Morgunblaðið - 13.07.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.1965, Blaðsíða 1
28 sídur 9 farast , Boston og Falmouth, Mass., r 12. júlí, NTB, AP. BANDABISKIR og þýzkir tund- urspillar björguðu í dag þremur mönnum af bandarískri herflutn- Ingavél sem nauðlenti í hafi norðaustur af Nantucket-eyju í gærkvöldi. Níu lík hafa fundizt en sjö manns er enn saknað. ISIitján manna áhöfn var á vél- Inni. Vél þessi, sem var fjögurra lireyfla herflutningavél af gerð- |nni EC-121, fórst um 160 Ttm. norðaustur af Nantucket-eyju, eem fyrr segir. Flugmaðurinn : hafði þá fyrir skömmu tilkynnt «ð eldur væri kominn upp í ein- iim hreyfli vélarinnar og annar ! I ólagi og myndi hann reyna að liauðienda á sjónum.' Send voru á vettvang til að- Btoðar þau skip sem skemmst voru undan, bandarískir og þýzk- Ir tundurspillar að heræfingum (á vegum Atlantshafsbandalags- ins) en þoka var mikil á þessum elóðum og dimmviðri og erfitt tim björgun mannanna. Flugvél- •r fiugu yfir til aðstoðar og í «Jögun sást loks hvar olíubrák var I é sjónum og brak ýmisskonar og j t>á sáust einnig á floti 10—15 i biörgunvesti. Þyrlur björguðu tíu manns um borð í bandarísk Bkip, en tveimur tókst einu Jsýzku skipanna að ná. Af þessum tólf munu aðeins þrír hafa komizt lifs af. Enn er óvíst um afdrif sjö manna, sem fyrr segir. Frú Biggs vill •v aðstoða lög- regluna london 12. júlí (NTB). EiTGINKONA lestarræningjans Ronalds Biggs, sem slapp úr fangelsi í dögunum, hefur haft samband við brezku lögregluna og lýst sig fúsa til að aðstoða hana við að hafa hendur í hári Bíggs. Mjög umfangsmikil leit að Sestarræningjanum stendur nú yíir, og fyrir helgina reyndi frú- in ákveðið að koma til höfuð- stöðva lögreglunnar og veita opplýsingar. Bandariski geimfaraleiöangurinn kom til Öskju síödegis í gær. Var þegar tekiö tU viö aö reisatjöldin. Sjá frétt og myndir bls. 12 Harriman í IVioskvu Moskvu, 12. júlí AP, NTB. AVERjBLL. Harriman, sérlegur sendiherra Bandaríkjanna, sem var sendiherra i Moskvu í heims- styrjöldinni síðari, kom þangað í kvöld í einkaerindum að sagt var, enda í orlofi, en mun þó eiga viðræður við bæði Brezhnev og Kosygin og ef til vill Mikoyan og Gromyko líka. Sjálfur sagðist Harriman kominn til að endur- nýja gömul kynni. Bandarískt fdtgönguliö sett á land í S-Vietnam í gær Afkoma ríkissjóðs 1964: Grei&sluhalli 220 millj. FJABMALARAÐUNEYTIÐ hef- ur sent frá sér greinargerð um afkomu rikissjóðs árið 1964 og kemur frám í henni, að greiðslu- halli ríkissjóðs á árinu varð tæp 3ega 220 millj. Heildartekjur ríkissjóðs á árinú fóru 16,1% fram úr áætlun, en 1963 fóru heildartekjur ríkissjóðs 17,3% fram úr áætlun. Heildargjöld ríkissjóðs fóru að þessu sinni 22% fram úr áætlun, en 1963 fóru gjöldin 12,2% fram úr á- •etlun. Greinargerð fjármálaráðuneyt ísins fer hér á eftir: Þar eð reikningsskilum ríkis- sjóðs fyrir árið 1964 var ekki lok ið, er þingi var slitið, reyndist ekki auðið að gefa Alþingi yfir- Jit um afkomu ríkissjóðs. Þykir því ráðuneytinu rétt að birta nú meginniðurstöðutölur. Heildartekjur ríkissjóðs árið 3964 voru í fjárlögum áætlaðar 2696 millj. kr., en urðu 3.009 millj. kr. og fóru þannig 313 millj. kr. fram úr áætlun eða 16,1%. Árið 1963 fóru þær 17,3% fram úr áætlun. Heildargjöld voru í fjárlögum áætluð 2677 millj. kr., en urðu 3.265 millj. kr. og fóru því 588 millj. kr, fram úr áætlun eða 22,0%. Árið 1963 fóru þau 12,2% fram úr áætlun. Halli ríkissjóðs á rekstrar- reikningi og eignahreyfingum nemur því alls tæpl. 256 millj. kr., en greiðsluhalli ársins varð tæpl. 220 millj. kr. Mismunur þessara tveggja -talna stafar að meginhluta til af lækkun á geymdu innheimtufé, sem ekki telst til greiðsluhalla. Til skýringar á þessum halla og jafnframt því, að bæði tekjur og gjöld fara fram úr áætlun, eru einkum þessi atriði: 1) Gjöld vegna laga nr. 1/1964 um ráðstafanir vegna sjávarút- vegsins o.fl. og gjöld samkv. lög um nr. 2/1964 um hækkun á bót- um almannatrygginga, (en hvor tveggja lögin komu í gildi eftir að fjárlög voru samþykkt) námu 218,4 millj. kr., þar af 191,6 millj. kr. til sjávarútvegs og fisk iðnaðar og 26.8 millj. kr. til hækkunar á bótum almenna- trygginga. Til þess að standa straum af þessum útgjöldum óg vanáætluðum niðurgreiðslum, sem námu 55 millj. kr., var lagð- Ur á 2V2 % viðbótar söluskattur, sem gaf í tekjur 248,9 millj. kr., Vantaði þannig 24% millj. kf. upp á, að hann stæði undir út- gjöldum, sem ætlað var. Hafa ber þá í huga, að viðbótarsölu- skatturinn var ekki lagður á veltu janúarmánaðar 1964. Hins vegar hefir meiri hluti sölu- skattstekna síðasta ársfjórðungs 1964 verið færður til tekna þess árs, þótt innheimtur hafi verið á yfirstandandi ári, andstætt fyrri venju. 2) Tekjur af rekstri ríkisstofn- ana urðu 47 millj. kr. undir á- ætlun m.a. vegna þess, að nokk- uð dró úr vindlingasölu Áfengis- og tóbaksverzlunarinnar og vegna þess, að tekjuáætlun fyrir stofnunina var óeðlilega há. 3) Aðrar tekjur fóru yfirleitt fram úr áætlun, en þó ekki að sama skapi og undanfarin ár. Aðflutningsgjöld fóru t.d. að- eins 6.3% fram úr áætlún, eða 84 millj. kr., en árið 1963 215 Framhald á bls. 3 Rússar lofa aukinni adstoð við norðanmenn. Sjálfboðaliðdr á leið suður frá Hanoi. Saigon, 12. júlí, NTB, AP. BANDARÍSKT fótgöngulið gekk á land í Cam Ranh-flóa, um 300 km. norðaustan Saigon, í dag og í gær, samtals um 5000 hermenn. Eru þá bandariskir hermenn í S-Vietnam orðnir um 71.000. „Þjóðlega frelsishreyfingin“ í S-Vietnam, talsmaður Viet Cong á sviði stjórnmálanna, endurtók í dag fyrrj aðvaranir sínur um að hún myndi falast eftir sjálf- boðaliðum frá Norður-Vietnam og öðrum vinarikjum, ef Banda- rikin ekki létu af ofsóknum sm- um og yfirgangi. t kvöld var gefin út í Moskvw yfirlýsing um samninga Sovét- rikjanna og Norður-Vietnam fyr- ir helgina, þar sem Sovétrikia heita aukinni aðstoð við N- Vietnam bæði á sviði hermála og efnahagsmála. Bandarískar flugvélar héldu uppteknum hætti um loftárásir Framhald á bls. 27 I Kuldi og rigning víða í Evrópu London, 12. júlí (NTB) VEÐRIÐ í ýmsum löndum Evrópu hefur verið fremur leiðinlegt að undanförnu, rigning og hráslagi, og margir ferðamenn hafa snúið heim fyrr en ráðgert Þúsundir Pólverja, sem safn azt höfðu saman með tjöld sín við vötnin í norðausturhluta landsins, lögðu allir á flótta um helgina vegna kulda. — 1 mörgum sumarelyfisbæjum í Bretlandi eru menn sammála um, að þessi júlimánuður sé Framh. á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.