Morgunblaðið - 23.03.1965, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.03.1965, Blaðsíða 32
l/envrootf CHEF K>r|5W#fei(3i|^ 69. tbl. — Þriðjudagur 23. marz 1965 Sflag/wtt/ Ketla brann til grunna asamt 400 hænuungum og ýmsum verðmætum Hellu, 22. marz. AÐFARANÓTT laugard. brann íbúðarhúsið að Ketlu á Rangár- völlum, ásamt gömlu fjósi og hey blöðu, sem áföst voru húsinu. í fjósinu brunnu inni 400 hænu- ungar. l>á brunr.u einnig ein- hverjar birgðir af fóðurbæti og fleiri vevðmæti. Ekkert fólk hef ur búið í Ketlu í vetur, en Sand- græðslan í Gunnarsholti leigir jörðina og hefur þar sauðfé og nautgripi. Þegar starfsmenn Gunnarsholts komu til gegninga á laugardagsmorgun, voru áður- greind hús brunnin til grunna. Einn af starfsmönnum Sand- græðslunnar, Birgir Jónsson, hugðist hefja búskap í Ketlu í vor og hafði hann flutt hænu- ungana þangað ásamt fóðurbætin um. Einnig brann þarna hluti af Bjarndýirsslóð á Melrakka- sléttu ? FRIÐbJÓFUR Þorsteinsson | frá Raufarhöfn var í gær á , ferð milli bæjanna Skinna- lóns og Rifs, nyrzt á Meirakka ' sléttu. Taldi hann sig hafa séð I slóð eftir bjarndýr utan af isn i um á land upp og yfir ísi lagt . vatn, sem þarna er. Hríð var ' í gær, skyggni vont og fennti | I slóðir, svo að ekki var tekið | að huga að þessu fremur fyrr , en í dag. Þá fór Guðmundur' Magnússon, bifreiðarstjóri, og I gekk með byssu milli bæjanna | en varð einskis var. E. J. „Opið hús“ hjá Heimdalli í kvöld í KVÖL.D verður hið nýja fé- lagsheimili Heimdallar opið í fyrsta skipti, en það var vígt síð- astliðinn þriðjudag, svo sem kunnugt er. Síðan hafa verið haldin nokkur kynningarkvöld dyrir skólanemendur, og hafa þau heppnazt mjög vel. Veitingar verða seldar vægu verði. Ungu fólki er bent á að koma og skoða þessi nýju salarkynni, en þau verða opin frá kl. 8. húslóð Helga Hannessonar, sem lengi var ráðsmaður í Ketlu. — Ibúðarhúsið var 35 ára gamalt, að mestu úr steini, en gólf og milliveggir úr timbri. Viðgerð stóð vfir á húsinu um þessar mundir. Rafstöð var í Ketlu og var hún í gangi um nóttina, vegna hJenu- unganna. Er talið, að kviknað hafi í út frá rafmagni. Ketla er eign Rangársands s.f. en aðaleigandi þess fyrirtækis er Vilhjálmur Þór. Húsin, hænsni, fóðurbætir og húsmunir voru vátryggð. J. Þ. Vaxandi ísrek Raufarhöfn, 22. marz. í GÆR og nótt tók talsverðan ís að reka upp að landi norðan Melrakkasléttu og er nú land föst spöng milli Rifstanga og Hraunhafnartanga. Hins vegar mun isinn ekki ná langt út, þar sem Stapafell sigldi vest- ur um í morgun og Herðu- breið er á leið austur um frá Akureyri í dag. E. J. Vatnsskortur á Akranesi Akranesi, 22. marz. NÍU STIGA frost var hér niðri í bænum kl. 7:30 í morgun. Berja dalsá er að verða þurr. Kl. 19:30 í gærkvöldi varð vatnslaust í bæn um og hélzt það ástand í alla nótt. Kl. 2 í dag fór að fást vatn á efri hæðum húsa hér í bænum. Starfsmenn Akranesbœjar unnu í allan nótt við að hreinsa burt íshröngl, sem sezt hafði á botntn inn og síurnar í vatnsgeymi bæj- arins uppi í Berjadalsárgljúfrum. Haldi þurrkarnir og frostið lengi áfram, er ekki annað sjáanlegt en að tilfinnanlegur vatnsskort- ur verði á Akranesi. — Oddur. Snarræii 13 ára telpu bjargaii litlum dreng — úr vók á Akureyrarpolli Akureyri, 22. marz. ÞRIGGJA ára drengur, Bjarni Hallgrímsson, Strandgötu 41, var mjög hætt kominn í dag, er hann fór niður um ís á Akur- eyrarpolli. Snarræði 13 ára telpu, Gíslínu Benediktsdóttur, ísinn rekur inn Þistilf jörð >ór#iöfn, 22. marz — ís er nú kominn inn á Þistilfjörð og nær ísspöngin þvert yfir fjörðinn inn að miðju, en ísbreiðan er á hraðri leið inn. Hér á legunni liggja 4 bátar, um 18 tonn að stærð, og verð- um við að vona að ísinn komi ekki inn að þeim. Hér er en.g- in höfn til að Doka fyrir, enda engin tæki til þess — Birgir Dagur Loftleiða á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn Einkaskeyti til Mbl. frá Rytgárd. ROLLS ROYCE 400 fíugvél Loftleiða, Vilhjálmur Stef- ánsson, var í dag sýnd full- trúuim ýmissa ferðaskrifstofa í Kaupmannaihöfn, blaðamönn um og fulltrúum annarra Cugfélaga, sem Loftleiðir eiga samskipti við hér í borginnL Buðu Loftleiðir til kynnis- ferðar yfir Kattegat til Ála- borgar og yfir Jótland og Fjón og aftiur til Kaupimanna (hafnar. Ferðin tók klukku- stund og liuku menn miklu lofsorði á fliuigvélina og f ramm i.s t öóu hennar. (Með Kynntu þar RR-400 flug- vélar sínar í gær vélum þeim sem SAS notar á innanlandsleiðum í Dammörku tekur ferðin frá Kaupmanna- höfn til Álabargar nærri klukkustund, svo munurinn er mikill). Veður var eins og bezt varð á kosið, bjart og vorlegt, glaða sólskin og far- þegar, sem voru svo margir að vélin stóra var nærri fuli- skipuð, nu.tu ferðarinnar í rík- um mæli. Tekið var til þees að fíug- félagið SAS sendi á vettvang háttsetta fulltrúa sina þó far- arstjóri Danmerkiudeildarinn- ar, Johannes Nielsen, hetfði sjáifur sent afboð og sagt sér þætti miður að geta ekki komið, en hann ætti einmitt að standa fyrir svipaðfi kynn ingu á vegum félags síns þenn an dag. Það var lýðum IjÓ6t, að SAS gerði ekkert það er spillt gæti fyrir kynxúng'U Framh. á bls. 2 varð til að bjarga lífi hans á síðustu stundu. Bjarni litli var að leika sér á þríhjóli á isnum sunnan við Oddeyri ásamt nokkrum litlum börnum, þegar hann hjólaði út á mjög veikan ís, þar sem frá- rennslið frá Hríseyj argötu kem- ur fram í sjóinn, en þar verður jafnan afæta. Fór hann á bólakaf en enginn fullorðin nálægur. 1 þessuim svifum kom 13 ára telpa, Gíslína Benediktsdóttir, Strandgötu 43, út úr húsinu núm er 41, þar sem foreldrar Rjarna litla búa og var á leið heim til sín. Sá hún þá af tilviljun, hvar barnshöfuð var að sökkva í vök- inni og hljóp umsvifalaust út á ísinn barninu til hjálpar, þar til ísinn brast undan henni og hún stóð í mitti í ískölduun sjón- urn. Var Bjarni litli þá alveg sokikinn, a.m.k. í annað sinn og var að berast inn undir ísskör- ina. Gíslína náði til hans og hélt honurn upp úr sjó, en gat ekki komið honum upp á skör- ina, því að ísinn brotnaði alltaf undan þunganum. Nú átti Ottó Snæbjörnsson, blikksmiður, leið um Strandgöt- una í bíl sínum og verður litið fram á ísinn. Sér hann strax, að þar er eitttwað óvenjulegt að gerast, stöðvar bílinn, snax- Framh. á bls. 2 r Isstaðan breytist lítið Samkvæmt upplýsingum frá Jónasi Jakobssyni, veðurfræð- ingi, var vindur hægur í gær og engar stórbreytingar á stöðu íss- ins fyrir norðan landið. Kl. í gærdag sagði í skeyti frá Grímsey, að samfelld is- breiða sæist frá norðvestri til austurs, 4 til 6 sjómiílur undan landi, og ræki til suðvesturs. Norðanátt var þá í Grímsey. Stapafell tilkynnti um kl. 4 í gærdag mikið ísrek á siglinga- leið, margar ísspangir, frá Rauf- arhöfn vestur fyrir Melrakka- sléttu. Væri siðasta ísspöngin 15 sjómúlur vestur af Rauðunúpum, í gærmorgun sást ísbreiða eins langt og skyggni leyfði frá Hom bjargsvita. Slæmar horfur um Donwood ILLA horfir nú um björgun skozka togarans Donwoods, sem strandaði í Vestmannaeyjum og situr fastúr i fjörugrjótinu við Heimakiett, þar sem kominn var austan kaldi í gær og nokkuð tek ið að brjóta á skipinu. Landhelgisgæzlan lýsti því yf- ir í síðustu viku, að vonlaust væri að ná skipinu á flot, enda hafa grjóthnullungar gengið gegnum kjöl togarans og hann hálffuilur af sjó. Á sunnudag kom til Eyja lítið norskt björgunarskip, Ajilleas, sem eigendur og vátryggjendur Donwoods höfðu hvatt á vett- vang. Lá björgunarskipið aðgerð ariaust i Frjðarhöfn í gær og litlar horfur á þvi, að veðrið bata aði í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.