Morgunblaðið - 14.11.1964, Síða 2
2
MORCU N BLAÐIÐ
' Laugardagur 14. nóv. 1964
Átök á landamærum
fsraels og Sýrlands
Tel Aviv, Jerúaalem og Damas
fcuis, 13. nóv., AP, NTB.
X DAG sló í bardaga á landa
mærum Sýrlands og ísraels og
eegja ísraelsmeúnn a<5 Sýrlendin.g
ar hafi átt upptökin, en Sýrlend
ángar segja, að hér hafi verið
um að ræða hreina árás ísraels
manna á sýrlenzkt landssvæði,
og hafa borið fram kæru við
Vtopnah 1 ésnefndina í Jerúsalem
og við Öryggisráð Sameinuðu
-fcjóðanna í New York.
Sagði talsmaður ísraelska hers
ins, að Sýrlendingar hefðu hafið
skothríð frá landamærastöðvum
JBOURGUIBA KJÖRINN
FORSETI
TÚNIS, 9. nóv. (AP). — For
setakosningar fóru fram í
Túnis á sunnudag. Aðeins
einn maður var í framboði,
Habib Bourguiba.i forseti. Var
hann endurkjörinn, og hlaut
96.13% greiddra atkvæða. —
Einnig voru kjörnir 90 þing-
menn, allir úr flokki Bourg-
uiba, eina löglega stjórnmála
flokki landsins.
sínum á ísraelska herdeild, sem
stödd hafi verið innan landa-
mæra Israels og síðan verið skot
ið á tvö samyrkjubú skammt und
an, tvö hús verið eyðilögð og
tveir óbreyttir borgarar beðið
bana, en fimm ísraelskir her-
menn. Hefði árásum Sýrlendinga
verið svarað í sömu mynt en
ekki hrokkið til og loks verið
sendar á loft flugvélar, sem varp
að hafi nepalm-sprengjúm á eina
herstöðvanna en „þaggað niður“
í hinum með skothríð.
Enginn viðbú,naður virtist
vera í Damaskus í dag vegna at-
burður þessa. Sýrlenzka stjórnin
kvaðst ekki hafa neinar öruggar
heimildir um átök á landamær-
unum en talsmaður hersins sagði
að 7 hermenn sýrlenzkir hefðu
látið lífið í bardaga þessum og
26 særzt, en mannfall ísraels-
manna verið töluvert. Bardagi
þessi stóð í rúmar þrjár klukku-
stundir og var beitt bæði bryn-
drekum og stórskotaliði auk fót
gönguli'ðs og flugvéla, sem fyrr
greinir.
Bobby Baker (t.v.) og WiIIiams, lögfræðingur hans.
dómsmálaráðherra, Luther
Hodges, verzlunarmálaráð-
herra, og Walter Jenkins, sem
viðriðinn hefur verið annað
hneyksli af öðrum toga spunn
ið. Jekins hafði verið stefnt
fyrir réttinn áður en hneyksli
kom til.
Auk alls þessa munu að-
stoðarmenn Johnsons foreta,
hafa lagt mjög að Williams
lögfræðingi að reyna að sætt-
ast á málið áður en til dóm-
stóla kæmi. Williams hafði
áhuga á því, en lögfræðingur
Hills fór fram á of háa upp^
hæð að hans dómi, eða 100,000
dollara.
: !
I
,6ezt varðveitta leyndar-
mál forsetakosninganna'
Bobby Baker samdi um að greiða
aðeins 10°/o af skaðabótakröfum
Flutjiélagið heiur
Surtse yfariluff
1 TILEFNI af eins árs afmæli
Surtseyjargossins efnir Flugfélag
íslands til Surtseyjarflugferða,
og verður fyrsta ferðin farin kl.
15.30 í dag, 14. nóvember. Á
fyrstu dögum gossins flugu marg
ir út að gosstöðvunum og litu
náttúruhamfarirnar úr lofti, en
nú er engu síður stórkostlegt að
sjá það eftir að hraun tók að
renna.
Einnig hefur Fluigfélagið gefið
út sögu Surtseyjargossins fjöl-
ritaða og fær hver flugfarþegi í
Surtseyjarflugi eitt eintak ókeyp
is. Höfundur ritsins er Þorleifur
Einarsson, jarðfræðingur.
Þeir sem séð hafa Surtseyjar-
gosið telja það tilkomumest í
ljósaskiptunum. Flugferðunum
verður því þannig háttað, að flog
ið verður frá Reykjavík um það
leyti dags sem birtu tekur að
bregða og verður eyjan og gosið
skoðað í rökkri, þegar glóandi
hraunið streymir úr gýgnum, yf-
ir eldahraunið og steypist fram
af brúninni í hafið. Farmiðinn
kostar 500 kr., en skólanemend-
um er veittur sérstakur afslátt-
ur, 50 kr.
BLÖÐ í Bandaríkjunum skrifa
nú um það, sem þau nefna
„Bezt varðveitta leyndarmál-
forsetakosninganna." iVIálið
snýst um það, að 5. október
sl., eða nær mánuði fyrir for-
setakosningarnar, varð sam-
komulag um hið svonefnda
Bobby Baker mál utan réttar
um að Baker greiddi 10 cent
af hverjum dollar þess 300,000
dollara skaðabótamáls, sem
höfðað hafði verið gegn hon-
um. Þeir, sem um þetta sam-
komulag vissu, voru hinsveg-
ar eiðsvarnir að segja ekki
frá því, og í kaupunum fylgdi
það ,að ef fregnin um þetta
bærist til dagblaðanna, yrði
samningnum riftað við Baker.
Forsaga málsins var sú, að
Ralph nokkur Hill höfðaði
300,000 dollara skaðabótamál
gegn Bobby Baker, og var
það upphafið að því að Baker
féll úr stöðu sinni sem ritari
meirihluta demókrata á þingi,
en í því embætti var hann
hægri hönd Lyndon B. John-
son, forseta, á meðan hann
átti sæti í öldungadeildinni.
Hill sakaði Baker um að hafa
haft af félagi sínu drjúgan
verksamning við bandarísku
stjórnina, og að Baker hefði
gert það með því að misnota
aðstöðu sína sem starfsmaður
þingsins. Skaðabótakrafa Hiiis
varð síðan til þess, að upp
komst að Baker hafði misnot-
að aðstöðu sína freklega til
þess að verða eigin fyrirtækj
um úti um samninga, og að
hann átti í fjölmörgum fyrir-
tækjum, allt frá „mótelum"
til sjálfsala.
Saga samkomulagsins um
10% greiðslu á skaðabótakröf
unni er á þá leið, að lögfræð-
ingur Bakers, Edward Willi-
ams, dró það eins lengi og
unnt var að leggja fram gögn
í málinu. Var það ekki að
ófyrirsynju, sökum þess að ef
Baker hefði komið fyrir rétt-
inn, hefði hann ugglaust þurft
að bera fyrir fimmta viðauka
stjórnarskrárinnar, og neita
að svara spurningum hefði
það verið stórkostlegt vatn á
myllu repúblikana, sem gerðu
allt hvað þeir gátu til að gera
Bobby Baker-málið að stóru
kosningamáli. Auk þess kom
það til, að ef málið kæmi fyrir
rétt, hafði lögfræðingur Hills
. stefnt sem vitnum mönnum
eins og Robert Kennedy, fyrr-
um dómmálaráðherra, Kicho-
las Katzenbach, núverandi
Sigurður Ólason.
Sandiíerði
Aðalfundur Sjálfstæðisfélaganna
í Miðneshreppi er á morgun kl. 2
í Sandgerði (ekki sunnudaginn
22. nóv. eins og misritaðist í til-
kynningunni í gær).
//
Yfir alda hat
44
Greinar um söguleg og bióðleg fræði
eftir Sigurð Ólason
NÝLEGA er komin út bókin ^
YEIR ALDA HAF, eftir Sigurð
Ólason, lögfræðing.
Bókin fjallar um söguleg og
þjóðleg fræði, svo sem heiti henn
ar úr Aldamótaljóðum Einars
Benediktssonar ber með sér. Efni
hennar er fjölþætt og margbreyti
legt. Höfundur hreyfir ýmsum
nýjum skýringum og tilgátum
um veigamikil atriði í íslands-
sögunni, tilfærir rök og heim-
ildir og fer sjaldnast troðnar
slóðir. Þá eru í bókinni rakin
gömul dómsmál, sagt frá mönn
um og málefnum, myndum og
fornum minjum, sem umdeild
eru eða óvissu blandin. Eiga þá
lögfræði og saga gjarnan sam-
leið, eins og svo oft áður. Margt
í bókinni mun ekki þykja í sam
ræmi við viðtekna söguskoðun.
Bókin þer undirtitilinn „Grein
ar um söguleg og þjóðleg fræði“.
Greinarnar heita: Hellisbúinn í
Hnappadalshraunum, Óhrjáleg af
drif íslandsjarls, „Grundarstóll-
inn“ í Kaupmannahöfn, Dóms-
morð á Öxarárþingi, Erfðahyll-
ingin í Kópavogi 1062, Kópavogs
fundurinn 1662 og Hinrik Bjelke,
Bræðratungumál, Undarlegur arf
leiðslugjörningur, Sunnefumálin;
Úr sögu listaverks; Leyndardóm-
ur eirkatlanna í Rauðamels-
hraunum.
Bókin er 192 bls. að stærð og
prýdd fjölda mynda. Bókaútgáf-
an Hildur gefur bókina ÚL
Þriðjudagur 17. nóv.: Þá verður
annar fundur í hinum nýstofn-
aða Málfundaklúbb. Fundurinn
verður í Valhöll og hefst kl. 20,30
Fimmtudagur 19. nóv.: Fundur
verður þá haldinn í Launþega-
klúbbnum og mun Þórir Einars-
son, viðskiptafræðingur, ræða
þar um „Hlutverk nútíma verka
lýðshreyfingar“. Á eftir verða
kaffiveitingar og kvikmynda-
sýning.
Laugardagur 21. nóv.: Þá verður
klúbbfundur í Sjálfstæðishúsinu
og hefst hann kl. 13. Boðað verð-
ur til klúbbfunda bréflega og þá
skýrt frá gesti fundarins og um-
ræðuefni. Þeir sem óska eftir að
taka þátt í klúbbfundum eru
beðnir að láta skrá sig á skrif-
stofu félagsins í Valhöll.
Af sérstökum ástæðum verður
að fresta erindi Eyjólfs K. Jóns-
sonar, ritstjóra, sem vera átti
miðvikudaginn 18. nóv., um viku
tíma. Færist þá einnig til erindi
Gunnars G. Schram, ritstjóra um
eina viku.
Skrifstofa Heimdallar er í Val-
höll v/Suðurgötu og er hún opin
alla virka daga kl. 3—7. Sími
skrifstofunnar er 1-71-02.
Það var hálfgerð kaldhæðni
örlaganna, að hópur blaða-
manna var viðstaddur í her-
bergi því, sem Williams og
Carliner, lögfræðingur Hills, •
hittust í til að leg,gja fram
málsgögnin, að því er menn
héldu. Williams lýsti því þar
yfir, að hann og skjólstæðing
ur hans væru tilbúnir, én þá
bar Carliner fram afsakanir,
og gekk út og benti WilUams
að fylgja sér. Þeir fóru síðan
inn á karlasalernið, og þar
sömdu þeir um að Baker
skyldi greiða Hill 30,000 doll-
ara. Síðan fluttu þeir sig í
herbergi á næstu hæð, og tóku
að ræða skilmálana.
Skilyrði nr. eitt var að al-
gjör leynd skyldi ríkja urn
samkomulagið. Að öðrum
kosti gengi það til baka. Óg
þetta tókst.
Bobby Baker er hinsvegar
síður en svo laus allra mála.
Frú Gertrude Novak, ekkja
manns, sem var félagi Bakers
í viðskiptum, hefur stefnt hon
um fyrir að hann skuldi sér
peninga vegna sölu á ,,móteli“
Og Baker á enn fyrir dyrum
að mæta í yfirheyrslu í Öld-
ungadeildinni, en ráðgert er
að þær yfirheyrslur hefjist 1.
des. n.k.
Þannig er ýmsum málum ó-
lokið, — en kosningarnar eru
afstaðnar.
(Endursagt úr Newsweek).
í GÆR var djúp lægð fyrir
suðvestan land á hreyfingu
aust-norðaustur. Norðanlands
var éljaveður og hiti víða und
ir frostmarki, en sunnanlands
aðeins hlýrra. Þegar lægðin
færist austar, mun vindur
snúast meira til norðurs og þá
fara kólnandi. — Veðurspá kl.
22 á föstud.kv. fyrir næsta
sólarhring: SV-land og Faxa-
flói: NA-kaldi eða stinnings-
kaldi. Léttskýjað. — Breiða-
fjörður og SV-mið til Breiða
fjarðarmiða: Allhvass NA,
skýjað. — Vestf. og miðin: All
hvass eða hvass NA, snjókoma
norðan til. — Norðurland: NA
stinningskaldi, snjókoma aust-
an til. — Norðausturl., norð*
urmið og NA-mið: NA-stinn-
ingskaldi eða allhvasst, snjó-
koma. — Austf. og miðin: All
hvass A eða NA, skýjað, en
víðast úrkomulaust. — Austur
djúp: NA-stinningskaldi og
slydda norðan til, gengur í
sunnan stinningskalda með
skúrum sunnan til. — Veður-
horfur á sunnudag: N-átt, élja
gangur norðanlands, en þurrf
á Suðurlandi. Kalt í veðri.