Morgunblaðið - 18.03.1965, Side 21

Morgunblaðið - 18.03.1965, Side 21
nmmtuaagur 18. marz 1965 MOHGUNBLAÐID 21 Bjarni Kr. Pétursson frá Hesteyri — Minningarorð BNGINN ræður sínum nætur- stað. Þessi orð komu fram í hug minn miðvikudaginn 24. febrúar, er ág frétti lát vinar míns Bjarna Kr. Péturssonar frá Hesteyri. Bjarni fæddist 28. apríl 1905 í Hælavík á Ströndum. Foreldrar hans voru þau hjónin Petrólína Elíasdóttir og Pétur Jóhannsson. Bjarni var yngstur fimm syst- kina. Hann kynntist skjótt fall- valtleika lífsins. Skömmu áður en hann fæddist, lézt faðir hans úr lungnabólgu. í»á harðnaði í ári hjá fátæku ekkjunni. Eina bjargarvonin var að koma Bjarna í fóstur. Það var nokkur sárabót að hjón á næsta bæ, Búðum í Hlöðuvík, tóku við sveininum unga. En svo sviplega vildi til, að bóndinn lézt nokkru síðar úr eömu veiki og faðir Bjarna. Móð- ir hans varð því að taka við drengnum aftur, og nú komst hann í fóstur að Steinólfsstöð- um í Veiðileysufirði. Þar nýtur hann ástríkis til tveggja ára ald- urs hjá hjónunum Bjarna Gísla- syni og Kristjönu Jónsdóttur. Þá bregða þau búi, enda tekin að reskjast, og treysta sér ekki til að hafa drenginn lengur. Litli einstæðingurinn fer næst til Hest eyrar i fylgd með Kristjönu tfóstru sinni. Hún ætlar að vera þar um tíma til þess að vita, hvernig drengurinn kann við sig á nýja heimilinu. Nú má segja, að Bjarni Kr. Pétursson komist fyrst í höfn, er jþau hjónin Vagn Benediktsson bóndi og Margrét Guðmundsdótt- ir ganga honum í foreldrastað. Einkadóttir þeirra, Soffía tekur Bjarna sér í bróður stað. Bernsku- og æskuárin liða fljótt við leik og starf í fögru um- hverfi í Mónum. Rétt fyrir innan túnfótinn niðar Hesteyraráin sitt eilífa lag, en skammt fyrir neðan blasir fjörðurinn við, fjöllum girtur. Hugur Bjarna beinist snemma að sjónum. Hann eignast árabát, seinna trillu. Hann var gætinn sjómaður, sem stýrði fari sínu heilu í höfn, þó að hættur væru oft miklar í sviptibyljum Djúps og Jökulfjarða. Eins og flestir á þessum slóð- um, fékkst hann við búskap, jafn hliða sjómennskunni. Árið 193>6 veiktist Bjami af misl ingum, og um næstu áramót fer hann til sjúkrahúsvistar á Land- spítalann. Það verður upphaf langvarandi vanheilsu. En hann æðrast ekki. Um vorið kemur Bjarni heim aftur. Mér er minnisstæð sú stund, er Vagn fóstri hans hljóp á móti honum og fagnaði honum með miklum innileik. Bjarni vissi, að hann var kominn heim, og hann átti hvergi heima, nema þar. En skjótt skipast veður 1 lofti. Sumarið 1937 fellur Vagn frá, og þá flytur Margrét kona hans til Soffíu, dóttur sinnar og manns hennar Guðmundar Jóns Guð- mundssonar í Heimabæ. Margrét sleppir þó ekki hend- inni af fóstursonum sínum þeim Bjarna og Hrólfi Guðmundssyni, sem síðar tók út af bát frá ísa- firði og drukknaði frá konu Og tveimur ungum börnum. Hún sýn ir þeim alla þá ástúð og umönn- un, er hún getur í té látið. Vorið 1950 andast Mangrét, og um haustið telur Bjarni sér ekki fært að búa lengur á Hesteyri, þar sem Soffía, fóstursystir hans, er á förum ásamt fjölskyldu sinni. Hann fýsir ekki til Reykja- víkur, telur heppilegra að flytja til Péturs bróður síns á ísafirði. Hann getur þá alltaf skroppið heim, þegar heimþráin knýr á. Reyndin verður sú, að hann stundar lítt fasta atvinnu á ísa- firði. Eflaust hefur lasleiki vald- ið þar nokkru um. Auk þess kaus hann að vera frjáls ferða sinna, geta farið norður þegar þannig stóð á. Bjarni var snemma afbragðs skytta og jnikill veiðimaður. Það var löngum eftirlætisstarf hans að liggja á grenjum og eltast við refi uppi um fjöll og firnindi. Flest sumur, eftir að hann flutti, fékkst hann nokkuð við heyskap á Hesteyri, lá þar við og naut þess að vera kóngur í ríki sínu, fjarri ys og þys bæjarlífs- ins. Margs er að minnast, þegar Bjarni Kr. Pétursson er allur, ekki sízt frá þéim árum, er mann laust varð í Sléttuhreppi. Þá var gott að njóta aðstoðar hans. Það var sama, hvort vantaði flutning til eða frá Hesteyri. Hann var boðinn og búinn að leysa hvers manns vanda. Með honum er geniginn trygg- lyndur vinur, sem unni átthögum sínum svo, að þar kaus hann helzt að dveljast. Gestir og gang andi vissu, að Bjarni hafði alltaf opið hús, hvort sem hann var heima eða að heiman. Systkinum, fóstursystur og öðr- um aðstandendum færi ég inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Reidar G. Albertsson. Sigríðui Þ. Sigurjónsdóttir frú Vestmunnueyjum — Minning Fædd 25. júlí 1944. Dáin 13. nóv 1964. HVE erfitt er ekki að sætta sig við það, þegar ungt fólk í blóma lífsins, er kallað svo skyndilega burt úr þessum heimi. Einmitt þegar lífið er að byrja og björt íramtíð blasir við. Þá snögglega er öllu lokið. Það var sem hel- kuldi settist að mér, er ég frétti um andlát Siggu frænku minnar. JMér fannst þá svo skammt um liðið frá því ég sá hana síðast, þá glaða og heilbrigða. Og hvern hefði getað grunað þá, að svo skömmu síðar yrði hún látin og horfin okkur. En hún er ekki horfin okkur að fullu og öllu Ég trúi því, að við eigum eftir að hitta hana aftur, handan við gröf og dauða, þar sem engar þján- ingar og sorgir eru lengur til. Oig það er gott að hugsa til þeirra endurfunda. Það var alltaf eitthvað svo hlýtt og traustvekjandi við Siggu. Henni var gott að trúa fyrir ýmsum vandamálum. Hún átti alltaf til uppörvandi orð. Við Sigga ólumst báðar upp í Vest- mannaeyjum, en ég aðeins til 6 ára aldurs er ég fluttist til Reykjavíkur með foreldrum mínum. En vináttuböndin milli okkar slitnuðu ekki við það heldur styrktust ár frá ári. Sigga gekk í Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum og tók þaðan Igott burtfararpróf. Meðal skóla- systkina sinna var hún mjög vin- sæl, sökum hlýlegrar og eðli- legrar framkomu sinnar og að- laðandi persónuleika. Sigga var gift ungum læknanema einnig tfrá Vestmannaeyjum, Birni ívari Karlssyni og áttu þau saman lít- inn fallegan dreng. Framtíðin beið þeirra, þagar svo skyndiLega f' : dró ský fyrir sólu á hamingju- himni þeirra. En það mun birta á ný. Og minning Siggu lifir í hjörtum okkar. Minningin um unga og elskulega stúlku. sem öllum vildi gott gera og öllum þótti vænt um, sem kynntust henni. Elsku Sigiga. mín, nú þeg- ar þú ert horfin okkur yfir á æðri svið, þá vona ég að þessi fátæk legu orð mín sýni þakklæti mitt fyrir allar góðar samverustundir á liðnum árum. Megi sá sem öllu ræður, styrkja eiginmann þinn, og aðra vandamenn í sárri sorg og vernda litla drenginn þinn. G. S. G v Já sefist sorg og tregi, þér saknendum við gröf, því týnd er yður eigi, hin yndislega gjöf. Hún hvarf frá synd og heimi til himins fagnið því. Svo hana guð þar geymi og gefi fegri á ný. Íbúð óskast Ung hjón, sem koma heim erlendis frá um miðjan maí nk óska eftir að leigja 2ja—3ja herb. íbúð. Þrennt í heimili. Tilboð sendist Pálma Einarssyni landnámsstjóra í pósthólf 215, Reykjavík. ÞRÍFASA RAFiÍTORAR fyrirliggjandi af eftirtöldum stærðum: %, 1, 1,5, X, 3, 4 og 5,5 HP. Vatnsþéttir (P33) 220/380 Vött, 1450 s/mín. Málsetning mótoranna er samkvæmt I. E. C. (International Electrotechnical Commission). 3000, 1000 og 750 s/mín. verða til á næstunni. Söluumboð Véladeild S.Í.S. Ármúla 3; sími 38900. JÖTUNN H.F., rafvélaverksmiftja. Hringbraut 119. — Sími 20-500 FARMALL B-275 OG B-414 með yfirstærð af startara og rafgeymh Athugitf Uosthiu! Fjögurra strohha dieselvélar. ^ óháð afhastamihil vöhvalyfta, þart engan lyttuás. 'fa Gífurleg dráttarorha 'fo Lás á mismunadrifi 'JVg sláttuvét, vöhvahnúin Vönduð mohsturstœhi 'fe Góð varahlutaþfónusta Þrátt fyrir tangan afgreiðstufrest frá verh* smiðjunum munum við happhosta að eiga FARMALL fyrirtiggfandi til afgreiðstu strax. FARMALL ER FRAMTÍDIN Vppiýsingar gefa: Kauptélögin um land ullt. VÉLADEILD SÍS Artnúla 3, Keykfavík, sfml: 38900

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.