Morgunblaðið - 18.03.1965, Page 14

Morgunblaðið - 18.03.1965, Page 14
14 MORGUNBIADIÐ Fímmtudagur 18. marz 1965 Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Rits t j órnar f ulltr úi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti S. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. ÞRÓUN ÍSLENZKS IÐNAÐAR í ræðu, sem Jóhann Haf- * stein, iðnaðarmáláráð- herra, flutti á ársþingi iðn- rekenda sl. þriðjudag, rakti hann fjölþættar aðgerðir rík- isvaldsins til eflingar iðnaði. Hann benti á, að Iðnlánasjóð- ur hefði verið efldur stórkost lega fyrir atbeina núverandi ríkisstjórnar, sem hefði tryggt sjóðnum 68,5 milljón króna lánsfé á nokkrum ár- um. Iðnlánasjóður myndi á þessu ári hafa 55,5 milljónir króna til ráðstöfunar og hefði sjóðurinn aldrei haft yfir svo miklu fjármagni að ráða. Þá hefði Framkvæmdabanki ís- lands aukið verulega fyrir- greiðslu sína við iðnaðinn og sett hafði verið löggjöf fyrir tæpu ári um breytingu á lausaskuldum iðnaðarins í föst lán. Ráðherra kvað bráð- Iega mundi verða lagt fram á Alþingi frumvarp um tolla- lagabreytingar og yrði þar tekið fullt tillit til hagsmuna iðnaðarins, m.a. í sambandi við lækkun tolla á vélum til iðnaðar. Jóhann Hafstein kvað það staðfeynd, að hlutdeild iðnað- arins í heildarútlánum við- skiptabankanna hefði aukizt verulega síðustu árin. Vakti hann m.a. athygli á því, að Framkvæmdabankinn hefði frá stofnun hans árið 1953 veitt 131,7 milljónir í lánum til iðnaðarins. Það væri að vísu rétt, að sumar greinar verksmiðju- iðnaðar ættu nú við erfið- leika að stríða. En ætla mætti, að sumir þeirra væru tíma- bundnir. Kjarni málsins er sá, að ís- lenzkur iðnaður er í örum vexti. Erfiðleikar einstakra greina hans spretta m.a. af frjálsum innflutningi og ó- hægri samkeppnisaðstöðu. En vitanlega verður að stefna að því, að íslenzk iðnframleiðsla standist samkeppni við er- lenda. Allt verður að gera sem unnt er til þess að það takist. Það verður í senn að gæta hagsmuna iðnaðarins og neytendanna, sem hann fram leiðir fyrir. Það er staðreynd að núverandi ríkisstjórn hef- ur haft fullan skilning á þörf- um innlends iðnaðar. Hún hefur þegar gert fjölmargar ráðstafanir honum til efling- ar, en aðrar eru í undirbún- ingi, svo sem útvegun fjár- magns til uppbyggingar dráttarbrauta og skipasmíða- stöðva. En skipasmíðaiðnað- urinn getur orðið og á að verða öflug atvinnugrein, sem rækir það þýðingarmikla hlutverk að sjá sjávarútvegi landsmanna fyrir traustum, stórum og góðum skipum. ÁTTI AÐ HÆKKA SKATTA? TT’ysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í umræðum á Alþingi í fyrradag um frumvarp ríkis stjórnarinnar um ráðstafanir til stuðnings sjávarútvegin- um, að hann væri þessu frum varpi fylgjandi. En jafnframt lagði hann mikla áherzlu á, að hann væri mótfallinn tekju öflunarleið ríkisstjórnarinn- ar til þess að rísa undir út- gjöldum vegna sjávarútvegs- ins og 6,6% launahækkunar- innar til opinberra starfs- manna. En samtals nema þessi útgjöld um 120 milljón- um króna. Ríkisstjórnin átti um tvær leiðir að velja til að afla þessa fjár. í fyrsta lagi, að leggja á nýja skatta og í öðru lagi, að nota heimild fjárlaganna til þess að spara þessa fjárupp- hæð á verklegum fram- kvæmdum. Eysteinn Jónsson lýsti yfir andstöðu sinni við þá leið að draga lítillega úr verklegum framkvæmdum. Verður því ekki annað séð, en að hann hafi viljað velja skattaleið- ina. Þarf vissulega enginn að undrast það. Eysteinn Jóns- son hefur aldrei séð neitt annað úrræði í íslenzkum efnahagsmálum, en að leggja stöðugt á nýja skatta og tolla. Það var úrræði hans í vinstri stjórinni sálugu og til þess úr ræðis hefur hann alltaf grip- ið í öllum vanda. Leiðtogar Framsóknar- flokksins eiga erfitt með að vera sjálfum sér samkvæmir. Þeir hafa haldið uppi hörð- um árásum á núverandi ríkis- stjórn fyrir stefnu hennar í skattamálum, þrátt fyrir það, að hún hefur hvað eftir ann- að lækkað skatta og tolla. í sambandi við þá ákvörð- un ríkisstjórnarinnar, að hag nýta sér lækkunarheimild fjárlagafrumvarpsins, er rétt að geta þess, að sá niðurskurð ur útgjalda bitnar svo að segja ekkert á þeim fram- kvæmdum úti um land, sem flestir telja þar þýðingar- mestar. Ræðir hér um vega- framkvæmdirnar en fjárfram lög til þeirra eru fyrst og fremst veitt á vegáætlun. en aðeins að litlu leyti á fjár- logum. Leggst konungdómur í Sví- þjóð niður á komandi árum? Lát Louise drottningar hefur endurvakið umræður um framtíð sænsku konung s- fjölskyldunnar Gústaf Adolf konungur — 82 ára að aldri. DAUÐi Louise Svíadrottn- int"ar hefur m.a. orðið til þess að draga framtíð sænsku kon- ungsfjölskyldunnar fram í dagsljósið, og um hana er nú allmjög rætt. Gústaf Svíakon- ungur er nú 82 ára að aldri, og ríkisarfinn, Karl-Gústaf, getur ekki tekið við völdum næstu sex árin. Sænska þing- ið samþykkti fyrir nokkru lög, sem gera ráð fyrir því, að ríkisarfi verði að vera 25 ára áður en hann getur tekið við völdum, en aldurinn hafði áð- ur verið miðaður við 21 ár. Karl-Gústaf er hinsvegar að- eins 19 ára, og margir sænsk- ir kohungssinnar telja, að í hinni nýju löggjöf felist klók- indalegt tilræði við konung- dæmi í Svíþjóð. Ef hásætið skyldi verða autt áður en Karl-Gústaf ríkisarfi hefur náð tilskyldum aldri, mundi rikisstjóri verða að koma til, og þannig yrði til- tölulega auðvelt að láta kon- ungdæmið víkja, og færa sér í nyt erfiðleika, illvilja ag andstöðu til þess að koma konungi frá. í Svíþjóð er þingbundin konungsstjórn líkt og víðar og hefur konungur verið sviptur nær öllum raunveru- legum völdum. Hann er að titli til þjóðhöfðingi, og þjóð- höfðingjaembættið gengur í erfðir. Hlutverk hans er nán- ast aðeins að staðfesta ákvarð- anir þingsins. Umhverfis sænsku kon- ungsfjölskylduna hefur ekki verið neitt. sem nefna mætti hástemmda skrautsýningu, og meðlimir hennar hafa ekki dregið sig inn í skel í lifnaðar- háttum. Eitt barnabarn kon- ungs, Christina prinsessa, hef- ur numið við háskóla í Banda- ríkjunum, og hinir yngri með- limir fjölskyldunnar eiga sér stóran hóp vin, bæði úr miIU- stéttum og aðalstéttum. Sjálf- ur er Gústaf konungur með þægilegri mönnum í viðmóti, og gjörsamlega sneyddur öll- um tepruskap. Engu að síður eru margir sænskir lýðveldissinnar þeirr- ar skoðunar að lýðræði í land- inu verði bezt tryggt með for- seta. Jafnaðarmannaflokkur- inn, hinn ríkjandi flokkur í Svíþjóð, hefur hvatt til lýð- veldisstofnunar og greinar andsnúnar konungdómi birtast af og til I blöðum flokksins. Yngri kynslóðin lætur þetta mál sig yfirleitt litlu skipta. Ef hún á annað borð hefur nokkra skoðun á málinu, er það helzt sú, að það sé skemmtilegt og viðkunnan- legt að eiga konung einhvers- staðar að sviðsbaki. Mestur eldurinn í röðum lýðveldis- sinna stafar frá miðaldra áhugamönnum um stjórnmál. en hjá þeim logar gjarnan í glæðum þeirra kenninga, sem þeir bitu sig í á unga aldri. Þeir eru tiltölulega fáir, en áhrifamiklir. Þá er að finna í áhrifastöðum í Jafnaðar- mannaflokknum, og þeir hafa Framhald á bls. 19. l I Atvinna er nú svo mikil í landinu, að umrædd lækkun á fjárframlögum til verk- legra framkvæmda mun hvergi hafa. í íör með sér at- vinnuerfiðleika. Af henni léið ir hinsvegar nokkur frestun einstakra framkvæmda. Ó- hætt er þó að fullyrða, að haldið verði í horfinu með verklegar framkvæmdir í landinu yfirleitt. Þjóðin held ur áfram hinu miklá upp- byggingarstarfi. Mestu máli skiptir nú, að íslendingar geri sér ljóst að jafnvægi verður að haldast í et'nahags- líft Nýtt kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags væ» þjóðarógæfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.