Morgunblaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.03.1965, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLADIÐ 7immtudagur 18. marz 1965 Helgi Gíslason svarar Halldóri Ásgrímssyni DAGBLABIÐ Tíminn 28. febr. *1. birtir viðtal við Halldór Ás- grímsson, alþingism. og útibús- etjóra Búnaðarbankans á Egils- stöðum, um starfsemi útibúsins vöxt þess og viðgang. Er Halllór bjartsýnn á rekstur útibúsins og hefir veltan aukizt ár frá ári þau fáu ár sem útibúið hefir starfað og er allt gott um það að segja, og er það ósk allra Austfirðinga, eins og hans var von og vísa. En í viðtali þessu getur Hall- dór ekki setið á sér að breyta skaetingi í samferðamennina og hagræða um leið sannleikanum eins og hann var von og vísa. í áminnstu viðtali úir og grúir af getsökum í garð náungans og enda starfsmanna aðalbankans, eins og þar, sem hann segir: „Að einhverjir reyndir starfsmenn hans hafi talið sig vera búna að reikna út, að stofnun og starf- ræksla útibús á Egilsstöðum mundi valda aðalbankanum út- gjöldum er næmu milljónafjórð- ungi árlega um langa framtíð“ Þegar hann er spurður á hverju slikt álit mundi vera byggt, telur Halldór orsökina fyrst og fremst fjármagnslitið og fátækt um- hverfi og samkeppni við þau bankaútibú, sem fyrir eru í fjórðungnum. Ennfremur segir Halldór: „Auk þss hafði þó viss hópur manna á Héraði, eftir að vitað var um ákvörðun Búnaðar- bankans að stofna útibú á Egils- stöðum, stofnað þar sparisjóð." Hér hagræðir Halldór sannleik- anum og ætlar það sér og öðrum ráðandi „Framsóknarmönnum“ til framdráttar. Sannleikurinn er hins vegar sá, að eftir að Héraðs- búar höfðu í áratugi leitast fyrir um það, að Búiiaðarbankinn setti útibú á Egilsstöðum, en ráðamenn bankans, flokksbræð- ur Halldórs, höfðu daufheyrzt við því, stofnuðu „vissir menn“ þ.e. Sjálfstæðismenn á Héraði og í Borgarfirði, Sparisjóð Fljóts- dalshéraðs 2. nóv. 1958. í>á loks- ins rumskaði lið Halldórs og bankaráð Búnaðarbankans sam- þykkti þaan 23. sept. 1959, sam- kvæmt bókum ráðsins, að stofna útibú á Egilsstöðum. Peninga- stofnun á Héraði var mikið hags- munamál Héraðsbúa og vinsælt af þeim, mátti það því auðvitað ekki ske, að Sjálfstæðismenn réðu slíkri stofnun. Varð því stofnun sparisjóðsins til þess að hrinda af stað stofnun útibús Búnaðarbanhans á Egilsstöðum. Vist er það gott að útibúið á Egilsstöðum vex og dafnar. Sparisjóðurinn vex lika ár frá ári, mun það síður vinsælt af Halldóri. Má eflaust þakka það mest lipurð og dugnaði spari- sjóðsstjórans Pórðar Benedikts- sonar, skólastjóra á Egilsstöðum. Undir hans stjórn hefir sjóðurinn gjört mikið gagn og náð vin- sældum manna á Héraði. Að vonum eru uppi raddir um það, að sameina þessar tvær pen- ingastofnanir á Héraði og er það sama eðlis og víðar á land- inu hefir viðgengizt. En ég þyk- ist vera það kunnugur mönnum og málefnum hér um slóðir, að það muni ekki gjört meðan Hall- dór Asgrímsson ræður útibúinu, því það munu fáir sem vilja sam- eina þetta undir hans hatt. Hall- dór hefir það eínstrengingsleg sjónarmið, að hann er ekkert sam einingartákn hins stóra kjördæm is Austfirðinga né heldur Héraðs búa sem bankastjóri á Egilsstöð- um. I umræddu viðtali í „Tíman- um“ minnist Halldór á lán það er hann lét útibú sitt veita „Kaupskip hf“ á árinu 1963. Þetta held ég, að hann hefði nú ekki átt að fara að rifja upp og skal ég vera fáorður um það. Segir Halldór, að „sérstök spari- fjárinnlög, voru ætíð til staðar á móti lánsf járupphæðinni“. Seg- ir sig sjálft, að menn, sem hafa ráð á sparifé, sem nægir þeim til að standa í skilum með skuld- bindingar sínar mundu ekki fara að fljúga með það austur í Egils- staði til þess að leggja það þar inn og fá þar víxil eða reiknings- lán í staðinn. Sannleikurinn er líka sá, að svo bezt mun þetta fé hafa skilað sér að skipið var selt. Ekki veit ég hvaða liðssafnaður það er, sem Halldór telur að hafi verið stefnt saman hér út af um- ræddri lánveitingu, nema ef það skyldi vera fundur í Bændafélagi Fljótsdalshéraðs, þar sem þetta bar eitthvað á góma. En ef Hall- dór, er búinn að gleyma því, hvaða málefni var til um- ræðu og rætt á þeim fundi, þá ætla ég að flokksbræður hans þeir Eysteinn Jónsson og Páll Þorsteinsson geti rifjað það upp fyrir honum, því á þessum fundi mættu allir þingmenn Austfirð- inga. Halldór talar í tíma og ótíma um „Gróusögur“. Mun hann því manna kunnugastur þeirr; sagnar gerð. Mér er enn í minni yfir- lýsing sú, er Halldór gaf á fram- boðsfundi á Egilsstöðum við síð- ustu kosningar. Þá sagði hann, að Sjálfstæðismenn á Héraði hefðu dreift þeim sögum, að hann hefði lánað af fé bankaútibúsins til Reykjavíkur. Þetta hafði ég ekki heyrt þá, og mér hefði ekki dottið í hug að væna Halldór um slíkt. Þessi yfirlýsing gaf tilefni til tortryggni, enda sannaðist á eftir, að nokkuð var hæft í þessu. Skömmu síðar kom svo lánveiting til Kaupskips hf. Skyldi það geta verið, að með viðtalinu í „Tímarium“ nú sé Halldór Ásgrímsson að undirbúa sig með það að læðast á ein- hvern hátt aftan að okkur Hér- aðsbúum og öðrum Austfirðing- um viðvíkjandi peningastofnun- ina hér. Helgafelli 10. marz 1965 ODDGeiR IÓNSSON : UNGIR VEGFARENDUR HANDBÓK FYRI1Í fÓSTRUR, FOREIDRA OG SMÁ6ARNA* KENNARA t UMfEROARKENNSLU ðot iHsvinoiéiogtó SUMARGJÖF gaf ót Kápumynd kversins. ARSHÁTÍÐ HeímdaBlar verður haldln í Sigtúni föstudaginn 19. marz kE. 9 FJOLBREYTT DAGSKRA TVÆR HLJÓMSVEITIR. LOS COMUNEROS DELPARUQUAY skemmta ásamt fleiru. Matur framreiddur frd kL 7 Miðar afhentir við innganginn Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti Skemmtinefndin. Bókin „Ungii vegfnrendui" ÁHUGAMENN um umferðar- fræðslu telja það mikilsvert að börnum innan skólaskylduald- urs séu veittar vissar leiðbeining- ar og varúðarkennd þeirra vakin. Samkvæmt reglugerð um um- ferðarfræðslu, er svo til ætlazt að börnum í smábarnaskólum og leikskólum (barnaheimilum) skuli leiðbeint um einföldustu reglur, sem fótgamgendum ber að fylgja í umferð og temja þeim varúð. Skyldum foreldra til að gera hið sama skal þó ekki gleymt. Á síðastliðnu sumri kynnti höfundur ofangreindrar bókar fóstrum slíka kennslu á námskeiðum Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, og nú hefir hann samið og gefið út, í samráði við Sumargjöf, handbók um þetta efni. Bókin er 40 siður að stærð, með 40 myndum. Tiligangur bók- arinnar er tvíþættur. í fyrsta lagi að ieiðbeina fóstrum og smábarnakennurum hvernig haga megi slíkri kennslu innan- og utanhúss og í öðru lagi um skyldur og ábyrgð foreldra og þeirra þátt í igæzlu- og leiðbein- ingarstarfi. Efni bókarinnar er sett fram á lífrænan máta með skemmtilegum teikningum eftir Helgu B. Sveinbjörnsdóttur, sem einnig hefir gert forsiðuna, og ljósmyndum Óskars Gíslasonar. sem teknar eru á síðastliðnu sumri við dagheimili borgarinn- ar og á götum úti. Höfuntíur skrifar skýrirngar með myndun- um og býr til umferðarsöngva, sem fóstrur og foreldrar gjta kennt börnunum. Til þess að unnt sé að dreifa fræðsluriti þessu ókeypis, tók höfundur það ráð að safna greiðsluloforðum til útgáfunnar meðal vátryggingafélaga, og af- henti loforðin síðan til barna- vinafélagsins „Sumangjafar“, er hann óskaði eftir að stærði að út- gáfunni og sæi um dreifingu ritsins. Þess skal sérstaklega get- ið að Félag bifreiðainnflytjenda greiddi kl. 10.000.00 til útgáfunn- ar, en alls nam kostnaður við hana um 50.000.00 króna. Höf- undur tók ekkert fyrir sína vinnu. Byrjað er að nota hand- bók þessa í Fóstruskólanum og Kennaraskólanum og henni hefir verið dreift meðal barna í dag- heimilum Sumangjafar og Skóla fsaks Jónssonar. Ennfremur verður ritið sent til viðkomandi aðila úti á landi. Með útgáfu þessarar litlu bók- ar hefst nýr þáttur í umferðar- fræðslunni — og forráðamenn smábarnaskóla (auk f oreldra) skyldu minnast þess að unnt er að fá bókina ókeypis í skrif- stofu Sumargjafar. Trúlofunarhringar HALLDÓR Skola. rousug 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.