Morgunblaðið - 23.03.1965, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. inarz 1965
Körfuknattleiksmótið:
ÍR vann KFR og KR
Ármann með öryggi
— en ÍR-strákarnir skorulu
sigurkörfuna 7 sek. fyrir Eeikslok
ÍSLANDSMÓTINU í Körfuknatt
leik var haldið áfram s.l. föstu-
dag. Í.R. sigraði KFR með 27
stiga mun, etfir skemmtilegan
fyrri hálfleik. KR sigraði Ár-
mann 55:38, í harðri keppni milli
liðanna og dómaranna tveggja,
eins og við víkjum að síðar. Og
síðast en ekki sízt sigraði ÍR a
KFR í II. flokki karla með 24
stigum gegn 22, eftir æsispenn-
andi leik, þar sem sigurkarfan
var skoruð þegar minna en tíu
sekúndur voru til leiksloka.
m. flokkur karla ÍR a : KFR.
Þessi leikur unglinganna var
einn sá skemmtilegasti um kvöld
ið. Hraði og leikgleði var ein-
kenni leiksins og spenna var mik
il í leiknum allan tímann. KFR
hafði yfir mestan hluta leiksins
en þó stóð jafnt í hléi 14:14. Þeg
um um mínúta var til leiksloka
var staðan 22:21 ÍR í vil, og hafa
KFR-ingar gullið tækifæri til
þess að vinna leikinn þegar þeir
fá samtals fjögur vítaköst á stutt
um tíma, en þeim tekst aðeins að
nýta eitt þeirra og jafna leikinn
22:22. Sekúndurnar líða og ÍR
nær boltanum og þegar sjö sek.
eru til loka hitta þeir úr stökk-
skoti og skora sigurkörfunp. —
Beztir hjá ÍR voru Hallgrímur
og Magnús, sem skoðuðu 5 og 12
stig, og Tryggvi hjá KFR með
16 stig og mestan hluta allra frá
kasta í leiknum.
I. deild ÍR:KFR.
Fyrir leikinn bjuggust flestir
við að ÍR myndi vinna leikinn
með ca. 20—30 stiga mun. Sú
varð einnig raunin að munurinn
varð 27 stig, en ekki fyrr en eftir
allsnarpa baráttu við siglutré
KFR-liðsins, Sigurð Helgason,
sem átti nú enn góðan leik, og
2. flokks pilturinn Þórir Magn-
ússon velgdi þeim ÍR-ingum
hressilega undir uggunum með
hörku og skotöryggi, og sýndi
með leik sínum að hann er verð
ugur kandídat fyrir næsta ung-
lingalandslið, þótt ótaminn sé
enn. í fyrri hálfleik var talsverð
barátta milli liðanna og átti ÍR
fullt í fangi með að ná þessum
tíu stigum sem skildu liðin í hálf
leik 39:29. Svipaður munur helzt
framan af seinni hálfleik, eða þar
til ÍR nær góðri skorpu og skor-
ar 18 stig gegn 2, sem gerir út
um leikinn. Lokatölur urðu síð-
an 82:55, og er það litlu meiri
munur en var á þessum tveim-
ur liðum þegar KFR var upp á
sitt bezta. Beztan leik hjá ÍR
áttu þeir Þorsteinn með 11 stig;
Tómas með 18 stig og Hólmsteinn
og Agnar með 16 stig hvor. —
Framhald á bls. 31
Bogi Þorsteinsson, formaður KKÍ, tekur við bikar Reykjavíkurliðsins í annað sinn eftir unninn
sigur yfir úrvalsliði Bandaríkjamanna á Keflavíkurvelli. — Ljósm.: Mbl. Sveinn Þormóðsson.
Reykjavíkurúrvaliö
vann fjóra leiki af 5
Á LAUGARDAG fór fram á|
Keflavíkurvelli fimmti og síð-
asti leikurinn í hinni árlegu bik
arkeppni í körfuknattleik milli
úrvals úr setuliðinu og Reykja
víkurúrvals. Leiknum lauk með
sigri varnarliðsmanna S2 stig
gegn 75, en Reykjavík hafði þeg
Valur vann með „fullu
húsi stiga" í 2. deild
U M helgina lauk keppni í 2.
deild karla í handknattleiksmóti
íslands. Valur fór með algeran
yfirburðasigur af hólmi. Unnu
Valspiltarnir alla sína leiki í
mótinu og hlutu 16 stig, en öll
hin liðin hlutu 6 stig hvert. Eru
úrslit þessi næsta einkennileg,
en sýna þó vel yfirburði Vals-
piltanna. — Handknattleiksdeild
Vals ásamt stjórn félagsins hélt
þeim samsæti á laugardagskvöld
ið að unnum sigri og voru þar
ræður haldnar og áfanga hins
Jón Árnason og Halldóra Thor-
oddsen Rvíkurmeist. í badminton
Fjölmennasta Rvikurmót i badminton
og mjög hörð keppni i flestum flokkum
MEISTARAMÓT Reykjavíkur í
badminton var háð um helgina
og hafa þátttakendur aldrei
verið jafn margir og nú. Keppn-
in var gífurlega hörð í mörgum
úrslitaleikjanna og urðu víða
aukaleikir að skera úr um hvar
meistaratitillinn skyldi lenda.
Mótið fór vel fram, en var að
vonum all langdregið bæði vegna
fjölda þátttakenda og eins vegna
hinna mörgu aukaleikja er urðu
vegna jafnrar keppni.
• Meistaraflokkur.
Með mestum spenninig var
beðið úrslitanna í einliðaleik
karla. Þar sigraði Jón Árnason
TBR fyrrum Rvíkurmeistara um
margra ára skeið Óskar Guð-
mundsson KR með 15-7, 6-15,
.15-8. Sýndu þeir báðir góð tilþrif
en Jón, sem er yngri en þó ekki
ókunnur sem meistari, hafði
betra úthald en Óskar.
í "einliðaleik kvenna vann Hall-
dóra Thoroddsen TBR með alger-
um yfirburðum. Hún sigraði í úr-
slitaleik Erlu Franklin KR með
11-1 og 11-2.
í tvíliðaleik karla sigruðu þeir
Óskar Guðmundsson KR og
Garðar Alfonsson TBR þá Jón
Árnason og Viðar Guðmundsson
með 18-13 og 15-1.
í tvíliðaleik kvenna varð mjög
hörð keppni. Þær Jónína Niel-
jóhníusardóttir og Guðmunda
Stefánsdóttir TBR sigruðu þær
Huldu Guðmundsdóttur oig Rann-
veigu Magnúsdóttur með 17-16,
13-15 og 15-12.
í tvenndarkeppni varð einnig
mjög hörð keppni og aukaleikur
réði úrslitum. Þau Jónína Niel-
johníusardóttir og Lárus Guð-
mundsson sigruðu þau Halldóru
Thoroddsen og Garðar Alfonsson
mieð 14-17, 15-16 og 15-11. Öll eru
þau í TBR.
• 1. flokkur
í 1. flokki urðu sigurvegarar
Álfheiður Einarsdóttir og Svava
Árnadóttir TBR í tvíliðaleik
kvenna, þau Erla Guðmundsdótt-
ir og Matthías Guðmundsson
TBR í tvenndarkeppni. í einliða-
leik karla siigraði Halldór Þórðar-
son KR Trausta Eyjólfsson KR
með 15-13, 3-15, og 18-15.
í tvíliðaleik karla í 1. fl. sigr-
uðu þeir Matthías Guðmundsson
og Þorbjörn Pétursson TBR þá
Leif Muller og Guðmund Jóns-
son.
Nú var í fyrsta sinn keppt í
drengjaflokki og í einliðaleik
sigraði Haraldur Jónsson TBR
Magnús Magnússon TBR með
3-11, 11-7 og 11-8. í tvíliðaleik
sigraði Magnús Magnússon og
Axel Axelsson TBR þá Halldór
Jónsson og Finnbjörn Finnbjörns-
son TBR með 15-6 og 15-10.
unga en efnilega liðs Vals vel
fagnað.
Valur lék við ÍR á laugardags-
að gegn 168.
kvöldið og sigraði með 41 marki
gegn 17. Þar með var alger yfir-
burðasigur innsiglaður — allir
keppinautar unnir í tvöfaldri um
ferð og hagstæð markatala um
nær 100 mörk eða 251 mark skor
Tveir aðrir leikir fóru fram í 2.
deild um helgina. Akureyringar
unnu Keflavík með 28-22 og Ak-
ureyri vann Þrótt með 26-17. —
Lokastaðan í 2. deild varð því:
L U J T Mörk st.
Valur 8 8 0 0 251-168 16
Þróttur 8 2 2 4 190-202 6
ÍR 8224 194-229 6
Keflavík 8 2 2 4 180-210 6
Akureyri 8 3 0 5 190-216 6
Um helgina fóru einnig fram
ýmsir aðrir leikir og urðu úrslit
m.a. þessi. í 2. flokki vann Fram
lið ÍBK með 14-13. í 1. flokki
vann FH ÍR með 18-12 og Hauk-
ar unnu KR og skapa þau úrslit
mikla spennu í þeim riðli 1. fl.
í 3. flokki karla vann FH ÍA með
20-10.
Akumesingar
unnu
Akranesi, 22. marz.
Úrvalsflokkur í frjálsum íþrótt
um úr gagnfræðaskólanum hér
fór síðastli'ðinn sunnudag til
Reykjavíkur og keppti á íþrótta
móti skóla. Gengu þeir með sig-
ur af hólmi með 11 stigum í
sveinaflokki. Og enn varð
Magnús Magnússon, Krókatúni
6, drengjameistari í hástökki á
mótinu. Hann stökk 1,65 metra.
ar tryggt sér sigur í keppninni
með því að sigra í öllum hinum
leikjunum fjórum. Leikurinn á
laugardaginn var jafn allan fyrri
hálfleik og höfðu varnarliðs-
menn aðeins eitt stig yfir í hléi,
en í síðari hálfleik juku þeir for
skot sitt og sigruðu eins og áður
er sagt með 17 stiga mun. Reykja
víkurliðið vantaði nokkra sterka
menn, m.a. fyrirliða sinn, Þor-
stein Hallgrímsson. Þetta er I
annað skipti sem keppt er um
forkunarfagra styttu, og sigruðu
Reykvíkingar einnig í fyrra,' þá
með þrjá leiki unna gegn tveim
ur. Vinni þeir keppnina aftur
næsta ár, er styttan eign þeirra,
en trúlegt er að varnarliðsmenn
hafi fullan hug á að heimta hana
til sín, því fátt þykir Bandaríkja
mönnum meiri hneisa en að tapa
fyrir útlendingum í þessari þjóð
aríþrótt sinni.
Stökk 145
metra
AUSTUR-Þjóðverjinn Peter Less
er setti nýtt heimsmet í skíða-
stökki er hann á sunnudaginn
stökk 145 metra á 14. alþjóða
„flug-skíðamótinu“ í Kulm-fjöll-
unum í Austurríki.
Eldra metið átti ítalinn Nino
Zandanel, sem stÖkk 144 m á
mótinu í fyrra í Oberstdorff. —
Þessi mót eru haldin til skiptis í
Kulm, Oberstdorff og Plancica-
fjöllunum í Júgóslavíu.
35000 manns sáu keppnina í
rigningu og leiðindaveðri.
Putterson stign-
hæstur
FLOYD Patterson, fyrrum heims
meistari í þungavigt, sigraði í at-
kvæðagreiðslu bandarískra í-
þróttafréttamanna í atkvæða-
greiðslunni um bezta íþrótta-
mann mánaðarins meðal atvinnu
manna.
Sérhver sá er sigrar í atkvæða
greiðslu fréttamannanna í hverj-
um mánuði er kjörgengur í árs-
lok í atkvæðagreiðslunni um
bezta atvinnumann ársins. Sá er
sigur hlýtur í þeirri atkvæða-
greiðslu hlýtur Hicock-verðlaun-
in. Þau verðlaun eru belti alsett
gimsteinum, og eru metin til 10
þúsund dala eða 430 þús. ísL kr,
Það var sigur Pattersons yfir
Kanadamanninum Ghuvalo, sem
færði honum þennan sigur i
„febrúar-atkvæðagreiðslunni“. Á