Morgunblaðið - 14.11.1964, Síða 27
Laugardagur 14. nóv. 1964
MORGUHBLADID
27
Sýtainff á skips-
líkonnm í Njatrðvík
Framtak Lions-félaga
Keflavíkurf'Jugvelli, 13. nóv.
Á SUNNUDAGINN mun Lions-
klúbbur Njarðvikur efna til ný-
stárlegrar sýningar í félagsheim
ilinu þar. Sýnd verða líkön af
ýntsum frægum skipum, 50—60
að tölu, en félagar í klúbbnum
ASÍ-þing hefst
d raónndng
14. >ING Alþýðusambands ís-
lands verður sett á mánudaginn
í húsi KR við Kaplaskjólsveg.
Talið er, að þingið muni sitja í
allt að fimm daga. 139 félög og
sambönd innan ASÍ, sem telja
alls um 35.000 félaga innan sinna
vébanda, senda fulltrúa á þingið,
ails 370 talsins.
— Siðasti
Frarnh. af bis. 1
Pavel Satyukov varð rit-
stjúri Pravda 13-56, en hafði
áður ritstýrt tímariti um
menningarmál og gegnt störf
um deildarstjóra í miðstjórn
flokksins. Á ritstjórnarskrif-
stofu Pravda var það sagt í
dag, að Satyukov hefði unnið
á blaðinu fram á fimmtudag
og bæri ábyrgð á föstudags-
blaðinu. Hann væri nú í
leyfi frá störfum og myndi
taka við nýju starfi eftir
heimkomuna en ekki við
Pravda.
hafa gert líkönin, og verða þau
tii sölu.
Ágóðanum á að verja til kaupa
á sjónprófunartæki fyrir byggð-
arlagið. Konur féla-gsmanna
munu selja veitingar méðan á
sýningunni stendur, og verður
ágóðanum af þeirri sölu einnig
varið til sama málefnis.
Lionsfélagar í Njarðvíkum
hafa verið frumlegir í fjáröflun-
arleiðum sínum, m.a. efndu þeir
ekki alls fyrir löngu til mál-
verkasýningar á eigin málverk-
um, og var ágóða hennar varið
til kaupa á sjónvarpstæki fyrir
sjúkrahúsið í Keflavík. — B.Þ.
Sveinn Valfells, formaður bankaráðs Iðnaðarbankans, ræðir við nokkra gesti við opnun úti-
(Ljósm.: Herdís Guðmundsdóttir).
búsins.
Iðnaðarbankaútibú
Hafnarfirði
i
Við afgreiðsluborð útibús Iðnaðarbankans. Starfsfólk bank-
ans. Útibússtjórinn, Sigmundur Helgason, fyrir miðju.
inn gæfi Iðnskóla Hafnarfjarðar
30 þúsund krónur til tækjakaupa
fyrir skólann.
Einnig tóku til máls við opn-
unina Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, Hafsteinn Bald-
í vinsson, bæjarstjóri og Sigurður
HAFNARFIRÐI _ I gær opnað, Guðmund Jn| Jskólas8tjóriS Iðn.
Iðnaðarbanki íslands útibú að
Strandgötu 34, í húsnæði Apóteks
Hafnarfjarðar. — Við opnunina
talaði formaður bankaráðs Iðn-
aðarbankans, Sveinn Valfells, for
stjóri, og rakti meðal annars
nokkuð upphaf að stofnun Iðn-
aðarbanka í Reykjavík. Hefði
komið í ljós upp úr 1930 að mikil
þörf var slíkrar stofnunar sök-
um vaxandi iðnaðar. Iðnaðar-
bankinn hefði svo verið stofn-
aður fyrir rúmum 11 árum og
viðskipti við iðnfyrirtæki og
iðnaðarmenn í Hafnarfirði jafn-
an verið mikil á þessum árum
og farið stöðugt vaxandi. Með
hliðsjón af því ákvað bankaráð
Iðnaðarbankans í vor að stofna
útibú í Firðinum, og er það jafn-
framt eina útibú Iðnaðarbankans
enn sem komið er. Þá tilkynnti
Sveinn Valfells, að Iðnaðarbank-
skólans. — Árnuðu þeir hinu
nýja útibúi allra heilla.
Allmargt gesta var við opnun
útibúsins, ráðherrar, bankastjór-
ar, bæjarstjórn Hafnarfjarðar,
forvígismenn Iðnaðarmannafé-
lags Hafnarfjarðar og fleiri. —
Er húsnæði bankans hið vistleg-
asta og smekklega innréttað.
Innréttingu útibúsins teiknaði
Halldór Hjálmarsson, húsgagna-
arkitekt en Húsgagnaverzlun
Hafnarfjarðar sá um smíði inn-
réttinga.
Forstöðumaður útibúsins verð-
ur Sigmundur Helgason, sem ver-
ið hefir deildarstjóri í Iðnaðar-
bankanum í Reykjavík. Opnun-
artími útibúsins er frá kl. 10—12
og 1,30—4,30 daglega og auk
þess föstudaga kl. 5—7 og laug-
ardaga kl. 10—12 fyrir hádegi.
G. E.
— Chou En-lai
Framhald af bls. 1
í TILKYNNINGU, sem gefin var
út um viðræðurnar í dag segir
að þær hafi verið opinskáar og
bræðralagsandi rikt á fundinum.
Ákveðið var að fresta hinum
fyrirhugaða undirbúningsfundi
26 kommúnistaflokka í Moskvu
en rætt um að halda fund Rússa
og Kínverja einna í Peking i
byrjun næsta árs. Endanleg á-
vörðkun var þó ekki tekin um
fund þennan og ekki á hann
n nst í hinni opinberu tilkynn-
ingu. Sagði í tilkynningunni, að
öll kínverska sendinefndin, sem
í voru sjö manns, hafi tekið þátt
í viðræðunum, en af h;,-lfu Rússa
hafi setið fundina þeir Leonid
Brezhnev, aðalritari kommúnista
flokksins, Alexei Kosygin, for-
sætisráðherra, Anastas Mikoyan,
forseti, Nikolai Podgorny, sem
sæti á i Æðsta Ráðinu og enn-
fremur Y.V. Andropov og B.N.
Ponomarev, og utanríkisráðherr-
lum, Andrei Gromyko.
Helzti hugmyndasérfræðingur
Rússa, Mikhail Suslov, er ekki
til nefndur og segja sumir að
hann sé veikur.
Ekkert hefur verið látið uppi
um viðræður leiðtoganna í
Moskvu, annað en það sem stend-
ur í hinni opinberu tilkynningu
Tass-fréttastofunnar, en talið er,
að hvorir tveggja hafi reynt að
komast að raun um hvað það sé
sem einkum beri í milli með ráða
mönnum í Moskvu og Peking-
6tjórninni. Eins muni Rússar
hafa viljað grafazt fyrir um álit
Austur-Evrópuríkjanna á misklíð
kommúnistaríkjanna og Kínverj-
ar muni hafa reynt að grunda
einingu hinna nýju leiðtoga
So- ’tríkjanna varðandi afstöð-
una til Pekingstjórnarinnar.
Eins og málum er nú komið,
hefur fráför Krúsjeffs og koma
kínversku sendinefndarinnar til
Moskvu heldur dregið úr spennu
þeirri sem verið hefur í sambúð
Stórveldanna, a.m.k. á ytra borð-
inu. Er það álit margra í Moskvu,
að leiðtogarnir hafi orðið sam-
mála um að forðast opinberar
deilur og að stofna til samvinnu
um ýmis hagnýt atriði. En ef hafa
má til marks ritstjórnargrein þá,
sem birtist í Pravda, málgagni
stjórnarinnar, í dag, hefur við-
horf stjórnarinnar í Moskvu ekki
breytzt á neinn þann veg er túlka
megi sem tilhliðrunarsemi við
skoðanir Kínverja.
Er og bent á það, að Tass-
fréttastofan segir viðræður leið-
toganna hafa verið „opinskáar og
í anda bræðralags", eins og Sovét
stjórnin komist yfirleitt að orði,
þegar lýst sé viðræðum sem lít-
inn eða engan árangur hafi bor-
ið. Viðræður þær sem leiðtogar
Sovétríkjanna áttu með leiðtog-
um kommúnistaflokka Póllands
og Ungverjalands voru sagðar
„vinsamlegar og hreinskilnar.“
Ekki sagði í tilkynninguni hve
marga- fundi leiðtogarnir hefðu
átt, en síðast munu þeir hafa
ræðzt við í morgun.
Fréttastofan „Nýja Kína" seg-
ir í dag frá viðræðunum og
telur upp þá sem þátt hafi tekið
í þeim, en gerir enga grein
fyrir því hvað verið hafi til um-
ræðu á fundum leiðtoganna.
í ritstjórnargrein „Pravda" í
morgun, sem fjallaði um utan-
rikismál, var m.a. sagt, að utap-
ríkismálastefna Sov-étríkjanna
myndi hér eftir sem hingað til
byggjast á fullum hug á að halda
uppi eðlilegum tengslum við
mikilvægustu lönd kapitalista,
s.s. Bandaríkin. Einnig telur blað
fð Indland í hópi þeirra landa,
sem Sovétrikin vilji eiga við góð
grannaskipti og vinsam.Ieg.
★
Blaðið „Zeri i Popullit“, sem
er málgagn kommúnistaflokks
Albaníu birtir í dag langa grein,
sem sagt er að geymd hafi verið
þegar fréttist um brottvikningu
Krúsjeffs, en „þróun mála síð-
asta mánuðinn hefur sýnt og
sannað“ segir blaðið, „að greinina
mátti birta án nokkurra breyt-
inga“ I greininni er fordæmd af-
staða hinna nýju leiðtoga í
Moskvu og minnt á að þeir hafi
itrekað að þeir muni framfylgja
endurskoðunarstefnu þeirri sem
samþykkt hafi verið á síðustu
flokksþingum sovézka komtnún-
istaflokksins.
AB gehir út
Surtseyjorbók
ALMENNA bókafélagið er að
gefa út bók um Surtsey, eyna
nýju í Atlantshafi, eins og hún
er kölluð á titilblaði. Dr. Sigurð-
ur Þórarinsson hefur ritað for-
málann að bókinni og valdar
hafa verið 48 myndir frá Surts-
ey úr nærri 1000 myndum. Verða
flestar prentaðar í lit. Textinn er
prentaður bæði á íslenzku og
ensku.
Bókin verður í svipuðu broti
og Heklubókin, en heldur stærri
bók og hefur ekkert verið til
sparað að hún yrði sem bezt úr
garði gerð. Vegna prentaraverk-
fallsins tefst útgáfutími bókar-
innar um hálfan mánuð, en ætl-
unin var að hún kæmi út núna, á
eins árs afmæli Surts.
Almenna bókafélaginu hafa
borizt fyrirspurnir um Surtseyj-
arbókina hvaðan æfa að af land-
inu og einnig verið mikið um
hana spurt erlendis frá, en s-líkt
hefur aldrei fyrr komið fyrir
áður er bók kom út hjá bókafé-
laiginu.
— Enska
Framhald af bls. 26
Kevan (Bolton) 13 —
Godfrey (Preston) 13 —
3. deild.
Biggs (Bristol Rovers) 15 —
Clark (Bristol City) 14 —
Lawther S(cunyhorpe) 14 —
Napier (Worrington) 14 —
Smith (Crystal Palace) 14 —
4. deild.
Manning (Tranmere) 20 —
Jefferey (Doncaster) 17 —
Hector (Bradford) 16 —
Stubbs (Torquay) 15 —
Málflutningsskrifstofa
Sveinbjorn Dagfinss. nri.
og Einar Viðar, ndl.
Hafnarstræti 11 — Sími 19406
Bezt að auglýsa
í JVlorgunbiaðinu
— Saigon
Framh. af bls. 1
mælagöngur í borginni í dag.
Síðdegis í dag virtist Huong
hafa farið með sigur af hólmi
og gert það lýðum ljóst að
hann myndi hvergi hopa.
Bandaríski sendiherrann í
Saigon, Maxwell D. Taylor, hers-
höfðingi, fór í dag til flóðasvæð-
anna ásamt Tran Van Huong,
forsætisráðherra, og var þar m.a.
sagt, að skæruliðar Viet Cong
myndu vafalítið hefja aftur árás-
ir innan skamms til þess að út-
vega sér nýjar vopnabirgðir, en
flóðin tóku með sér mikið af
vopnum og vistum skæruliðanna,
sem falin höfðu verið innan
landamæra Suður-Vietnam. —
„Fátt er svo með öllu illt, að
ekki boði nokkuð gott“, anzaði
sendiherrann, er honum var tjáð
vopnatap Viet Cong.
Að sögn bandarískra heimild-
armanna hafa flóðin í miðhéruð-
unum, sem eru verstu flóð sem
komið hafa í landinu um margar
kynslóðir, eyðilagt helming upp-
skeru milli Danang og Nhatrang
og 80% alls kvikfénaðar í hér-
uðunum Danang, Tamky og
Quanghai hefur farizt, en 52.000
hús eyðilagzt og meira en 130
þúsund manns misst heimili sín.
Á einum stað tók flóðið með sér
sex þorp og sést ekki af þeim
tangur né tetur lengur.
Margir bæir eru enn einangr-
aðir og verður ekki til þeirra
komizt á neinn veg, ekki einu
sinni loftleiðis, þar sem veður
hamlar enn víða björgunarstörf-
um úr þyrlum og skæruliðar Viet
Cong liggja heldur ekki á liði
sínu. Víða hefur matarskortur
gert vart við sig og sums stað-
ar er hætta á drepsóttum, þar
sem vatn hefur víða spillzt í flóð-
unum. Veður batnaði ögn í gær,
en í morgun tilkynntu veðurffæð
ingar, að von væri á annarri
óveðurshryðju sem stefndi beint
á Suður-Vietnam. Sums staðar
hefur nú rignt I 16 daga sam-
fleytt.
Yfirvöldin í Vietnam fengu
fyrstu fréttirnar um framsókn
skæruliða Viet Cong frá flótta-
mönnum, sem flýðu úr dölum
niður til strandarinnar, til hjálp-
arstöðvanna í Nhatrang og
Quinhon. Sögðu þeir, að Viet
Cong skæruliðar hefðu gert þeim
fyrirsát og krafizt þéss að þeir
ónýttu persónuskilríki sín. Með
því að láta'eyðileggja persónuskil
ríkin, geta skæruliðarnir farið til-
tölulega frjálsir ferða sinna um
flóðasvæðið sem tekur til 13 hér-
aða í miðju landinu.
Bandarískar heimildir segja, að
mjög erfitt sé um vik til varnar,
þjóðvegir eyðilagðir og ár allar
í vexti og verði ekki annað að
gert en að reyna að hopa hvergi
og bíða þess að sjatni í ánum.
Segja Bandaríkjamenn að Viet
Cong sé mikill akkur í flóðun-
um, sem geri þeim engan veg-
inn eins erfitt um vik og and-
stæðingum þeirra, en kváðust
ekki hafa gert ráð fyrir þvi að
þeir hæfust handa eins skjótt og
raun bæri vitni.
í Saigon gripu 2000 stúdentar
tækifærið er Tran Van Huong,
forsætisráðherra, hélt fund með
þióðráðinu og blaðamönnum og
hófu mótmælagöngu og þurfti
bæði lögreglu og herlið til að
halda þeim í skefjum. Ekki kom
þó til alvarlegra óeirða í borg-
inni í dag, en göngumenn kröfð-
ust m.a. brevtinga á stjórninni
og fráfarar Huongs.
Almennur iundm
um bæjormúl
í Kópuvogi
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kópa
vogi halda almennan fund um
bæjarmál n.k. mánudagskvöld
kl. 20,30 í Sjálfstæðishúsinu við
Borgarholtsbraut.
Frummælendur verða bæjar-
fulltrúarnir: Axel Jónsson, Krist
inn G. Wíum og Sigurður Helga-
son.
Sjálfstæðisfétag Kópavo-gs,
Sjálfstæðiskvennafél. BDDA
TÝR, fél. ungra Sjálfst.m.