Morgunblaðið - 14.10.1965, Blaðsíða 10
10
/
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 14. október 1965
Aðalfundur Reykfavikur
deildar R.K.Í.
AÐALFUNDUR Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands var
haldinn í sl. mánuði í Tjarnar-
búð. Varaformaður deildarinnar,
Óli J. Ólason, stórkaupmaður,
bauð fundarmenn velkomna, en
hann hefur gegnt formannsstörf-
um í nálega tvö ár í veikinda-
forföllum formanns, sr. Jóns
Auðuns, dómprófasts. Jónas B.
Jónsson fræðslustj. hefur gengt
starfi varaformanns á sama tíma-
bili.
Formaður flutti skýrslu um
störfin á s.l. ári. Starfsemi deild-
arinnar var með líKu sniði og
áður. Megin verkefni voru fjög-
ur: ,
1. Sumardvalir barna.
2. Rekstur sjúkrabifreiða.
3. Kennsla í hjálp í viðlögum.
4. Útlán á hjúkrunargögnum í
heimahús.
Ennfremur hafði deildin með
höndum fræðslu og útbreiðslu-
starf í samráði við-Rauða kross
Islands.
Á starfstímabilinu naut sam-
tals 701 barn sumardvalar í sveit
á vegum deildarinnar í alls 38.120
dvalardaga. Einkum voru látin
sitja fyrir börn frá heimilum þar
sem aðstæður voru erfiðar, sök-
um veikinda eða af öðrum orsök-
um. Færði formaður þeim ungfrú
Jónu Hansen og ungfrú Danfríði
Asgeirsdóttur, forstöðukonum
sumarbúðanna, þakkir fyrir mik-
il og óeigingjörn störf. Kvað
hann þörfina fyrir sumardvalir
barna aukast ár frá ári, og væri
lagt að deildinni að auka þessa
starfsemi sína svo sem unnt væri.
í>að væri þó miklum erfiðleikum
bundið, m. a. vegna mikils við-
haldskostnaðar húseignarinnar
að Laugarási.
Deildin á nú þrjár sjúkrabif-
reiðir, sem staðsettar eru á
Slökkvistöð Reykjavíkur, og er
ein þeirra nýtekin til nötkunar.
Það óhapp vildi til í nóvember
1964 að ný sjúkrabifreið sem
deildin hafði eignast fyrir nokkr-
um mánuðum, gereyðilagðist í
árekstri, en deildin fékk þá lán-
aða eldri bifreið frá Hafnarfjarð-
ar-deild R.K.Í. meðan beðið var
eftir nýrri. Nú er ný bifreið í
pöntun ok gert ráð fyrir að hún
verði komin í notkun um ára-
mót, því að þörfin eykst stöðugt.
Á sl. starfstímabili fóru sjúkra
bifreiðir deildarinnar samtals
13444 ferðir, og var það 20%
aukning frá fyrra tímatoili. Það
sem af er þessu ári höfðu sjúkra-
bifreiðir Reykj avíkur-deildarinn-
ar farið rúmlega 4500 ferðir.
Deildin stóð fyrir kennslu í
Buenos Aires, 12. okt. AP.
• Óttazt er, að til óeirða
kunni að koma á fjöldafundi
Perónista í Buenos Aires,
sem ráðger’ður er næstkom-
andi sunnudag. Er ástæðan
sú, að til landsins er komin
eiginkona Perons, Isatoelita
Martinez Peron 32 ára ljós-
hærð fegurðardís, sem hyggst
tala máli Peróns og flytja
kveðjur hans. Perón hefur,
sem kunnugt er, verið land-
flótta á Spáni frá því árið
1955 .Hann er nú sjötugur að
aldri.
hjálp í viðlögum fyrir almenning
og starfshópa og var sérstök á-
herzla lögð á kennslu í blásturs-
aðferðinni. Aðalkennari á nám-
skeiðunum var Jón Oddgeir Jóns
son.
Sjúkrarúm og dýnur voru lán-
uð til sjúklinga í heimahúsum,
og var sú aðstoð mjög vinsæl.
Er nú unnið að því að endur-
nýja rúm og hjúkrunargögn til
útláns. Á tímabjlinu 1/1 1964 til
1/9 1965 vorú 186 útlán á sjúkra-
rúmum, gegn vottorðum heimilis
lækna.
S t j ó r n Reykjavíkur-deildar
RKÍ skipa nú:
óli J. Ólason, stórkaupm., for-
maður; sr. Jón Auðuns, dóm-
prófastur varaformaður; Ragn-
heiður Guðmundsdóttlr, læknir,
ritari; Jón Helgason, kaupm.,
gjaldkeri; og þeir Jónas B. Jóns-
son, fræðslustjóri, Páll Sigurðs-
son, tryggingayfirlæknir, og Egg-
ert Ásgeirsson, fulltrúi, með-
stjórnendur.
í lok fundarins kvaddi sr. Jón
Auðuns, dómprófastur, sér hljóðs,
og gat þess. að Gísli Jónasson,
fyrrv. skólastjóri, hyrfi nú úr
stjórn deildarinnar að eigin ósk.
Hefði Gísli starfað fyrir Rauða
kross Islands lengur en nokkur
annar, eða frá upphafi, og síðar
fyrir Reykjavíkur-deildina, af al-
kunnri árvekni og samvizkusemi.
Ætti deildin hönum mikið að
þakka. Sam þykkti fundurinn
einróma, að senda Gísla Jónas-
syfti skeyti með kveðjum og þakk
læti fundarins, en Gisli dvelst nú
erlendis.
Deildin flutti á sl. ári í hin
nýju húsakynni R.K.Í., að öldu-
götu 4, en í því sámbandi færði
stjórn deildarinnar fyrrverandi
formanni og núverandi heiðurs-
félaga R.K.Í., Þorsteini Sch.
Thorsteinsson, kærar þakkir fyrir
það húsaskjól, sem hann veitti
deildinni frá uophafi, og fyrir
mikinn og góðan áhuga fyrir
Rauða kross málum frá byrjun.
Félagatala Reykjavíkur-deild-
ar R.Í.K. er nú um 2000, en æfi-
félagar 268. Framkvæmdastjóri
deildarinnar er Ólafur Stephen-
sen.
Askovlýðháskóli
100 ára
LÝÐHÁSKÓLINN í Askov 1
Danmörku ver’ður 100 ára 3.
nóvember næstkomandi. Nokkr
ir fyrrverandi Askov-nemendur
og velunnarar skólans toafa ákveð
ið að beita sér fyrir því að skól-
anum verði send afmælisgjöf í
tilefni aldarafmælisins.
Fjöldi íslendinga hefur stund
að nám í Askov, bæ'ði á vetrar-
og sumamámskeiðum skólans,
og þá ekki sízt á þeim norrænu
kennaranámskeiðum sem haldin
hafa verið á vegum skólans á
undanförnum áratugum.
Þeir sem mundu vilja Ijá máli
þessu lið, geta haft samband við
Magnús Gíslason námsstjóra fyr-
ir 16. oktober næstkomandL
Haustverk ganga
vel í Mývatnssveit
Vogum, Mývatnssveit, 11. okt.
HÉR hefir að undanförnu ver
ið hið blíðasta tíðarfar með suð-
lægri átt, hiti komizt í 14 stig.
Allmikinn snjó setti niður í sept
ember til fjalla. Sá snjór er nú
horfinn og hæstu fjöll snjólaus.
Göngum er að verða lokið. Virð-
ist fé ætla að reynast vel. Slátr-
im lýkur í þessari viku á Húsa-
vík. Enn er unnið við undir-
búning að kísilgúrframleiðslu
og verður svo eitthvað enn með
reisa skrifstofuhús á væntan-
an tíð leyfir. Nú er verið að
legri verksmiðjulóð. Lokið er
dælingu úr vatninu á þessu
hausti og verið að ganga frá
dælupramma og öðrum tækjum
fyrir veturinn. Er án efa mikils
virði að fá svo góð veður, sem
hér hafa verið um sinn, við þau
CK6-jii............, ..........
störf. Þá er þessa daga verið að
leggja rafmagnsheimtaugar á
þá bæi, sem fá eiga rafmagn í
haust. Verður því verki vænt-
anlega lokið innan tíðar og þá
hleypt straumi á línuna.
— Kristján.
Ópenisönpartu fó góðar
móttökur ó Norðorlondi
Akureyri, 11. okt.: —
ÓPERUSÖNGVARARNIR Sigur
veig Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson héldu söngskemmtun
í samkomuhúsi bæjarins á laug-
ardagskvöld. Húsið var troðfullt
og viðtökur áheyrenda hinar
hjartanlegustu. Langvinnt lófa-
tak dundi við eftir hvert lag og
söngvararnir urðu að syngja sex
aukalög. Við hljóðfærið var Skúli
Halldórsson, tónskáld.
Söngskráin var mjög fjölbreytt.
Einsöngslög voru mörg eftir ís-
lenzka höfunda m.a. nokkur
norðlenzk tónskáld og þar að
auki óperuaríur og tvísöngslög
úr óperum og óperettum. Greini
legt var að Akureyringar kunnu
vel að meta heimsókn svo ágæts
listafólks. — Sv. P.
Vogum, Mývatnssveit,
11. október: —
í GÆRKVÖLDI héldu óperu-
söngvararnir Guðmundur Guð-
jónsson og Sigurveig Hjaltested
söngskemmtun í Skjólbrekku.
Undirleikari var Skúli Halldórs
son tónskáld. Aðsókn var mjög
góð og undirtektir áheyrenda al-
veg frábærar. Þrátt fyrir mjög
fjölbreytta söngskrá varð lista-
fólkið að flytja mörg aukalög.
Lófakappi áheyrenda ætlaði
aldrei að linna og söngvararnir
og undirleikari hvað eftir annað
kallaðir fram. Verður heimsókn
þessa ágæta fólks að teljast mjög
merkur listaviðburður hér í sveit.
Að lokinni söngskemmtun ávarp
aði Sigfús Hallgrímsson í Vogum
listafólkið og færði því þakkir
ísafjörður, 11. október: —
'ÁGÆTUR afli var hjá dragnóta-
og línubátum á Vestfjörðum í
september og gæftir góðar. Flest
ir handfærabátar voru hættir og
stunduðu smokkfiskveiðar fram
eftir mánuðinum og munu hafa
veiðzt nokkuð á fimmta hundrað
lestir af smokkfiski í Arnarfirði
og við ísafjarðardjúp frá því
snemma í ágúst og undir lok sept
ember.
Heildarafli í fjórðungnum, að
smokkfiski undanteknum, var
1537 lestir, en á sama tíma í fyrra
1377 lestir. Heildaraflinn á tíma-
bilinu júní—sept. varð 8.564 lest-
ir, en á sama tíma í fyrra 6.951
lest.
Mikil atvinna hefir verið um
fyrir ógeymanlega stund og bar
fram ósk um að það gæti hér aft-
ur komið sem fyrst. Hafi það
þökk fyrir komuna. — Kristján.
Húsavík, 11. október: —
ÓPERUSÖUGVARÁRNIR Sigur
veig Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson héldu söngskemmtun
í Húsavík í gær. Við hljóðfærið
var Skúli Halldórsson. Hvert
sæti í samkomuhúsinu var setið
og listafólkinu forkunnarvel tek
ið svo það varð að syngja mörg
aukalög.
í sambandi við þessa heim-
sókn kemur mér í hug hvort ekki
væri athugandi að menntamála-
ráðuneytið héldi áfram að senda
„List um landið“. Slíkt listafólk,
sem þetta vil ég að látið sé heim
sækja framhaldsskóla landsins
og fengi það æskuna til að hlusta
og opna eyrun fyrir öðru en dans
músík. Er ég þá að óreyndu full-
viss þess að margir muni finna
að fleira er músík en bítlahávaði.
Bítlarnir kynna sig, en það vant
ar að hin létta klassiska músik
sé kynnt meðal æskunnar af
sama eldmóði.
Fyrst nefndir listamenn völdu
mjög heppilega árstíð til sinnar
farar, þó alltaf sé gott að fá
heimsókn listamannahópa, eigum
við úti á landsbyggðinni að venj
ast því að þeir séu allir í svo til
sama sumarmánuðinum, en
ánægjan er meiri að fá þá um
haustkvöld eða veturnætur. —
Hafið þökk fyrir komuna.
— S. P. B.
alla Vestfirði í sumar og haust
við verkun þessa afla og tals-
verður hörgull á fólki til fram
leiðslustarfa og gætir þess enn
hér við ísafjarðardjúp, þegar
rækjuveiðin er hafin. Húsmæður
hafa verið önnum kafnar við að
koma börnum í skóla og að taka
slátur og gera sér vetrarforða og
hefir því skort mjög á vinnuafl
við rækjuvinnsluna.
Yfirleitt má segja að verkleg-
ar framkvæmdir til lands og sjáv
ar hafi aldrei verið meiri en nú
,á þessu ári hér á Vestfjörðum og
skortur á vinnuafli er hugtak,
sem er ofðið áþreifanlegt í dag,
en til skamms tíma var það ó-
þekkt fyrirbæri hér um slóðir.
— H. T.
Mynd þessl var tekin við út-
för sex herforingja, sem upp-
reisnarmenn drápu í bylting-
artilrauninni í Indónesíu í
fyrri viku. Maðurinn í köfl-
ótta einkennisbúningnum er
Suharto hershöfðingi, sem tal-
inn er valdamesti maður hers-
ins í dag.
Skólastjóra-
skipti í
Stykkishólmi
STYKKISHÓLMI, 6. okt. —
Barna- og miðskólinn í Stykk-
ishólmi var settur við hátíðlega
athöfn í Stykkishólmskirkju
sunnudaginn 3. þ.m. Sr. Sigurð-
ur O. Lárusson flutti bæn og
þjónaði fyrir altari. Skólastjóri,
Lúðvík Halldórsson, flutti því-
næst skólasetningarræðu og
bauð kennara og nemendur vel-
komna til starfa.
1 skólanum verða í vetur 240
nemendur í 10 bekkjardeildum,
þar af 85 nemendur í miðskól-
anum. Er nú orðið mjög þröngt
í skólahúsinu og voru miklir
erfiðleikar á að raða niður I
bekkina. Heimavist skólans verð
ur starfrækt sem áður og eru
þar nú 32 nemendur víðsvegar
að. Fastir kennarar verða 7, auk
skólastjóra og stundakennara. Á
þessu hausti urðu skólastjóra-
skipti við skólann. Sigurður
Helgason, sem nú hefur tekið
við stjórn heimavistarskólans f
Kolviðamesi, lét af störfum, en
við tók Lúðvík Halldórsson, sem
lengi hefur verið einn af aðal-
kennurum skólans. Flutti hann
Sigurði Helgasyni þakkir frá
skólanum fyrir mikið og óeig-
ingjarnt starf. Og einnig þakk-
aði hann sóknarprestinum, Sig-
urði O. Lárussyni, sem nú flyt-
ur til Reykjavíkur, en hann hef-
ur verið tengdur skólanum á
fimmta áratug, bæði sem próf-
dómari, skólanefndarmaður og
kennari. Sr. Sigurður þakkaði
við þetta tækifæri nemendum,
skólastjóra og starfsliði skólana
fyrir traust og gott samstarf.
— Fréttaritari.
Accra, Ghana, 12. okt.
NTB.
• í dag kom út i Accra bók
eftir Kwame Nkrumaih, for-
• Hallinn á greiðslujöfnuði
skeið heimsvalda stefnunn-
ar“. Þar fer hann hörðum orð
um um það sem hann kallar
„sálrænan hemað Vesturveld
anna“ og gagnrýnir ýmsar
vestrænar stofnanir, einkum
bandarísku leyniþjónustuna
(CIA) bandarísku upplýsinga
þjónustu (USIS) bandarísku
fri’ðarsveitirnar og Siðvæðing
arhreyfinguna.
Mikil atvinna
á Vestfiörðum