Morgunblaðið - 20.05.1965, Page 3

Morgunblaðið - 20.05.1965, Page 3
Flmmtudagur 20. maí 1965 MORGUNBLAÐIÐ 3 STAKSTEINAR Að íljúgast á við 1.ANDSBANKINN hóf starf- rækslu kaupþings árið 1941, sem Ktarfaði í rúmt ár. Tilgangur kaupþingsins var að skapa skipu legan verðbréfamarkað. Efri myndin er frá setningu kaupþingsins í afgreiðslu Lands- fcankans. Er hún tekin á sama etað og myndin hér fyrir ne'ðan. Á myndinni eru margir þjóð- ikunnir menn- Standandi fyrir enda eru Jón Árnason, sem þá var formaður bankaráðsins. Bankastjórar Landsbankans þá, þeir Magnús Sigurðsson, Pétur Magnússon og Viihjiálmur Þór, Auk þeirra ráðherrar, bankaráðs menn o.fl., þ.m. Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherr'a, Björn Óiafsson, Jón Ásbjörnsson, Hall- grím.ur Benediktsson, Sigurjón Jóhannsson, Þorsteinn Þorsteins son hagstofustjóri og Halldór Landsbankinn 1941 og 1965 Sala spariskírteina og kaupþing Halldórsson. Till hægri á mynd- inni er Gylfi Þ. Gíslason, mennta málaráðherra, sem m.a. undir- bjó kaupþingið. Til hægri eru m a. Kristinn Júlíusson, útibús- etjóri Eskifirði, Ey-steinn Jóns- eon, fyrrv. rá’ðherra, og hæsta- réttarlögmennirnir Sveinbjörn Jónsson, Kristján Guðlaugsson, Einar Ásmundsson og Gunnar Möller. Auk þeirra Hörður Þórð arson, sparisjóðsstjóri, Jón Hail- dórsson, fyrrv. skrifstofustjóri, Björn ólafs, lögtfræðingur og Jó- hann Jóhannesson, starfsmaður- bankans. Við borðið sitja aðilar að kauplþinginu, Lárus Jóhann- esson, Stefán Bjamason, Eggert Classen, Hilmar Stefánsson, Guð mundur Ásbjörnsson og Gunnar Þorsteinsson. Till hægri sitja Sig- urður Kristjiánsson, Aron Guð- brandsson, Halldór Stefánsson Guðlaugur Þorláksson, Garðar Þorsteinsson og Vilhjálmur Briem. Þar fyrir aftan situr Jón G. Maríasson, núverandi banka- stjóri Seðlabankans, sem var fulltrúi Landsbankans við kaup- þingið. Neðri myndin sýnir sölu spari- skírteina ríkissjóðs í Landsbank anum í gær, en þar er stærsti út- sölustaður skírteinanna. Hefur veri'ð mikil og ör sala á spari- skírteinunum og er búist við, að þau seljist upp næstu daga. Myndirnar eru teknar á sama stað' Þær minna á, að með auk- inni verðlbrétfaeign aknennings skapast meiri þörf fyrir að koma á stofn reglulegu kaupþingi. Er gert ráð fyrir því í lögum Seðla bankans, að hann komi því á, þegar aðstæ’ður leyfa. Karlakór Reykfavikur heldur hlfómEeika NÆST komandi laugardag, 22. maí kl. 3, mun Karlakór Reykja víkur endurtaka hljómileika þá í Háskólabíói, sem hann hélt þar þrisvar sinnum fyrir styrktarfé- laga sína á dögunum. Er þáð gert vegna fjölda áskorana og mikillar aðsóknar þá, en upp- selt var á alla hljómleikana. Stjórnandi er Páll Pampitíhler Pálsson: einsöngvari Guðmund- ur Guðjónsson, óperusöngvari, evo og þrír kórfélagar, þeir Frið björn G. Jónsson, Jón Hallsson og Garðar Guðmundsson. Undir leik annast hljómsveit skipuð fé- Qögum úr Sinfóníuihljómsveit is- lahds. Kórinn hefur I millitíðinni ferð «st til Norðurlands og haldið þar sex söngskemmtanir; á Saú’ðár króki, Siglufirði, Ólatfsfirði, Skjól brekku og tvisvar á Akureyri- Með í förinni voru einnig þau Guðmundur Jónsson, óþerusöngv ari og Guðrún Kristinsdóttir, píanóleikari. Var aðsókn mjög igóð og móttökur framúrskarandi og hefur kórinn beðið blaðið áð flytja Norðlendingum beztu þakkir fyrir gestrisni þeirra og gistivináttu. Eftir hljómleikana á laugar- daginn mun kórinn halda tiil Sandgerðis og syngja þar fyrir styrktarfélaga Tónlistarfélags Miðneshrepps kl. 8:30 um kvöld- ið. Að laugardagdhljómleiikunum í Háskólabíói gilda miðár þeirra styrktarfélaga kórsins, sem ekki gátu af einhverjum ástæðum not að þá áður og jafntfram verður reynf að ná til þeirra, sem ekki fengu miða sína þá. Einnig verð- ur foætt við nýjum styrktarfélög- Hrossaræfctar- ráðunautur að hiuta MEÐ BRÉFI dagsettu 13. maí hef ir stjórn Rúnaðarfélags íslands samþykkt að Gunnar Bjarnason, ráðunautur á Hvanneyri, taki að sér að hafa á hendi leiðbeiningar um útflutning hrossa og annast á þeim kynningarstarfsemi er- lendis. Þá skal hann gera upp kast að reglum_ um útflutning hrossa, sem B. í. tekur til úr- skurðar og samþykktar, einnig skal hann, ef óskað er, skoða og flokka útflutningshross. Þannig hefir Gunnar tekið aftur við hluta starfs hrossaræktaráðu- nautarins, enda hefir hann byggt frá grunni þennan útflutning. Handritin: Lýðsháskólamenn ■ Dan- rnörku með afhendingu — yfirlýsing S. Haugstrup Jensen, skólastjóra, um áióður andstæðinga afhendingarinnar EFTIRFARANDI grein l^f- ur Morgunblaðinu borizt fró S. Haugstrup Jensen, skóla- stjóra Grundtvigs Fpllkehöj- skole, Krederiksborg, Dan- mörku: „Morgunblaðið skýrir frá því 28. apríl, að danskir lýð- háskólamenn séu nú klofnir í afstöðu sinni til handritamóls ins. Astæðan væru skólaheim- sóknir ýmissa aðila, sem reyndu að rjúfa eininguna. Þessi tilkynning er hins vegar aðeins áróður, sem andstæð- ingar afhendingar handrit- anna hafa komið áleiðis til íslenzkra blaða, áróður, sem lýsir á engan hátt afstöðunni, eins og hún raunverulega er. Meirihluti danskra lýðhá- skólamanna er enn á þeirri skoðun, að ísland eigi að fá handritin afhent. Annars hljóta andstæðingar afhendingarinnar að hafa tal- ið okkur mjög barnalega, ef þeir hafa trúað þvl, að tveir stúdentar, vopnaðir ljósmynd um af handritunum, gætu fengið okkur til að skipta uffl skoðun. Ég vona, að íslend- ingar séu eikki á sömu skoð- un og þeir. Mörgum sinnucm hefur Bjarni M. Gíslason, .rithötf- undur, heimsótt okkur, og er hann stígur í ræðustól, og seg ir sögu utanbóka’r, þá teljum við það sönnun þess, að ís- lendingar séu í lifandi tengsl- um við sögurnar. Sýning ljós- mynda af sögum, sem föru- stúdentarnir hafa e.t.v. ekki sjálfir lesið, er ekki vænleg til árangurs. Tilkynningu um skoðana- skipti okkar af þeim orsökum þarf ekki að taka alrvarlega á íslandi. S. Ilaugstrup Jensen, skólastjóri Grtmdtvigs Folkehöjskole, Frederiksborg. krokka A Ð venju endaði síðasta ganga kommúnista á því, að þeir flug- ust á við börn. Fer þetta að verða næsta árviss viðburður í höfuðstaðnum að sjá afgamla kommúnista og afkvæmi þeirra berja á börnum með göngustöf- um og reyna að rífa af þeim spjöld og veifur. Segja má þó, að gamanið hafi verið tekið að kárna nokkuð síðast, enda þurfti þá öfl- uga lögregluvernd umhverfis kommúnistalýðinn og dugði varla tU. Lögreglan gekk ötullega fram i«því að verja kommúnista fyrir áreitni krakkanna, enda voru sumir göngumanna lítt færir um að verja hendur sínar sjálfir vegna elli, þreytu, mæði, bræði og annarra annmarka. Hvað sem því líður, þá hefur sú hefð kom- izt örugglega á, að hátindur göng unnar skuli vera að Ienda í tuski við krakka og láta brjóta nokkr- ar rúður í Tjamargötu 20. Hæflr sá hátindur göngunnar tilgangi hennar mætavel. Syndaseluriiin mesti Mjög er nú í tízku meðal á- kveðins hóps manna að átelja sjónvarpið í Keflavík, hyenær sem færi gefst til, og jafnvel líka, þegar ekkert tilefni virðist fyrir hendi. Eiginlega geta þessir menn kennt sjónvarpinu um allt, sem þeir telja, að miður fari í íslenzku þjó.ðfélagi. Sumir virðast varla geta horft á sjónleik eða Iesið bók, án þess að hræðilegri hugs- un skjóti upp: sjónvarpsgrýlunni; og hafa þess sézt merki í ritdóm- um. Sigurður A. Magnússon geng ur svo langt í síðustu Lesbók Morgunblaðsins að fullyrða eftir- farandi: „Skrílsæðið, sem nú brauzt út á götum höfuðstaðarins vegna meinlausra mótmælaað- gerða svonefndra „hernámsand- stæðinga“ (sem þekkja ekki muninn á hernámi og hersetu), var einn óhrjálegasti votturinn um afsiðun yngri kynslóðarinnar af völdum dátasjónvarpsins, sem ég hef orðið vitni að“. Einnig er talað um „látalæti islenzka sjón- varpsskrílsins". Látum nú vera, að mótmælaaðgerðir kommúnista eru kallaðar meinlausar; það eru þær vitanlega aldrei, þótt hall- ærislegar og hlægilegar séu stund um. Hins vegar má þeirri fá- sinnu ekki vera ómótmælti, að ó- læti lcrakkanna stafi af því, að því, að þau hafi horft á sjónvarp. Sá, sem slikt lætur út úr sér, þekkir ekki mikið til sjónvarps- ins. Að stríða aumingjum Hvernig var það annars, höfðu krakkarnir, sem gerðu at í Sæ- finni með sextán skó, eltu Þórð ala-mala með hrópum og skít- kasti og sendu vatnskerlingum tóninn hér í Reykjavík fyrir alda mót horft á sjónvarp sér til ó- bóta? Hafði sá bandóði kommún- istaskríll, sem réðst að Alþingl með grjóti og bareflum 30. marz 1949, lært árásartæknina í sjón- varpi? Annars var það landlæg- ur ósiður hér í Reykjavík fyrr á árum, að börn veittust að vesal- ingum og aumingjum á almanna- færi, köstuðu í þá skít og.köll- uðu til þeirra köpuryrði. Þessl ósiður er að heita má niður lagð- ur með batnandi bæjarbrag, þótt sjónvarpið sé komið til sögunnar. Nei, það er ekki hægt að gera sjónvarpið að allsherjar blóra- böggli á fslandi, nema menn trúi áróðri á borð við þann, sem eitt sinn var rekinn hér, að Marconi- loftskeyti hefði farið í gegnum kú á Kjalarnesi og dreþið hana, eða að „útvarpsbylgjur" yllu rigningu. Hefur vertíðin ekki ein mitt brugðizt á sjónvarpssvæð- inu? Hvað um fimleika bera mannsins í Lindarbæ? Eru þeir ekki gott dæmi um spillinguna, sem fylgir sjónvarpinu?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.