Morgunblaðið - 18.03.1965, Síða 1

Morgunblaðið - 18.03.1965, Síða 1
28 síður 52. árgangur. 30.000! sóu hondrita-1 sýninguna ! Einkaskeyti til Mbl. í Kaupmannahöfn, 17. marz. j SÝNINGIN „íslenzk handritj ’og dönsk menning" mun verðai ýnd í Óðinsvéum, Álaborg, í Árósum og Esbjerg. 20. marzi n.k. verður sýningin opnuð íl Stiftssafninu í Óðinsvéum. —í L Kaupmannahöfn var sýning-i in haldin í Listasafni ríkisinsJ og sáu hana um 30.000 gestir. J — Rytgaard. < Leopoldville, 15. marz. NTB • ÚTVARPIÐ í Leopoldville skýrði svo frá í dag, að ákveð- ið hefði verið að vísu úr landi Eovézkum blaðamanni, Niko- las Khokhlov að nafni — sem verið hefur í fangelsi í ná- grenni Katanga sl. þrjá mán- uði. Sendiherra Tékkóslóvakíu í Kongó, Badric Khrushka, hefur haft milligöngu um samningaumleitanir um, að Khokhiov verði látinn laus. Þ E I R Johnson, forseti, o» George C. Wallace, ríkisstjóri Alabama, hittust sl. sunnudag og ræddu ástandið í Alabama, en þar hefur að undanförnu verið heitt í kolunum varð- andi kynþáttamálin. Hér sést Johnson læða við fréttamenn að fundi þeirra ríkisstjórans loknum. Wallaee sézt t.v. Kveikt í sendiráði V- Mótmælaganga í Montgomery í gær Yfirvöld veittu leyfi til göngunuor Montgomery, Alabama, 17. marz — NTB. 4.000 tii 5.000 manns, stúdentar, prestar og nunnur, af hvítum kynstofni og svörtum gengu í dag í áttfaldri fylkingu um götur Montgomery, höfuðstaðar Ala- bama, með leyfi yfirvalda þar. Ganga þessi var farin til að mót- mæla harkalegri meðferð lög- reglunnar á samskonar göngu i gær. Dr. Martin Luther King, frið- arverðlaunahafi, gekk í fylking- arbrjósti, én hann hefur svarið þess dýran eið að hann skuli sjá til þess á friðsamlegan hátt að ekki standi steinn yfir steini í Montgomery unz allir þeir negr- ar, sem tii þess hafa rétt, fái að kjósa. Að skipan Wallace ríkisstjóra eru allar fjöldasamkomur og göngur í Alabama bannaðar nema til komi sérstakt leyfi yfir valdanna. Gangan í Montgomery í dag hófst nokkrum klukkustundum síðar en ráðgert hafði vérið sök- um þess að beðið var leyfis. yfir- valda, sem um síðir var veitt. Fór gangan fram án þess að til stórtiðinda drægi. Flugárásir á Viet Cong kommúnista Þýzkalands í Þýzki fáninn rifinn n/ður, hervirki unnið á byggingunni — Bonn 17. marz — NTB. 13TANRÍKISRÁÐBNEYTI® í Bonn hefur tilkynnt, að í dag hafi verið kveikt í sendiráðsbygg ingu Vestur-Þýzkalands í Taiz, höfuðborg Jemen. Talsmaður ráöuneytisins sagði að kl. 11,30 •ð staðartíma hefði múgur manns þrengt sér inn í sendiráðið, en þar tók múgurinn að eyðileggja húsgögn. Þýzki fáninm var rifinn niður og eldur Vagður að bygg- FagerhoSm þingforseti? Heisingfors, 17. marz — NTB. ALLT bendir tii þess að jafnað- armaðurinn Karl August Fager- holm muni verða hinn nýi for- eeti finnska þingsins, er forseta- kjör fer fram á morgun, fimmtu- dag. Auk sósíaldemókrata er ráð fyrir því gert að fleiri fíokkar muni styðja Fagerholm sem hef- w áður gegnt embætti þingfor- seta. Indónesor konpa 60 þotur Jakarta, 17. marz — AP. KLUG'HIEIR Indónesa hefur fest kaup á sextíu „1L-2S“ æfinga- þotum frá Tékkóslóvakíu, að því er talsmaður flughersins sagði hér í dag. Eiga véiar þessar að koma i stað bandarískra Mentor ^T-34S“ skrúfufiugvéla, sem flugher Indónesa heíur notað til Jþessa. ingunni. Enginn sendiráðsstarfs- manna slasaðist,' en sendiráðið er nú óstarfhæft. Æðsti maður sendiráðs Jemen í Bonn var kvaddur til v-þýzka utanríkisráðuneytisins skömmu eftir að fregnirnar höfðu borizt frá Jemen. Karl Carstens, ráðu- neytisstj óri utanríkisráðuney tis- ins, mótmælti aðförunum í Jem- en harðlega, og krafðist þess að tjónið á Sendiráðinu yrði bætt. Hér er um að ræða þriðju mót- mæli v-þýzku stjórnarinnar við arabíska stjórn síðan í gær. V-Þýzkaland sendi írak harð- yrta mótmælaorðsendingu í gær, og fyrr í dag voru mótmæli bor- in fram við stjórn Líbanons sök- um þess að múgur manna réðist að Göthe-stofnuninni í Tripoli og vann þar hervirki. 100.000 lonna olíuskip Barrow-In-Furness, Englandi, 17. marz — AP. ELÍZABETH Englandsdrottn- ing hleypti i dag af stokkun- um stærsta skipi, sem smíðað hefur verið í Bretlandi frá styrjaldarlokum. Er hér um að ræða 100,000 tonna oiiu- flutningaskip, British Admir- al, sem er í eigu British Petro leum Co. (BP). Lengd risa- skipsins er 218 metrar, og íull hlaðið getur það sigR með 35LÍ hnúta ferð. Skipið á að vera í förum milli Austur- landa og Bretiands. Jemen Áður en fregnir um íkveikj- una í sendiráðinu í Jemen bárust, hafði blaðafulltrúi Bonn-stjórnar innar, Giinther von Hase, lýst því yfir að Arabar, búsettir í Vestur- Þýzkalandi verði á engan hátt látnir gjalda árásanna og óeirð- anna í Arabalöndunum. Arabisk- ir stúdentar og aðrir myndu eftir sem áður njóta þýzkrar gestrisni. Von Hase sagði jafnframt að um 6000 v-þýzkir ríkisborgarar væru búsettir í Arabalöndunum, þar af um helmingurinn í Egypta landL Hann vildi ekkert um það segja hve margir hyggðu á heim- ferð vegna síðustu atburða. Von Hase las jafnframt upp yfirlýsingu vestur-þýzku stjórnar innar, þar sem segir að stjórnin fagni því að þing ísrael hafi sam þykkt ákvörðun stjórnar sinnar um að taka upp stjórnmálasam- band við V-Þýzkaland. Saigon, 17. marz — (NTB) — BANDARÍSKAR sprengjuflug- vélar af gerðinni B-57 gerðu í dag margar árásir á stöðvar Viet Cong kommúnista í Binh Duongh héraðinu norður af höfuðborg- inni Saigon. — Tilkynnt hefur verið að um 50 Viet Cong komm únistar hafi fallið ára á þriðju- dagsmorgun er 16 bandariskar þyrlur, sem fylgt var af 10 vopn- uðum þyrlum til viðbótar, fluttu lið hermanna stjórnar S.-Vietnam til fimm staða í Vinh-Long hér- aði. Viet Cong-skæruliðar skutu á þyrlurnar á öllum stöðunum. Þrír hermenn stjórnarinnar féllu í þessum bardögum. Bandarískar heimildir herma að a.m.k. 525 kommúnistar hafi fallið í bardögum við stjórnar- hermenn í síðustu viku, en um 250 stjórnarhermenn og þrír Bandaríkjamenn týndu lífi á sama tíma. Sendiherra Bandaríkjanna í Saigon, Maxwell Taylor, sagði í dag í viðtali við kanadiska út- varpið að S.-Vietnam gæti ekki komið í veg fyrir sendingar manna og vopna frá Norður- Vietnam fyrr en leiðtogai'nir í Hanoi hafi breytt stefnu sinni Taylor var að því spurður um hvað bæri að semja varðandi Vietnam. Hann sagði: „Ég vildi óska að ég vissi þaík Samningar geta því aðeins tekizt að báðir aðilar hafa hug á þvL S.-Vietnam berst við að reyna aff vera frjálst land og naumast kem ur til greina að nota eigið freist til hrossakaupa“. Alþýðublaðið í Peking sagði 1 dag að það væri hrein og bein l'iskhyggja að Bandaríkjamenn héldu að sprengjuárásir á Norð- ur-Vietnam muni verða til þess að neyða leiðtoga landsins til friðarsamninga. Segir blaðið að milljónir ungra manan í Norður- Vietnam séu þess albúnar að ganga í her lands síns og síðan á milli bols og höfuðs á „árásar- mönnunum". Hvatti blaðið til þess að hið gamalkunna „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ verði upp tekið í Vietnam. Afvopnunarráðstefnan kvödd saman Gromyko lýsir sig hlynntðn því Tilnefnir 11 atriði um afvopnun London, 17. marz (NTB) ANDREI GROMYKO, utanríkis- ráðherra Sovétrikjanna, og Micha el Stewart, utanrikisráðberra Bretlands, áttu í dag með sér fund, sem stóð í nær tvær ©g hálfa klukkustund. Gromyko hef- ur nú lýst sig samþykkan því að afvopnunarráðstefnan í Genf verði kvödd saman á ný, og hef- ur sovézki utanríkisráðherrann í *»yg«ju að leggja nýjar tillögur fyrir ráðstefnuna. Greindu göðai heimildir i London frá þessu i dag að loknum fundi þeirra utan- rikisráðherranna. Gromyko tiinefndi 11 atriði í sambandi við takmarkaða afvopn un, sem kynnu að verða til um- ræðu á ráðstefnunni. Að öðru leyti er talið að fremur litill árangur hafi orðið á fundinum í dag, en á honum fjöiluðu ráð- herrarnir einkum um afvopnunar málin, málefni Sameinuðu þjóð- anna og Þýzkaiands. Þau atriði á ný? afvopnunar, sem Gromyko nefndi, eru þessi, að því er fregnir herma: 1. Niðurskurður á fjárveiting- um til hermála. 2. Erlendir her- menn verði kvaddir heim frá þeim svæðum, sem þeir hafa ekkert erindi til. 3. Herstöðvar erlendis verði lagðar niður. 4. Sáttmáli til að hindra útbreiðslu kjarnorkuvopna. 5. Komið verði upp kjarnorkuvopnalausum svæðum. 6. Bann gegn notkun kjarnorkúvopna. 7. Eyðilegging sprengjuflugvéla og bann gegn notkun þeirra. 8. Bann gegn kjarnorkuvopnatilraunum neðan Framhald á bls. 8 I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.