Morgunblaðið - 06.10.1965, Side 6

Morgunblaðið - 06.10.1965, Side 6
0 MORGU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 6. október 1965 Tómas Tryggvason jarðfræð ingur - In memoriam TÓMAS Tryggvason, jarðfrreðing ur, er látinn. í gær ræddi hann við okkur um starfsáætlun næsta árs og þau verkefni, sem hann hafði á prjónunum, í dag fréttum \»ið andlát hans. Þrettán ár eru liðin síðan kynni okkar Tómasar Tryggva- sonar hófust. Ég kom á skrifstofu hans á Atvinnudeild til að leita ráða hvar bezt mundi að stunda nám í jarðfræði og fá úr því skorið hverjar atvinnuhorfur væru á íslandi að loknu námi í þeirri grein. Ég tel það hafa orðið mér til mikillar gæfu að hafa fylgt ráðum Tómasar um val á háskóla og umsögn hans um framtíðarhorfur einkenndist af bjartsýni og trú á þá möguleika sem fsland veitir á þessu sviði. Áðuy en Tómas Tryggvason hóf nám í jarðfræði við háskól- ann í Uppsölum gat hann ekki snúið sér til neins íslenzks fræði- manns á þessu sviði, sem væri fær um að leiðbeina honum um nám og atvinnuhorfur. Þegar lit- ið er á þær aðstæður, sem voru til vísindaiðkana á íslandi á ár- unuim fyrir heimsstyrjöldina síð- ari, verður að telja það töluverða vogun að leggja út í jarðfræði- nám. Tómas hélt til háskólans í Upp sölum og fékk áhuga fyrir berg- fræði, enda undir handleiðslu eins fremsta bergfræðings Svía, Próf. Backlund. Með þessu námi hélt Tómas inn á braut, sem eng- inn íslendingur á undan honum hafði troðið. Bergfræðinámið er sérgrein, sem krefst meiri þekk- ingar í eðlis-og efnafræði en venjuleg jarðfræði. Tómas varð (því fyrstur íslenzkra jarðfræð- inga til að afla sér þekkingar á meðferð bergfræðissmásjárinnar, sem er flókið ljósfræðilegt tæki; þekkingar, sem hann fullkomn- aði með dvöl við háskólann í Göttingen í byrjun stríðsins und ir handleiðslu Próf. Correns og Próf. Schumann. Prófritgerð Tómasar við háskólann í Upp- sölum fjallaði um bergfræði Skjaldbreiðarhrauna. Þessi rit- gerð, sem er fyrsta verk íslend- ings um bergfræði, er frábærlega vandvirknislega unnin. Eftir heimkomuna réðist Tóan- as til Atvinnudeildar háskólans, þar sem hann starfaði til dauða- dags. Starf hans við þessa stofn- un var margþætt, en einkenndist fyrst og fremst af áhuga hans á því að beita þekkingu sinni til lausnar hagnýtra verkefna í jarð fræði og bergfræði. Fáir gerðu sér þá grein fyrir, að jarðfræði væri annað en skemmtilegt tóm- stundagaman nokkurra sérvitr- inga. Tómas hefur átt stóran þátt í að breyta því áliti íslendinga og nú er svo komið að engi.m læt ur sér til hugar koma að byggja meiri háttar mannvirki án þess að á undan fari jarðfræðileg rannsókn þess svæðis, sem um er að ræða. Tómas var ráðgefandi jarðfræðingur við virkjun iogs- ins, en auk þess hefur hann gert jarðfræðilega könnun vegna fyr- irhugaðra virkjunarframkvæmda víðs vegar um landið. Hann gerði ennfremur fyrstu jarðfræðilegu athuganir í sambandi við fram- tíðarhöfn Reykjavíkur og fann hina svokölluðu Sundahöfn. Eitt helzta hugðarefni Tómas- ar var þó einatt leit að hagnýt- um jarðefnum. Margir spyrja hvort ekki sé möguleiki á því að finna góðmálma á íslandi og svar ið verður að slíkur fundur sé nán ast hæpinn. Tómas gerði sér fulla grein fyrir þessu, en hann vissi líka að fleira er verðmætt en málmar. Það sem beinast liggur við að kanna í ungu eldfjaila- landi eru möguleikar á vinnzlu hvers konar byggingarefna til notkunar innan lands en þó eink um til útflutnings. Tómas vann að því á skipulegan hátt að finna hvaða hráefni til bygginga fs- lendingar gætu unnið og selt, allt frá skrautsteinum til klæðn- ingar á byggingum ti‘1 einangr- unarefna eins og frauðgrýtis og perlusteins. Verk Tómasar á þessu sviði hefur fært okkur heim sanninn um að mikið af verðmætu hráefni er fyrir hendi í landinu. Auk starfa í þágu hagnýtra jarðfræðirannsókna hefur Tómas ætíð tileinkað undirstöðurann- sóknum hluta af tíma sínum. Hann hefur birt greinar berg- fræðilegs efnis í innlendum og erlendum tímaritum, sem allar hafa einkennst af sömu vand- virkni í vinnubrögðum og fram kom í prófritgerðinni við Upp- salaháskóla. Tómas átti sæti í Rannsóknar- ráði ríkisins og var formaður þess um tíma. Hann átti sæti í stjórnum Vísindafélags íslend- inga og Félags íslenzkra náttúru- fræðinga um skeið, en auk þess var hann meðlimur í erlendum fagfélögum. Óþarft er að rekja frekar störf Tómasar Tryggvasonar sem vís- indamanns; ritgerðir hans og greinar tala þar skýrustu máli. Ég minntist í upphafi á fyrstu • Skrílsæðið á Laugardalsvelli „íþróttaunnandi“ skrifar: „Hvernig eru íslendingar eig inlega áð verða? Unglingar ráðast inn á listaverkasýningu og eyðileggja fyrir tugi þús- unda. Unglingar og fullorðið fólk breytist í skepnur við að horfa á knattspyrnukappleik. Ég sá skrílinn ráðast me'ð grjót kasti á Alþingiáhúsið 30. marz 1949 og vonaði þá, að ég þyrfti aldrei að verða sjónarvottur að Öðru eins aftur. Sú von mín brást nú á Láuigardalsvellinum síðastliðinn sunnudag. Ungar stúlkur fuilomir menn og dreng ir tóku upp hnullunga og köst uðu þeim í leikmenn annars liðsins. Heiftin logaði úr augum „venjulegs fólks“, og það lét sig ekki muna um að hrækja á eimstaka leikmenn. Hváða breyt ingar höfðu allt í einu orðið á sálarlífi þess? kynni okkar Tómasar. Þau .ynni áttu eftir að eflast með árunum er hann útvegaði mér vinnu við Atvinnudeild í sumarleyfum og hafði milligöngu um endanlega ráðningu mína við stofnunina að námi loknu. Fram til þess tima hafði Tómas verið eini jarðfræð- ingurinn, sem starfaði við At- vinnudeild háskólans. Eftir að fleiri jarðfræðingar réðust til stofnunarinnar og þessi þáttur starfseminnar jókst ,urðu okkur ljósir ákveðnir þættir í skapgerð Tómasar, sem lýstu sér fyrst og fremst í samstarfsvilja og hjálp- semi. Hann taldi aldrei eftir sér að eyða löngum tíma í að miðla okkur af reynslu sinni og þekk- ingu, á jarðfræði og bergfræði íslands, og hann hafði ætíð mik- inn áhuga á öllum þeim verkefn- um, sem við tókum okkur fyrir hendur. Skerfur hans til þeirrar glaðiværðar og þess áhuga á starfinu, sem ríkti á stofnuninni var ómetanlegur, enda var hann hvoru tveggja i senn góður félagi og kær vinur. Tómas Tryggvason var kvænt- Ég hef talið, að íþróttir hefðu uppeldislegt gildi, bæði fyrir þátttakendur og áhorfendur. En þáð var ekki neinn „iþrótta andi“, sem réð gerðum þessa skríls. Hvaðan kemur þetta fólk? Getur það verið, að þetta sé sama géðprúða og kurteisa fólkið, sem gengur daglega um götur borgarinnar? Við höfum lesið í blöðum um skrílslæti á knattspyrnuvöllum í Brazilíu, þar sem líf dómara og keppenda hefur verið í hættu. Einnig hötfum við lesið um uppþot drukkins múgs á kappleikum í Skotlandi. Hvort tveggja hefur okkur fundizt vera svo fjarlægt okkur. Vfð höfum yppt öxlum og tautað eitthvað um óupplýstan stór- borgaraskríl í Rio de Janeiro. Erum við að umbreytast í slík an lýð? Ekki hefði miklu þurft að muna á Laugardalsvelli sl. sunnudag, til þess að þar ur Kersten Janchers og áttu þau fjögur börn. Heimili þeirra hjóna var stolt Tómasar og umhyggja hans sem heimilisfaðir var frá- bær. Skapgerð hans og viðmót endurspeglaði þá hamingju, sem hann bjó við heima fyrir. Við hjónin vottum frú Kersten og börnunum fjórum innilegustu samúð okkar. Fátt getur orðið til að veita huggun í harmi þeirra, en í hugum allra sem þekktu Tómas Tryggvason lifir minning- in um góðan mann. Guðmundur E. Sigvaldason. t VIÐ Tómas vorum starfsbræður á Atvinnudeild háskólans í hart nær tvö ár. Áður þekkti ég hann varla lauslega að nafni til, því hann var ekki í þeirra tölu, sem mest ber á í blöðum og útvarpi. Bæði var hann lítill auglýsinga- maður, og auk þess kom sérgrein hans innan jarðfræðinnar lítt við þau vísindi, sem á erlendum tungum nefnast „smoke“. Tómas var í rauninni bóndi alla ævi. Þrekinn maðalmaður á hæð, sem allt fas hans og lima- burður báru vitni upprunans í Bárðardal. Hann réðst heldur seint til mennta vegna fátæktar, en stundaði búskap og lá á grenjum. Eitt vorið náði hann svo 5 yrðlingum lifandi, tókst að seija þá og byssuna með, og sigldi út^ til að verða vísinda- maður. Úr þeirri för kom hann mörgum árum seinna, kvæntur frábærri konu sænskri og lærður í bezta lagi og_ hóf að vinna að sínu lífsstarfi. Ég hygg, að Tómas hafi verið fyrsti petrógraf ís- lands. Hann flutti hingað og kom sér upp ýmsum nauðsynlegum tækjum og tækni, sem hinir yngri menn hafa síðan gengið að sem sjálfsögðum, og án þess að hug- leiða, að slíkir hlutir verða ekki til baráttulaust á þessu landi kaupmennsku, landbúnaðar og fiskveiða. Tómas var heldur lítill skrif- stofumaður, en þeim mun dug- legri í ferðalögum og harðræð- um. Hann fór um víða, glöggur og athugull, og að hætti bóndans með opið auga fyrir hinu „ök- onómiska". Þekking hans á jarð- fræði íslands var mikil, en að yrði alvarlegt slys. Tilviljun réð því, að enginn fékk stein í höfuðið. Ég held, áð við verðum að spyrna við fótunum og hugsa okkar ráð; atihuga hvert stefn ir. Forráðamenn íþrótta í Reykjavik og sáifræðimgar ættu að skrifa skýrslu um málið, reyna að komast áð því, hver meinsemdin er, og skera síðan í meinið. Atburðir eins og þessir mega ekki endurtakast. — íþróttaunnandi". • Hverfa hyrnumar bráðum? ,Húsmóðir“ skrifar: „Megum við nú ekki fara að eiga von á því, að þessar óvin- sælu mjólkurhyrnur hverfi af markaðinum? Margir vildu gjarnan fá að kaupa þessar tíu lítra hyrnur, og vonamdi koma miklu leyti óunnið úr henni, og því er það mikil ógæfa að hann skyldi falla frá svo skyndilega og fyrir aldur fram. Vegna þrengsla á Atvinnudeild inni sat ég yfir smásjá á skrif- stofu Tómasar í mestallan fyrra- vetur. Hann sagði mér margar kátlegar sögur og sitthvað merkilegt. Nú er það oft svo, að ungir menn hyggja að heim- urinn sé kálfsskinn eitt er þeir koma frá námi. Ég vil ekki taka svo djúpt í árinni að segja að hinn ungi skrifstofunautur Tóm- asar hafi ætlað að innleiða vís- indalega jarðfræði á íslandi, en hafi svo verið, þá sannfærðist hann skjótlega um hið forn- kveðna, að ekkert er nýtt undir sólinni. Því að jafnvel í nútíma vísindum breytist meginkjarninn lítið á hálfum mannsaldri; hug- myndirnar og spurningarnar eru svipaðar, þótt úrlausnaraðferð- irnar kunni að breytast. Ég fann, að Tómas hafði margt reynt og margt hugsað. Hann hafði öðlazt þá staðfestu og þroska, sem kem- ur með aldrinum og lyftir mann- inum yfir smáöldur tízkunnar líkt og stórskipi, sem vegna lengdar sinnar nær yfir svo margar öldur, að það rótast ekki þótt sjóirnir rísi. Tómas féll frá óloknu starfi á miðjum aldri. Hann var góður vísindamaður, en enn betri mað- ur. Ég vil taka undir það, sem einn kunningi hans sagði: Hann var einn yndislegasti maður, sem ég hefi þekkt. Sigurður Steinþórsson. t Mannskaði! Mikill mannskaði. Er ég hugsa til Tómasar Tryggvasonar, kemur mér fyrst í hug beinn og sterkur stofn með þróttmiklum greinum. Byl- ur dauðans gat ekki rifið tréð upp, því að ræturnar voru svo seigar og lágu vitt um jör’ð. Hann braut stofninn. Fyrir þeim byl stenzt ekkert. Stúdentahópurinn var ekld margmennur forðum, og nú eru allt of margir horfnir um sinn. Tómas var til þess allra ólíkleg- astur að toverfa, þvi að hann var manna heilbrigðastur. Svo Framhald á bls. 19 þær fljótlega í búðir í Reykja- vík, þótt Mjólkursamsalan virð ist ætla að fara sér hægt. 1 framtfðinni hljóta að verða seld ar hér eins lítraumbúðir, sem taka hyrnunum stórlega fram, — sams konar umbúðir og aðr ar þjóðir eru löngu famar að nota. Þær em ferkantaðar —■ kassalagaðar, — þjálar í með- förum, taka lítið rúm, og þær er hægt að opna með einu hand bragði, án þess að gTÍpa þurfi til skæra eða annarra verklæra. Þær springa ekki, og mjólkin spýtist ekki fram úr þeim við minnstu viðkomu, — eru sem sagt lausar við alvarlegustu galla hyrnanna. Og hvenær verður farið að selja mjólk í matvömverzlun- um? Hvers konar meinbægni er það eiginlega að banna kaup mönnum, sem hafa alla áðstöðu til þess að selja mjólk (kæli- geymslur o.s. frv.), að selja hana? Er Mjólkursamsalan hrædd um að missa eitthvað arf sáelgætissölunni? Sjálf er hún me'ð eigin brauðgerð handa mjólkurútsölum sínum, og fyrst hún má selja sælgæti, gos- drykki brauð o.fl. hjá sér, því skyldu kaupmenn þá ekki mega selja mjólk? — Húsmoóir“. 6 T 12 v 24 v B O SC H flautur, 1 og 2ja tóna. Vesturgötu 3. — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.