Morgunblaðið - 06.03.1965, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. marz 1963
Gjaidkerinn gaf 300
þús. eftir 30 ára starf
Breytingar á stjórn danska
knattspyrnusambandsins
ALLMIKLAR breytingar urðu á
stjórn danskra knattspyrnumála
á aðalfundi þess á sunnudaginn.
Eins og kunnugt er lézt Ebbe
Schwarts form. þess í okt. s.I.
og hefur varaformaðurinn Dahl-
Engelbrechtsen gegnt störfum
hans við miklar vinsældir en
vildi ekki taka við formannsstörf
unum nú. Tveir kandidatar voru
um embættið í Kaupmannahöfn
en þrátt fyrir miklar tilraunir til
DANSKA handknattleiksliðið
Ajax, sem hér var á ferð í
haust og vann engan leik hér,
sigraði júgóslavnesku meistar-
ana í liðinu Medvescak í fyrri
leik liðanna í keppninni um
Evrópubikarinn með 24—20.
Leikurinn fór fram í Kaup-
mannahöfn og í hléi höfðu
Danir 15—10 forystu.
Þetta er dýrmætur sigur
fyrir Ajax. Að vísu eiga þeir
eftir seinni leikinn við Júgó-
slavana á heimavelli þeirra,
en 4 marka i'orskot er allgott
veganesi. Takist Ajax að kom
ast irá leiknum með 3 marka
tapi eða þaðan af betri ár-
angri, eru þeir komnir í úr-
slitaleikinn um Evrópubikar-
inn. I
Hver skyldi hafa trúað þvi,
að liðið sem hér vann engan
leik í byrjun vetrar væri kom I
ið í úrslit um Evrópubikar-1
inn? I
.
Melstnramót í
irjólsum í dug
MEISTARAMÓT íslands í frjáls
um íþróttum fer fram í dag og
á morgun og sér frjálsíþrótta-
deild KR um mótið. Keppnin
hefst í dag kl. 16,30 og fer þá
fram keppni í stangarstökki,
langstökki án atrennu og þrí-
stökki án atrennu.
Á morgun hefst keppnin kl.
14,30 og verður þá keppt í há-
stökki með atrennu, hástökki án
atrennu og kúluvarpi.
Flekkuglíma
Beykjavíkur
í dag
FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur
1965 verður háð að Hálogalandi
í dag og hiefst keppnin kl. 4
síðdegis. Keppt verður í þrem
þyngdarflokkum karla og í tveim
ur þyngdarflokkum drengja.
Þátttaka mun sæmileg í keppn
inni Oig meðal þeirra flestir eða
allir beztu glímumenn Reykja-
víkur. Glímudeild KR sér um
mótið.
að ná samkomulagi fyrir aðal-
fundinn tókst það ekki og kom
til akvæðagreiðslu um formann
sambandsins í fyrsta sinn í 75
ára sögu sambandsins.
Kjörinn var Vilhelm Skousen
með 53 atkvæðum en Erik Spang
Larsen hlaut 29. 3 seðlar voru
auðir. Eftir þessa atkvæða-
greiðslu hefur Spang Larsen hætt
öllum störfum fyrir danska sam
bandið og knattspyrnusamband
Kaupmannahafnar m. a. hætt
störfum í landsliðsnefnd.
Þá lét og af störfum Leo Dann-
in sem verið hefur gjaldkeri sam-
bandsins um langt árabil. Hefur
hann gætt fjárhags DBU með
mikilli prýði og fékk mikið lof
fyrir. Hann hefur starfað að
knattspyrnumálum Dana í 30 ár.
Hann skyldi svo við að hann
stofnaði styrktarsjóð sem DBU
stjórnar og gaf í sjóðinn 50 þús.
d. kr. Hlutverk hans er að
styrkja einn unglingaþjálfara ár-
lega til ferðalags til að sjá ein-
hvern stórviðburð s. s. Olympíu-
leiki, heimsmeistarakeppni eða
annað. Ræður stjórn DBU
hver styrkinn hlýtur hverju
sinni.
Þá var samþykkt breyting á
keppnisfyrirkomulagi í dönsku
deildinni. 4. deild var felld niður
en tekin upp svæðisskipting í 3.
deild — tvö svæði og verða 12
lið í hvorum hluta.
FræasMundur
hjó Víkingiun
í D A G, laugardag, efnir Uungl-
ingadeild Knattspyrnusambands
íslands til fræðslufundar með
yngri knattspyrnumönnum Vík-
ings. Verður fundurinn haldinn
í Breiðgerðisskólanum og hefst
kl. 14 stundvíslega.
Tímatoka íyrir
skíðamenn
Á SUNNUDÁGINN kemur verð-
ur tímataka fyrir skíðamenn í
Bláfjöllum. Þar sem ekki er
möguleiki fyrir framhaldi á
Reykjavíkurmótinu sem stendur,
mælist Skíðaráð Reykjavíkur til,
að allir keppendur og aðrir mæti
til tímatöku í bláfjöllum á sunnu
daginn kl. 12. Bílfært er alla leið
inn í dalsbotninn, og bílar Guð-
mundar Jónassonar leggja af
stað kl. 10 f.h. Veitingar verða
í Ármannsskálanum og efalaust
verður margt um manninn í Jós-
efsdal og Bláfjöllum á sunnu-
daginn kemur.
Skíðamenn, fjölmennið á
sunnudaginn.
Skíðaferðir verða einnig á
laugardag kl. 2 og 6 e.h.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
bar ekkert skynbragð á sam-
leik. Enginn gat náð af hon-
um knettinum með löglegum
ráðum og skotið gat hann bet-
ur en nokkur annar. En að
„gefa knöttinn, það var hon-
um óþekkt fyfirbrigði.
En Guttmann tók til við
að siípa þennan „svarta gim-
stein“ eins og hann stundum
hefur verið nefndur. Hann
var óvenjulegum hæfileikum
gæddur. Þegar hann kom til
Benefica hljóp hann 100 m á
11 sek. og síðan hefur hraði
haiis enn aukizt.
— Hraði er mitt leyni’vopn,
segir hann sjálfur. Tækni má
læra smám saman eri hún
verður að framkvæmast með
hraða. Að geta framkvæmt
flóknustu atriði með ótrúleg-
um hraða — það er knatt-
spyrna framtíðarinnar, ef
maður vill vera „stjarna".
— Þess vegna legg ég aðal-
áherzlu á hraða, hraða spretti,
stöðva snögglega og gera
knattæfingar um leið. Bene-
fica leggur mikla áherzlu á
hraða. — Fljótir útherjar
splundra vörninni og miðju-
mennirnir fá ráðrúm til að
skora, segir þessi 22 ára gamli
snillingur, sem er 1,78 m á
hæð og vegur 75 kg.
— Á eftir hraðanum kemur
mýktin og lipurðin. Hún er
nauðsynlegt til að geta leikið
á mótherjana og til að forð-
ast hörð návígi, sem geta or-
sakað stórslys.
Eusebio sparkaði fyrst í
fótbolta 12 ára gamall er
hann kom í skóla en hann
hafði áður leikið sér á göt-
unum með smábolta, tuSku-
bolta og öllu því sem fátækir
strákar sparka.
Nú sem stendur er Eusebio
hermaður, óbreyttur liðsmað-
ur nr. 198763 í portúgalska
hernum. En hann hefur það
betra en flestir aðrir í hern-
um. Hann hefur verið leystur
i
i
„Svarti gimsteinninn"
fær 1 krónu í laun á dag
en á gott tékkhefti í vasanum
EUSEBIO — eða Eusebio de
Silva Pereira — er í dag af
mörgum talinn bezti knatt-
spyrnumaðúr Evrópu. Hann
er skærasta stjarnan í portú-
galska liðinu Benefica sem á
dögunum sigraði Real Madrid
með 5—1, úrslit sem vöktu
furðu meðal knattspyrnuunn-
end^. Brasiliski landsþjálfar-
inn Bauer sagði frá því í
Portugal 1960 að í nýlendu
Portugala, Mozambique í A-
Afríku „léki lausum hala“
knattspyrnumaður sem væri
meiri og betri hæfileikum
gæddur en allir liðsmenn
Benefica til samans. Guttman
þjálfari Benefica hélt þegar á
stað flugleiðis, með tékkheftið
eitt sem farangur — og kom
aftur með Eusebio. Hann
keypti hann á um 650 þús.
kr. (ísl.) sem sagt reyfara-
kaup.
Hann var flínkur leikmað-
ur er hann kom fyrst á æf-
ingu til Benefica — en hann
undan harðri þjónustu í ný-
lendum Portugala, því Bene-
fica „gekk í málið“. Það hef-
ur orsakað mikil mótmæli frá
öðrum hermönnum og fjöl-
skyldum þeirra. Hann er nú í
herstöð í úthverfi Lissabon
og fær leyfi til að stunda
æfingar á hverjum degi — og
hann verður varla var við
herþjónustuna nema hvað
launin snertir. Hann fær nú
greitt um það bil 1 krónu á
dag. En það hefur lítið að
segja því hann á tékkhefti og
næga innstæðu.
MOLAR
Brisiliskur læknir dr. F.
Plas sem er sérfræðingur í
hjartasjúkdómum segir að
það sé alrangt að hin háa
hnattlega Mexico City þar
sem OL verða haldnir 1968
muni hafa skaðleg áhrif á
keppendurna. Segir hann að
Frakkar hafi framkvæmt rann
sóknir á íþróttafólki sínu í
Mexico City og sýni niður-
stöðurnar að íþróttafólkinu sé
ekki skaðsemd búin af þunna
loftinu
Einar Þorgrímsson ÍR hefur vakið sérstaka athygli fyrir gott há-
stökk. Hér er hann að sigra á „S veinamóti“ — og er hátt yfir
ránni. Einar er mikið efni og ef til vill verðandi íslandsmethafi.