Morgunblaðið - 21.03.1965, Side 11
Sunmidágur 21. marz 19€5
11
MORGUNBLAÐID
Kosningar á Ceylon
tvísýnt um
• Mánudaginn VI. mar* n.k.
ganga íbúar Ceylon til kosn-
inga í sjötta sinn S0á því þeir
fengu sjálfstæði árið 1948.
Engin stjórn landsins hefur átt
því að fagna að sitja út heiit
kjörtímabil og núverandi
stjórn, undir forsæti frú Sir-
ima Bandaranaika, neyddist
til þess að boða til kosninga
eftir að samþykkt var van-
traust á hana 3. desember sl.
Úrslit kosninganna á mánu-
daginn verður beðið með mik-
illi eftirvæntingu — en frétta-
menn telja, að kosninigarnar
séu hinar tvísýnustu frá því
1948.
Á kjörskrá eru nú 4,7 millj-
ónir manna og kosið er um
151 þingsæti. Um atkvæðin
berjast fyrst og fremst þrír
flokkar. Má þar fyrst telja
Samsteypufylkinguna, sem
núverandi stjórn landsins
stendur að. Aðalflokkur sam-
steypunnar er „Frelsisflokk-
urinn“ — flokkur frú Bandar-
anaika, og býður hann fram
í hundrað kjördæmum. Sam-
steypunni tilheyra og Trot-
skyistar, sem bjóða fram i 24
kjördæmum og Kommúnistar,
er bjóða fram í níu kjördæm-
um. Af frambjóðendum Frelsis
flokksins teljast a.m.k. 71 ’til
vinstri arms hans — en 37
þeirra hafa á liðnum árum
haft náið samstarf við komm-
Únistaflokkana. Stefnuskrá
samsteypunnar hefur mjög
verið haldið á loft í vetur. Er
hún í fjórtán liðum og kveð-
ur m.a. á um, að öll dagblöð í
landinu verði sett undir eftir-
lit stjórnarinnar, sósíalísering
verði aukin, eftirlit stjórnar-
innar með starfsemi banka otg
verðbréfastofnana verði aukið
og Búddístum verði tryggð sú
staða í þjóðfélaginu „sem
þeim ber“.
I>á er að telja Sameinaða
Þjóðarflokkinn, sem býður
fram í 116 kjördæmum. Fyrir
flokki þessum hefur forystu
Dudley Senanayake, sem er
53 að aldri. Hann er sonur
fyrsta forsætisráðherra hins
sjálfstæða Ceylon — og hefur
þrívegis verið forsætisráð-
herra sjálfur. Stefnuskrá
flokksins er sósíaldemókrat-
ísk. Loks er að telja Þjóð-
fylkinguna undir forystu Phil-
ips Gunawardena, sem er 64
ára, og hefur að balci áratuga
reynslu í stjórnmálum. Flokk-
ur hans tók ^>átt í stjórnar-
myndun árið 1956 með Solo-
mon Bandaranaike, hinum
látna eiginmanni núverandi
forsætisráðherra, — eft var
öll lengra til vinstri en
Frelsisflokkurinn var þá.
Flokkur þessi býður fram í 70
kjördæmum undir heitinu
„Samsteypa Sinhala og þriðju
deildar Búddista“. Flokkurinn
fordæmir Sameinaða þjóðar-
flokkinn á þeirri forsendu, að
hann aðhyllist kapítalisma og
Frelsisflokkinn fyrir að að-
hyllast lénskipulag og
nýlendustefnu. Hina flokkana
hyllast lénsskipulag og
úrslit
segir hann aðhyllast marx-
isma með svipuðum hætti og
kommúnistaflokkar Vestur-
landa.
í norður- og austurhéruðum
landsins tala íbúarnir Tamil
— og þar eru helztu flokkar
Alríkisflokkurinn, sem býður
fram í 20 kjördæmum og
Tamil Congress-flokkurinn,
sem keppir um 15 þingsæti. ^
Varla fara . menn að spá
nokkru um úrslit kosninganna,
— enda ekki auðvelt austur
þar. Eldri kynslóðin er til
dæmis, að því er fréttamenn
segja, gjörn á að láta tilfinn-
ingar sinar á kosningadag
ráða afstöðu sinni fremur en
stefnur eða einstaka menn.
Gamla fólkið greiðir tíðum
atkvæði með frambjóðendum
með tilliti til þess álits, er það
hefur haft á foreldrum þeirra
eða ættingjum. Stéttaskipting
og trúarbrögð skipta þarna
einnig miklu máli. Þá er þess
að gæta, að kosningaaldur
hefur verið lækkaður niður í
18 ár og er með öllu óvíst,
hvernig hinir nýju kjósendur
t.d. á aldrinum 18—22 ára
greiða atkvæði, — en þetta
umga fólk er um 20% af kjós-
endum í mörgum kjördæmum.
Mikið af þessu unga fólki hef-
ur fengið þó nokkra menntun
— og býr jafnframt við at-
vinnuleysi eða verður að
stunda störf, sem því finnst
vart svara til sinnar kunnáttu.
Er talið næsta víst, að þar
muni eiginhagsmuna sjónar-
mið ráða miklu um hvernig
atkvæði falla. Margir frétta-
menn eru þeirrar skoðunar,
að Frelsisflokkur frú Bandar-
anaike og Sameinaði Þjóðar-
flokkurinn hljóti flest þing-
sæti í kosningunum og svo
geti farið, að Tamil-flokkarnir
verði í oddaaðstöðu á þiragi,
þar sem fyrri flokkarnir tveir
bjóða ekki fram í norður- og
austurhéruðunum. En allar
kosningaspár eru settar fram
með mestu varúð.
Kosningabaráttan hefur
staðið yfir í hálfan þriðja
Frú Bandaranaike
mánuð og verið hörð, enda
þótt stjórnin hafi gert ýmsar
ráðstafanir til þess að tor-
velda baráttuna. Samkvæmt
nýjum kosningalögum, sem
samþykkt voru ekki alls fyrir
löngu, má ekki halda fjölda-
fundi né fjöldagöngur. Ekki
má nota gjallarhorn á götum
úti. Gert er ráð fyrir að hver
frambjóðandi verji ekki
meiru fé til kosniragabaráttu
sinnar en sem nemur 375
sterlingspundum. Til kjör-
staða á kosningadag mega
kjósendur aðeins koma með
almenningsvögnum eða fót-
gangandi.
Þessi nýju kosningalög hafa
m.a. orðið til þess að kosn-
ingabaráttan hefur fyrst og
fremst verið háð á vettvangi
útvarps og blaða. Frú Bandar-
anaike hefur haft öll tögl og
hagldir hjá ríkisútvarpinu, en
blöðin hefur hún lítt ráðið
við. Nokkrum sinnum hefur
hún lagt fram frumvörp á
þingi um þjóðnýtingu blað-
anna eða sterkt stjórnareftirlit
með þeim — en þau hafa ekki
náð fram að ganga. Og nú
segir hún þau handbendi
stjórnarandstöðunnar. En i
flokki frú Bandaranaike hefur
ýmislegt gengið á síðustu vik-
urnar. Hún hefur krafizt þess
af sérhverjum frambjóðanda
Frelsisflokksins, að hann
skrifi undir yfirlýsiragu þess
efnis, að greiði hann nokkru
sinni atkvæði gegn henni á
þingi, skuli hann segja af sér
þingmennsku. Tilefni þessara
yfirlýsingu, er liðhlaup
flokksmanna frú Bandarana-
ika 3. desember s.l. en þá
greiddu margir þeirra atkvæði
gegn henni.
Sem fyrr segir heldur frú
Bandaranaike fast um stjórn-
artaumana hjá útvarpinu i
Ceyloit og hefur styrkt þar að-
stöðu sína verulega að undan-
förnu. Það bar við nokkuð
snemma í kosningabaráttunni
að ráðherrum tók að þykja
tónlistarval útvarpsins tor-
tryggilegt. Var til þess tekið,
að eftir tilkynningu frú
Bandaranaike um, að haldnar
skyldu almennar kosningar 22.
marz var leikinn útfararmarz
eftir Beethoven. Nokkru síð-
ar flutti annar ráðherra ávarp
til þjóðarinnar og var að því
loknu leikinn „Deyjandi svan-
urinn“ eftir Saint-Sanes. Á
eftir ávarpi þriðja ráðherrans
Framh. á bls. 22
VOR '65
Vorið nálgast og með hækkandi sól og lengri degí,
fylgir ný tízka og ný föt og íslenzkar konur eiga það
sannarlega skilið að klæðast fallegum og smekkleg-
um fötum. — Viljið þið fylgjast með þá eigið þið án
efa erindi í Guðrúnarbúð á Klapparstígnum til þess
að skoða Vortízkuna ’65.
Verið velkomnar í
KLAPPAHSTIG 7J
á Klapparstígnum