Morgunblaðið - 21.03.1965, Síða 8
8
MORGU N BLAÐiÐ
Sunmidagur 21. marz 1963
Lóð óskast
Viljum kaupa lóð undir fjölbýlishús eða minna. —
Tilboð merkt: „18 — 6747“ sendist afgr. Mbl. fyrir
fimmtudag.
Til leigu 14« mai
4ra herb. risíbúð, reglusemi og góð umgengni áskil-
in. Fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist afgr. Mbl.,
merkt: „Skjól — 6744“.
— decorative laminate
Sænska harðplastið er viðurkcnnd gæða-
vara, en samt ódýrt.
Yfir 60 litir og mynstur
að velja úr.
SMIDJUBIJDIIM
við Háteigsveg.
Sími 21222.
Smábarnafatnaður
KJÓLAR — SKOKKAR
PEYSUR — PILS
ÚLPUR — KÁPUR
VE B.Z 3LTJÍTI
m
GRETTISGATA 32
HALLDÓRJÓNSSON H.F. Heildverzlun
Hafnarstreeti 18*Símar 23995 oa 12586
Wellaform hárkrem heldur hárinu þétt og vel, og gef-
ur því ferskan og m'iúkan blæ.
Ákjósanlegt fyrir hverskyns hárlagningu. Engin feiti.
Klístrar ekki. Mjög drjúgt. Wella fyrir alla fjölskylduna.
70 ára:
Jóhannes Sigurðsson
Sýruparti á Akranesi 70 ára .. 4
ÞANN 3. marz s.l. varð góð-
kunnur Akurnesingur Jóhannes
Sigurðsson skipstjóri, sjötugur,
og þótt nú þessi dagur sé liðinn
er mér ljúft Oig skylt að minnast
hans að nokkru á þessum tíma-
mótum í lífi hans.
Hann fæddist á Bræðraparti
hér á Akranesi, elsti sonur hjón-
anna Guðrúnar Þórðardóttur og
Sigurðar Jóhannessonar, og
byrjaði að stunda sjóróðra með
föður sínum eins fljótt og hann
gat setzt undir árar. — Fimmtán
ára fór Jóhannes á skútu, en for-
maður á 6 manna fari föður síns
varð hann um tvítugt.
Þegar vélskipa-tímabilið gekk
í garð, gerðist hann happasæll
skipstjófi á fleiri skipum, fyrst
hjá Bjarna Ólafssyni & Co í 14
ár og síðar hjá föour mínum,
Þórði Ásmundssyni í 16 ár.
Það þótti mikill viðburður hér
áður fyrr, þegar nýr bátur frá
„útlöndum11 bættist í fiskiskipa-
flotann. — Einum slíkum tók
Jóhannes á móti, og var „for-
maður“ á honum í nokkur ár,
eða þar til að BÓ. & Co seldi hann
Guðmundi á Rafnkelsstöðum,
sem mangir þekkja að öllu góðu,
en þó flestir vegna árvissra afla-
meta Víðiranna. — Báturinn hét
Víðir, og þegar hann sigldi hér
inn á Lambhúsasundið að lokinni
för sinn frá Danmörku, orti afi
minn, Þorsteinn Jónsson frá
Grund, þessa vísu, en hanh
dundaði við það blindur að yrkjá
dagrímu það árið, eina eða tvær
á dag um það merkasta setn
skeði:
í dag líður inn á Sund,
örkin fríð af Danagrund.
Kom heill Víðir vina á fun<t
vertu pxýði og aflamund.
Þetta varð að áhrifsorðum,
bæði hvað snerti aflasæld Jój-
hannesar og ekki síður útvegsj-
bændanna á Rafnkelsstöðum,
reyndar var bátsnafnið áfrarri
aflasælt, og köfnuðu eriigir bátar
undir því nafni.
NeSi á Auðnupx, pins og kunm-
ingjar hans kalla hann nú, vatf
mjög vinsæll bæði hjá undirií
mönnum sínum, sem voru þeir
sömu í skiprúmi ár eftir ár, og
hjá vinnuveitendum, ennfremuir
mikilsmetii,n ekki aðeins setn
fengsæll sKipstjóri, heldur einn-
ig fyrir það hvað hann fór vel
með alia hiuti og bar hag út-
gerðarxnnar fyrir brjósti, sem
hans eigin fyrirtæki væri, o£
mættu margir bæði skipstjórnar-
menn og aði-ir af honum læra I
því efni sem öðru. — Hann er
drengur hinn bezti, og á sér
örugglega engan óvildarmann,
og ber þar margt til. —• Hann er
trölltryggur, hefur skemmtilega
kímniigáfu, sem aldrei er þó raet-
in né gróf. — Slík gáfa er þvl
miður alltof sjaldgæf. — En að
hafa skopskyn samfara góðvilja
í dagsins önn er góð hjálp til hess
að viðhalda hreinleika hjartans,
en sá er það gerir verður aldrei
gamall í þess orð merkingu.
Það er ekki hægt að skrifa urt»
Jóhannes Sigurðsson vin okkar
án þess að hugsa um leið tjl
konu hans, Guðmundu Siigurðar-
dóttur frá Sjávarborg á Akra-
nesi, sem lézt fyrir tæpu ári stö-
an. — Þau giftu sig árið 1921, og
'nöfðu því lifað saman í farsælu
hjónabandi í yfir 40 ár. — Þau
eignuðust 5 börn, 4 dætur og
einn son: — Þuríði Öldu, Guð-
rúnu Sjöfn, Emilíu, og Selmu, ea
einkasoninn Sigurð misstu þau
er hann var um tvítugsaldur.
Guðmunda var sérlega vel gerð
persóna, framúrskarandi vel
verki farin og duigleg að hverju
sem hún gekk._ — Hún tók ein-
lægan þátt í kjörum þeirra, sem
einhverra hluta vegna höfðu lent
forsælumegin í lífinu. — Gerði
mörgum gott í kyrrþey og gladdi
marga, ekki síst með brosi sínu,
góðlátlegri kimni og hnittnum
tilsvörum, sem skapaði nærstödd-
um skemmtun og vellíðan. — Það
var því mikið áfall fyrir Jóhann-
es að missa sína góðu konu, þeg-
ar hann einnig átti við vanheilsu
að stríða.
Þess vegna viljum við vinir
og frændur Jóhannesar nú á
þessum tímamótum, ekki einungia
óska honum langra lífdaga með
hamingju liðinna daga. Heldur
fyrst og fremst góðrar heilsu,
svo að hann geti óhindraður
fyligst með veðurfari, aflabrögð-
um, þróun og vonandi eflingu
þess atvinnuvegs, sem hann sjálf-
ur var þátttakandi 1 að skapa
með hugsjónum og hörðum hönd-
um árabátaaldar mannsins, sem
varð með sigg í lófum og sveitt*
an skallann að reikna út veður-
far, sjólag, siiglingarstefnu o'g
fiskigönigur, án allra áhalda,
tækni og sérfræðinga.
Júiius Þórðarson.
Til þess að geta annað eftirspnrn viljum
við vinsamlegast biðja þau fyrirtæki sem
þurfa á að halda WESLOCK HURÐA-
SKRÁM í apríl og maí að hafa samband
við okkur sem allra fyrst og leggja inn
pantanir sínar.
UMBOÐS-OG HEILDVERZLUN
Bali Bali
ésmiðjan Víðir hf. auglýsir
Hið margeftirspuróa BALI sófasett er komið á mark
aðinn. — Vandað sófasett, sem stenzt kröfur tím-
ans. 1. flokks efni og vinna, fagurt form, giind úr
tekki, ekta svampgúmmí í baki og sæti, klætt leð-
urlíki eða taui eftir ósk kaupenda.
. . Gjörið svo vel og lítið inn og skoðið þetta
glæsilega sófasett.
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt
Trésmiðjan Víöir hf.
Laugavegi 166. — Símar 22222 og 22229.
Bali Bali
TrJ I HRINGVER VEFNAÐARVORUVERZLUN
Nýkomið
Mjög falleg einlit
ULLAR- og SILKIEFNI.
AUSTURSTRÆTI 4
S I MI 1 7 9 0 0