Morgunblaðið - 18.03.1965, Page 17

Morgunblaðið - 18.03.1965, Page 17
Fimmtudagur 18. marz 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 Að undanförnu hefur Leikfclagið Gríma sýnt nýtt íslenzkt leikrit í Tjarnabæ „Fósturmo ld“ eftir Guð'mund Steinsson. Nú eru eftir aðeins tvær sýningar á leiknum og verður næst síðasta sýningin fimmtudaginn 18. þ.m. Myndin sýnir Nínu Björk Árnadóttur og Bjarna Steingrímss. í hlutverkum sínum. Lausar lestar í íiskiskipum — Iðnaður Framhald af bls. 15. nauðsynlegt að taka í þjónustu okkar alla þá tækni, sem nútím- inn hefur upp á að bjóða. Þetta á vitaskuld við' alla þætti fram- leiðslunnar og atvinnulífsins. Því að dragist einhver þáttur aftur úr, verður það fjötur um fót hinnar, sem áfram vilja halda. Hin hefðbundna skipting fram leioslugreinanna hlýtur smátt og smátt að minnka og jafnvel hverfa. Segja má, að allar at- vinnugreinar séu nú að iðnvæð- ast á sama hátt og þegar iðnvæð- ing handverksins varð á síðustu öld upphaf verksmiðiuiðnaðar- ins. Af þessu leiðir, að atvinnu- greinarnar hljóta að nálgast hvor aðra, svo að ekki verður, þegar fram líður, greint á milli þeirra á þann hátt, sem gert er í dag. Hvort sem um sjávarútveg, landbúnað, handverk, iðnað eða verzlun er að ræða, þá eru mark- miðin þau sömu, þ.e. framleiðsla eða sköpun verðmæta og dreif- ing þeirra með sem beztum ár- angri og minnstum tilkostnaði. Þetta verður ríkisvaldið að gera sér ljóst, og því ber að stuðla að því, að þessi iðnvæðing fái að þróast hindrunarlaust, og að eðli legu jafnvægi milli framleiðslu- greinanna verði ekki raskað. Hin stóraukna og háþróaða tækni, sem nú ryður sér til rúms, gerir mjög miklar kröfur til at- vinnugreinanna, og þá sérstak- lega til stóraukinnar fjárfesting- ar innan þeirra. Hin mikla _og fjölþreytta framleiðsla gerir einnig stórauknar kröfur til xneiri hagkvæmni og hugvits í sölu og dreifingu, og þá að sjálf- sögðu til meiri menntunar og hæfni þeirra, sem skipuleggja og stjórna atvinnurekstrinum. Forsendur fyrir þessari þróun eru, að haldið sé uppi hagnýtum rannsóknum og tilraunum, og niðurstöður þeirra séu án tafar nýttar í framleiðslunni. Hér á landi er það mjög al- gengt, að fyrirtæki, hvort heldur er í sjávarútvegi, landbúnaði, iðn aði eða verzlun séu mörg og smá. Það hefur sína kosti, að fyrir- tæki séu lítil og skapi sem flest- um möguleika til að vera sjálf- stæðir, en það hefur líka sína miklu ókosti nú á öld tækninnar. Lítií fyrirtæki hafa ekki bolmagn til að hagnýta sér nýjustu tækni, og eiga því oft erfitt með að standast samkeppni. Þetta á bók- staflega við, hvar sem litið er í íslenzku atvinnulífi, Fiskiðnaðar- fyrirtæki, verksmiðjur, verzlun- arfyrirtæki, verkstæði og bú eru of mörg og smá. Þrátt fyrir síaukinn fólksfjölda í heiminum, eykst framleiðslu- magnið ennþá hraðar, þannig að samkeppnin heldur áfram að auk ast. Við íslendingar, sem erum fámenn en velmenntuð þjóð, hljótum í fra'mtíðinni að leggja ekki fyrst og fremst áherzlu á magn framleiðslunnar, heldur á það, að íslenzk framleiðsla verði framar öllu öðru þekkt fyrir gæði. Að því eigum við og hljót- um við að stefna. Ég hef hér drepið á nokkur helztu vandamál íslenzks iðnað- ar, og rætt nokkuð um lausn þeirra og framtíðarhorfur. Á fleira hefði verið full ástæða til að minnast, en það verður ekki gert í svo stuttu máli. Þing það, sem hér er hafið, mun væntan- lega gera þessum málum ýtar- legri skil. Að öðru leyti vísa ég til skýrslu stjórnar félagsins um störf þess. Og að síðustu þetta: Ég hef þá bjargföstu trú, að íslenzkur iðn- aður standi svo föstum fótum í íslenzku þjóðlífi, og að kunnátta hans og verkmenning sé slík, að hann standist alla sanngjarna og eðlilega samkeppni, fái hann þeim sjálfsögðu kröfum fram- gengt, sem hér hafa verið settar fram og skýrðar að nokkru. Við, sem iðnaðarvörur fram- leiðum í þessu landi, gerum ekki kröfur til neinna sérréttinda. Við gerum einungis þá sjálfsögðu kröfu að njóta sömu réttinda og viðurkenninga, sem aðrir atvinnu vegir þjóðarinnar. Til þess að fá þessari sjálfsögðu kröfu fram- gengt, er okkur iðnrekendum nauðsyn að standa fast saman innan vébanda F.f.I. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinii HVAÐ á að gera fyrir sjávarút- veginn í framtíðinni? Jú, það er enn margt ógert fyrir þann út- veg, sem er aðalatvinnuvegur okkar Islendinga. Ég hef haft hann í huga um nokkurra ára skeið, og komist að niðurstöðu: Ég vil aukinn afla og aultnar frístundir. Ykkur finnst ef til vill erfitt að samrýma þessi tvö meginatriði, en ég hef nú samt samrýmt þau, og mun ég reyna að gefa ykkur örlifcla innsýn í þær hugmyndir, sem ég hef gert mér. Það var fyrir um það bil sjö árum, að mér datt í hug að eitthvað yrði að gera til úrbóta í þessum málum, og tók ég að hugleiða þessi efni. Ég fékk hug mynd, þó hef ég bætt þá hug- mynd til mikilla muna og mér hefur tekizt að gera hana svo úr garði, að vart má að finna í stórum dráttum. Ég hef hug á því að bátar, allt að 300 brúttó lestum, verði umbyggðir, og sett ar verði í þá svokallaðar lausar lestar. Lestar þessar eru þannig útbúnar í stórum dráttum: Þeim er skipt í fjóra til fimm hluta. Er það gert til þess að létta á í upphífingu, því það á að vera hægt að lyfta hverjum lestar- hluta fyrir sig. Dekkið á að fylgja með lestunum í hífingu, og á það ekkert að raska styrk- leika skipsins vegna þess, að þversum þil eiga að skilja milli lesta. Ekki verða þetta þó heil þil, því þess á ekki að þurfa. Lestarnar falla á karma, sem eru þéttir með gúmmí. Gúmmíið er hart, eða nokkuð stinnt, og ligg- ur það í U fölsum, svó að það fletjist ekki út. Festingar eru á hverjum lestarhluta, og eru þær tvær á hvern hluta. Verður að koma í veg fyrir að lestarnar fari á hreyfingu þegar báturinn „dettur“ sem kallað er. Á aftur- hluta þess lestarhluta, sem hífð- ur er upp, er þil, sem hægt er að hífa upp þegar um losun er að ræða. Þetta þil er þannig útbúið að það er með fjórum til fimm klofum, sem ná þó ekki alveg upp í gegn. Eru þessir klofar til þess að fyrirbyggja útþenslu á svo stórum fleti, sem fiskurinn kemur til með að liggja að. Þessi föls eru föst við stíurnar, sem ganga í gegn um lestarnar þver- ar, og eru þær áfastar V-laga hillum, sem eru opnar í báða enda. En þó þilið sé með þessum mörgu klofum er hægt að hífa það upp í heilu lagi með því að skilinn er eftir heill karmur nokkuð breiður. Ofan á honum er svo dekkið, en það er skorið í sundur þvert yfir lestina og getur þess vegna gengið upp með þilinu. Er þessi aðferð notuð til þess að betra sé að þétta með þilinu. Á þessum lestum eru engir lúgukarmar, en í þeirra stað koma boxalok. Þegar þessi boxalok eru tekin upp út í sjó, Á RÁÐGJAFARÞINGI Evrópu- ráðsins, sem haldið yar í nóvem- ber sl. í Strassbourg, var m. a. rætt um rafmagnsverð frá kjarn- orkuverum, en á vegum Evrópu- ráðsins hefur verið leitazt við að safna sem gleggstum upplýsing- um, sem nota megi til að bera saman verð orku frá ýmsum teg- undum rafmagnsstöðva. Hefur komið í ljós, að slíkur saman- burður er ýmsum örðugleikum bundinn. í skýrslu, sem lögð var fram á þinginu og sérstök nefnd á þess vegum hafði úndirbúið, segir m. a., að ekkert kjarnorkuver, sem nú er starfrækt í Evrópu, geti selt raforku lægra verði en jafn- stórar stöðvar af eldri gerðum. Þvert á móti virðist verðið frá kjarnorkuverunum enn vera all- miklu hærra en frá öðrum orku- eftir Borgþór Árnason þá er tilbúinn laus karmur, sem er hringlaga eins og boxalokið og er honum smellt í sama far til þess að varna því að sjór gangi óhindrað niður. Ef um er að ræða línuspil á þeim lestarhluta, sem hífður er upp, þá er það híft með, og verður þess vegna að vera rafknúið, sem er að mörgu leyti miklu þægilegra. Tengi- bretti eru á framþilinu til þess að hægt sé að tengja skipið frá lestunum. Svo er það með dekk- lestina, hún þarf að vera sérstak- lega útbúin, og er hún þannig, að það eru tilbúnir sérstakir kass ar fyrir hvert skip. Kassa þessa er hægt að fletja út, því þeir eru á hjörum, en þó traustlega byggð ir. Þeim er krækt saman á horn- um þegar þeim er stillt upp, rammi er í botni kassans, sem heldur honum saman, en í honum er lúga, sem hægt er að opna á smekklegan hátt. Nú er ekki sama hvort báturinn er á síld- veiðum eða þorskveiðum. Ef hann er á þorskveiðum koma færri kassar til greina, og eru þeir allir merktir og koma á á- kveð.ium stöðum.-Þeir eru dálít- ið misstórir. Fer það eftir því hvar þeir eru staðsettir á dekk- inu. Við skulum taka t.d. fjóra kassa og stilla þeim upp. Þá þurfa þeir að geta verið í ákveðn ■ um skorðum ef um rysjótta tíð er að ræða, sem oft er. Þá hef ég sett lykkjur á hlið kassanna og festi við hann slá, sem fest- ist út í síðu og læsist þar. Eru þessar slár neðarlega á kössunum og ættu ekki að koma að sök gagnvart úrgreiðslurennunum. Nú er t.d. ekki um þetta vanda- mál að ræða að síldveiðum, því að þá eru kassarnir þéttar sam- an og liggja út í síðum skipsins. Þessi aðferð ætti ekki að verða hvað þægilegust á síldveiðunum, því það þarf ekki að moka bröndu, aðeins að húkka á kassa og lestar og allt of sumt. Nú, eitthvað þarf að gera við kass- ana þegar þeir eru ekki í notk- un, ekki er hægt að hafa þa á dekkinu, því þá yrði alltaf verið að henda þeim til og frá, þegar einhver lestarhlutinn er hífður upp. Þó hef ég komið þvi þannig fyrir, að um 40 cm. bil er frá súð að ganeringu, og er þetta bil á bæði borð. Þarna ætla ég að geyma kassana. " Svo er þessu lokað og ekki annað .siáanlegt en að dekkið sé heilt. Sérstakur krani þarf að vera fyrir hendi, svo að hægt sé að anna svona löndun, og ætla ég hann þannig: Hann á að verða með sporöskju- lagaðri braut, á þeirri braut ganga þrír kláfar, sem hver í sínu lagi á að geta lyft allt að 30 tonnum. Þarf því burðarþol kranans í heild að vera allt að 100 tonnum. Við enda kranans er veltivog, alveg sérstaklega út búin til að geta losað sig sjálf. Á hún að taka ca. 30 tonn. — verum. Þá er á það bent í skýrslunni, að örar framfarir hafi orðið á sviði kjarnorkutækni. Sé því mjög líklegt, að eitt eða fleiri þeirra kjarnorkuvera, sem nú eru í smíðum í Vestur-Evrópu og áætlanir liggja fyrir um, verði því nær samkeppnisfær. Er í því sambandi sérstaklega bent á Wylfa-orkuverið í Bretlandi, sem taka á í notkun 1969, en vélarafl þess verður 1100 megawött. Orka frá kjarnorkustöðvum verður að fullu samkeppnisfær skömmu síðar, að því er í skýrsl- unni segir, en í fyrstu þó aðeins við sérstakar aðstæður. Ekki er reynt að spá, hvaða ár þetta muni verða, enda talið, að það sé m. a. komið undir stjórnmála- ákvörðunum í ýmsum Evrópu- ríkjum og tækniþróun, sem ekki Fyrir miðri kranabrautinni eru úðunartæki, sem þvo og sótt- hreinsa lestarnar. Vinnuhringur kranans er þá þannig að þegar kláfur no. 1 hefur ’lyft einum lestarhluta og er kominn að vog- inni, þá hefur kláfur no. 2 lyft sínum hluta og er lagður af stað. Þá er no. 1 kominn aftur yfir bát inn og sleppir niður sínum lestar hluta á sinn stað. Þannig gengur þessi löndun fyrir sig. Tvö spil eru í hverjum kláfi, mismunandi kraftmikil að vonum, því að ann að þeirra gegnir ekki öðru hlut- verki en því að opna lestina og lokar henni síðan aftur. Löndun, sem áður tók 5—6 tíma, ætti því ekki að taka meir en hálfan tíma. Það eru ekki svo lítil þæg- indi af þessu fyrirkomulagi, því það er bókstaflega ekkert að gera fyrir skipshöfnina annað en að binda skipið, nema því að- eins að um vinnu á veiðarfærum sé að ræða. Þá geta þeir unnið að þeim á meðan löndun stendur, og geta alveg gengið óþreyttir til þeirra verka. Nú, svo við tölum dálítið um fiskinn sjálfan. Með þessu fyrir- komulagi gefur það auga leið að um miklu betri nýtingu á aflan-- um verður að ræða. Við vitum að ein goggstunga myndar eins fers'entimetra skemmd út frá sér, og munar töluvert um þann bita, þegar búið er að snyrta hann úr flakinu. Einnig vildi ég láta færi band flytja allan fiskinn til stöðv anna. Hraðastillir á að vera á færiböndunum sem liggja frá veltivogunum, þannig að ákveð- inn maður fylgist með afköstum þvottavélanna, sem verða að vera a.m.k. fjórar til fimm og liggja smærri færibönd að þeim frá aðalbandinu. Síðan gengur fisk- urinn beint í flökunarvélarnar og þaðan til pökkunar. Ég vil láta vinna aflann jafnóðum og hann berst að landi, í vaktavinnu. — Þessi aðferð sparar óhemju vinnu í landi. í staðinn fyrir að marg- henda sama fiskinum fram og aftur og láta hann standa í haug um, og gera þannig góða vöru að gúanómat, getur þú fengið sama fisk sem fyrsta flokks Ameríkumarkaðsvöru, svo að ég minnist nú ekki á allt það pláss, sem fiskurinn þarf til geymslu. Það er sérstaklega gott að koma þessari aðferð við t.d. í Vest- mannaeyjum, vegna þess að frystihúsin liggja það vel við. — Þetta er þó nokkuð erfitt úti á landi, þar sem staðhættir eru með allt öðru móti, en þó má leysa það vandamál. Þetta verð- ur verkefni fyrir okkar ágætu íslenzku verkfræðinga um ókom- inn tíma. Þarna verður og að koma við sögu okkar þegar þekkta fyrirtæki Stálvík h.f. — Þetta getum við framkvæmt án erlendrar íhlutunar og getur því orðið ramíslenzkt. Borgþór Árnason. verður séð fyrir með vissu. — f skýrslu Evrópuráðsnefndarinnar er þó vissum aðvörunarorðum bætt við og bent á, að óraunhæf- ar kenningar um verðlækkun á rafmagni frá kjarnorkuverum hafi komið fram. Vikið er að ýmsum öðrum at- riðum í skýrslu þessari, m. a. að því, að mikil samkeppni sé nú milli framleiðenda kjarnorkubún aðar, en um er að ræða þrjár mismunandi aðferðir Við fram- leiðslu á rafmagni með kjarn- orku og er erfitt um samanburð. Umræður um þessi efni urðu á ráðgjafarþingi • Evrópuráðsins, og m. a. sagði hollenzki ráðherr- ann de Block, að nú væru í Vest- ur-Evrópu kjarnorkuver, sem hefðu vélarafl er næmi 2000 megawöttum. í smíðum væru kjarnorkuver, sem að stærð yrðu 8360 megawött. Til samanburðar má nefna, að rafstöðvar hér á landi geta framleitt 147 mega- wött. (Frétt frá upplýsingadeild Evrópuráðsins). Verð rofmogns fró kjarnorkuverum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.