Morgunblaðið - 27.07.1965, Side 28
i m, ■ i K
Lang stærsta og
íjölbreyttasta
blað kmdsins
167. tbl. — Þriðjudagur 27. júlí 1965
Helmingi 'útbreiddara
en nokkurt annað
_____________ íslenzkt blað
Ullarverð hækkandi
SAMKVÆMT uppJýsingum
frá Halldóri H. Jónssyni, yfir-
manni útflutningsdeildar Garð-
ars Gíslasonar h.f. mun ullar-
verð vera hækkandi á heims-
markaðinum. Halldór kvað ull-
arkaupmenn í Danmörku og
t'ýzkalandi, sem Islendingar eiga
mikil viðskipti við, búast við
talsverðum hækkunum á ull, en
að undanförnu hafi ullarverð
verið mjög lágt. Muni þessarar
hækkunar gæta, er sumarleyfum
er lokið í verksmiðjunum og
tekið verði að kaupa inn aftur,
í ágúst og september.
Hælupramminn kominn
á IHývatn
Mývatnssveit, 26. júlí.
FJÖLDI manna með stórvirkar
vélar vinnur hér af kappi við
undirbúning kísilgúrvinnsiunnar
þessa daga. Á morgun verður
steypt dæluhús við Helgavog og
í dag er verið að sjóða saman
300 járntunnur, sem nota á í
fTotboIt undir leiðsluna á vatn
ið.
Dælupramminn er kominn á
ilot, en eftir er að bæta nokkuð
við hann. t>á er einnig kominn
dráttarbátur til að draga pramm
ann.
Allar pípur eru komnar hing-
að að Mývatni. Verið er að undir
búa leiðslustæðið upp að Náma-
fjalli, en það verður nokkuð
piðurgrafið.
Um mánaðamótin er von á
hollenzkum verkfræðingi til að
tengja ieiðslurnar og dæluhúsið.
— Jóhannes.
Horfiö frá
Unnið að því að koma flekunu m fyrir í Surtsey, eftir að hætt
var við að reisa húsið. í baksý n er gosið í Syrtlingi ,sem ösku-
fallið stafar af. Aðeins um 800 metrar eru á milli.
(Ljósm. Gunnar Guðmundsison)
Á neðri myndinni sést grunnur hússins í Surtsey. 60 sentimetra
öskulag hefur lagzt yfir, síðan grunnurinn var lagður.
aö reisa
hús í Surtsey
600 þús. kr.
á 2 mánuðum
Alrranesi, 26. júlí.
Vélbáturinn Haförn landaði
í dag 5,7 tonnum af salífiski
og er þetta lokaförin þeirra
á skakinu. Þeir hafa gert það
afbragðsgott, hafa nú fiskað
fyrir 600 þúsund krónur á 2
mánuðum, með 7 manna á-
höfn. Skipstjóri er Guðmund-
ur Pálmason.
— Oddur.
/
Samið við ASB
í GÆR kl. 2 hófust samninga-
fundir með farmönnum og einnig
með afgreiðslustúikum í mjólk-
ur- og brauðbúðum. Tókust samn
ingar við afgreiðslustúlkurnar
um miðnætti í nótt. Fundurinn
með farmönnum stóð hins vegar
áfram.
40 TIL 50 manna hópur hélt
með varðskipinu Þór í Surtsey
síðastlfðinn laugardag með ailt
efni í hús það, sem reisa á í
eynni á grunni sem þegar hefur
verið lagður þar. Húsið er í flek
um og þurfti geysimarga menn
við að bera flekana á land upp í
Surtsey, en þeim var fleytt frá
borði úr Óðni og upp í fjöru.
öskufall úr Syrtlingi er hins
vegar svo mikið í Surtsey, að
um 60 sentimetra lag hefur
myndazt ofan á grunninn, sem
stendur aðeins um 800 metra frá
gíg Syrtlings. Var horfið frá því
Sáttafurtdur
Fundur hefur verið boðaður í
dag kl. 3 í Reykjavík með aðilum
vinnudeilunnar í Vestmannaeyj-
um.
að reisa húsið á laugardaginn,
vegna þessa öskufalls og gengið
frá flekunum til geymsiu í eynni.
Dr. Sigurður Þórarinsson
skýrði Morgunblaðinu svo frá í
gær, að mjög hæpið væri að svo
stöddu að reisa hús á þessum
stað í Surtsey. Beztur grunnur
vaeri á þessum slóðum í eynni,
en hætt væri við miklu öskufalli
einkum er vindur væri austan-
stæður. I>á væri og útlit fyrir að
minna yr’ði um ferðir vísinda-
manna í Surtsey í sumar, en áð-
ur hafði verið gert ráð fyrir og
þá minni not fyrir hús þar. Á-
stæðan væri sú, að öskufallið
hefði gert út af við gróður og
eina lífsmarkið í eynni nú væri
visir að fuglabjargi á suðurendan
um, þar sem nokkrar ritur hafa
tekið sér bólfestu.
í kvöld verður haldinn fund-
ur í Surtseyjarfélaginu og þá
tekin ákvörðun um það, hvort
húsið verði reist í Surtsey og
hvar, ef svo verður.
Heraösmót Sjálf stæði sf lokksins
á Akureyri,
UM NÆSTU helgi verða haldin
þrjú héraðsmót Sjálfstæðisflokks
ins, sem hér segir:
Ákureyri. föstudaginn 30. júlí
kL 21. Ræðumenn verða Magnús
Jónsson, fjármálaráðherra, Jónas
G. Rafnar, alþingismaður og dr.
Gunnar G. Schram, ritstjóri.
Skjólbrekku, Mývatnssveit,
laugardaginn 31. júlí kl. 21.
Ræðumenn verða Magnús Jóns-
son, ráðherra, Bjartmar Guð-
mundsson, alþingismaður og
Hörðúr Sigurgestsson, viðskipta-
fræðingur.
Magnús J. Bjartmar
Skjólbrekku og
Skúlagarði, Kelduhverfi, sunnu
daginn 1. ágúst kl. 21. Ræðu-
menn verða Magnús Jónsson,
ráðherra, Jónas G. Rafnar, al-
þingismaður og Magnús Stefáns-
son, bóndi.
Hljómsveit Svavars Gests
skemmtir á öllum mótunum,
Hljómsveitina skipa fimm hljóð-
færaleikarar, þeir Svavar Gests,
Garðar Karlsson, Halldór Páls-
son, Magnús Ingimarsson og Reyn
ir Sigurðsson. Auk þess eru í
hljómsvitinni söngvarar Elly
Vilhjálms og Ragnar Bjarnason.
Hörður Jónas
Skúlagarði
Á héraðsmótunum mun hljóm-
sveitin leika vinsæl lög. Söngv-
arar syngja einsöng og tvísöng
og söngkvartett innan hljómsveit
arinnar syngur. Gamanvísur
verða fluttar og stuttir gaman-
þættir. Spurningaþættir verða
undir stjórn Svavars Gests með
þátttöku gesta á héraðsmótunum.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður haldinn dansleikur, þar
sem hljómsveit Svavars Gests
leikur fyrir dansi og söngvarar
hljómsveitarinnar koma fram.
Gunnar Magnús St.
Frakkar komnir til að
undirbúa geimskotiö
í GÆRKVELDI kom fyrsti hóp-
ur Frakkanna, sem vinna munu
að undirbúningi geimskotsins af
Mýrdalssandi 23. ágúst nk. — 1
hópnum eru 12 visindamenn og
aðstoðarmenn þeirra, 12 talsins.
í dag er von á 134 tonnum af
tækjum, áhöldum og ýmsu, sem
Frakkarnir þurfa á að halda,
með Tungufossi til Reykjavíkur.
Það, sem á vantar af tækjun-
um, mun koma með 5 frönskum
herflugvélum 29. júli, 3., 4. og
5. ágúst. Munu vélarnar lenda
fyrst á Keflavíkurflugvelli, þar
sem tollskoðun fer fram, en
fljúga síðan þaðan og lenda á
Mýrdalssandi.
Hópurinn, sem kom í gær-
kvöldi mun halda austur á Mýr-
dalssand þegar í dag og hefja
undirbúninginn. Verður reisf
eitt stórt skýli á sandinum og
nokkur minni fyrir tækin. Þá
koma 12 manna hópar 2. og 6.
ágúst, 18 menn 13. ágúst og loks
5 vísindamenn 17. ágúst. — Þá
munu 3 amerískir vísindamenn
koma 13. ágúst til að fylgjast
með geimskoti Frakkanna. Verð-
ur því f jölmennt á söndunum þeg
ar liða tekur að skotinu. ÚLend
ingarnir munu búa í Skógaskóla.
Allur undirbúningur geimskots
ins verður með sama sniði og 1
fyrra. Mun Almenna bygginga-
félagið sjá um alla flutninga efn
is og tækja austur, eins og þá og
setja upp skotpallinn.
K jldasta nóff
í 7 vikur
í fyrrinótt var mesti nætur-
kuldi, sem komið hefur á ís-
landi um ca. 7 vikna skeið.
Hvergi mun þó hafa verið frost
í iofti í byggð en viða héla á
jörð og hugsanlegt að einhvers-
staðar sjái á kartöflugrasi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands var hiti um
frostmark á Þingvöllum og
Grímsstöðum á Fjöllum. I
Reykjavík var hiti 2í4 stig í
lofti en 0,8 stig við jörð og héla
í grasi. Næturkuldi mun haía
verið um allt landið.