Morgunblaðið - 23.03.1965, Qupperneq 31
Þriðjudagur 23. marz 1965
MORCUNBLAÐIÐ
Halldór Gröndal og Ib Wessman.
Talið frá vinstri: Geir Zoega,
IMýir
framkvæmda-
sijórar IMausts
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Geir
Zoega yngri og Ib Wessman taki
við framkvæmdastjórn veitinga-
hússins Nausts h.f. af Halldóri
Gröndal, sem verið hefur for-
stjóri þess frá stofnun, en er nú
ráðinn framkvæmdastjóri Ice-
land Food Centre í London, eins
og áður hefur verið skýrt frá í
Morgunblaðinu.
Geir Zoega mun hafa prókúru-
timboð í fyrirtækinu og sjá um
öll fjármál þess. Hann er einn af
eigendum Nausts og hefur setið
í stjórn þess frá byrjun. Ib Weiss
man mun verða verklegur fram
kvæmdastjóri Nausts, en hann
hefur um nokkurra ára skeið ver
ið yfirmatsveinn veitingahússins.
Geir Zoega og Ib Weisman munu
taka við stjórn Nausts, er Halldór
fer utan í sumar.
— / Viet Nam
Framhald af bls. 1
Útvarpið í Hanoi sagði í dag
að Bandaríkin og S-Vietnam-
stjórn beittu „eiturefnum" í
styrjöldinni við Viet Cong í Suð-
ur-Vietnam. Sagði útvarpið að
„eiturefnum“ þessum hefði ver-
ið dreift yfir mörg þorp í Ven
Tre-héraðinu og hefðu yfir 30
manns veikzt og tré fellt laufið.
Sagði útvarpið að 27. febrúar sl.
hefði „marglitum blöðrum með
eiturefnum" verið dreift yfir
þorpið Tharxh Phuoc í héraðinu
Mac Hoa og hefði barn, er hand-
samað hefði slíka blöðru, þegar í
stað bólgnað upp í andliti og feng
ið mjög slæman höfuðverk. Sagði
útvarpið, að Bandaríkjamenn og
leppar þeirra í S-Vietnam hefðu
dreift svipuðu eiturefni þrisvar
sinnum í héraðinu Quang Nam
og fjöldi fólks veikzt en upp-
skera og gróður allur skaddazt
mikið.
Talsmaður Bandaríkjahers
staðfesti í Saigon í dag, að beitt
hefði verið gasi í baráttunni við
skæruliða Viet Cong og sagði að
einkum hefði gas þetta, sem
væri svipað táragasi, verið not-
að í hernaðinum undanfarið, þar
sem S-Vietnamstjórn vildi forð-
ast mannfall óbreyttra borgara,
er skæruiiðar leyndust innan um
þá sér til varnar. Sagði talsmað-
ur þessi gasið hafa verið notað
oftar en einu sinni undanfarnar
vikur. Aðspurður kvaðst hann
ekki kunna á því nánari deili,
það væri tímabundið í verkan
sinni, orsakaði uppköst og van-
líðan og gerði menn óvíga um
stundarsakir, en væru ekki skað-
legt að öðru leyti, enda notað
viða um heim til að bæla niður
uppþot og óeirðir. Sagði hann að
gasinu myndi dreift úr iofti, t.d.
með þyrlum.
í London eru menn undrandi
á fréttunum af gashernaðinum
eystra. Brezka útanríkisráðu-
neytið hefur ekkert viljað um
málið segja, en heimildarmenn
AP í London hafa það eftir starfs
mönnum þess að hvorki Banda-
ríkjamenn né S-Vietnamstjórn
hafi sagt Bretum neitt af gas-
hernaðinum og er talið að Wil-
son muni leita upplýsinga sem
skjótast til að verja sig frekari
ákúrum stjórnarandstæðinga
vegna stuðnings hennar við
stefnu Bandaríkjamanna í S-
Vietnam.
„Dagblað þjóðarinnar“, mál-
gagn kínverska kommúnista-
flokksins, vísaði í dag á bug til-
lögum um samningafundi vegna
Vietnam, að því er fréttastofan
„Nýja Kína“ skýrir frá í dag.
Segir í blaðinu í ritstjórnar-
grein, að Bandaríkjamönnum
væri hollara að hafa sig á brott
úr S-Vietnam áður en þjóðin þar
í landi taki sig til og reki þá af
höndum sér. Eins væri það ekki
annað en óskhyggja, að halda að
sprengjuaustur yfir Norður-Viet-
nam bætti eitthvað úr skák eða
glepti mönnum sýn á ósigrana
sunnan landamæranna. Þá gat
„Dagblað þjóðarinnar“ einnig
um útifund, sem haldinn hefði
verið í Hanoi í gær til að mót-
mæla „heimsveldisstefnu Banda-
rikjanna. — í blaðinu Nhan
Xdan, sem er málgagn N-Viet-
nam stjórnarinnar, eru gagn-
rýnd tilmæli Breta um vopnahlé
og samningaumleitanir og sagt
að Bretar hafi í raun og veru
stutt Bandaríkjamenn með ráð-
um og dáð.
Maxwell Taylor, sendiherra
Bandaríkjanna í Saigon, sagði í
dag að Bandaríkjamenn myndu
ekki fara frá Suður-Vietnam en
þeir myndu heldur ekki ana í
blindni út í þriðju heimsstyrjöld-
ina. Til væri meðalvegur þessa
tveggja og hann myndu Banda-
rikjamenn halda. Taylor sagði að
nú væri þjarmað að Norður-Viet-
nam með árásum S-Vietnam-
stjórnar og Bandaríkjanna, en
sagði að árásunum myndi hætt
þegar sýnt væri, að einhver bil-
bugur fyndist á andstæðingun-
um.
Kvaðst Taylor halda að senn
myndi draga til tíðinda í S-Viet-
nam og sagðist marka það af
ýmsu, m.a. mjög auknum skæru-
hernaði N-Vietnamstjórnar und-
anfarið, undirróðursstarfsemi
innan hersins og ítrekuðum til-
raunum til að hluta landið í
tvennt frá Kontum til Qui Nhon
og ógnanir við héraðið milli Hué
og Da Nang. „En þrátt fyrir alla
aðstoð Bandaríkjamanna, eru úr-
slitin að sjálfsögðu undir S-Viet-
nambúum sjálfum kornin", sagði
Taylor, og bætti því við að eink-
um væri það þrennt sem gera
þyrfti: í fyrsta lagi að ráða nið-
urlögum Viet Cong með öllum til
tækum ráðum, í öðru lagi að
binda endi á stuðning stjórnar-
innar í Hanoi við skæruliða Viet
Cong og loks yrði að koma á
styrkri stjóm í Saigon og úti um
land. Taylor kvað óhugsandi að
setjast að samningum við komm-
únista eins og málum væri nú
háttað, þannig að þeir gætu not-
ið ávaxta íhlutunar sinnar og of-
beldisverka. „Slíkt og þvílíkt
væri móð'gun við réttlætið í
heiminum og mannkynið allt“,
sagði Taylor,
— Gangan
Framhald af tls. 1
Montgomery á .fimmtudag.
Um fimm þúsund manns voru
í göngunni er áð var til nætur-
innar á engi nokkru um 12 km.
vegar frá Selma. Flestir sneru
aftur til Selma, eftir að hafa
hlýtt á ræðu leiðtoga síns, Dr.
Martin Luther Kings, sem sagði
m.a., að allir væru göngumenn
aðilar að hreyfingu sem ekki yrði
stöðvuð úr þessu, en um 300
manna hópur lét fyrirberast um
nóttina þarna á enginu. í morg-
un komu svo aftur þeir sem sof-
ið höfðu í Selma til að ganga
annan áfangann, en fengu ekki
allir að fara hann, því á þessum
hluta leiðarinnar er þjóðvegur-
inn ekki nógu breiður, og urðu
því margir frá að hverfa, en
koma aftur á morgun til að
ganga þriðja áfanga leiðarinnar,
er vegurinn breikkar aftur.
Koma langvegu frá:
Um helgina hafði fólk streymt
að hvaðanæfa, jafnvel alla leið
frá Hawai, til að taka þátt í göng
unni og svo mikið var um her-
menn og lögreglu, að smábærinn
Selma, sem alla jafna telur um
30.000 íbúa, virtist allur í hers
höndum. Gangan hófst tveimur
stundum eftir tilsettan tíma, því
viðbúnaður tafði. Dr. Martin Lut
her King fór fyrir göngumönn-
um er lagt var upp frá lítilli
kirkju í Selma áleiðis til Montgo
mery, en við hlið honum gekk
Dr. Ralph Bunche, sá er áður
hlaut friðarverðlaun Nobels. Þeg
ar flest var, munu göngumenn
hafa verið um 10.000. Auk her-
liðs, ríkis- og borgarlögreglu og
þjóðvarðiiðs ríkisins, sem stjórn-
að er bemt frá Washington, var
herlögregluvörður á öllum vega-
mótum og yfir göngunni flugu
þyrlur úr hernum og könnunar-
vélar.
Lítil flugvél dreifði yfir göngu
menn áróðursbæklingum frá sam
tökum hvítra manna í Tusccloose
í Alabama, þar sem mælzt var
til þess að þjarmað yrði að.
blökkumönnum og fylgismönn-
um þeirra með ýmsum ráðum.
Fjórar sprengjur í Birmingham
Snemma sunnudagsins fundust
í blökkumannahverfi í bænum
Birmingham í Alabama fjórar öfl
ugar, heimatilbúnar sprengjur,
sem fyrir tilstilli sérfróðra
manna úr hernum tókst þó að
gera óvirkar í tæka tið. Lögregl-
an hóf þegar húsleit og mikla
rannsókn til þess að ganga úr
skugga um hvort ekki væru ein-
hverjar fleiri sprengjur þar um
slóðir og var fólk 'allt flutt á
brott á meðan. Sprengjur þessar
voru tímastilltar, og áttu allar
að springa þegar hæfist gangan
mikla i Selma. Einni sprengjunni
hafði verið komið fyrir skammt
frá kaþólskri kirkju í hverfinu,
annarri rétt hjá útfararstofu;
súþriðja fannst hjá gagnfræða-
skóla blökkumanna og fjórða
sprengjan átti að splundra heim-
ili þeldökks lögfræðings Arthur
Shores, og er það ekki í fyrsta
skipti sem honum er sýnt slíkt
tilræði. Útfararstofan sem eina
sprengjuna átti að fá, er rétt hjá
baptista-kirkjunni, sem varð fyr
ir sprengjutilræði í hitteðfyrra,
er fjórar litlar telpur, þeldökk-
ar, biðu bana. — Þá fannst einn-
ig sprengja skammt frá heimili
séra A. D. Kings (bróður Dr.
Martin Luther Kings), sem
heima á í Birmingham; og í dag
mánudag. fannst sjötta sprengj-
an þar í borg. — Birming-
ham er 130 km. fyrir norðan
Selma. Þar hefur áður komið til
alvarlegra kynþáttaóeirða.
Wallace ríkisstjóri í Alabama,
hefur heitið 1000 dala verðlaun-
um hverjum þeim, er veitt geta
upplýsingar um sprengjutilræðin
í Birmingham.
Hljómtaikar
Akranesi 22. marz.
TVAÍR ungar listakonur komu
í fyrsta sinn fram á Akranesi,
síðastliðinn sunnudag á hljóm-
leikum Tónlistarfélagsins hér í
Bíóhöllinni. Tóku þær áheyrend
ur með trompi, svo að allra augu
beindust til þeirra, meðan þær
léku, Guðný Guðmundsdóttir á
fiðlu og Annia Áslaug Ragnars-
dóttir á píanó. — Oddur.
Stewart og Rusk:
Víðræður
b Washington
Washington, 22, marz, AP.
Michael Stewart, utanríkisráð-
herra Breta, hóf í dag viðræður
sínar við starfsbróður sinn í
Bandaríkjunum, Dean Rusk, sem
standa munu í tvo daga. Töluð-
ust ráðherrarnir fyrst við eins-
lega í eina og hálfa klukkustund
en kölluðu sfðan sér til áheyrnar
aðstoðarmenn sína og stóðu þær
viðræður í klukkustund og
kortér. Bar þar margt á góma
en einkum var þó rætt um Viet-
Nam, afvopnun, Sameinuðu
Þjóðirnar og vandamál Atlands-
hafsbandalagsins í sambandi við
k j arnarku viopnábúnað.
Aðspui'ður um viðræður sínar
við Gromyko í fyrri vikur, bar
Stewart mjög á móti því að þær
hefðu ekkert gagn gert og sagði
að víst hefðu þær verið nytsam-
legar.
Stór jaki
á grunni
Borgarfirði Eystra, 22. marz.
EINN stór hafísjaki stendur nú
á grunni sunnan til við fjarðar-
botninn. Mikið ísrek hefur sézt
í dag utan við fjar'ðarmynnið á
leið suður með landi. Bylur var
fram yfir hádegi en hefur nú
birt upp. Lítill og jafnfallinn
snjór er nú hér, en haglaust
vegna storku.
Eldur
\ prestsetri
Borgarfirði Eystra, 22. marz.
LAUST fyrir hádegi í dag kom
upp eldur í læknisbústaðnum
Ásbyrgi, þar sem sóknarprestur-
inn Sr. Sverrir Haraldsson býr.
Kviknað hafði í olíukynditækinu
að því er viTðist vegna spreng-
ingar og breiddist eldurinn um
kyndiklefann, og læsti sig í hurð
og glugga. Maður nokkur, Hannes
Eyjólfsson, sem staddur var í hús
inu, varð þegar var eldsins og
gekk rösklega fram í því að
slökkva hann ásamt fleirum, sem
kallaðir voru á vettvang. Slökkt
var með því að moka snjó inn í
kyndiklefann.
Mikill reyjcur varð í húsinu,
en ekki mun teljandi tjón hafa
orðið á efri hæ’ðinni. Kyndiklef-
inn skemmdist talsvert og olí-
kynditækið gereyðilagðist. Næsta
herbergi, sem notað hefur verið
í vetur til kennslu fyrir unglinga
deildina hér, skemmdist lítilshátt
ar af reyk og hita. Skemmdir á
raflögn og fleiru eru ekki full-
kannaðar ennþá. — 1.1.
V orboðal)?zariiiii
VORBOÐAKONUR i Hafnar-
firði halda hinn vinnsæla Vor-
boðabazar sinn í kvöld kl. 8:30 í
Sjálfstæðishúsinu. Undanfarið
hafa Vorboðakonur verið að und-
ir búa bazarinn og koma þær
með muni sína í Sjálfstæðishúsið
kl. 2, í dag. Ef að vanda lætur
verður hægt að gera þar góð
kaup á ýmiskonar fatnaðarvörum "
á börn og fullorðna ásamt ýmis-
konar öðrum varningi.
Sinubruni
veldur tjóni
AÐFARANÓTT sunnudags var
lögreglunni i Hafnarfirði tíl-
kynnt um eld norðan við Skáta-
skálann. Þegar þeir ásamt
Slökkviliði Hafnarfjarðar komu
á staðinn, sáu þeir hvar eld-
tungur stóðu upp úr tóftum, þar
sem áður höfðu staðið gamalt
fjárhús og hlaða, um 30 ferm. á
stærð. Annað hús var sambyggt
þessum, en þeim tókst að bjarga.
Mikið var brunnið af sinu í
grennd við húsin, svo að til þess
mun eldsupptökin að rekja. Ekk-
ert er vitað um það, hver kveikti
í sinunni.
Eigandi fjárhússins, Gunnlaug-
ur Stefánsson, kaupmaður,
kveðst hafa geymt þarna tals-
vert af mótatimbri, sem brunnið
hafi til ösku. Hvorki húsin né
timbrið voru vátryggð.
— Snarræði
Framhald af bls. 32
ast út úr honum og hleypur Gisl
ínu til hjálpar. Isinn brotnaði
líka undan Ottó, en hann náði
drengnum upp og hljóp með
hann heim til hans ,þar se«n
hlúð var að honum. Ekki varð
Bjarna litla verulega meint af
volkinu. Hann var með futlri
rænu, en eitthvað hafði hann
drukkið af sjó. Gíslínu varð held.
ur ekkert um baðið.
Þegar þetta gerðist, var umn
12 stiga frost, en sólskin. Poll-
urinn var allur ísi lagður og er
ísinn yfirleitt alltraustur, nema
helzt upp við landið og þar sem
skip hafa brotið vakir. Allmarg-
ir hafa sézt draga fiska upp uim
göt á ísnum, en ekki er aflinn
mikill. Sv. P.
- /Jbróttir
Framh. af bls. 30.
Hjá KFR voru Sigurður og Þórir
beztir eins og áður var sagt með
12 og 19 stig, og Marinó með
14 stig átti einnig mjög góðan
leik. Það virðist sem úthaldið
sé helzti veikleiki liðsins og ætti
að vera vandalaust að bæta úr
því fyrir næstu vertíð.
I. deild. KR—Ármann.
Vonir áhorfenda um að þeir
fengju að sjá skemmtilegan leik
milli þessara tveggja liða, urðu
að engu, þegar á fyrstu mínútutn
leiksins, þegar dómararnir tveir
Ólafur Geirsson og Guðjón Magn
ússon hófu að leika tvíleik á
flautu fyrir áhorfendur, ef svo
má að orði komast. Dæmdu þeir
óspart á alls kyns pústra og
handapat og var það til þess að
leikmenn komust aldrei í gang
og var leikurinn heldur slakur
og ljótur á að horfa. Fimmtíu
viliur dæmdar tala skýrustu
máli um gang leiksins, þegar al
gengt er að um 20 villur séu
dæmdir í venjulegum 1. deildar
leik. KR-ingar náðu í upphafi
forystunni og juku allan leikinn
til enda og sigruðu með 17 stiga
mun 55:38. í hálfleik var staðan
28:19 fyrir KR. Áberandi var að
þrátt fyrir þetta villuflóð var
lítið skorað úr vitum eða aðems
nýtt 17 skot af 51 og er það
hörmulegt í 1. deild. Beztir voru
hjá KR Gunnar, Kolbeinn og
Kristinn, en hjá Ármanni átti
Birgir beztan leik.