Morgunblaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 12
12 MORCU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 18. marz 1965 Heimdallur opnar f élagsheimili — Gjörbreytt aöstaöa til starfseminnar Valhallar við Suðurgrötu og er injíig glæsilegt að öllum bún- aði. Einar Guðmundsson, framkvstj. Landsmálafélagrsins Varðar og Pétur Sigurðsson, alþingis maður, ræðast hér við. Formaður HEIMDALLAR, Styrmir Gunnarsson, bauð gesti velkomna með stuttri og snjallri ræðu. Hann rakti framkvæmdasögu félagslieim ilisins og þakkaði þeim, sem þar að unnu. Þá fór Styrmir nokkrum orðum um hlutverk Heimdallar og ungs fólks um land allt í starfi og stefnu Sjálfstæðisflokksins og stjórn málum. Dr. Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, óskaði félaginu til hamingju með fé- lagsheimilið og fór jafnframt Landbúnaðarmálin eru ofarlega á baugi um þessar mundir. Á myndinni eru Jónas Pétursson, alþingismaður, og Styrmir Gunnarsson. Styrmir Gunnarsson, formaður Heimdallar, bauð gesti velkomna og lýsti yfir opnun félags- heimilisins. Aðrir á myndinni eru talið frá vinstri: Ólafur Jónsson, Gunnar Þorláksson og Örn Valdimarsson. nokkrum orðum um félags- starfsemi ungra Sjálfstæðis- manna og gildi hennar. Einnig tóku til máls Árni G. Finnsson, formaður Sam- bands ungra Sjálfstæðismanna og Baldvin Tryggvason, for- maður Fulltrúaráðs Sjálfstæð isfélaganna í Reykjavík. Ás- geir Thoroddsen afhenti félag inu alfræðiorðabók að gjöf frá fjölmörgum velunnurum Heim dallar og Sveinn Guðmunds- son, formaður Varðar, af- henti myndarlega peningagjöf frá Verði. Móttakan var hin ánægju- legasta og áttu eldri og yngri Sjálfstæðismenn skemmtileg- ar viðræður á meðan borið var fram öl og snittur. Framkvæmdir yið félags- heimilið hófust í júlí s.l. og höfðu þeir Ásgeir Thoroddsen og Ólafur Jensson undirbúið ■ verkið, sem Kristinn Ragnars- son, trésmiöur, stjómaði síðan af mikilli prýði. Félagsmenn hafa lagt mikla viíma af mörk um og er þá ekki talið mikið starf Vals Valssonar, fram- kvæmdastjóra Heimdallar og Ragnars Kjartanssonar, fram- kvæmdastjóra Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykja vik. Félagsheimilið er í kjallara HIÐ N Ý J A Félagsheimili HEIMDALLAR var opnað á þriðjudag með móttöku fyrir fjölmarga gesti, stjórn félags- ins og fulltrúaráð, ráðherra Sjálfstæðisflokksins og alþing ismenn, borgarstjóra og borg arfulltrúa flokksins, formenn annarra Sjálfstæðisfélaga í Reykjavík og stjóm Fulltrúa ráðs Sjálfstæðisfélaganna, fjármálaráði flokksins og ýmsum aðra gesti. Fundur norrænna dóms- málaráðherra ■ Osló DÓMSMÁLARÁÐHERRAR Norðurlanda komu saman til fundar í Bergen 10. þ.m. Til um- ræðu voru á fundinum ýms lög- gjafarmálefni, sem til meðferð- ar eru hjá Norðurlandaráði oig milliríkjasamningar, sem Evr- ópuráð hefur gengizt fyrir. — Ennfremur voru til umræðu ýms fleiri lögfræðileg efni, sem eru ofarlega á baugi. Jóhann Hafstein, dómsmálaráð- herra sat, fundinn og með honum Baldur Möller, ráðuneytisstjóri, og Ólafur W. Stefánsson, fulltrúi. Af málum þeim, sem fjallað var um, má nefna: Framhald lög- gjafarsamvinnu á sviði skaða- ibótarréttar; athugun möiguleika á lögbundinni ábyrgðartryggingu á afmörkuðum sviðum og ýms fleiri málefni varðandi fjármuna- réttinn. Þá var fjallað um fram- hald á samstarfi við endurnýjun og frekari samræmihgu á sifja- réttarlöggjöf landanna, en á þessu sviði hefur samræming noirrænnar löiggjafar náð einna lengst og hefur enda staðið frá því nokkru fyrir síðustu aldamót. Um einn þeirra Evrópuráðs- samhinga, sem til umræðu voru, má geta þess, að það var sérstak- lega tekið fram af íslands hálfu, að ekki gæti komið til mála að- ild íslands að þeim samningi, en hann varðar rýmkun réttar at- vinnufyrirtækja til starfsemi í öðru aðildarríki. Rætt var um ályktun Norður- landaráðs á Reykjavíkurfundin- um í febrúar, um athuguh á möguleikum á frekari samræm- ingu á lagaleigum viðbrögðum við misnotkun áfengis í umferð- inni (ölvun við akstur). Erfið- leikar í þessu efni eru aðallega í sambandi við það, að í Svíþjóð, Noregi og íslandi er lögbundið tillit til ákveðins mælds áfengis- magns í blóði við ákvörðun sekt- ar og refsingar, en í Danmörku oig Finnlandi er mat dómstóla á ölvun og stigi hennar óbundið af slíkum föstum mörkum, og eru erfiðleikar á að samræma refsi- mat án samræmingar á þessum undirstöðureglum. Víðtæk sér- fræðileg nefndarstörf fara fram í Svíþjóð á þessu efni og munu hin löndin fylgjast með þeim störfum og síðan ræða fram- haldsaðgerðir. Þá var rætt um nokkur vandamál í sambandi við fram- kvæmd hinnar nýju norrænu lög- gjafar um framkvæmd refsidóma, uppkveðinna í öðru norrænu landi, aðallega í sambandi við náðanir oig reynslulausn. TRELLEBORG Verð: kr. 106 pr. fm. Cunnar Ásgeirsson hf Suðurlandsbraut 16. Sími 35-200. Til sölu 108 ferm. einbýlishús á eignarlóð er til sölu í Vog- ungum (á Suðurnesjum). Húsið er 4 herb., eld- hús og þvottahús á hæð. — Gott pláss í risi. GUÐJÓN STEINGRÍMSSON, HRL. Linnetsstíg 3. Hafnarfirði. Sími 50960. (Frá dómsmálaráðuneytinu)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.