Morgunblaðið - 18.10.1964, Side 16
16
MOHGUNBLAÐIÐ
Sunnudagllr 18. okt. 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
1 lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
ENN LOGAR AUSTUR
í KREML
¥jað er nú augljóst orðið, að
brottvikning Nikita Krús-
jeffs úr embætti forsætisráð-
herra Sovétríkajnna sprettur
ekki af vanheilsu hans eða
háum aldri. Ástæðan er allt
önnur og örlagaríkari. Hún er
sú, að enn loga eldar í Kreml
og innan rússneska kommún-
istaflokksins. — Rússneskir
kommúnistar hafa enn einu
sinni orðið að fórna leiðtoga
sínum til þess að breiða yfir
margvísleg mistök, skamm-
sýni og galla sjálfs hins komm
úníska skipulags.
Víða um hinn frjálsa heim
var Nikita Krúsjeff talinn
góðviljaður maður, sem hefði
einlægan áhuga á bættri sam-
búð Sovétríkjanna við hinar
vestrænu lýðræðisþjóðir. —
Ýmsir virtu hann einnig fyrir
það að hann hafði manndáð
til þess að fletta ofan af
glæpaverkum Stalíns og játa
fjölmörg víxlspor og vitleys-
ur rússneska kommúnista-
flokksins. Sú staðreynd verð-
ur heldur ekki sniðgengin, að
Sovétríkin hafa á valdatíma-
bili Krúsjeffs mildað stjórn-
arfar sitt verulega og aukið
friðsamleg samskipti við aðr-
ar þjóðir á fjölmörgum svið-
um.
Engum hugsandi manni
getur dulizt, að vitanlega
eiga varnarsamtök vestrænna
lýðræðisþjóða ríkastan þátt-
inn í því að stöðva framsókn
hins alþjóðlega kommúnisma
og gera Rússum þar með ljóst,
að frekari árásum af þeirra
hálfu yrði svarað með sam-
eiginlegum varnaraðgerðum
hins frjálsa heims. Árásir af
hálfu Sovétríkjanna myndu
ekki borga sig fyrir þau.
Þvert á móti myndu þau hafa
í för með sér hrun og upp-
gjöf.
Það er engum vafa bundið,
að hið alvarlega ástand og
öngþveiti í efnahagsmálum
Rússa á ríkan þátt í því að
Krúsjeff hefur nú verið vikið
frá völdum. Hin harða og ó-
sveigjanlega afstaða hans
gagnvart Pekingstjórninni og
áform hans um bætta sambúð
við vestrænar lýðræðisþjóðir
kunna einnig að eiga sinn
þátt í falli hans. En það eru
vandræðin sem leiða af ó-
stjórn og mistökum Sovét-
stjórnarinnar í innanlands-
málum, sem að öllum líkind-
um eru þyngst á metunum.
Það hefur alltaf verið háttur
rússneskra kommúnista að
fórna leiðtogum sínum til
þess að breiða yfir svik sín
við fólkið og galla hins komm
úníska skipulags.
Það er vissulega kaldhæðni
örlaganna að heyra sam-
starfsmenn Krúsjeffs í mið-
stjórn kommúnistaflokksins
þylja nú svipaðar ásakanir
yfir honum og Krúsjeff flutti
áður yfir Stalín og ýmsum
öðrum fyrri samverkamönn-
um sínum.
Margt á vafalaust eftir að
koma fram í dagsljósið enn
um ástæðurnar fyrir falli
Krúsjeffs, og ekki er ólíklegt
að það sé aðeins upphaf nýrra
stórpólitískra viðburða í Sov-
étríkjunum á næstunni. Allur
heimurinn veit nú, að sovézki
kommúnistaflokkurinn logar
enn að innan af deilum og á-
tökum leiðtoga sinna. Sú stað
reynd mun hafa mikil og víð-
tæk áhrif á samtök og bar-
áttu kommúnista víða um
heim.
ÖLÍKT STJÓRN-
ARFAR
CHjórnarskipti hafa nú orðið
í tveimur stórveldum. Að-
dragandi þeirra og aðferðin
eru þó með ólíkum hætti. í
Bretlandi fóru fram lýðræðis-
legar kosningar, en austur í
Kreml var enn beitt hinum
kommúnísku aðferðum og
með fylgdu hreinsanir á
helztu skjólstæðingum Krús-
jeffs á æðstu stöðum.
Það hefur enn komið í Ijós,
að kommúnisminn er ein-
ræðisstjórnarfar, og honum
fylgja öll einkenni þess.
Mannkynsagan greinir frá
margri harðstjórn og einræði,
en engin hefur verið jafn
blóðug og grimmileg og
kommúnisminn. Hvergi hef-
ur líf og starf stjórnmála-
manna verið minna virði.
í samtali við Mbl. á dögun-
um sagði félagi Einar Olgeirs-
son stjórnarskiptin í Kreml
vera skynsamlega nýbreytni,
einkum skiptingu á stöðum
æðsta manns ríkisins og
kommúnistaflokksins. — Það
fyrirkomulag er þó ekki
mikil nýbreytni, því að tví-
eykisfyrrkomulagið hefur áð-
ur verið reynt austur þar.
Krúsjeff var þó fljótur að
losa sig við Búlganín og ekki
er gott að spá um það, hvor
skákar hinum fyrr, Kosygin
eða Brezhnev.
Kommúnisminn hefur ekki
fært þegnum sínum fegurra
né betra líf. Kommúnisminn
hefur í sér fólgna alla ókosti
harðstjórna sögunnar. Þar
Fólkið hér á myndinni eru hin
fyrrverandi hjón, Serge Beauv-
ariet og Valérie Lagrange. Saga
þeirra er í stuttu máli svona:
Serge var einn bezti og þekktasti
tízkuljósmyndari í París óg tók
hann myndir af öllum þekktustu
leikkonum og ljósmyndafyrirsæt
um. Hann hitti Valérie og tók
af henni myndir og gerði hana
á skömmum tíma mjög fræga.
JHón gerðist leikkona og þótti
góð. Þau giftust og áttu barn,
sem nú er 3 ára gamalt. Serge
var eyðslusamur og eyddi jafnan
meiru en hann vann sér inn, þó
hann væri vel launaður. Að lok-
um fór svo, að Valérie undi ekki
lengur sambúðinni og þau skildu.
Sendu þau son sinn upp í sveit,
en hún hélt áfram að leika en
hann að ljósmynda. Hann hélt
áfram að vera eyðslusamur og
þótti drekka meira en góðu hófi
gegndi. Eitt sinn fór hann til
nokkurra vina sinna og bað þá
um að lána sér peninga, en þeir
héldu að hann væri að gera að
gamni sínu. Hann fór heim, tók
fram allar þær myndir, sem
hann hafði tekið af Valérie og
dreifði þeim í kringum sig og
skrúfaði frá gasinu.
Þegar Valérie bárust þessar
fréttir klæddist hún sorgarbún-
kemur eitur í glasi og hnífur
í ermi í stað kjörseðlanna,
sem brezka þjóðin merkti sl.
fimmtudag í einrúmi og í sam
ráði við samvizku sína og
st jórnmálaskoðun.
VEIK STJÓRN
í BRETLANDI
T rökréttu framhaldi af kosn-
* ingaúrslitum í Bretlandi,
sagði Sir Alec af sér og hin-
um skarpgáfaða Harold Wil-
son var falin stjórnarmynd-
un. Úrslitin eru talin mikill
persónulegur sigur fyrir Wil-
son, en flokkur hans tapaði
þó fylgi frá síðustu kosning-
um, þrátt fyrir sigurinn.
Wilson hefur nú myndað
ingi og hefur borið hann síðan.
Hún hefur vakið aðdáun fólks í
Frakklandi fyrir þá stillingu, sem
hún hefur sýnt við fráfall fyrr-
verandi manns síns, og til dæmis
um það hefur hún aldrei sleppt
neinni sýningu á leikriti því, sem
hún leikur í.
FÓLKIÐ hér á myndinni heitir
Enid og John Walker. Hann er
verkamaður, 33 ára að aldri. Nú
fyrir skommu vann John Walker
sér það til frægðar, að vinna
280.895 sterlingspund í Bingó.
Það fyrsta, sem hann gerði eftir
að hafa unnið þessa peninga var
að fara með konu sína, Enid, til
skartgripasala og kaupa handa
henni hringinn, sem hann hafði
lofað að gefa henni, þegar þau
trúlofuðu sig fyrir 11 árum.
Oxford háskóla hefur bætzt
nýr nemandi alla leið austan frá
Ceylon. Það er dóttir forsætis-
ráðherra Ceylons, frú Sirimavo
Bandaranaike, sem fylgdi dóttur
sinni sjálf til Englands á dögun-
um. Frúin hafði líka öðrum.
hnöppum að hneppa, þar sem
hún flutti í leiðinni helgan dóm
til Búddatrúarmanna í Englandi,
en það var beinflis, sem á að vera
úr Búdda sjálfum, en Búddatrú-
armenn í Englandi eru fleiri en
menn skyldu ætla.
i frettunum
ráðuneyti sitt, en stjórn
Verkamannaflokksins hefur
þó mjög nauman meirihluta
eða aðeins fjögur atkvæði í
neðri málstofunni. Talið hef-
ur verið að tuttugu þing-
manna meirihluti sé það
minnsta, sem talizt geti starf-
hæfur meirihluti ríkisstjórn-
ar, en Churchill gamli sagði
eitt sinn: Einn er nægjanlegt.
Allt að einu, þá er hin nýja
stjórn í Bretlandi mjög veik
og er ekki ósennilegt, að kosn
ingar fari fljótlega aftur fram
í Bretlandi.
Wilson hefur birt ráðherra-
lista sinn. Georg Brown, hinn
hægrisinnaði verkalýðsfor-
ingi og varaformaður flokks-
ins, er efnahagsráðherra og
Gordon-Walker er utanríkis-
ráðherra. James Callaghan ec
fjármálaráðherra, eins og bú-
izt var við. Ýmsir töldu, að
Wilson hefði ætlað sér að
vera einnig utanríkisráðherra,
en það hefur þó orðið úr að
Gordon-Walker hlyti stöð-
una, þótt hann hafi fallið í
kjördæmi sínu.
Helzta orsök sigurs Verka-
mannaflokksins mun vera
fylgi ungra manna í Bretlandi
og óánægja með fræðslukerf-
ið og skólamál. Það er hins-
vegar vandi brezkra kjósenda
að skipta um stjórnarflokka á
áratugsfresti. Brezki íhalds-
flokkurinn hafði verið lengi
við völd en komst í vond
mál. Flokkurinn hafði þó
stjórnað mestu velmegun í
brezkri sögu.