Morgunblaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 32
I G Æ R lét Bakkafoss úr
Reykjavikurhöfn meö 800
tonn af vörum, en á dekki
voru þurrkarar, sem smíðaðir
hafa verið hjá Héðni og eiga
að fara í síldarverksmiðjurn-
ar á Seyðisfirði og Raufar-
höfn.
Bakkafoss fer austur um,
losar á Austfjarðahöfnum og
heldur síðan með 300 tonn af
varningi til Húsavíkur og Ak-
ureyrar og vonast til að ís
tefji ekki. Eftir iosun á skipið
að taka mjöl á Siglufirði og
Raufarhöfn og halda með það
til Bretlands.
Líkamsárás á Akureyri
Stðrslasaöi mann og
flúði af slysstað
UM kl. 2 í fyrrinótt var ekið á
ungan mann á Fríkirkjuveginum
á móts við Glaumbæ með þeim
afleiðingum að hann stórslasað-
ist. Ökumaður sá, sem á hann
ók, flúði af slysstað, en gaf sig
fram við lögregluna fyrir hádegi
í gær.
Slysið varð með þeim nætti,
að Renault-sendiferðabifreið var
ekið norður Fríkirkjuveg. Ekki
er vitað enn með fullri vissu
annað en það, að á móts við
Glaumbæ ók bifreiðin á 18 ára
mann. Kastaðist hann langar
leiðir og bifreiðin rann enn þá
lengra. Ungi maðurinn, sem varð
fyrir bifreiðinni, stórslasaðist.
Hlaut hann bæði höfuðkúpubrot
og fótbrot og var fluttur í Lands-
spitalann. Var líðan hans eftir
atvikum í gær. Sem fyrr segir
flúði ökumaður af slysstað. Gaf
hann sig fram við lögregluna í
gærmorgun. Hann er aðeins 17
ára og hafði tekið bifreiðina í
óleyfi. Málið er í rannsókn.
*
\ batavegi
DRENGURINN, sem fannst með-
vitunarlaus í Sundlaugunum í
fyrrakvöld, lá enn á sjúkrahúsi í
gær, en var á góðum batavegi og
var áætlað að hann fengi að fara
heim í dag. Kjartan litli Ólafsson
er aðeins 10 ára, en ekki 12, eins
og skýrt var frá í blaðinu í gær.
Bruni í radarstöð-
inni á Langanesi
Ráðist á stúlku á götunni
AKUREYRI, 20. marz. — Rúm-
lega tvítug stúlka varð fyrir árás
ölvaðs manns á Hrafnagilsstræti
um kl. 1.30 í nótt er hún var
á leið heim til sín. Nemandi í
MA sá þegar árásin var gerð og
hringdi þegar á lögregluna, sem
bandtók árásarmanninn.
Stúlkan var á heimleið ein
síns lið og gekk vestur Hrafna-
gilsstræti, þegar ungur maður,
nokkuð drukkinn, vatt sér að
henni, þreif til hennar og slengdi
henni til jarðar. Stúlkan veitti
hart viðnám og hrópaði hástöf-
um á hjálp. Skólapiltur sem býr
í heimavist MA heyrði hrópin og
sá hvað fram fór. Fór hann og
hririgdi í lögregluna.
Á meðan komst stúlkan á fæt-
ur og nokkurn spöl vestur eftir
götunni, eri þá þreif maðurinn til
Viðbygging við rafstöðina brann
hennar aftur og fleygði henni
flatri við gangstéttarbrúmna.
Mun hann hafa tekið hana kverk-
artaki með báðum höndum og
rifið föt hennar nokkuð, en í
þeim svifum bar lögregiuna að.
Handtók hún árásarmanninn, 18
ára pilt, sem situr enn í gæzlu-
varðhaldi.
Stúlkan er nokkuð marin og
skrámuð, en ekki stórlega meidd.
Hún kvaðst ekkert þekkja þann
sem á hana réðist. Rannsókn
máls er ekki lokið. — Sv. P.
ÞÓRSHÖFN, 20. marz. — í nótt
brann viðbygging við rafstöðvar-
húsið á radarstöðinni á Heiðar-
fjalli á Langanesi og vélasalur-
inn sjálfur skemmdist af reyk.
í viðbyggingunni var m. a. aðal-
æðin fyrir hitakerfi stöðvarinn-
ar, svo stöðin er ljóslaus og hita-
laus, en þar munu vera um 70
menn. Vonir standa til að raf-
virki geti komið á rafmagni til
bráðabirgða í dag.
Eldurinn mun hafa komið upp
kl. 2—3 í nótt. Bandaríkjamenn-
irnir sjálfir réðu niðurlögum
eldsins og brenndust nokkrir
þeirra lítillega á höndum við
slökkvistarfið.
Viðbyggingin við rafstöðvar-
húsið var þá alveg brunnin, og
vélasalurinn skemmdist af reyk
og ýmislegt þar inni, svo sem
vaktmannsherbergið.
Þorvaldur Guðmunds-
son við Loftleiðahótel
ÍORVALDUR Guðmundsson hef-
ur verið ráðinn til að vera til
ráðuneytis um uppsetningu og
rekstur hins nýja Loftleiðahótels.
— „Hann hefur reynslu í hótel-
bygginigu O'g uppsetningu hótels,
og við þurfum sérfróðan mann á
því sviði“, sagði Kristján Guð-
laugsson framkvæmdastjóri, er
Mbl. spurði hann um þetta í gær.
IKona drukkn- J
ar af Esjunni
í gærmorgun, þegar Esja
var að koma úr strandferð
að austan, var saknað eins
farþegans, konu frá Eskifirði.
Skipið var þá að koma inn fló
ann til Reykjavíkur.
Enginn mun hafa orðið þess
var þegar konan féll fyrir
borð á skipinu, en hennar
hafði ekki verið saknað mjög
lemgi.
Frá skipinu var svipazt um
eftir hinni htorfnu konu, en
árang u rslaust.
í gær var einmitt verið að
steypa plötuna ofan á kjallarann
í hótelinu Siðan á að halda
áfram að steypa hótelið upp, en
það verður síðan byggt upp með
aluminíumveggjum eins og skrif-
stofubygiging Loftleiða á flug-
vellinum. Er ætlunin að hótelið
verið tilbúið vorið 1866.
Nýja hóteiið kemur til með að
rúma um 300 gesti. í því verða
96—98 herbergi og öll með sér-
stoku baði. f hótelinu verða
nokkrir veitingasalir, misjafn-
lega stórir, sumir ætlaðir til
fundahalda. Þá verður í bygg-
ingunni bakarí, þvottahús o. fl.
sem tilheyrir rekstri hótelsins.
Og í suðurenda byggingarinnar
verður sundlaug á neðstu hæð.
Undirbúningur er hafinn að
búnaði hótelsins og sér innkaupa-
deiid Loftleiða um þær útveg-
anir, og verður Þorvaldur ráð-
gefandi um allan búnað. Kvaðst
Kristján búast við að húsgögn
yrðu smíðuð hér, en óhjákvæmi-
lega þyrfti ýmislegt að kaupa er-
iendis.
Ekki skyggnilýsing
SAFNAÐARSTJÓRN Fríkirkj-
unnar hefur nú ákveðið að leyfa
ekki að skyggnilýsingafundur sá,
sem Sáiarrannsóknarféiagið ætl-
aði að halda, verði í Fríkirkj-
unni og hefur honum því verið
aflýst í bili.
Mbl. skýrði á sínum tíma frá
því að Sálarrannsóknarfélagið
hefði fengið Frikirkjuna til að
hafa þar fund og mundi verða
þar skyggnilýsing. En nú hefur
ákvörðun verðið tekin um að
ieyfa ekki skyggniiýsingu í kirkj
Bandarískir fiskimenai læra aff nota kraftblökk og islenzka hringnót.
Kennir Bandaríkjamönnum
nýjustu veiöiaðferðir
Ætla að lóta smíða 380 tonna fiski-
skip samkvæmt reynslu Islendinga
ÍSLENZKUR verzlunarmaður
fór fyrir skömmu vestur til
Bandaríkjanna til að kynna
sér nýjustu tækni í sambandi
við veiðar á síld. Heimsótti
hann m. a. Smith & Meal Co.
á Long Isiand, en það fyrir-
tæki er eitt af stærstu
fiskimjölsframleiðendum þar
vestra.
Forráðamenn fyrirtækisins
sögðu verzlunarmanninum,
Pétri Einarssyni, að þeir hefðu
sent menn til íslands sl. sum-
ar til að kynna sér hinar ný-
tizkulegu veiðiaðferðir ís-
lendinga.
Upp úr því réði Smith &
Meal Co. íslenzka skipstjóra,
Kristján Kristjánsson frá
Akranesi, til að kenna skip-
stjórum og áhöfnum vestra
veiðar með kraftblökk, nót og
nýjustu fiskileitartækjum. Fór
Kristján vestur fyrir ca. þrem
mánuðum og kennir hann
bandarískum fiskimönnum
veiðiaðferðirnar á bátnum
Cape May. Notar Kristján is-
lenzka hringnót og Simrad
fiskleitartæki.
Smith & Meal Co. hefur
einnig notið aðstoðar Friðriks
Jónssonar hjá Simrad-umboð-
inu, Jóns Ármanns Héðins-
sonar, útgerðarmanns, og
Sturlaugs Böðvarssonar til að
gera þessar tilraunir möguleg-
ar.
Fram'haid á bls. 31
unm.