Morgunblaðið - 20.05.1965, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.05.1965, Blaðsíða 30
30 MORCU N BLAÐIÐ Fhnmtudagur 20. mai 1963 Viss hætta fylgir kafsundi BRIDGE □------□ Myndin er af íslenzka liðinn, sem sigraði í Norðurlandameistaramótinu í útihandknattleik, sem haldið var í Reykjavík s.I. sum- ar. Nú hefur verið ákveðið að Island mæti Danmörku í heimsmeistarakeppninni. HM kvenna: Island mætir Danmörku Leikjum skal lokið 31. oktober DiANSKA blaðið Politiken skýrir 12 leikir, heima og heiman, nema frá því s.l, sunnudag, að nú sé hjá U.S.A. og Japan, þar skulu endanlega ákveðið hvaða lönd mætast í undankeppni heims- meistarakeppni kvenna í hand- knattleik. Löndin eru þessi: Danmörk — fsland Júgóslavía — U.S.A. Rússland — Holiand Tékkóslóvakía — Japan Unigverjaland — A-Þýzkaland Pólland — Svíþjóð eða Noregur. Rúmenía, sem heimsmeistarar og V-Þýzkaland, sem gestgjafar komast beint í úrslitin, sem fram fara í V-Þýzkalandi dagana 7.—13. nóvember n.k. í úrslita- keppnina komast 8 lið og varð því að hafa tvöfalda undankeppni milli þriggja landa, þ.e. fyrst keppa Noregur og Svíþjóð og síð- an keppir sigurvegarinn við Pól- land. Undankeppni skal vera lokið fyrir 31. júlí n.k., nema í þeim leikjum ‘er Ísland, Japan og U.S.A. keppa. Þar skal undan- keppni vera lokið minnsta kosti viku áður en úrslitakeppni hefst, þ.e. í síðasta lagi um mánaðar- mótin október — nóvember. í undankeppni skulu fara fram báðir leikirnir fara fram í heima- lándi mótherjanna. Þar sem ekki ef-reiknað með að ísland geti boðið upp á lög- legan keppnisvöll, verða báðir leikirnir við Dani að fara fram í Danmörku. Þegar undankeppni er lokið verður þátttökuliðunum 8 raðað i 2 riðla og verður þá tekið til- lit til frammistöðu í síðustu heims meistarakeppni. Politiken raðar til gamans lönd um í riðla og þannig: 1. riðill: Danmörk, Júgóslavía, Rússland, V-Þýzkal. 2. riðill: Rúmenar, Tékkar, Untgverjal., Pólland. Leikir í 1. riðli fara fram í Ber- lín, Hannover og Bochum, en leik ir í 2. riðli í Offenburg, Frei- burg og Ludwigshafen. Úrslitaleikurinn fer fram í Wesltfalenhalle í Dortmund 13. nóvemiber. Úrslit Reykjavík- urmótsins í kvöld í KVÖLD leika KR og Valur til úrslita í Reykjavíkurmótinu. — Leikurinn fer fram á Melavell- inum og hefst kl. 20.00. Þegar gengið var frá niðurröð- un knattspyrnumótanna í sumar var ákveðið að halda auðum degi í þessari viku fyrir úrslitaleik í Reykjavíkurmótinu, ef til kæmi að 2 félög yrðu jöfn, svo sem bar við í fyrra. Þá sætti það mikilli gagnrýni, að ekki væri gert ráð fyrir slíkum aukaleik, er gengið væri frá niðurröðuninni. Mótanefnd K. S. í., sem raðar niður leikium 1. deildar, stillti upp leik KR og Vals í 1. deild hinn 20. maí með fyrirvara um að flytja hann til, ef til auka- leiks kæmi. Verður því leikur KR og Vals í Reykjavíkurmótinu háður í kvöld, en leikurinn í 1. deild fluttur til og fer hann fram föstudaginn 4. júní á Laugardals velli. Áður fyrr var það aðalviðburð ur sumarsins, er þessir gömlu keppinautar mættust. Var mikil eftirvænting eftir þeim leikjum, en sú barátta féll í skuggann, er Akurnesingar komu fram á svið ið. Nú er á ný mikil eftirvænting og áhugi fyrir leik milli KR og Vals, og verður fyrirframsala á Melavelli í dag frá kl. 18.00. Leikurinn hefst kl. 20.00 og er það gert með tilliti til hugsan legrar framlengingar, en verði liðin jöfn að loknum 90 mínútna leik, verður framlengt í 2x15 mín. Verði þá enn jafnt verður efnt til annars úrslitaleiks síðar. Að leik loknum mun Andreas Bergmann, varaformaður í. B. R. afhenda sigurvegurunum verð- laun og Reykjavíkurbikarinn. LOKIÐ er íyrstu umferð á heimsmeistarakeppninni í bridge, sem fram fer þessa dagana í Buenos Aires. í þessari umferð hafa verið spiluð 48 spil milli sveita og að þeim loknum er staðan þessi: ítalía — Argentína 153:67 * Emgland — U.S.A. 105:83 ítalía — England 66:27 Argentína — U.S.A 44:38 U.S.A. — ftalía 90:64 England — Argentína 117:66 . í fyrrinótt voru spiluð 48 spil til viðbótar í leikjum milli ítalíu og Englands og U.S.A. og Argen- tínu. í þessari umferð spiluðu fyrir ítalíu: Forquet; Garozzo; Belladonna og Avarelli, en fyrir England: Rose; Harrison Gray; Shapiro og Reese. ítölsku spilar- arnir spiluðu mjög vel og unnu þessa umferð með 88:59. Bandarísku sveitinni tókst heldur betur að bæita stöðuna gegn Argentínu í þessari umferð (spil 49—9>6). Þeir fengu 98 stig gegn 46 stigum Argentínu. Fyrir Bandaríkin spiluðu: Erdos; Pett- erson; Laventritt og Schenken, en fyrir Argentinu: Attaguile; Rocohi; Cabanne og Santamarina. Að loknum 96 spilum er staðan þessi: ítalía — England 154:86 | U.S.A. — Argentína 136:90 Erfitt er að spá nokkru um úr- slit, en augljóst er að sveitin frá Argentínu er veikari en hinar þrjár sveitarnar. Itölsku spilur- unum gekk ekki vel í leiknum gegn Bandaríkjasveitinni, en ef dæma má eftir fyrri keppnum eiga þeir vafalaust eftir að rétta hlut sinn. Keppninni lýkur 23. maí. Bandaríkjamtnn gera sér miklar vonir um sigur í heimsmeistara- keppninni í bridge. Myndin er af bandarísku sveitinnl talið frá vinstri (standandi): Howard Schenken , Peter Leventritt, Jay Becker, Ivan Erdos, Keley Peterson. Sitjandi: John Gerber, sen» cr fyrirliði og frú Dorothy Hayden. f HVERRI sundlhöll að heita má, keppa börn og unglingar sín í milli í sundi og köfun. Venju- lega búa þátttakendurnir sig und ir keppnina me'ð því að draga djúpt andann nokkrum sinnum áður en þeir steypa sér. Engan þeirra, og ekki full- orðna heldur, og fæsta af sund- kennurunum grunar, að þessi undirbúningur undir köfun og köfunarsund geti verið hættu- legur. Skal nú skýrt frá því með nokkrum orðum hvernig á því stendur, að þessi hætta er óum- flýjanleg staðreynd. Sund er erf ið íþrótt- Áreynslunni á vöðvana fylgir mjög aukin þörf á súr- efni, og keppendurnir ímynda sér að þeir geti birgt sig upp af því áður en þeir stinga sér til sunds méð því að anda djúpt. En andardráttur gerir annað og meira en að afla líkamanum súrefnis. Með aðstoð hans losar hann sig við kolsýru, en hún kemur fram við efnaskiptin (brunann). Jafnvæginu eða rétt- I um hlutföllum milli kolsýrunn- ar og andrúmsloftsins í lungun- um er stjórnað af ósjálfráða taugakerfinu, og má lítið út af bera. En það má breyta þessu hlutfalli me'ð því að anda hrað- ar og breytist þá kolsýrumagn blóðsins, þannig að bráður háski getur stafað af. Krampi getur hlotizt af þvi að anda óeðlilega ört. Þó er það ekki þetta, sem veldur hættunni af að anda djúpt áður en lagzt er til sunds. Það sem yfirliði getur valdið, er þa'ð, að líkam- inn losi sig við kolsýruna örar og í meira mæli en að jafnaði gerist, og jafnframt sé reynt all- mikið á vöðvana. Yfirlið af þessu tagi kemur án þess að gera nokk- ur boð á undan sér, og gerist þetta í kafi, eru björgunarhorf- urnar ekki góðar. Enginn vafi er á því, að marg- ar drukknanir eru því að kenna, a'ð almenningur veit þetta ekki. Frá Englandi berast fregnir um 13 slík tilfelli, sem öll gerðust við sundæfingar, og af þeim urðu a-m.k. 5 banaslys, og var þó margt manna viðstatt í sund- lauginni í öll skiptin. Með tilraunum hefur tekizt að sanna, að yfirliðin koma alveg að óvörum og gera engin minnstu boð á undan sér, svo ekkert ráð rúm er til að leita sér bjargar. Ef ma'ður andar djúpt 10 til 15 sinnum, heldur síðan niðri í sér andanum, og gerir líkams- æfingar jafnframt, svo sem djúp ar knébeygjur, fer ekki hjá því að hann falli í ómegin. Hið sama getur einnig gerzt við iangvinnan, ákafan hósta. Þetta sannaðist fyrir nokkrum ár um, þegar eftir því var tekið, að ýmsum, sem þjáðust af hósta var gjarnt til að fá yfirlið, og hlutust stundum af því slys, ef viðkomandi sat vi'ð stýri bif- reiðar. Þegar þetta var rannsak- að, kom í ljós, að maðurinn hafði fengið hóstahviðu, og staðið á öndinni snöggvast á eftir, af því að lungun voru tæmd af lofti. Á því leikur varla nokkur vafi, að þa'ð er hættulegt að búa sig undir köfun eða köfunarsund með því að anda djúpt hvað eftir annað, áður en lagzt er til sunds ins. Og líði yfir mann djúpt niðri í laúginni,. eða á botninum, af þessum sökum, er varla þess að vænta að fram komi þau ósjá'lf- rá'ðu taugaviðbrögð, sem til þess- eru ætluð að forða því að vatn fari ofan í lungun. Auðvitað er ætíð hættulegt að verða veikur á sundi, en það kemur v.arla fyrir að ekki líði 4 til 5 sekúndur á'ður en manni hverfur meðvitund, og ætti þá að gefast nægur tími til að kalla á hjalp. Þannig fer ætíð þegar sundmaður fær krampa af því að vatnið er of kait- Þessi stutti frestur hefur nægt mörgium til bjargar. En sá sem missir með- vitund af því sem hér hefur verið greint, á sér enga bjargar- von nema einhver nærstaddur sjái til hans áður en mínúta er liðin og komi svo tafarlaust tii bjargar. M0LAR FYRRVERANDI heimsmeist- ari í þungavigt Floyd Patter son, sigraði Tod Herrnig í 3. lotu í keppni, sem fram fór í Stokkhólmi í sl. viku. , UNGVERSKA liðið Ferene Vards tryggði sér rétt til að keppa í undaúrslitum í borga- keppni með því að vgra spánska liðið Atletico Bjib- ao með 3:0 í aukaleik er liðin urðu að heyja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.