Morgunblaðið - 02.04.1965, Qupperneq 5
Föstudagur 2. apríl 1965
MORGUNBLAÐID
15. öld fóni enskir kaup-
menn fraim með miklum yfir
gangi hér á landi og líktust
meir iránsmönnium en friðsöm
um kaiupmönnum. I>é var
'hirðstjóri Björn Þorleifsson
ríki á Skarði ó Skarðsströnd
og bar honum að hefta ofsa
Englendinga og gekk hann
vel fram í því. Sumarið 1467
gerði Bjöm för sína a'ð Rifi,
því að kærur höfðu borist um
yifirgang enskra þar. Hafði
Björn nokkra menn með sér,
þar á meðal Þorleif son sinn.
Þegar í Rif kom veittust Eng-
lendingar að hirðstjóra með
vopnum og sló þar í bardaga,
Sjö menn féJJIu af Birni, en
nokkrir vom teknir höndum
þar á meðal Þorleifur. Bjöm
varðist vasklega og leitaði sér
vígiis undir stórum seini, en
þar var hann að lokum lagð-
ur í gegn og nístur upp við
steininn. Þessi steinn varð
því frægur og jafnan nefndur
Bjarnarsteinn. Um hann kvað
Fornólfur svo:
Stendur orðlaus enn — og
reyndar
aldir má hann þar velli halda
maelir þó fleira málgu skjali
minnisvarðinn í Rifi harður,
nafnið eitt þylur nógleg efni,
neinum stutt ei letursgreinum,
enn er á tungu og í máli
manna
minning hrein — á
Bjarnarsteini.
Steinninn er undir háum
bakka rétt upp af hafnargarð-
inum, er gedður var; á rif það,
er staðurinn dregur nafn af.
Mynd þessi er tekinn af hon-
um 1954 þegar byrjað var á
landslhöfninni í Rifi. Eins og
sjá má, befir ýmsu drasli ver
ið hrúgað að steininum, tóm-
um tunnuim o. fl., og sýnir
það að menn gerðu sér ekki
ljóst, að þetta var merkur
minnisvarði, enda þótt engin
áletran væri á honum. Siðan
hefir þetta breyzt. Sandurinn,
sem dælt var upp úr höfninni
hefir veri’ð notaður til upp-
fyllingar á stóru svæði, og
nú hefir hann fært Bjamar-
stein í kaf, svo að rétt aðeins
örlar á hann. Hér gerist sama
sagan og víða annars staðar,
algjört virðingarleysi fyrir
fornum sögustöðum. Þó var
hægurinn hjó hér, að skilja
eftir diálitla kvos umhverfis
steininn, svo að hann gæti
„haildið velli um aldir“.
Manni verður á áð spyrja: Er
bráðnauðsynlegt að fram-
kvæmdir hins nýa tíma brjóti
niður og afmái sögulegar
minjar? Er hér ekki fremur
um kæruleysi og trassaskap
að ræða, heldur en brýna
nauðsyn? — Þessu tilflelli er
þó ekki stór skaði skeður enn,
því að næsta kynslóð mun
grafa upp Bjarnarstein og
ganga eæmilega frá honum.
Og þegar Rif er orðið stórt
þorp, munu þorpsbúar benda
með stolti á Bjarnarstein, hinn
merka minnisvarða, og ef til
vrll letra nafn Bjarnar hirð-
stjóra á hann.
ÞEKKIRÐI)
LANDIÐ
ÞITT?
VISIJKORN
Valgerður hún vill ei blót,
veðrin þó að séu ljót
Segir bæti byljasót
bæn frá innstu hjartarót.
Kristján Helgason.
Pennavinir
Friedrioh Rossi, bæjarstarfs-
maður í Hausham í Þýzkalandi.
Óskar eftir að komast í samfoand
við einn eða flleiri frímerkjasafn-
ara á íslandi. Friedrich er áihuga
piaður um ísland. Heimilisfang
hans er Friedrioh Rossi, 8164
Hausham, Rathaus / Ober-Bay-
ern, Deutstíhland.
Akranesferðlr með sérleyfisferðnm
Þórðar Þ. Þórðarsonar. Afgreiðsla hjá
B.S.R. við Lækjargötu. Ferðir frá Rvík
mánudaga, þriðjudaga, kl. 8 og 6, mið-
vikudaga kl. 8, 2 og 6, Fimmtudaga
og föstudaga kl. 8 og 6, laugardaga
kl. 8, 2 og 6, sunnudaga kl. 10, 3, 9
og 11:30 (en kl. 11:30 frá B.S.Í. ann-
ars alltaf frá B.S.R.).
Frá Akranesi mánudaga kl. 8 og 6,
þriðjudaga kl. 8, 2 og 6, miðvikudaga
og fimmtudaga., kl. 8 og 6, föstudaga,
og laugardaga kl. 8, 2 og 6, sunnudaga
kl. 10, 3 og 6.
Skipaútgerð rikislns: Hekla er í
Álaborg. Esja er á Austfjörðum. Her-
jólfur fór frá Vestmannaeyjum kl.
15:00 í gær ál'eiðis til Hornafjarðar.
Jjyrill er á Vesfcfjörðum. Skjaldbreið
var væntanleg til Rvíkur kl. 8:00 í
morgun að austan. Herðubreið kom til
Rvíkur kl. 21:00 í gærkvöldi að norðan.
Fúmskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla er á leið til Austfjarða frá
Göteborg. Askja lestar á Austfjarða-
hötfnum.
Eimskipafélag íslands h.f.: Ba-kka-
foss er Leith. Brúarfoss kom til
Rvíkur. 29. frá Keflavík. Dettifoss fer
tfrá NY 6. til Rvíkur. FjalLfoss fer frá
Ventspils 1. til Kotka og Helsingfors.
Goðafoss fer frá Rvlk í fyrramálið 2.
til Akraness og Keflavíkur. Gullfoss
tfer frá Hamborg 1. til Rostock og
Kaupmannalxafnar. Lagarfoss fer frá
NY 1. til Rvíkur. Mánafoss fer frá
Rotterdam 2. til Rvíkur. Selfoss kom
til Rvikur 1. frá Hull. Tungufoss er í
Hamborg. Katla fór frá Gautaborg
29. til Rey ðarfj arðar. Echo fer frá
Hamborg 2. til Rvíkur. Askja fór frá
Keflavík 30. til Fáskrúðsfjarðar og
Eskifjarðar og þaðan ti‘1 Bremen. Ut-
an skrifstxxfutíma eru skipafréttir lesn
ar í sjálfvirkum símsvara 2-14-66.
Hafskip h.f.: Langá er í Gdynia.
Laxá er 1 Rotterdam. Rangá er á
Hafnarfirði. Selá er í Rvík. JeÆfmine
lestar í Hamborg.
H.f. Jöklar: Drangajökull er 1 Vest-
mannaeyjum. Hotfsjökull er á leið frá
Charleston til Le Havre, London og
Rotterdam. Langjökull er í Le Havre,
fer þaðan til Rotterdam og London.
Vatnajökull fer í dag frá Rotterdam
til Hamborgar, Oslo og íslands. ísborg
fór 31. f,m. frá Eskifirði til Liverpool
Cork og London. y
Skipadeild SÍS: Arnarfeli fór 27.
frá Gloucester til íslands. Jökulfell er
í Camden fer þaðan í dag til Gloucest-
er. Dísarfell er á Hornafirði. Litlafell
er í Rotterdam. Helgafell er væntan-
legt til Zandvoorde á morgun, fer
25. frá Constanza til Rvíkur. Stapafell
þaðan til Rotterdam. Hamrafell
er í olíuiflutningum á Faxaflóa. Mæli-
fell er væntanlegt til Glomfjord á
morgun. Petrell er á Hornafirði.
UEKNAR
FJARVERANDI
Björn Önundarson fjarverandi frá
24. um óákveðinn tíma. Staðgengill er
Jón Gunnlaugsson til 1. 4. Þorgeir
Jónsson frá 1. 4. óákveðið.
Eyþór Gunnarsson fjarverandi
óákveðið. Staðgenglar: Viktor Gests-
son, Erlingur Þorsteinsson og Stefán
lafsson.
Hannes Finnhogason fjarverandl ó-
ákveðið. Staðgengill: Henrik Linnet,
lækningastofa Hverfisgötu 50, viðtals-
tími mánudaga og laugardaga 1—2
fimmtudaga 5—6, þriðjudaga, miðviku
daga og föstudaga 4—5 Sími á stofu
17474 og heima 21773.
Kristjana Helgadóttir fjarverandi
til 5. apríl. Staðgengill: Jón Gunn-
laugsson, Klapparstíg 25. Viðtalstími
mánudaga, þriðjudaga, föstudaga og
laugardaga kl. 10 — 11 miðvikudaga
og fimmtudaga kl. 4:30 — 5:30. Sími
11228.
Ólafur Ólafsson fjarverandi Stað-
gengill: Jón Gunnlaugsson tiil 1. 4. og
Þorgeir Jónsson frá 1. 4.
Þórður Möller fjarverandi út apríl-
mánuð. Staðgengill: Oddur Ólafsson.
KLeppi eftir kl. 1, en beiðnir f Ji.
Leiðrétting
Á bls. 3 í blaðinu í gær ur'ðu
þau mistök, að Ólafur Pálsson
prófdómari í sundi var ranglega
nefndur Jón Pálsson. Þá var sund
kennarinn nefnd Kolbrún Ás-
grímísdóttir, en heitir Kristrún Ás
grímsdóttir. Eru þau beðin vel- ]
virðingar á þessum mistökum.
f þættinum Gamalt og gott í
■gær, varð ruglingur á myndum.
Birt var mynd af Skúla Thorodd
sen eldri, í stað Skúla yngri, sem
vísurnar orti. Skúli S. Thorodd-
sen, sem hér birtist nú miynd af
fæddist 24. marz 1890 á ísafirði,
og var sonur Skúla ritstjóra og
alþm. og Theodóru konu hans.
Hann var lögfræðingur að mennt
un og málflutningsmaður á ísa-
firði og vi'ð landsyfirdóminn.
Hann var þingmaður N-ísfirð-
inga árið 1916—1917. Skúli and-
aðist ókvæntur 24/7 1917 í Rvíik
um þingtímann.
Munið Skdl-
holtssöínunina
Iðnaðarhverfi
Óska að taka á leigu upp-
hitað húsnæði í iðnaðar-
hverfi, 30—40 ferm. Uppl.
í síma 36253.
Hafnarfjörður
Gólfteppi, ódýr gólfteppL
Vindsængur, ódýrar vind-
sængur.
Jón Mathiesen
Símar: 50191, 50102 og
51301.
Íbúð óskast
6 herb. íbúð óskast til leigu.
Upplýsingar í sima 24796.
Herbergi óskast
fyrir einhleypan mann,
helzt í Kópavogi.
Vélsmiffjan Jámver.
Sími 41444.
Síðasti skemmtifundur
vetrarins er í kvöld kl. 7:45. —
Fjölbreytt skemmtiskrá.
STJÓRNIN.
ísbúðin
Laugalæk 8. — Sími 34555.
í fermingarveizluna
PAKKAÍS
5 tegundir. — Einnig mjólkurís, ís-sósur,
milk-shake og banana split.
Opið laugardaga og sunnudaga
frá kl. 10—23:00.
Aðra daga kl. 14—23.30.
Næg bílastæði.
STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS
Fundur verður haldinn í Stjórnunarfélagi íslands
laugardaginn 3. apríl kl. 14 stundvíslega í fundar-
sal Hótel Sögu.
FUNDAREFNI:
Kynning nýrra aðferða við
framkvæmdaáætlanir.
— C. P. M. — P. E. R. T. —
Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri,
Egill Skúli Ingibergsson, verkfræðingur,
Helgi Sigvaldason , Lic. techn,
Jakob Björnsson, verkfræðingur,
Páll Sigurðsson, rafmagnseftirlitsstjóri
flytja erindi og sýna dæmi.
Gestir velkomnir.
STJÓRNIN.
Vil kaupa
fasteign með verzlunarplássi eða 2ja hæða vandaða
eign með sér inngang á hvora hæð. Ellegar 1. ný-
tízku hæð. Miklir greiðslumöguleikar.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Vönduð — 7091“.
Til sölu
Nýiegur Ford Consul Corsair, ekinn 12 þúsund km.
Skipti koma til greina. — Upplýsingar í síma 12494
milli kl. 9—12 og 1—5.
Vunur skriistofumnður
óskar eftir að taka að sér bókhald í aukavinnu. —
Hefur einkaskrifstofu með vélakosti. — Tilboð,
merkist: „Bókhald — 7093“.