Morgunblaðið - 19.06.1965, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.06.1965, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐID L'augardagur 19. júní 1965 Það var sjálfs bjargarhvðtin, sem úrslitum réði Ræða dr. Bjarna Benediktsson- ar, forsætisráðherra, 17. júní PRÁ ÞVf að lýveldi var endur- reist á íslandi hefur fullvalda ríkjum fjölgað meira en um helming. Enn erum við íslend- ingar samt mannfæstir meðal hinna Sameinuðu þjóða, búum í tiltölulega stærstu landi og því, sem var einna afskekktast mið- að við fyrri tíðar samgöngu- hætti. Þeir, sem óttuðust, að við gætum ekki einir séð okkur far- borða, gátu því bent á ýms rök máli sínu til stuðnings, enda. var það á sínum tíma ekki að ástæðulausu sagt, að -endur- reisn lýðveldisins væri tilraun, se»n ósýnt væri, hvort standast mundi til lengdar. Á okkar dögum, þegar fleiri þjóðir hafa fengið sjálfstæði en nokkru sinni fyrr, hafa nokkrar miklu fjölmennari en við misst frelsi sitt og meira að segja verið ógnað með algerri útrým- ingu. Sízt veitir þessvegna af að hafa alla gát á. En tilraun okkar var ekki gerð af fljótræði. Lengi hafði verið að því stefnt, að þjóðin tæki sér fullt frelsi á árinu 1944, svo sem heimilt var samkvæmt ákvæðum sambandslaganna. Atburðirnir urðu þó ráðagerðunum skjótari. Endurreisn lýðveldisins á árinu 1944 var einungis formleg stað- festing á því, sem menn höfðu neyðzt til að gera hinn 10. apríl 1940. Þá hafði dönskum stjórn- völdum, raunar vissulega mjög að óvilja sínum, reynzt ómegn- ugt að fara áfram með þau af- skipti af íslenzkum málum, er þau höfðu áskilið sér samkvæmt sambandslögunum. Þessvegna urðu íslendingar, hvort, sem þeir voru við því búnir eða ekki, nauðungir viljugir, að taka um- svifalaust allt vald yfir málefn- um ríkisins í sínar eiigin hendur. Réttlætingin á sérstökum ríkis- eða þjóðréttartengslum við aðra stærri þjóð hlaut frá íslenzku sjónarmiði að vera sú, að þau veittu okkar meira öryggi en við sjáfir höfðum mátt til að tryggja. Eftir að við urðum einir að sjá okkur farborða, þegar meira syrti í álinn en nokkru sinni fyrr, þá gat ekki með nokkru móti til mála komið, að við afsöluðum aftur úr landinu því valdi, sem við urðum að taka okkur á hætt- unnar stund. Því fer víðs fjarri, að endurreisn lýðveldisins á ár- an af varnarleysi landsins stafar miklu fremur af því, að einhver vilji hrifsa landið til að gera héð- an árásir á aðra, en að landkostir freisti hans í sjálfu sér. í nær 7 aldir töldu margfalt mannfleiri þjóðir sig hafa rétt til að setjast hér að og hagnýta gæði landsins til jafns við íslendinga sjálfa. Raunin var sú, að sárafáir ílentust hér og á beim árum, þeg- ar stórveldi Evrópu leituðu um allar jarðir bækistöðva fyrir þá þegna sína, sem töldu of þröngt um sig heima fyrir, sóttist ekkert þeirra eftir yfirráðum á íslandi og áttu sum þeirra þó slíkra yfir- ráða kost fyrirhafnarlaust. Flesta ■» " - ' Hætt er við að sökum allrar aðstöðu verði aðrir en við þar í fararbroddi. En velmegun okkar er háð því, að við fylgjum þar með. Þar er almenn menntun frum-skilyrðið. Unnt ætti að vera að gera þjóð okkar jafn- menntaðri en nokkra aðra. Að þessu ber að keppa. Okkur verð-1 ur ætíð örðuigt að afla framúr- skarandi sérfræðinga, m.a. vegna þess, að hér verða menn, ekki sízt þeir, sem skara fram úr, að sinna svo mörgu. En því meira ríður á, að allir komist til nokk- urs þroska, hver svo sem hugur hans og geta stendur til. Mikilsvert er að bæta aðbúnað háskólans og fjölga þeim vis- indagreinum, sem þar eru kenndar. Ekki er samt minna undir því komið, að hin almenna menntun sé í samræmi við kröf- Bjarni Benediktsson á svöl um Alþingishússins 17. júní hefur fremur fýst til suðlægri og frjósamari landa en íslands. Sjálfir verðum við og að viður- kenna, að ísland hefur lengst af verið börnum sínum hörð móðir. Fólksfjölgun varð hér lengi ekki með eðlilegum hætti heldur fækkaði fólkinu öldum saman. Eftir lifði einungis harðger stofn og óvæginn, sem ekki lætur sér allt fyrir brjósti brenna. Enda er ekki heiglum hent, hvorki að standa yfir fé á íslandi í vetrar- myrkri og veðurhörkum né sækja þá héðan sjó. Harkan hefur þó ekki haggað ást okkar á landinu, heldur hafa menn löngum hugg- að sig við þennan boðskap: inu 1944 hafi byggzt á því, að Fjör kenni oss eldurinn, frostið við vildum nota okkur neyð sambandsþjóðarinnar. Það var sjáífsbjargarhvötin sem úrslitum réði. Þessu megum við ekki gleyma, því að^öðru hvoru verð- um við fyrir ásökunum, sem hvíla á algerum misskilninigi allra aðstæðna. Meiri hluti danskra valdsmanna hefur hins- vegar ætíð skilið, að það, sem við gerðum, gerðum við af ríkri nauðsyn. Þeir hafa nú enn á ný sannað góðvild sína í garð ís- lendinga með endursamþykkt handritafrumvarpsins, sem við kunnum dönsku þjóðinni inni- legar þakkir fyrir. Frábær framsýni Jóns Sigurðs- sonar birtist meðal annars í því, að hann gerði sér ljóst, að ísland mætti ekki liggja óvarið. Eins og nú háttar til, er okkur hinsvegar sjálfum með öllu ómegnugt að verja land okkar. Varnarskyld- unni verðum við *ið fullnægja með samningum við þá, er við bezt treýstum og á þann veg, að við leggjum fram okkar skerf til tryggingar heimsfriðnum. Hætt- oss herði fjöll sýni torsóttum gæðum að ná, bægi sem kerúb með sveipanda sverði silfurblár Ægir oss kveifarskap frá. En nú hefur nýtt landnám, hagnýting tækni og þekkingar gert ísland að lífvænlegu landi. Enn höfum við þó hvengi nærri notað lankosti til hlítar og er það raunar furðulegt, að um það skuli deilt, hvort virkja eigi vatnsorkuna í svo stórum mæli, að verulega muni um til aukins atvinnuöryggis og hagsældar al- mennings. Framfarir hvíla hvar- vetna á því að leysa bundna krafta náttúrunnar úr læðingi. Þessi sannindi hafa aldrei verið ljósari en nú. Síldveiðin undan- farnar vikur og raunar síðustu árin er glöggt vitni þess, hvernig vísindi og tækni opna nýja mögu- leika. Flestir telja þó, að menn séu nú einungis við upphaf þeirra gerbreytinga sem hin nýja vís- indaöld muni hafa í för með sér. ur tímánna, eins og nú er öflug- lega að unnið. Því meira átak er að fullnægja þessari þörf sem yngstu kynslóðinni hefur farið órt fjölgandi hin síðari ár. En einnig í þessum efnum er vandi' okkar um sumt meiri en annarra, þar sem við verðum að kenna unglingum okkar a.m.k. einu ef ekki tveimur fleiri tungu- mál en flestar aðrar þjóðir. En dugir islenzkan ein þá ekki fyrir þá, sem á íslandi ætla að búa? Svo kunna einhverjir að spyrja. Tungan geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona, dauðastunur og dýpstu raunir, darraðarljóð frá elstu þjóðum. íslenzkt mál er sú guðsgjöf, sem enginn íslendingur vill án vera. „Það hefur voða-'þungar tíðir þjóðinni verið iguðleg móðir, hennar brjóst við hungri og þorsta, hjartaskjól þegar burt var sólin, hennar ljós í lágu hreysi, langra kvelda jóla-eldur, fréttaþráð’r af fjarrum þjóðum, frægðargaldur liðinna alda.“ Nú er íslenzkan einkaeign okkar, frægðargaldur liðinna alda, sem auðveldar okkur lifandi skilning á darraðarljóðum elztu þjóða. Þessi eign er okkar mesta stolt og fer því þó fjarri, að hún sé metin af öðrum svo sem vert væri. Þeim mun meira metum við þá ræktarsemi, sem lýsir sér endurteknum heimsóknum Vestur-íslendinga til síns gamla ættlands. Bjóðum við þann föngu lega hóp þeirra, sem nú er hér staddur, hjartanlega velkominn og biðjum fyrir kveðjur til frænda okkar og vina vestan hafs. Hvort sem aðrir meta íslenzk- una eins og skyldi eða ekki, minnkar það ekki gildi hennar fyrir okkur. ,,Við tölum íslenzkt tungumál. Við tignum Guð og landsins sál og fornan ættaróð.“ Látum okkar gömlu menn- ingu og kristnu fræði, sem mótað hafa þjóðina í nær þúsund ár, halda áfram að igera það í svipti- byljum nútímans. En þegar þær bókmenntir, sem við teljum að öllu öðru fremur gefi máli okkar gildi, urðu til, þá var það ekki talað á íslandi einu heldur með meiri eða minni tilbrigðum hvarvetna þar sem norrænir menn bjuggu, ekki einungis um Norðurlönd, heldur einnig víða á Bretlandseyjum og allt austur í Garðaríki. Sköpunarmáttur íslendinga naut sín bezt á meðan tungan greiddi þeim veg til annarra þjóða og forðaði þeim þannig frá einangrun. Hún varð síðan hjartaskjól þjóðarinnar af því að hún flutti boðskapinn um betri heim utan við einangruðu hreys- in á íslandi, heim sem íslend- ingar áður höfðu þekkt af eigin raun, þó að einangrun hinna myrku alda útilokaði þá frá honum. Tungan flytur okkur þessvegna ekki boðskap um æskileik einangrunar, heldur nauðsyn samíkipta við aðrar þjóðir, sem nú eru raunar óum- flýjanleg, hvort sem við viljum eða viljum ekki. Við varðveitum bezt okkar ómetanlega arf með því að hopa hvengi frá þeim vanda, sem okkur er á herðar lagður. Við eigum enn að biðja þess sama og Einar prestur i Garði gerði fyrir sonarsyni sín- um, Skúla, er síðar varð land- fógeti og mestur maður á íslandi a 18 öld: „Ég bið þess að þú megir læra að þekkja heiminn, en að Guð varðveiti þig frá heiminum“. Haldgóð undirstöðumenntun auðveldar hverjum og einum a3 neyta þeirra krafta og hæfileika sem með honum búa. Framtak og dugur einstaklingsins er for- senda gæfu þjóðar-heildarinnar. Vegna ólíks upplags verður al- gerum jöfnuði seint komið á, en bættur efnahagur hefur þegar tryggt ag á eftir að tryggja enn betur, að enginn þurfi að þola neyð. Metin jafnast og furðu fljótt á íslandi. Öll eigum við sameiginlega forfeður skammt aftur í öldum og munum eiga sameiginlega afkomendur áður en margar aldir líða. Aukin þekking á lögmálum efnahags- lífsins gerir nú mögulegt að ráða við ýmsan vanda, sem áður myndaðist óviðráðanlegur. Menn verða einungis að vilja leita í þeim efnum eins og öðrum. Mörg af hinum gömlu deiluefnum hjaðna, þegar Ijósi þekkingar- innar er varpað á þau. Auðvitað skapast ætíð ný úrlausnarefni, sem mönnum sýnist sitt hverj- um um. En þó að við kýtum um dægur- mál, þá skulum við minnast þess, að, „Þeir gjalda bezt sinn ,gamla arf, sem glaðir vinna þrotlaust starf til vaxtar vorri þjóð.“ Markmið okkar allra er hið sama: Heill og heiður íslands. Öll viljum við leggja okkur fram um, að til lýðveldis á ís- landi varði aldrei hugsað sem til- raunar, er hafi mistekizt, heldur um alla framtíð sem lifandi veru- leika, þar sem ísienzka þjóðin hafi fundið gæfu sína. r ' 1 DAG kl. 4 verður opnuð í Iðnskólanum eins konar minn ingarsýning þýzka málarans Oskar Just, en hann dvaldi hér í sex ár og málaði þá margar landslagsmyndir og andlitsmyndir. Það er kona Just, sem gengst fyrir þessari sýningu hér, en hann bafði lengi óskað sér að geta komið myndum sínum á framfæri hér. Honum varð þó aldrei að ósk sinni, því hann lézt áður en til kæmi. Á sýningunni ert 74 myndir, bæði andlits- og landslagsmyndir, og eru þær allar til sölu að tveimur und anskildum. Sýningin verður opin til 30. júní frá kl. 3—1C daglega. — Á myndinni sésl ein af andlitsmyndum Just, al forseta íslands, Ásgeiri Ás- geirssynL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.