Morgunblaðið - 03.10.1965, Qupperneq 2
MÓHGUNBLAÐIB
Sunnudagur 3.'október 1969
f;
Nánustu aíístandendur bera kis tuna siðasta spölinn í kirkjugarði num. (Ljósm.: Sv. Þ.)
IJtför Guðmundar Vilhjálmssonar gerö í gær
en í kirkjugarði báru kistuna I félags fslands og Vinnuveitenda-
stjórn og framkvæmdastjóri Eim- sambands íslands og ættingjar
skipafélags íslands, stjórnir Flug- ' hins látna síðasta spölinn.
Kennaraskólinn settur
ÚTFÖR Guðmundar Vilhjálms-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Eimskipafélags íslands,
var gerð frá Dómkirkjunni í gær
morgun kl. 11.15 að viðstöddu
miklu fjölmenni, m.a. ráðherrum,
stjórn, framkvæmdastjóra og
starfsfólki Eimskipafélags ís-
lands og forstöðumönnum ann-
arra félaga, sem Guðmundur Vil-
hjálmsson starfaði fyrir.
Séra Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup, flutti útfararræðuna og
dr. Páll ísólfsson lék á orgelið.
Einar Vigfússon lék einleik á
selló og Karlakórinn Fóstbræður
söng.
Skipstjórar á skipum Eimskipa
félagsins báru kistuna úr kirkju,
KENNARASKÓLI fslands var
settur kl. 2 á föstudag. 1 setn-
ingarræðu sinni sagði skólastjór-
inn dr. Broddi Jóhannesson, að
nemendur í skólanum yrðu um
400 í vetur auk 180 nemanda í
barnadeild.
Að þessu sinni innrituðust
fieiri nemendur úr 1. bekk skól-
ans en dæmi eru um áður, eða
150. í 2. bekk verða 90 nemend-
ur, 50 í 3. bekk og jafnmargir
í 4. bekk. í stúdentadeildinni
verða 35 nemendur og 20 í handa
vinnudeild.
Kennsla fer fram í skólahúsinu
við Stakkahlíð og verður að
mestu leyti tvísett í stofur þar.
Einnig er gamla skólahúsið við
Hringbraut notað fyrir handa-
vinnudeildina.
S umar sýnin gunni
í Ásgrímssafni
að Ijúka
SUMARSÝNINGIN í Ásgríms-
safni, sem opnuð var 30. maí sl.
stendur aðeins yfir í 4 daga enn-
þá. Lýkur henni sunnudaginn 10.
október. Safnið verður þá lokað
um tíma meðan komið er fyrir
nýrri sýningu. Á þeirri sýningu
verða nær eingöngu sýndar
myndar frá Þingvöllum.
Sumarsýningin er einskonar
yfirlitssýning, myndir frá árinu
1900 og fram til ársins 1957.
Margt erlendra gesta hefur kom-
ið í heimsókn í hús Ásgríms
Jónssonar á þessu sumri.
Ásgrímssafn, Bergstaðarstræti
74, er opið, sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga frá kl.
1,30—4.
Akranesi, 2. október: —
ÞRÍR BÁTAR voru héðan á sjó
í gærdag. Stærri helmingur afl-
ans var ýsa, hitt þorskur. Afla-
hæstur var Höfrungur I með 6,1
tonn, Ver 4.3 og Reynir 3,5 tonn.
Fimm línubátar eru á sjó héðan
í dag. — Oddur.
Hinar nýju Scolle-umbúðir taka lítið rúm í kæliskápnum.
MBF tekur í notkun nýjar umbúðir
MJÓLKURBÚ Flóamanna á Sel
fossi hefur nýlega ákveðið að
befja sölu á mjólk í svonefndum
Scholle-umbúðum, en þær um-
búðir hafa verið notaðar á Akur
eyri síðan í maí og reynzt mjög
vel.
Af þessu tilefni buðu forráða-
menn fyrirtækisins Pappírsvörur
h.f. blaðamönnum á sinn fund til
þess að kynna þeim hinar nýju
umbúðir, en Pappírsvörur h.f.
flytja umbúðirnar til landsins.
Hafði Gylfi Hinriksson, for-
stjóri orð fyrir þeim, og lýsti
nokkuð yfirburðum þessara um-
búða yfir þær umbúðir, sem not
aður hafa verið hér á landi fram
til þessa.
Scholle-umbúðirnar eru þann-
ig gerðar, að tvöföldum poka úr
polyethylene með skrúfuðu loki
er komið fyrir í pappakassa. Tek
ur hver poki 10 lítra af mjólk.
Pokinn er hafður tvöfaldur til
þess að innri pokinn geti lagzt
saman eftir því, sem á innihald-
ið gengur. Þetta varnar því, að
ioft komist að mjólkinni og hún
skemmist af þeim sökum. Pappa
kassinn varnar því að mjólkin
skemmist af ljósi. Sagði Gylfi,
að í þessum umbúðum geymist
mjóikin sem ný í allt að 8—10
sólarhringa. Einnig væri mikill
sparnaður á geymslurými að nota
þessar umbúoir, því 10 litra kassi
tæki svipað rúm og 3—4 mjólkur
flöskur.
Piastpokarnir í hinum nýju
Scholle-umbúðum eru mjög
sterkir, og sýndi Gylfi Hinriks-
son það með því að blása einn
þeirra upp og standa síðan á
honum. Lítil hætta er iþess vegna
á að þeir springi, þó þeir falli
úr nokkurri hæð.
Eins og áður er sagt, hafa
Scholle-umbúðirnar verið notað-
ar á Akureyri og gefið góða
reynslu. Einnig hefur varnarlið-
ið á KeflavíkurfhigveUi keypt
mjólk í þessum umbúðum.
12 mílna fiskveiði-
lögsaga við írland
Þ. 1. okt. s.l. færði írland
fiskeiviðlögsögu sína úr
þremur mílum í tólf. Ut-
færslan byggðist á lögum
þess efnis, sem samþykkt
voru í írska þinginu fyrir
tóíf mánuðum og eru í sam-
ræmi við grundvallarsam-
komulag það, sem varð á
ráðstefnu um fiskveiðimál,
sem haldin var í Lundúnum
í des. 1963 og jan. og feb.
1964.
írland er þriðja ríkið í V-
Evrópu, sem færir fiskveiði-
lögsögu sína út í tólf' milur,
hin tvö eru ísland og Fær-
eyjar. En tólf milna regian
er nú í grundvallaratriðunj
viðurkennd meðal Vestuv-
Evrópuþjóða.
Fiskiskipum nokkurra
ríkja er veittur umþóttunar-
tími til loka ársins 1966. Eru
það Bretland, Frakkland,
Þýzkaland, Holland og
Spánn, sem þeirra forrétt-
inda njóta. Fiskiskip frá þess
um ríkjum mega í ákveðnum
tilvikum veiða inn að þrem-
ur mílum, vegna þess að þau
hafa veitt um langan aidur
á ákveðnum miðum undan
ströndum írlands.
Þegar íslendingar börðust
fyrir viðurkenningu á tólf
mílna fiskveiðilögsögu smni
var m.a. leitað til íra um u.m
stuðning. Höfðu þeir fulla
samúð með sjónarmiðum ís-
lendinga í málinu, en vor,u
tregjr til að lýsa ýfir fullum
stuðningi við þau. Á Genf-
arráðstefnunum, sem haldn-
ar voru um þessi mál 1958
og 1960 sátu írar ýmist hjá
eða greiddu atkv. á móti okk
ur.
Afstaða þeirra byggðist í
fyrsta iagi á: því, aö þeir
töldu sig ekki hafa hags-
muna að gæta í sambandi
við veiðai undan islands
strönd im og í öðru lagi á
því, að þeir eru algjörlega
upp á brezka markaðinn
komoir með fisksölur.
Af þessum ástæðum töldu
írar sig el:k - geta veitt okk-
ur beman stuðning í land-
helgisdúlunni. Þeir höfðu
samúð með sjónarmiðum okk
ar ,en vildu ekki setja þau
á oddinn vegna afstöðunnar til
Bretlands Þeir hafa nu sem
fyrr segir fylgt fordæmi ís-
lendinga og fært fiskveiði-
lögsögu sína út í tólf mílur.
í GÆR var hæð yfir landinu andi A-vindur við suður- >
og norður undan, en alldjúp ströndina. Þoka var víða all- í
lægð alllangt suður í hafi á dimm á Austurfjörðum og á j
hreyfingu austur. Hafði hún suðausturlandi. Hlýjast var
ekki mikil áhrif hér á landi kl. 9 á Loftsolum, 8 stig en 1 í
og var hægviðri og léttskýjað stigs frost á Hveravöllum og j
norðan lands, en heldur vax- tveggja stiga frost á Gríms- i
stöðum. |