íslending- um kostur á að taka þátt í nám- skeiðinu, sem stendur í rúma fjóra mánuði (hefst í apríl og stendur til ágústloka). Koma þeir einir til greina, sem eru á aldrin- um 21—40 ára, en umsækjendur á aldrinum 25—35 ára verða látn- ir ganga fyrir að öðru jöfnu. Þá er það skilyrði fyrir styrkveit- ingu að umsækjendur hafi gott vald á enskri tungu, og einnig verða þeir að hafa starfað að æskulýðsmálum, leiðsögn Og leið- beiningum fyrir unglinga eða bamaverndarmálum. Þeir, sem stunda skrifstofustörf í sambandi við þessi mál, koma ekki til greina, heldur aðeins þeir, sem eru í beinni snertingu við böm og unglinga í daglegum störfum sínum. Þeir, sem notið hafa sér- menntað í þessum efnum, verða látnir ganga fyrir um styrkveit- ingu. Þáttakendur af íslendinga hálfu á þesu ári voru Tómas Einarsson, Holtsgötu 22, Reykjavík, lögreglu þjónn og Hólmfríður Gísladóttir, kennari á Akureyri. Þeir, sem hafa hug á að sækja um styrki þá, sem nú eru í boði, ætti hins vegar að verða til þess að vekja þá, sem forystu ættu að hafa í málum sem þess- um. Rafmagnið — ekki þægindin ein Og hér kemur bréf frá Rauf arhöfn, frá Fríðu í Búðinni: Raufarhöfn30—7 Heill og sæll Velvakandi! Ljáðu mér línu og eyra, af því þú ert svo spakur maður þá segðu mér hvað þér finnst. Hér er alltaf verið að vinna við raflögn hefur reyndar staðið yfir í fleiri ár. Það má segja að líf okkar flestra er háð rafmagni að meira eða minna leyti, en þetta hefur allt gengið ágætlega þangað til í vetur að nýr maður tók við þessum rafmagnsaðgerðum. Það er nú svo í flestum húsum hér að ef rafmagnið fer þá er ekkert Ijós, ekkert vatn, eng- inn hiti, þetta hefur oft komið sér afar illa eins og t. d. í sum- ar. Eina nóttina var kona að fæða, þá var rafmagnið tekið fyrirvaralaust eins og oftast er gert, ljósmóðirin gat ekki soðið áhöld sín, og eftir fæð- geta fengið umsóknareyðublöð þar að lútandi í menntamála- ráðuneytinu eða Upplýsinga- þjónustu Bandaríkjanna, Haga- torgi 1, Reykjavík, en á báðum stöðum geta menn einnig fengið nánari upplýsingar um styrkina og námskeiðin. Umsóknir skulu hafa borizt öðrum hvorum ofan- greindra aðila eigi síðar en föstu daginn 30. október, og skulu um- sækjendur vera við búnir að koma til viðtals hjá Upplýsinga- þjónustu Bandaríkjanna fimmtu- daginn 5. nóvember eða föstu- daginn 6. nóvember, því að um miðjan nóvember mun koma hingað starfsmaður CIP til frek- ara viðtals við umsækjendur. Aðalfundur D.S.Í. AÐALFUNDUR Danskennara- sambands íslands var haldinn laugardaginn 19. september 1964 í Þjóðleikhúskjallaranum. Þetta er annað starfsár félgsins, en til- gangur þess er: Að efla og sam- ræma dansmenntun í landinu, að gæta hagsmuna félagsmanna út á við og inn á við, að efla stéttvísi meðal danskennara, að koma í veg fyrir að réttur félagsmanna sé fyrir borð borinn í atvinnumálum og að auka dans- menntun félagsmanna. Stjórn félaigsins var einróma endurkosin, en hana skipa: Edda Seheving, Heiðar Ást- valdsson, Hermann R. Stefáns- son, Katrín Guðjónsdóttir og Sigríður Ármann. ingu hvorki þvegið barni né móður. Það hefur verið taiað um þetta við rafstöðvarstjóra hér á staðnum, — hann er alveg sérstakt ljúft og lipur- menni sem æfinlega greiðir hvers manns vanda ef hann mögulega getur, en þetta segist hann ekki ráða við, rafmagns- viðgerðarflokkurinn kemur raf stöðvarstjóra ekkert við. í sumar fengum við slæma hálsbólgu, kvef og hita svo það var látið loga á miðstöðinni. Um nóttina vaknaði ég við hávaða, en þegar aðkomufólk er margt á staðnum heyrist svo margskonar utanaðkom- andi hávaði að ég skifti mér ekki að því. Um morguninn var erfitt að vakna loftið var þungt og svart, allt og allir kolsvart. Það hafði orðið sót- sprengin í miðstöðinni. Þegar rafmagnið er tekið slokknar loginn, en olían heldur áfram að. renna inn, þá myndast gas- loft sem veldur sprengingu. Það var mikið verk að hreinsa allt húsið, loft, veggi, gólf, teppi, húsgögn, gluggatjöld og fatnað, ég er ekki búinn ennþá. Segðu mér Velvakandi hvort við sem borgun rafmagnið verðum að sætta okkur við all- ar þær aðgerðir sem hið mikla rafmagnsveldi gerir. Með beztu kveðju. Fríða í Búðinni. RAUÐU RAFHLÖDURIVAR fyrir transistor viðtæki. Bræðurnir Ormsson hf Vesturgötu 3. — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.