Morgunblaðið - 14.10.1965, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.10.1965, Blaðsíða 11
Fimmtudagtrr 74. október 1965 MORGUNBLAÐIÐ 11 Mjólkurkassar verða ekki teknir upp hér í Reykjavík IMokkrar ný|ungar í mjólkurhúðum á döflnni FORSVARSMENN Mjólkur- samsölunnar kölluðu blaða- menn á sinn fund í gær til þess, eins og þeir sögðu, að gera ýtarlega grein fyrir umræðum og blaðaskrifum, sem að undanförnu hafa orð- ið um mjólkurumbúðir. Aðspurðir kváðust þeir ekki tnyndu taka upp umbúðir þær, sem nú eru í notkun á Akureyri (10 L kassana) og vitað er um eð fluttir eru að einhverju leyti hingað til Reykjavíkur álla leið og hafa líkað mjög vel, þótt enn sé ekki komin á þá mikil reynsla. Sjö kostir Stefán Björnsson framkvæmda stóri skýrði í megindráttum til- gang fundarins. í upphafi gat hann 7 atriða, sem orðið hefðu þess valdandi að hyrnarnar voru á sinum tíma valdar umfram aðrar umbúðir. í fyrsta lagi voru þær með plasthúð, en ekki vax- bornar, en síðarnefnda aðferðin þykir nú orðið ótæk. í öðru lagi voru þær ódýrari en aðrar um- búðir. 3. Kostnaður við vinnu við áfyllingu minni. 4. Minni hætta á a.ð óhreinindi komist í mjólkina við áfyllingu. 5. Hyrn urnar voru einu pappaumbúðirn- er, sem hægt var að taka í notk- un í því húsnæði, sem Samsalan hafi til umráða, þegar það var gert (1959). 6. Hyrnurnar eru stöðugar á borði, en höfuðgalli hinna köntuðu umbúða er að þær «ru ekki stöðugar og í 7. lagi geymist mjólkin mjög vel i hyrnunum. hyrnurnar væru úrelt pökkun- nraðferð. Þetta væri alrangt notk un þeirra fæi stöðugt vaxandi í heiminum. Kantaðar umbúðir Nú hefir Tetra-Pak hafið framleiðslu á köntuðum umbúð- um svonefndum Brik og eru þær komnar á markað í Svíþjóð til reynzlu, en ekki farið að senda þær út um heim enn sem komið er, en búizt við þeim hvað úr hverju. Gert er ráð fyrir að jafnvel verði þá hægt að setja mjólkina í slíkar umbúðir, sem taka 2 lítra. Ný gerð fjórðungsliterhyrna fyrir skóla og matsölustaðL Komin er á markaðinn dauð- hreinsuð mjóik, sem hægt er að geyma í 6 vikur við stofuhita og er hún eingöngu sett á hyrn- urnar, sökum þess hve auðvelt er að dauðhreinsa hyrnurnar og fylla þær án þess mjólkin spill- ist. notaðar, en það eru kantaðar pappaumbúðir og til í bæði 2ja og 4ra lítra stærðum sem er kostur. En þær eru dýrari en hyrnurnar og efiðari í flutningi og plássfrekari við áfyllingu. — Það sem réði því að Mjólk- ursamsalan tók hyrnurnar í notk- un, sagði Stefán, — eru kostir þeirra fram yfír aðrar umbúðir og verðið á þeim. 30 aura hækk- un á umbúðunum pr. líter myndi þýða hér í Rvík miðað við 70.000 stykkja sölu árlega 7 milljónir 665 þúsundir króna í aukinn kostnað. Að lokum sagði Stefán Björns- son framkvæmdastjóri: „Oss er Ijóst að taka ber til- lit til óska neytendanna, eftir því sem hægt er og innan skyn- samlegra takmarka. í áfyllinga- vélum, færiböndum og körfum undir mjólk er bundið mikið fjár'magn, og þessu er ek^i hægt að kasta frá sér fyrirvaralítið. Æskilegt væri að hafa á mark- aðinum stærri umbúðir en eins lítra, t. d. tveggja lítra, og mun sá möguleiki verða athugaðúr. Á meðan aðrar umbúðir, sem til greina kæmi, að vér gætum not- að, eru verulega mikið dýrari en hyrnurnar, en hafa ekki aðra kosti fram yfir hyrnurnar en lög- unina, teljum vér ekki rétt að hætta að nota þær. En þegar góðar umbúðir koma fram, sem ekki eru teljandi dýrari en hyrn- urnar, er að sjálfsögðu ekkert því til fyrirstöðu að þær verði teknar i notkun með hæfilgeum fyrirvara“. Eagið galli — Af göllunum má telja hið éhentuga lag á hyrnunum og að þær láku lengi vel, en því var um að kenna að hér var ekki wm að ræða menn sem gátu gert við vélarnar sem pökkuðu mjólk- inni inn. Nú hefir verið úr þessu bætt og viðgerðarmaður á veg- un fyrirteekisins sér um við- hald vélanna en hann hefir lært verk sitt hjá hinum sænsku framleiðendum Tetra-Pak. — Hyrnurnar voru teknar í notkun á sama tima og seld var fiöskumólk og brúsamjólk. Fyrsta heila árið sem þær voru eeidar og eftirspurn fullnægt, voru 44% seldar af því mjólkur- magni, sem selt var í Reykjavík. J>að var árið 1961. Síðan hefi hyrnusalan farið jafnt og þétt vaxandi og nú eru 83% mjólkur- innar selt í hyrnum. Þá benti Stefán Björnsson á að því hefði verið haldið fram að Þá benti Stefán á notkun tveggja annara tegunda pappa- umbúða, en það eru Scholle- kassarnir, sem notaðir eru á Akureyri og taka 10 lítra. Þeir hafa þann ókost að á þeim er krani, sem getur orsakað lakara hreinlæti í meðferð mjólkurinn- ar, og bera verður þá mjólk á borð í könnum sem er óæskileg- ur milliliður. Þeir, sem með lít- illi áhættu gætu notað slíkar umbúðir hér í Reykjavík, þ. e. 5 manna fjölskyldur og stærri, eru aðeins 16,6%' íbúanrta. Þá er kostnaður við notkun kassanna 88 aurar pr. líter en á hyrnunum aðeins 58 aurar pr. Hter. Mjólk- ursamsalan hefir fengið áfylling- arvél fyrir 25 1. kassa fyrir her- inn og er það gert til að leysa brúsana af hólmi. Notkun þess- ara umbúða er hvergi mikil í heiminum. í Bandaríkjunum mest eða 7%%. Nýjar umbúðir athugaðar Pure Park umbúðir eru mikið "V , uÁllr urumhú^ Ekki ekið hei^ Þessu næst spurðu blaðamenn forsvarsmenn Mjólkursamsöl- unnar ýmissa spurninga og þá fyrst og fremst hvort ekki væri kostur að taka upp mjólkurkass- anan eins og á Akureyri, þótt í smáum stíl væri í fyrstu. Þeir töldu það ekki myndi verða gert, að minnsta kosti ekki á næstunni. Verð þeirra, fyrir- höfn við áfyllingu og takmark- aðri þrifnaður væri því valdandi. Aðrar nýjungar væru á döfinni svo sem kantaðar (hyrnur og stærri svo og nýjar umbúðir um skyr. Þá væri dauðhreinsaða mjólkin einnig á næsta leiti. Einnig var spurt um hvort athugað hefði verið ú.tboð á heimkeyrslu mjólkur í stærri um búðum. Það hafði verið athugað en ekki talið borga sig. Kostn- aður of mikill. Niðurstaða þessa fundar er því sú að Reykvíkingar munu ekki fá 10 lítra kassana og ekki heid- ur heimsendingu, en úrbætur á öðrum sviðum mjólkurpakkn- inga. Á það var bent að eitthvað væri flutt af kössum með bílum frá Akureyri, en því til svarað að bannað væri að viðhafa slíka sölu. Mjólkursamsalan í Reykja- vík hefir einkaleyfi á sölu mjólk- ur hér í höfuðborginni oe ná- grenni. Lélegur afli tofjaranna TOGARARNIR hafa aflað treg- lega undanfarinn hálfan mánuð. Síðustu daga hafa þeir landað hér í Reykjavík Jón Þorláksson 70 tonnum og Bjarni Ólafsson 90 tonnum. Allir hafa togararnir ver ið á þessum tíma hér á heima- miðum. Mynd þessi var tekin í Djakarta fyrir helgina, af slökkvi- JAsmonnum og hermönnum úti fyrir aðalstöðvum kommúu- ktaflokksins, sem ungir múha roeðstrúarmenn höfðu lagx eld L Jólamerki Thorvald- sensfélagsins komið Jólamerki Bamauppeldissjóðs Thorvaldsensfélagsins eru mjög snemma á ferðinni í ár og eru nú þegar komin á markaðinn. Þetta er 52. jólamerkið, sem fé- lagið gefur út, og er því orðið dálaglegt safn jólamerkja frá Barnauppeldissjóðnum. Að þessu sinni er merkið rautt á lit og á því mynd af ojúnni biblíu með áletrun, á pósthúsum, ýmsuim bókabúðum og hjá Thorvaldsensbazamum í Austurstræti. Agóði af jólamerkjasölunni gengur eins og áður til styrktar þeim málefnum, sem Barnaupp- eldissjóðurinn hefur með hönd- um, og er aðalviðfangsefnið sem fyrr Vöggustofan við Dyngjuveg í Reykjavík. Jólamerkið 1965 annarri síðunni úr jólaguðspjall- ! inu. Að auki er á merkinu á- letrun: Bamauppeldissjóður Thorvaidsensféiagsins, Jólin 1965, og svo ísiand. Eru merkin mjög falleg, en Sigurður Jóns- son hefur teiLnað þau. Auk hins venjulega jólamenkis, mun Thorvaldsensfélagið gefa út annað merki, sem er alveg eins, ; nema blátt að lit, í tilefni af 90 ( ára afmæli félagsins 19. nóvem- ' ber. Kemur það merki út fyrri j hluta nóvembermánaðar. Jólamerkin eru að venju til í Markaðurinn erlendis hefir fallið að undanförnu og einnig hafa þeir togarar, sem siglt hafa, haft iítinn fisk. Togarinn Fylkir fékk fremur lélega sölu í síðustu för, ef miðað er við hinn geysi- háa markað, sem var um daginn. Einnig mun hafa borizt mikill karfi á þýzka markaðinn <yg gat Fylkir ekki selt 20 tonn af afl-, anum vegna þess hve mikið var. á markaðnum fyrir. I Hús ChurchiUs * seit d uppboði London, 12. okt. AP. • Hús Sir Winstons heitins Churchills að Hyde Park Gate 27 í Lond on verður selt á uppboði 28. október næstkomandi, að því er frá var skýrt I dag. Þó er hugsanlegt, að það verði selt fyrr, án upphoðs, fáist nægilega hátt tilboð í það. Fasteigna salar í London telja, að húsið ætti að seljast á 80-000 til 100.000 sterlings- pund, eða 10-12 milljónir ísl. króna. í raun og veru er hér um að ræða tvö hús, — númer 27 og 28 við Hyde Park Gate, — en heimili þeirra Churchill hjónanna var jafnan talið nr. 27. Þegar inn var komið var ekki annað sjáanlegt cn þar væri aðeins eitt hús. Uppboðið fer fram fimmtu daginn 28. október nk. kl. þrjú síðdegis á skrifstofu fasteignasalanna Knight, Frank and Rutley, við Hanovertorg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.