Morgunblaðið - 13.10.1964, Side 28

Morgunblaðið - 13.10.1964, Side 28
HMdlSdOllGfl JELEKTROUUX UMBOÐIÐ iAUOAVEGI 4? s.'mi 21800 bilaleiga magnúsar skiphiolt 21 ■Imar: 21190-21185 0 0 0 0 0 0 z z z w v. w> C C C | r p r 1 0 o o I o 0 c 1 Síld í Grund- arfirði Grundarfirði, 12. okt. V UNDANFARNA daga hefur J orðið vart nokkurrar sildar / hér í Grundarfirði. Er hér J einkum um að ræffa smáa millisíld, en innan um er þó nokkuff af stærri síld. í dag kom v.b. Runólfur með 15—1600 tunnur, sem fara £ bræðslu í Ólafsvík. Annar bátur, v.b. Valafell frá Ólafsvík, hefur og fengið dá- góðan afla. Þetta minnir nokkuð á haustið 1953, en þá fylltist fjörðurinn hér af síld, og fjöldi skipa stundaði hér síld veiðar. Menn sakna þess nú mjög, að ekki skuli vera síld arbræðsla hér á staðnum eða önnur aðstaða til nýtingar á aflanum. E.M. Síldveiðar um helgina HAGSTÆTT veður var á síldar- miðunum eystra sólarhringana frá laugardagsmorgni til sunnu- dagsmorguns og frá sunnudags- mongni til mánudagsmorguns. Fyrri sólarhringinn fengu 17 skip 14.250 mál og tunnur, en þann síðari 23 skip 16.800. Rússnesku geimfararnir þrír, sem skotið var á loft í gær. Taliff frá vinstri: Vladimir Komarov, Konstantin Feoktistov og Boris ifegorov. (Simamynd frá AP). Rússneskt geimfar me5 þremur mönnum á braut umhverfis jörðu Gunnar Thoroddsen Ahöfnin vinnur aö rannsóknum úti í geimnum Moskvu, 12. október. — (AP-NTB) — SOVÉZKIR vísindamenn skutu í morgun á loft nýju geimfari með þremur mönn- um um borð. Skotið tókst mjög vel og er geimskipið á braut umhverfis jörðu. Geimskipið nýja nefnist „Voskhod“ eða sólarupprás og er hið stærsta, sem skotið hefur verið á loft. Hingað til hafa Sovétríkin og Bandarík- ríkin aðeins sent eins manns geimför á hraut umhverfis jörðu. Voskhod fer umhverfis jörðu á um 90 mínútum, og er mesta fjarlægð skipsins frá jörðinni 409 kílómetrar en minnsta fjarlægð 178 km. Bíll veltur fram af bryggju Feðgar í bílnum björguðust Heyrzt hefur til skipsins í athugunarstöðvum víða um heim, og sjónvarpsmyndir teknar um horð hafa verið sýndar í Moskvu. Um borð í Voskhod eru þre* Framhald á bls. 17. Ólafsvik, 12. okt. ÞAÐ óhapp vildi til hér í dag, aff vörubili meff tveimur mönn- um fór fram af hafnargarffi. Báð ir björguffust, en bíllinn er mik iff skemmdur. Óhappið var með þeim hætti, Fjármálaráðherra ræðir skattamál á Varðarfundr FUNDUR verður haldinn í Landsmálafélaginu Verði í kvöld 1 Sjálfstæðishúsinu og hefst hann kl. 20,30. Frummælandi á fundinum verður Gunnar Thoroddsen, fjár málaráðherra, og umræðuefni er: SKATTAMÁLIN. að vörubíllinn P-510 var að aka aftur á bak niður suðurgarðinn nýja, sem er í smíðum, með fuílt hlass af grjóti. Bílnum ók eig- andi hans, Helgi Salómonsson, og með honum í bílnum var son ur hans, Svavar, tólf ára. ! Á leiðinni niður garðinn lentu afturhjól bílsins ofan í skarði, sem skerst inn í garðinn. Við það sprakk kanturinn á garð- inum, og skipti það þá engum togum, að bíllinn valt á hliðina, valt síðan þrjár eða fjórar velt- ur niður eftir garðinum og fór síðan á hvolfi fram af. Þarna er 5—6 metra fall niður að sjó. Bíllinn sökk þegar, svo að hjól- in rétt aðeins stóðu upp úr. Mun Stórsigur lýðræðissinna í Iðju — fylgishrurt kommúnista og Framsóknar Lýðræðissinnar sigruðu einnig í Múrarafélaginu IDJA. félap verksmiffjufólks í Reykjavík og Múrarafél. Reykja- víkur kusu um helgina fulltrúa sina á 29. þing Aiþýðusambands tslands Lýðræðissinnar unnu báðar þessar kosningar með tals- verffum yfirburðum gegn sameig- Inlegum lista Framsóknarmanna og kommúnista. í Tffju hlaut B-listinn 766 at- kvæffi (65 af hundraði) og alla 19 fulltrúana. A-listi kommún- Ista og Framsóknarmanna hlaut 386 atkvæði. I siðasta fuiitrúa- kjöri hiaut listi lýðræðissinna 682 atkv. en listar kommúnista og Framsóknarmanna 557 atkv. — B-listi lýðræðissinna, borinn fram af stjórn og trúnaðarmanna ráði félagsins hefur því unnið 84 atkv., en kommúnistar og Fram- sóknarmenn tapað 171 atkv. eða um þriðjung atkvæðamagnsins frá síðustu kosningum. í Múrarafélagi Reykjavikur hlaut A-listinn, listi lýðræðis- sinna, sem borinn var fram af stjórn félagsins og trúnaðar- mannaráði, 128 atkv. en B-listi kommúnista og Framsóknar- manna hlaut 73 atkv. í stjórnar- kjöri í félaginu í febr. sl. hlaut A-listinn 128 atkv. en B-listinn 63 atkv. A-listinn hlaut því fuil- trúana þrjá, sem M.R. sendir til Alþýðusambandsþings. 1963 hlaut B-listinn 78 atkv. og er atkvæða- tala þeirra nú ein hin lægsta í sögu félagsins. Þá var einnig fulltrúakjör £ fé- lagi afgreiðslustúlkna í brauð- og mjólkurbúðum. Þar hlaut A- listi kommúnista 123 atkv. en B- listi lýðræðissinna 43 atkv. — Framhald á bls. 17. dýpið vera um þrír metrar. Hliðarrúða í bílnum var opin, og þegar bíl'húsið hafði fyllzt af sjó, tókst þeim feðgum að fara út um gluggann og komast upp úr af eigin rammleik. Virð- ist þeim ekki hafa orðið meint af, nema hvað Helgi mun hafa fengið högg fyrir bringuna. Krani frá Almenna bygginga- félaginu, sem var við vinnu úti í Rifi, var sóttur. Náði hann bíln um upp. Hann er mjög illa far- inn, húsið m.a. stórskemmt. — H. K. Birgir Finnsson Birgir Finnssori kosinn f orseti S.þ. FUNDUR var í Sameinuðu þingi í gær. Hófst hann með því, að Ólafur Thors, aldursforseti Al- þingis, setti fund. Tveir vara- menn taka nú sæti á þingi. Ósk- ar Jónsson tekur sæti fyrir Fram sóknarflokkinn í stað Björns Fr. Björnssonar, 4. þm. Sunnl. og Arnór Sigurjónsson fyrir Alþýðu bandalagið í stað Björns Jóns- sonar 4. þm. Norðurl. e. Tekur sá síðarnefndi sæti á þingi nú í fyrsta sinni. Fyrst voru tekin til meðferðar kjörbréf ofannefndra varamanna. Með því að Óskar Jónsson hefur áður setið á þingi á þessu kjör- tímabili, var áður búið að sam- þykkja kjörbréf hans. Kjörbréfa nefnd tók hins vegar kjörbréf Arnórs Sigurjónssonar til með- ferðar, sem síðan var samþykki samhljóða. Síðan hófst kosning forset* Sameinaðs Alþingis. Var Bingi* Finnsson 2. landsk. þingm. kjör- inn forseti Sameinaðs þings með 32 atkv., Karl Kristjánsson hlaut 18 atkvæði og Hannibal Valdi- niarsson 8 atkv. 1. varaforseti var kjörinn Sigurður Ágústsson með 32 atkv., auðir seðlar voru 27 og 2. varaforseti Sigurður Inigimund arson með 31 atkv., Benedikt Gröndal hlaut 1 atkv., auðir seðl ar voru 26. Samkv. ósk Eysteins Jónsson- ar, formanns Framsóknarflokks- ins, var kosningu kjörbréfanefnd ar frestað. Var fundi síðan frest- að. í dag verður svo kosið i kjör- bréfanefnd. Þá verður einnig kosið í deildum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.