Morgunblaðið - 20.05.1965, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. maí 1963
Stöðvun verðbólgunnar for-
senda fyrir bættum kjörum
Frá 5. þingi Landssambands
ísl. verzlunarmanna
V. ÞING Landssambands Isl.
verzlunarmanna var haldið á Sel-
fossi dagana 7.—9. maí sl. Á þing-
inu áttu sæti 55 fulltrúar 19 fé-
laga í landinu. Undirbúningur
forystumanna Verzlunarmannafé
lags Árnessýslu fyrir þingið var
allur með ágætum. Félagið bauð
þinginu í kynnisferð til Þorláks-
hafnar á föstudagskvöld og að
því loknu voru veitingar fram-
reiddar í HveragerðL
Á laugardag gengust verzlun-
armenn fyrir vorhátíð í Ara-
tungu. Þar hélt Óskar Jónsson,
formaður Verzlunarmannafél. Ár
nessýslu ávarp, en frú Guðrún Á.
Símonar og Ómar Ragnarsson
skemmtu. Var hátíðin hin ánægju
legasta.
Þinginu lauk kl. 21 á sunnu-
dagskvöld með því að kjörin var
stjórn LÍV.
Framkvæmdastjórnina skipa:
Sverrir Hermannsson, formað-
ur, Björn Þórhallsson, Óskar
Jónsson, Hannes Þ. Sigurðsson,
Ragnar Guðmundsson, Björgúlf-
ur Sigurðsson, Örlygur Geirsson,
Sæmundur Gíslason og Sigurður
Sturluson.
Þingið gerði álytkanir í öllum
helztu hagsmunamálum skrif-
stofu- og verzlunarfólks. Fara
hér á eftir samþykktir þingsins í
kjaramálum:
„V. þing Landssambands ísl.
verzlunarmanna leggur höfuð-
áherzlzu á að tryggð verði veru-
leg aukning rauntekna á tíma-
einingu frá því sem nú er.
Til að svo megi verða, telur
þingið óhjákvæmilegt skilyrði,
að verðbólguþróunin verði stöðv-
uð.
SADOLUX
LAKK fyrir það sem vanda
skal, hæði úti og inni.
^ÁDOLtí^
•loyd .nam*1
Allir litir.
MÁLARINN
Sími 11496.
Nýkomið!
fyrir börnin
í sveitina.
Gallabuxui
Verð aðeins kr. 135,-.
f.eddy
U’ fc>Ciöíri
Aðalstræti 9. — Sími 18860.
f þessu sambandi vill þingið
lýsa yfir fullum stuðningi við
„Ályktun um kjaramál", sem
samþykkt var á Kjaramálaráð-
stefnu ASÍ 27. marz sl.
í samræmi við það, telur þing-
ið óhjákvæmilegt, að við gerð
nýrra kjarasamninga við vinnu-
veitendur, verði þyggt á eftirfar-
andi meginatriðum sem samn-
ingsgrundvelli.
1. Almenn kauphækkun.
2. Stytting vinnuvikunnar í 40
klst.
Dagvinnu sé lokið alla laug-
ardaga kl. 12 á hádegi.
Heimilt skal starfsfólki í sam-
ráði við vinnuveitendur að vinna
af sér laugardaginn, ef meirihluti
starfsfólks æskir þess.
3. Fjögurra vikna lágmarks-
orlof.
Lágmarksorlof hækki eftir 5 og
10 ára starf hjá sama vinnuveit-
anda í stað 10 og 15 ára starfs
eins og nú er.
4. Nánari útfærsla á flokka-
skipan samninganna og orðskýr-
ingar við þá verði endurskoð-
aðir.
5. Skýrari ákvæði um starfs-
reynslu, þannig að starfsreynsla
sé örugglega tryggð í öllum
starfsgreinum.
6. Aukin réttindi í veikindafor-
föllum til samræmis við aðrar
sambærilegar starfsstéttir.
Benedikt Blöndal
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 3. — Sími 10223
Hópferðabilar
allar stærðir
-LNG1M/íH
Simi 32716 og 34307,
bjarni beinteinsson
LÖGFRÆÐI NGU R
AUSTU RSTRÆTI 17 (Sl LLI & VALOl)
SÍMI 13536
Sparifjáreigend ur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12
f.h. og 8—9 e.h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
Sími 22714 og 15385._
iWfflMimi&lM
7. Hækkun slysatryggingar.
8. Komið verði á stofn fræðslu-
og menningarsjóði, sem vinnu-
veitendur greiða sem svarar 1%
af útborguðum launum félags-
manna.“
V. þing LÍV haldið á Selfossi
dagana 7.—9. maí 1965 skorar á
Alþingi og ríkisstjórn að veita
verzlunarfólki aðild að Atvinnu-
leysistryggingasjóði og felur
stjórn LÍV að fylgja þessu máli
fast eftir.
V. þing LÍV haldið að Selfossi
dagana 7.—. maí 1965 telur að
aðkallandi sé að komið verði á
sem fyrst hagstofu launþegasam-
takanna og felur stjórn LÍV að
vinna að því í samvinnu við önn-
ur launþegasamtök í landinu.
V. þing LÍV haldið að Selfossi
dagana 7.—9. maí 1965 mótmælir
harðlega afskiptum borgarstjórn
ar Reykjavíkur í sambandi við
lokunartíma sölubúða í Reykja-
vík, þar sem þar um eru gild-
andi samningar milli V.R. og at-
vinnurekenda.
Með þessu telur þingið að ver-
ið sé að skapa hættulegt og ein-
stakt fordæmi og skorar þingið
á stjórn LÍV að vera vel á verði
um samningsrétt félaganna.“
Hættan af vaxandi
víndrykkjuhneigð
Almenningsálitið breytist
EFTIRFARANDI erindi um
áfengismál vísaði XVI, Lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins til
miðstjórnar flokksins:
Vér undirritaðir landsfundar-
fulltrúar, sem stóðum að tiláöigu
um skipan nefndar um áfengis-
mál, beinum því hér með til mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins, að
hún beiti sér fyrir því, að vakin
sé athygli alþjóðar á þeirri hættu
og margs konar óhamingju, sem
þjóð vorri stafar af vaxandi vín-
drykkjuhneigð. Þetta ástand er
oss því skaðlegra sem drykkju-
skapurinn grípur meira um sig í
röðum hinnar uppvaxandi æsku í
landinu. Hér ber því brýna nauð
syn til, að eflt verði til almennra
samtaka til þess að stemma á að
ósi, og viljum vér benda á eftir-
farandi atriði, sem lið í því að
spyrna broddum við þeirri skað-
semi, sem hér blasir við sjónum
vorum.
1. Veikleiki æskunnar og
ístöðuleysi gagnvart vínnautn-
inni á óefað rót sína að rekja til
HINIR MARGEFTIRSPURÐU
ERU KOMNIIÍ AFTUR
LAUGAVEGI 11
SÍMI 2-16-75.
skapgerðarveilu. Ber því brýna
nauðsyn til, þegar á bernsku- ag
æskuskeiði, að foreldrar, kennar-
aæ Ofí aðrir æskulýðsleiðtogar
kosti kapps um að beita uppeldia
áhrifum sínum til úrrýmingar
þessa veikleika, en efli í þesa
stað sjálfstæði í hugsun og álykt-
unum, er rótfesti í huga æskunn-
ar skarpa skilgreiningu góðs og
ills.
2. Að vekja með þjóðinni það
almenningsálit, að á drykkju-
skap, sem leiðir til þlyunar á al-
mannafæri, sé litið sem skap-
gerðarbrest, er brjóti í bág við
heilbrígða skynsemi og vamm-
lausa umgengnishætti í þjóðfé-
lagþ þar sem menntun, menning
og manndómur ræður ríkjum.
3. Að styðja og efla bindindis-
starfsemina í landinu, hvort sem
að henni er unnið á vegum Góð-
templarareglunnar, Áfengisvarn-
arráðs eða öðrum félagssamtök-
um, er hafa það á stefnuskrá
sinni að vernda þjóðina fyrir
vínnautn og notkun eiturlyfja.
4. Að hvetja æskufólk til
skemmtisamkvæmishalds, þar
sem ákveðið er fyrirfram, að vín
skuli ekki um hönd haft.
5. Að leggja þeim félassamtök-
um til öflugan stuðning, sem hér
starfa að því að bæta bö.1 þeirra
einstaklinga, karla og kvenna,
sem orðið Jiafa ofdrykkjunni aS
bráð, og leitast við að ráða bót
á þeirri heimillsóhamingju, sem
áfengisnautnin htfur í för með
sér.
6. Að drykkjusjúklingum verðl
aflað sjúkrahús- og hælisvistar,
þar sem einskis er látið ófreistað
til þess að lækna þá.
7. Að lokum æskjum vér þess,
að miðstjórnin beiti sér fyrir þvi
við ritstjóra og útgefendur blaða
Sj álfstæðisflokksins, að það
verði gert að föstum þætti í blöð
um þeirra, að birtar séu öðru
hverju greinar, þar sem varað er
við áfengisnautn og hvatt til hóf
semi í þeim efnum.
Berum vér fyllsta traust til
miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins,
að hún láti málefni þetta til sín
taka til gagns og heilla, eftir þvi
sem efni standa til hverju sinnL
Sigurjón Bjarnason,
Guðmundur Gíslason,
Vilhjálmur Heiðdal,
Árni Helgason,
Sigfús J. Johnsen,
Sveinn Helgason,
Pétur Ottesen.
LAUGAVEGI 59..slmi 18478
Þennan bíl geta allir eignast
600
Verð: 87.500.-
Lánum
helming
TINKAUMBOO: INGVAR HELGASON
IHYGGVAGÖTU ÍO SIMI 19655
SöluumboS : BlLASALA GUDMUNDAR
Bergþórugötu 3 — Sími 19032 -20070
TRABAIMT-station afgreiddir strax