Morgunblaðið - 27.07.1965, Síða 3

Morgunblaðið - 27.07.1965, Síða 3
' Þriðjudagur 27. júlí 1965 MORCUNBLAÐIÐ 3 SKÁTAMÓT VIÐ ÚLFUÓTSVATN Varðeldur í Borgarvik. UM síðustu helgi fjölmenntu skátar, stúlkur og drengir, úr Hafnarfirði. og Reykjavík til skátamóts, er haldið var í fallegri vik, sem Borgarvík heitir við Úlfljótsvatn, skammt frá skátaskólanum. Voru það Birkibeinar, sem er deild Reykjavíkurskáta, er stofnuð var fyrir um það bil 4 árum inni í Laugarnes- hverfi, en meðlimir Birki- beina ei nú milli 100 og 150 drengir á aldrinum 10 til 16 ára. Mótsstjóri var öigurður Raignarsson. Skátarnir voru heppnir með veður og var hin mesta ánægja með mótið ríkjandi er ljósmyndari Mbl. kom í búð- irnar á sunnudaginn. Allir hofðu haft nóg að gera og í allskonar leiki hefði verið far- ið, en mest orð fór af Nætur- leiknum, sem hafði erið æð- isgenginn smyglaraleikur. Sjó skátarnir, sem höfðu flutt bát sinn austur gagngert í þeim tilgangi, höfðu verið í hlut- verki smyglaranna, komið af hafi með sökkhlaðinn bát af áfengi. — Njósnir bárust að smyglur- unum áður en bátu..nn náði landi og tókst að yfirbuga smyglarana um leið og bátur- inn kom að landi. I>á hafði veri'ð útbúin skemmtileg keppni, sem köll- uð var „Lykilkeppnin". Hver þátttakandi átti að leysa af hendi — eða svara spurning- um 15 talsins. Sá sem gat svar að 10 hlaut að verðlaunum Gylilta lykilinn og höfðu 11 fengið lykil fyrir frammistöðu sína. Þá höfðu S flokl..- nep^t í svonefndri flokkakeppni og urðu þar hlutskarpastir Turn- fálkar, en þeirra forii.gi er Andrés Þórarinsson. Að sjálfsögðu var varðeldur kveiktur á kvöldin og ríkti hin bezta skátasteming í tjaldbúðunum. Baldur Ágústs- son, sem hafði hin margvís- legustu störf með höndum í sambandi við mótið, hafði og með höndum fyrstu hjálp (sjúkrahjálp). Sagði hann, að allt hefði gengið slýsalaust nema hvað nokkrir hefðu hlot ið smáskrámur. — Jú, að vísu hefði komið í tjaldbúðirnar kona, sem hefði orðið fyrir meiðslum. Henni var veitt nauðsynleg hjúkrun, en ann- ars var allt tíðindalaust frá ókkar tjaldi. Á sunnudaginn var helgistund í tjaldbúðun- um. Séra Eiríl ar J. Eiríksson á Þingvöllum talaði. Einnig kom varaskátahöfðinginn llre.na Tynes í héj.msókn. Alls voru í tjaldbúðunum um 150 skátar og skát_stúlkur. Frá einu tjaldanna mátti heyra nokkra háreysti og þótt ist blaðaljósmyndarinn þekkja þau köll. — Jú, alveg rétt. — Það var verið að gar ;a frá síðasta blaði Perunar, blaði Birkibeina, — í prent- un, en ritstjóri þess heitir Jón S.. Magnússon. Skátarnir, sem þátt tóku í mótinu virtust á einu máli um, að þetta mót hefði verið Birki beinum tii hins mesta sóma, hvað alla framkvæmd þess og undirbúning snerti, því að allt gekk eins og eftir færi- bandi, sagði einn skátanna úr Hafnarfirði. Ferja á Hófsvaði um verzlunarmannahelgina 26 þús. mál á 5 dögum Brætt allan sólarhringm á Akranesi Akranesi, 26. júlí. NÚNA kl. hálf sex síðdegis 1 dag kom Siguríari hingað af Vestmannaeyjamiðum með 1100 tunnur af síld, sem landað er í bræðslu. Að þessu meðtóídu og 4000 málunum úr síldaflutninga- skipinu Laura Treskol, eru nú komip í þrær Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar hér 26000 mál og tunnur síðan á iimmtu- dag. Tekizt hefur að herja út nægan mannskap til að bræðsla geti staðið allan sóiaihringinn. Áður en ofarnefnd síld barst að, voru þrærnar tómar. Allar vélar verksmiðju'.mar eru í góðu lagi.. Afköst eru 3000 má) á sólarhring. Bræðsia liófst í'morg un af fullum krafti. — Oddur. FLEIRI og fleiri leggja leið sína norður yfir Tungnaá. Skammt fyrir ofan hana er kláf ferjan, sem komið var upp í fyrra og hentar þeim vel, sem aka vilja norður Sprengisand. Þessi leið er þó erfið öllum bílum öðrum en jeppum Hins vegar er löng og erfið leið frá kláfferjunni norður yfir Búðarháls, suður með Þórisvatni og þaðan til Veiðivatna. Ágæt leið er fyrir sunnan Tungná að Hófsvaði og þar fyrir norðan taka við víðattumiklir sandar slétir og auðveldir yfirferðar flestum bílum um allt vatna- svæðið. Hófsvað er ekki fært nema stærstu Ijababílum, svo að aðrir verða að iuia lengri og erfiðari leiðina. Nú um verzlun- armannahelgina veiður starf- rækt bílferja á Hófsvaði og geta menn pantað flutning fyrir bíl- ana sína um Tungnarradíó gegn um Guíunes. K 1\ S T f! \ \ 3í Huggun í heimi draumanna Nú er illa komið fyrir Fram- sóknarforingjunum. Eins og stundum vill verða með menn, sem hefur mistekizt eitthvað í lífinu, leita þeir huggunar i draumaheimi og dreymir um það, sem þeir hefðu rert, og hvað allt væri gott, ef þeir hefðu feng ið að stjórna undanfarin ár. Draumarnir eru svo birtir i prenti í Tímanum. Hér er sýnis horn af einum, sem hirtur var sL sunqudag undir fyrirsögninni: Óbætanlegt óhapp. „Þeir, sem líta hlutlaust yflr sögu seinustu sex ára geta hins vegar áreiðanlega skilið, hvílíkt óbætanlegt óhapp það var, að ekki var horfið að ráði Fram- sóknarmanna um stöðvun dýr- tíðarinnar hausið 1958. Þá mundi þjóðin ekki þurfa að horfast í augu við margvíslega upplausn og ringulreið í efnahagsmálun- um eftir hið langmesta góðæri, sem hún hefur nokkru sinni bú- ið við. Þá hefði kaupmáttur tíma kaupsins getað aukizt verulega, eins og í nágrannalöndum okkar. Þá hefðu atvinnuvegirnir staðið á traustum grunni eftir undan- gengið góðærL Þá hefði ekki ver ið stórfelldur húsnæðisskortur í bæjunum, en hann minnkaði óð- um, í tíð vinstri stjómarinnar. Þá hefðu skattakjörin verið hóf- leg'-. Lofsöngur um það, sem aldrei varð Og meðan Eysteinn og hinir gömlu félagar hans ylja sér við dýrðardagana, sem að baki eru og leita huggunar í draumum, kyrjar Tíminn dýrðaróðinn um það, sem aldrei varð. Bara að Framsókn hefði fengið að stjórna áfram. Þá væru engin efnahagsvandamál, þá hefðu all ir feiknalega hátt kaup, þá væru atvinnuvegirnir miklu betur staddir en núna, þegar þessir vondu menn sitja við völdin, þá væri nóg af ódýriim íbúðum og afskaplega lágir skattar. Við lestur þessa lofsöngs ligg- ur við, að maður vorkenni þess- ari litlu þjóð nyrzt í Atlantshafi að hafa farið á mis við stjórn þessara „úbermenschen“. Aumingja Eysteinn Líklega hafa vonbrigði og beiskja Eysteins og Framsóknar forkólfana, eftir nær sjö ára ráf um hina pólitísku eyðimörk Framsóknarflokksins, aldrei kom ið jafn berlega í Ijós og i þeirrl litlu klausu sem birt er h | að ofan. Sársaukinn skín út úr hverri setningu og treginn yfir dýrð og völdum, sem þeim áskotnuðust ekki er mikill og djúpstæður. En Eysteinn er ekki dapur baraÆ vegna þess, sem hefði getað orð-- ið, hann er líka hryggur vegna þess, sem hann veit, að aldrei verður. Hann veit, að hann kemst aldrei í stjórn aftur, hversu lengi, sem hann bíður. Hann veit, að enginn forustu- manna hinna stjórmjj^Uaflokk- anna getur hugsað sér að starfa með honum í ríkisstjórn, hann veit að allt í kringum hann sitja metnaðargjörn „ungmenni“ eins og Einar Ágústsson og Jón Skaftason og Helgi Bergs og margir fleiri, sem bíða fyrsta fær is að hrekja hann út í myrkrið, þar sem þeir bíða hans með ó- þreyju fyrri félagar, Jónas gamli frá Hriflu og Hermann. Aum- ingja Eysteinn, það er von að hann leiti huggunar í heimi draumanna, þar sem vonzka mannanna er ekki jafn mikil. >

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.