Morgunblaðið - 20.10.1965, Page 12

Morgunblaðið - 20.10.1965, Page 12
12 MORGUNBLAÐI0 Miðvikudagur 20. október 1965 Tízkusýning að Hötel Sögu til styrktar dreng Næstkomandi fimmtudags- kvöld (21 október) gengst Sorop timlstaklúbbur Reykjavíkur fyrir tízkusýningu og skemmtikvöldi að Hótel Sögu. Allur ágóði af skemmtikvöldi rennur að þessu sinni í sjóð til styrktar litlum dreng, er þj'áist af hjartasjúkdómi og þarf að gangast undir mjög dýra og erf- iða læknismeðfer'ð á MAYO sjúkralhúsinu í New York. Mjög hefur verið reynt að vanda alian undirbúning og margir hafa lagt hönd á plóginn til þess að styrktarstarfsemi þessi mætti takast sem bezt. Mörg fyrirtæki sýna þarna ýmis- konar tízkufatnað og m.a. hefur verið fenginn hinga’ð til lands Jörgen Karrup, þekktasti hatta- teiknari á Norðurlöndum, er Starfar nú hjá hinu þekkta tízku fyrirtæki A. Fonnesbeek í Kaup- mannahöfn, og mun hann sýna nýjustu hattatízku. Dagskráin er mjög vönduð og fjölíbreytt. Sýndir verða kjólar frá Marimekko, kápur frá Guð- rúnarbúð, herrafatnaður frá Herradeild P.Ó., kjólar-batik frá Signinu Jónsdóttur, samkvæmis kjólar og skartgripir. Auk þess sýnir Þjóðdansafélag Reykjavík- ur þjóðdansa og þjóðbúninga. Emilía Jónasdóttir verður með leikþátt og kynnir kvöldsins verður Ómar Ragnarsson. Einnig mun verða efnt til happdrættis með mörgum góðum vinningum. Hljómsveit hússins leikur til kl. 1 eftir miðnætti. Sporotimistaklúlbbur Reykja- víkur hefur nú starfað í sex ár. Nafnið sjálft útleggst Bjartsýnis- systur. Formaður klúbbsins hér á landi er Þuríður Pálsdóttir söngkona. Stefnp.sk rá Bjartsýn- issystra er mjög margþætt en stærsti þáttur hennar er líknar- starfsemi. Soroptimistaklúbbur) Reykjavíkur tók í upphafi á stefnuskrá sína að gleðja og hjálpa drengjunum á vistheim- ilinu i Breiðuvík. Hefur verið safnað í styrktarsjóð, sem ætlað ur er til þess að stýðja efnalitla drengi til náms. Sjóður þessi er nú liðlega 100.000 kr. Soraptimistaklúbbur Reykja- vfkur vill þakka öllum þeim ein- staklingum og fyrirtækjum er stutt hafa þessa starfsemi með rausnarlegum gjöfum, fjárfram- lögum og sjálfboðastarfi. Aðgöngumiðar áð skemmti- kvöldi þessu verða seldir á Hótel Sögu, kl. 17:00—19:00 í gær og dag, (miðvikudag). Verð mið- ans er 100.00 kr. Hótel Akureyri sendir matinn heim BRIDGE UNDANKEPPNI Firmakeppn- innar í bridge er lokið í Bridge- félagi Reykjavíkur og Bridge- félagi Kvenna, en ólokið sein- ustu umferðinni í Tafl og Bridge klúlbbnum og Bridgedeild Breið- firðinga. Hjá Bridgefélagi Reykja víkur urðu þessi fyrirtæki efst: 1. N. Mancher & Co. (Þorgeir Sigur’ðsson) 1176 stig. 2. Þóroddur E. Jónsson (Ás- björn Jónsson) 1108 stig. 3. Prentsm. Jóns Björnssonar (Hilmar Guðmundsson) 1101 stig 4. Hafskip hf. (Jakob Bjarna- *on) 1081 stig. Hjá Bridgefélagi Kvenna urðu þessi fyrirtæki efst: 1. Axminster (Þorgerður Þór- •rinsdóttir 1133 stig. 2. Verzlunin Vísir (Vigdís Guð jónsdóttir) 1127 stig. 3.Sælgætisgerðin Freyja hf. (Sigríður Guðmundsdóttir) 1109 •tig. 4. Efnalaugin Lindin (Frfða Austmann) 1080 stig. Hjá Tafl og Bridgeklúbbnum eru þessi fyrirtæki efst: 1. Friðrik Jörgensen (Vilhjálm ur Aðalsteinsson). 2. Jöklar hf. (Ingólfur ólafs- •on). 3. Hafrafell hf. (Bernharður Guðmundsson). 4. Happdrætti D.A.S. (Guðjón Jóhannsson). Hjá Bridgedeild Breiðfirðinga eru efst: 1. Ferðaskrifstofa Útsýn (Magn ús Oddsson). 2. Endurskoðunarskrifst. Bárð- »r fgurðssonar (Dagbjartur Grímsson). 3. Verzlunin Vald Poulsen (Bjarni Fannberg). 4. Skósalan Laugavegi 1 (Magnús Gunniaugsson). Til úrslita verða spilaðar tvær umferðir 20. og 27. oktöber me'ð 48 efstu spilurunum úr bridge- lélögunum fjórum. Akureyri, 11. okt. í gærkveldi var fréttamönn- um á Akureyri boðið til kveld- verðar að Hótel Akureyri, þar sem forráðamenn hótelsins, þeir Óskar Ágústsson sem tók hótel- ið á leigu í vor til eins árs, Valdemar Jónsson hótelstjóri, og yfirmatreiðslumaðurinn, Jón Kristinsson, ræddu við gestina um reksturinn og framtíðar- horfumar. Á borðum var hið fegursta og ljúffengasta rétta- val, sýnishorn af því, sem hót- elið hefir fram að bjóða. Óskar Ágústsson kennari við Laugaskóla kvaðst hafa tekið hótelið á leigu í apríl, þar sem enginn Akureyringur hefði orð- ið til þess, en ekki væri fyrir það að synja, að llla hefði ver- ið spáð fyrir rekstrinum. Ósk- ar tók fram, að hann hefði ver- ið mjög bjartsýnn, þegar hann réðst í þetta fyrirtæki, en varla hefði verið vanzalaust að láta þennan hótelrekstur falla niður í jafnmiklum ferðamannabæ og Akureyri væri. Gallinn væri að- eins sá, að ferðamannatíminn væri of stuttur á hverju ári til þess að nægilegt öryggi fengist í samfelldum rekstri. Hótel Akureyri getur hýst 43 gesti í 18 herbergjum samtímis, en þar að auki eru útveguð herbergi á einkaheimilum, þeg- ar þrengsli eru í hótelinu sjalfu. Nýting gistiherbergja hefir ver- ið mjög góð í sumar, um 90% í júlí og 80% í ágúst, og síðan hefir oft verið fullt, t.d. um síðustu helgi. Hins vegar hefir matsalan í hinni stóru og rúm- góðu sjálfsafgreiðslu ekki geng- ið jafn-vel, ekki skilað þeim ágóða, sem til var ætlazt. Á fundi veitingahúsaeigenda utan Reykjavíkur, sem haldinn var að Hótel Reynihlíð í Mý- vatnssveit í haust, voru i>eir sammála um það, að matsala bæri sig ekki, þegar á ársrekst- urinn væri litið, nema með því að selja vín með. „Við bessu viljum við sporna; okkur er vanvirða að því að geta ekki selt mat með hagnaði án vin- sölu“, sagði Óskar Ágústsson. Þess vegna hefir Hótel Ak- ureyri ákveðið að reyna nýjar leiðir og taka upp nýja þjón- ustu við almenning í bænum, auk þess sem matsala heldur áfram í sjálfsafgreiðslunni eins og hingað til, en hún tekur um 140 manns í sæti og er mjög nýtízkuleg. Nú getur fólk pant- að mat eða kökur frá hótelinu og fengið sent heim til sín, og verður um ýmislegt að velja, eftir því sem hver og einn óskar hverju sinni, t.d. heitan mat, kalt borð, cabaret (sérstaklega til reiddá smárétti), smurt brauð snittur, kökur eða tertur, sem bakaðar yrðu og skreyttar af matreiðslukonu á hótelinu, Helgu Björnsdóttur. Verð á þess um heimsenda veizlukosti verð- ur samningsatriði hverju sinni og fer eftir því, hversu kaup- andinn vill hafa í hann borið eða hafa hann úr garði gerð- an. Hótelið mun einnig sjá um að ganga frá hinu heimsenda á fötum á heimilum, ef þess er óskað. Þótt Hótel Akureyri sé í nokk urra áratuga gömlu húsi, Hafn- arstræti 98, eru öll herbergi ný uppgerð, nýmáluð og búin nýj- um húsgögnum, og gistihúsið Bíll úr Strandasýslu valt síðdegis á sunnudag eftir árekstur við Reykjavíkurbíl á Digranesvegi í Kópavogi. Var hann á leið inn eftir og mun hafa beygt og fékk hinn bílinn, sem kom á móti, á hliðina. Einnig lentu bílarn- ir utan í þriðja bílnum, úr Kópavogi. Bifreiðastjórinn á T númer bílnum, Helgi Stein grímsson, meiddist og var fluttur á sjúkrahús. allt hið vistlegasta, þar með tal- inn matsalurinn. Þar unnu í sum ar um 20 manns, en aðeins færra starfsfólk verður þar í vetur. Sv. P. Styrkir til ársdvalar í Bandaríkjunum EINS og undanfarin átta ár veit- ir bandaríska menntastofnunin American Field Service - ís- lenzkum framhaldsskólanemend- um styrki til náms- og ársdval- ar víðsvegar um Bandaríkin vet- urinn 1966-’67. Styrkþegar hxunu dveljast á einkaheimilum og stunda nám í efsta bekk í svo- kölluðum „high-school“. Styrkurinn nemur fæði, hús- næði, skólagjöldum, sjúkrakostn- aði og ferðakostnaði innan Bandaríkjanna. I lok dvalartím- ans vestanhafs verður öllum styrkþegum boðið í ferðalag um Bandarí'kin. Styrkþegar þurfa aftur á móti að greiða sjálfir ferðir til New York og heim aft- ur, og leggja til vasapeninga. Umsækjendur um styrgi þessa skulu vera á aldrinum 16-18 ára, nemendur á gagnfræða- og menntaskólastigi. Þeir verða að hafa gott vald á enskri tungu, hafa góða námshæfileika, vera vel hraustir og eiga auðvelt með að kynnast fólki. Umsóknareyðublöð verða af- gj-eidd í skrifstofu American Field Service á íslandi, Skóla- vörðustíg 4 C, þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga kl. 5—7 e.h. Umsóknum skal skilað fyrir 15. nóvember nk. Nánari upp- lýsingar eru veittar á fyrrgreind- um tíma í skrifstofu félagsins, sími 1 69-90. (Frá A.F.S. 4 íslandi). Sveinn Krislinsson skrifar um VPPPPPPPPPPPPVWH Háskólabíó. ó ÁSTIN SIGRAR. Ný amerísk Paramount- kvikmynd. KVIKMYNDAHÚS háskólans er stærsta og veglegasta kvikmynda hússbygging hér á landi. Þess vegna „ganga“ myndir að öðru jöfnu skemur þar í húsi en í öðrum kvikmyndahúsum. Kem- ur þar hvort tveggja til, að húsið getur solgið í sig stærri torfur áhorfenda í einu en önnur kvikmyndahús, og í annan stað mun kostnaður við stórhýsi þetta hafa verið slíkur, að það þolir öðrum húsum lakar þunn- skipaða áhorfendabekki. Má því gera ráð fyrir, að myndir, sem sýndar eru lengi í Háskólabíói, séu ekki af lakara taginu. En því miður virðast myndl kvik- myndahússins ekki vera þeim mun meiri að gæðum almennt sem húsið er meira og vandaðra að áþreifanlegum efnivið en önnur kvikmyndahús hérlendis. Raunar eru takmörk fyrir því, hvað hægt er að afla sér góðra mynda, og auk þess er vel skilj- anlegt, að gömul og gróin kvik- myndahús, þótt minni séu að vallarsýn geti haft allt eins góð sambönd erlendis og hafi í þjón- ustu sinni menn, sem ekki hafa lakari þekkingu á kvikmynda- gerð en þjónar hins tröllaukna, akademiska beljaka. — Þótt það sé því kannske fullmikil kröfu- harka, að ætlast til þess, að Há- skólabíó hafi að öllum jafnaði aðstöðu til að afla sér vandaðri kvikmynda en önnur kvikmynda hús, þá gætum við kannske orðað aðra ósk, sem hljóðaði éitthvað á þessa leið: Háskólabíó má aldrei sýna lélega kvikmynd. Vona ég, að sú tilætlan eigi sér fleiri og dýpri rætur og rök en þau, sem sprottin eru úr hofmóði ein afdánkaðs háskólaborgara. Myndin „Ástin sigrar" er gam- ansöm ástarmynd, þar sem ungur hljómlistarmaður í leit að ástarævintýrum gengur einum of langt í skemmtanafíkn sinni og leggur frumdrög að nýu lífi með ítalskri fegurðardís. Vitneskjan um þetta kemur honum vand- ræðalega á óvart. bví að um bær mundir bjó hann með dansmey einni, og .í vandræðum sínum snýr hann sér til hennar og biður hana að útvega sér lækni, sem veiti fólki aðstoð í óþægi- legum tilvikum. Af sjálfu leiðir, að þar gat hann varla valið sér óheppilegri ráðunaut, enda vipp- ar dansmærin honum snarlega út á götuna. Þetta er þó aðeins byrjunin á vandræðum hljómlistarmanns- ins. Hann elur í fyrstu í brjósti næsta óræðar tilfinningar til ítölsku gyðjunnar (Natalie Wodd), þau fara saman til „hjálpsams" læknis, en áður en hann fær að veita hjálpina af mildi harta síns, gugnar hlóm- listarmaðurinn (Steve McQueen) og neitar allri aðstoð til handa barnsmóður sinni. — Það gerir hljómlistarmanninum enn erfið- ara fyrir með að taka frekari ákvarðanir í málinu, að fjöl- skylda þeirrar ítölsku er lítt hrif- in af ráðahaga þeirra í milli. — Er nú. bezt að rekja þessa sögu ekki lengra, en eins og nafn myndarinnar bendir til, sigrar ástin að lokum, eftir langa og harða baráttu. Þótt sjálfur efniviður mynd- arinnar gæti rennt stoðum undir alvarlega meðhöndlun, þá hefur þó sá kostur verið tekinn að gera úr honum gamanmynd, sem sækir kraft sinn í skringi- leg viðbrögð og látbragð leikend- anna. Látbragðslistin er ekki sem verst á stundum, einkum þar sem reynt er að túlka kennd- ir persónanna með svipbrigðum einum, enda er myndin yfirleitt allvel leikin. Hitt er þó þvi miður of algengt í myndinni, að humorinn verði of opinn, og stundum rennur hann út í hrein . skrípalætl, og er slíkt raunar ekki ýkja fágætt í amerískum gamanmyndum. — Þetta spillir því, að hægt sé að skoða mynd- ina sem fína „satíru“ lýsingu á hefðbundnum, en miður náttúru- legum viðhorfum fjölskyldna og einstaklinga til ástarmála, þótt öðrum þræði væri eðlilegast að líta á hana sem slíka. Auglýsingar tjá oss, að virðu- legt erlent dagblað hafi talið mynd þessa í hópi 10 beztu mynda ársins. Hvort þá er miðað við Ameriku eða alheiminn veit ég ekki með vissu. Því er heldur ekki að neita, að skemmtan nokkra má hafa af myndinni, þótt margar betri gamanmyndir hafi sézt hérlendis. En frá sjón- arhóli þeirra akademisku ofstæk- ismanna, sem gera hærri kröfur til Háskólabíós en annarra kvik- myndahúsa, hverfa gæði mynd- arinnar í skugga þeirrar ris- miklu byggingar, sem þjóðin reisti æðstu menntastofnun sinni á Melum vestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.