Morgunblaðið - 03.10.1965, Page 17

Morgunblaðið - 03.10.1965, Page 17
f SunntMÍagur 3. október 1965 MORCUNBLADIÐ 17 ■ Andlát Guðmund- ar Vilhjálmssonar i Guðmundur Vilhjálmsson var mikill gæfumaður. Hverfulleiki lífsins bitnaði raunar á honum eins og flestum öðrum og birtist þeim hjónum í sonarmissi fyrir allmörgum árum og veikindum nú hin síðari ár. En Guðmundur Vilhjálmsson var valinn til mikils vanda, gegndi honum í heilan mannsaldur og vann sér traust og virðingu alþjóðar. Það er Guðmundi Vilhjálmssyni öll- um öðrum fremur að þakka, að Eimskipafélag íslands safnaði á seinni stríðsárunum svo miklu fé, að það gat endurnýjað skipa- stól sinn eins og þörf var á. Nú sýnist ölium, að þetta hafi verið sjálfsagt, en á sínum tíma þurfti til þess allt í senn framsýni, hyggindi og skapfestu. Sízt er oí sterklega til orða tekið, að i REYKJAVÍKURBRÉF --Laugcudagur 2. okt Guðmundi Vilhjálmssyni hafi verið annt um Eimskipafélagið eins og hann ætti það sjálfur. Einmitt þess vegna vildi hann láta það efla alþjóðarhag svo sem því hafði verið ætlað frá upphafi. Hann skildi, að sam- göngur hlutu að taka breyting- um með breyttum tímum, og átti þess vegna ríkan þátt í aðild Eimskipafélagsins að Flugfélagi íslands og taldi nána samvinnu þessara tveggja félaga æskilega, svo sem lýsti sér í formennsku hans í Flugfélaginu. Fáir, sem veittu stóratvinnufyrirtækjum forustu, munu hafa verið skiln- ingsbetri á hag verkalýðs en Guðmundur Vilhjálmsson. Hann skildi, að öflug samtök vinnu- veitenda eru einnig verkalýðnum til hags, og var allt til dauðadags einn af forustumönnum Vinnu- veitendafélagsins. Guðmundur Vilhjálmsson var ekki einungis xnikiil gæfumaður í starfi, heldur var sambúð hans og frú Kristín- ar konu hans einnig til fyrir- xnyndar. Hann var umhyggju- samur heimilisfaðir, svo að af bar. Guðmundar Vilhjálmssonar xnun lengi minnst, ekki einungis af þeim, er hann þekktu, heldur og í atvinnusögu íslenzku þjóð- arinnar. Sigurður Halldórs son látinn Sigurður Halldórsson fór hvorki beina né hnökralausa braut um ævi sína. En hann lét erfiðleika aldrei buga sig og hann vann afrek, sem mótað hefur atburðarásina um aldarfjórð- ungsskeið. Sigurður hafði frum- kvæði og forustu um það, að verkamenn, sem fylgdu Sjálf- •tæðisflokknum að málum, mynduðu samtök sín á milli og Btofnuðu Málfundafélagið Óðinn. Þetta var á kreppuárunum, þegar hagur verkamanna var mjög bágur og öll afkoma þeirra var lélegri en þeir, sem hvorki reyndu né sáu geta ímyndað sér. Á meðan þessu fór fram, þá voru verkaynenn mis-réttháir innan verkalýðshreyfingarinnar, dregnir i pólitíska dilka. Slíkt misrétti gat með engu móti staðist til lengdar. Hreyfingin. sem komst á með stoínun Málfundafélagsins Óð- ins og annarra félaga, sem fylgdu í kjölfar hans, varð til þess að slíta hið óeðlilega band milli Alþýðuflokksins Qg Alþýðu sambandsins. Síðan eru allir verkamenn formlega jafn rétt- háir innan verkalýðshreyfingar- innar. Segja má, að þessi breyt- ing hafi hlotið að verða fyrr eða síðar. En það er engum einum manni meira að þakka, að hún varð með þeim hætti, sem raun ber vitni, en Sigurði Halldórs- ayni. Þjóðviljinn fámáll um samkeppni Rússa Athygli hefur vakið, hversu hinir málgefnu ritstjórar Þjóð- viljans eru fámálugir um sam- keppni Sovét-Rússlands við fs- lendinga um síldarsölu. Þjóð- viljamönnum virðist ámóta and- stætt að ræða um þau efni eins og að skýra samlöndum sínum frá því, hvernig háttað er skatta málum í Sovét-Rússland, t. d. söluskatti og tekjuskatti. Skyldu menn þó ætla, að við fyrirlitlegir ,,kapítalistar“ gætum tekið Sovétherranna til fyrirmyndar í þeim efnum, en af þögn Þjóð- viljans er síður en svo að sjá. Með svipuðum hætti gerir Þjóð- viljinn nú sem allra minnst úr hinum uggvænlegu tíðindum, sem berast af því, að Rússar hafa tekið upp við okkur harð- vítuga keppni i síldarsölu. Hing- að til hefur verið talinn einn bezti markaður í Svíþjóð fyrir íslenzka saltsíld. Nú er komið á daginn, að Sovét-Rússland er búið að ryðjast inn á þann mark að. Einnig éru öruggar fregnir um tilraunir í sömu átt á mörkuð um í V-Þýzkalandi og Bandaríkj- unum. Nú síðast hafa Sovétríkin selt töluvert magn af frystri síld undir heimsmarkaðsverði til V estur-Þýzkalands. Þeim, sem fylgzt hafa með vaxandi fiskveiðum Rússa. getur í sjálfu sér ekki komið þetta á óvart. Davíð Ólafsson, fiskimála- stjóri, aðvaraði íslendinga um væntanlega samkeppni Sovét- Rússa þegar fyrir mörgum árum. Kommúnistar hafa aldrei viljað á þetta hlusta, heldur reynt að telja mönnum trú um, að öruggustu markaðir íslend- inga einmitt fyrir síld væru í Sovét-Rússlandi. Þjóðviljamenn vilja nú sem minnst tala um allan bægslaganginn út af Breshnev-tilkynningunni í sept- ember í fyrra. Þá átti, að sögn Þjóðviljans, að vera auðvelt að fá grundvallarsamning við Rússa um kaup á niðurlagðri og niður- soðinni síld fyrir 100 til 200 millj. króna. Þjóðviljanum tjáir ekki að halda því fram, að þau viðskipti hafi strandað á fálæti, hvað þá fjandskap íslendinga. Fróðlegt er að rifja nú upp það, hvað um þessi mál var sagt í Reykjavíkurbréfi hinn 13. sept ember 1964, þ. e. strax á eftir að tilkynningu Breshnevs og hinna íslenzku ,,félaga“ hans birtist. Þar stóð m.a. þetta: „Hagkvæm við- skipti en öðrum ótryggari Áhugi islenzkra kommúnista á auknúm viðskiptum við Sovét- Rússland er og gamalkunnur. Um hagkvæmni þeirra viðskipta að vissu marki er og enginn ágreiningur hér á landi. Sú staðreynd, að þau skyldu vera meðal umræðuefna Moskvufund arins vekur hinsvegar athygli á annarri staðreynd: Hinu pólí- tíska eðli þessara viðskipta. Yfir leitt eru þau viðskipti talin ör- uggust, sem eru báðum aðilum fjárhagslega hagkvæm, án þess að annarleg sjónarmið ráði þar nokkru um. Nú er ekki að efa, að viðskiptin við Sovét-Rússland hafa hingað til verið okkur hag- kvæm í heild. Sá kvíði hefur samt búið á bak við, að Sovét- stjórnin kynni gagnvart íslend- ingum eins og öðrum að láta pólitísk sjónarmið ráða um magn og framhald viðskiptanna. Þess vegna væru þau í eðli sínu ótryggari en önnur viðskipti. Einn stjórnarherra austur þar gæti fyrirvaralaust gert þau að engu eða setti okkur þau skil- yrði, sem með öllu væri óað- gengileg. Reynsla frá árunum 1948 til 1953 sýnir, að þessi uggur er ekki ástæðulaus. Við höfum raunar orðið fyrir svip- aðri reynslu af öðrum, t. d. Bret- um. En ekki bætir það úr, heldur hvetur til eins mikillar dreif- ingar á viðskiptum og hverju sinni er kostur á. Háð vináttusam- bandi stjórnmála- flokks á íslandi og valdamanna í Moskvu Óvissan verður ennþá meiri, ef framhald mikilla viðskipta er komið undir vináttusambandi tiltekins stjórnmálaflokks á ís- landi við stjórnarherrana í Moskvu. Á sínum tíma sleit Stalin viðskiptum við Júgóslavíu af því honum líkaði ekki við Tito. Hvað sem líður viðhorfi Sovétstjórnarinnar til annarra stjórnmálamanna á íslandi, þá skulum við setja sem svo, að stjórnarherrar þar eystra reiðist við flokksbræður sína hér. Mundi það þá leiða til þess, að íslend- ingar yrðu beittir sömu brögð- um og Tító á sínum tíma? Fyrir hinu er naumast ráð ger andi, að nokkru sinni komizt til valda slíkir menn í kommúnista- flokknum íslenzka, að þeir ósk- uðu ekki lengur eftir þessum viðskiptum. En ef svo ólíklega færi, mundi Sovétstjórnin þá taka mark á því? Um þetta er ekki bollalagt til þess að gera viðskipti við Sovét Rússland tortryggileg eða lítið úr tilboði því, sem felst í fréttatil- kynningunni. Þvert á móti er sjálfsagt. að réttir aðilar taki það til ýtrarlegrar og velviljaðar at- hungunar. Engin ástæða er til að ætla annað en eftir því hafi verið leitað og það gefið í góðan hug. En málið ber að með óvenjulegum hætti og er í eðli sínu svo viðurhlutamikið, að á því verður að átta sig til hlítar“. Er verið að hegna íslendingum vegna óhlýðni Komma? Fáir hefðu haldið í fyrra, að þau aðvörunarorð, sem nú voru tilgreind, rættust svo skjótlega sem raun er á orðin. Ætla hefði mátt, að Breshnev-yfirlýsingin nægði til a.m.k. einnar samn- ingsgerðar. En segja má, að So- vétstjórninni sé nokkur vorkun, hún hafi einungis gert það, sem skynsamlegt er. Hví í ósköpun- um skyldi hún vera að kaupa síld af íslendingum eftir að hún sjálf er orðin meiriháttar síldarútflytj andi, ekki einungis til bandaríkja sinna í Austur-Evrópu, eins og Tékkóslóvakíu, sem Rússar hafa lagt megináherzlu á að ná síld arsamningum við, heldur og til „auðvaldsríkjanna"? Höfuðgall- inn var einmitt ætíð þessi: Auknum viðskiptum íslands og Sovét-Rússland átti ekki að ráða gagnkvæm þörf heldur pólitísk hentisemi. En Sovét-Rússland er svo stórt, að það munar ekki meira um slöttung af fram- leiðslu fslands, heldur en bónda- konu um einn blóðmörskepp í sláturtíðinni. Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna og krefst svars, hvort meðferðin á íslend- ingum nú, stafi af því, að ís- lenzku „félagarnir" hafi brugð- ist Breshnev og öðrum valda- mönnum í Moskvu. Var það skilyrði fyrir Breshnevyfirlýs- ingunni, að íslenzka komma- deildin styddi Sovétstjórnin í átökunum við Kínakomma? Hef- ur sá stuðningur brugðizt? Um þau atriði, er upplýst gætu hið, sanna samhengi í þessari furðulegu sögu, fæst Þjóðvilj- inn ekki til að sknfa. Hann fjas- ar hinsvegar um hin ólíklegustu efni og krefst þess m.a., að ríkis- stjórnin ómerki gerðir sjálfrar vinstri stjórnarinnar um húsa- kaup af Guðmundi f. Guð- mundssyni. Innan um allt orða- hrönglið grillir þó á athygl- isverða staðreynd. Sömu dagana, sem Kínakommar valda alheims hneyksli með því að reyna að koma í veg fyrir vopnahlé á milli Pakistan og Indlands og ögra öllum heiminum, þ. á. m. Sovét-Rússlandi, með hótunum og ófriðartali, tekur Þjóðviljinn sig til og ber blak af Kínakomm- um og heimtar, að ísland taki upp beint stjórnmálasamband við stríðsæingamennina- Af hver ju upp næmir? Einkennilegt er það með Tímann, að hann verður ætíð uppnæmur og kemst í annarleg- an ham, ef minnst er á dr. Krist- inn Guðmundsson. Á dögunum réðist Tíminn á íslenzku /utan- ríkisþjónustuna fyrir að starfs- menn hennar sinntu um of tildri og samkvæmislífi, og notaði til þess það tilefni, að tveir fyrr- verandi ráðherrar núverandi rík- isstjórnar, Gunnar Thoroddsen og Guðmundur í. Guðmundsson, höfðu verið skipaðir sendiherrar. Þá var á það minnt í Reykja- víkurbréfi, að tveir af fyrrver- andi ráðherrum Framsóknar hefðu fyrir atbeina valdamanna hennar verið skipaðir sendiherr- ar. Enn sannaðist að um dr. Kristin má ekki tala eins og aðra þá, sem valið hafa sér stöðu á opinberum vettvangi, þá um- umhverfist Tíminn. Minnimáttar kenndin lýsir sér þá í hverju orði. Engin ástæða er þó fyrir Tímann að skammast sin frekar fyrir dr. Kristin en aðra framá- menn Framsóknar. Hann er þeim flestum geðslegri. Dr. Kristinn hefði t.d. aldrei dottið í hug að semja fyrst um kaup á húsi af samstarfsmanni sínum og ráðast síðan á þá, sem þann samning- efndu. Getur undirmaður ekki verið óvil- hallur? Ástæðulaust er að elta ólar við það persónulega nart og níð, sem Vinstri stjórnarherrarnir hafa nú í frammi í garð eins of sín- um fyrri samstarfsmönnum. En í þeirra umræðum hafa komið fram atriði, sem verður að kryfja til mergjar. Fullyrt er að for- maður sölunefndar varnarliðs- eigna geti ekki verið óvilhallur“ matsmaður um húsakaup af Guð- mundi í. Guðmundssyni, af því að hann sé undirmaður utanríkis- ráðherra. En sjálf sölunefndin, sem Helgi Eyjólfsson starfar fyrir er undir forsæti Hermanns Jónassonar en ekki Guðmundar f. Sami maðurinn, sem gaf út bréf- ið 1. apríl 1958, er því hinn næsti yfirmaður Helga, ef út í þá sálma á að fara. Þarnæst kemur varn- armáladeild utanríkisráðuneyt- isins með sinn deildarstjóra, þá ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins og loks utanríkisráð- herra. Þrepin á milli eru þess vegna býsna mörg. Lítum á önn- ur hliðstæð dæmi. Hverjum mundi koma til hugar að segja, að hreppstjóri gæti ekki vefið matsmaður í máli dómsmála- ráðherra af því, að hann sé undir maður ráðherrans? Eða hver vill halda því fram, að dómarar, sem raunverulega eru skipaðir af dómsmálaráðherra og hann getur svipt starfi, hljóti þess vegna að vera vilhallur, ef ráð- herra á í hlut?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.