Morgunblaðið - 20.10.1965, Page 16

Morgunblaðið - 20.10.1965, Page 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 20. október 1965 Otgefandi: Framkvæmdast j óri: Bitstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Askríftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavik. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði Innanlands. 5.00 eintakið. HUGARFARS- RREYTING T fjárlagaræðu sinni sl. mánu dagskvöld sagði Magnús Jónsson, fjármálaráðherra, að almenningur ætti kröfu til að ráðdeild og hagsýni ríkti í meðferð opinbers fjár. En hann vakti einnig athygli á þeirri staðreynd, að nauðsyn- legt er, að hugarfarsbreyting verði hjá hinum almenna borgara gagnvart fjármálum ríkisins. Þeirri skoðun þarf að vísa á bug, að ríkiskassinn sé ótæmandi peningalind, sem allir geti gengið í að vild sinni. Híkissjóður hefur ekki aðra peninga til umráða en þá sem skattgreiðandinn leggur honum til, og kröfur um auk- in útgjöld ríkissjóðs eru jafn- framt kröfur »m auknar á- lögur á skattgreiðendur. Segja má, að þetta hafi ver- ið kjarninn í ræðu Magnúsar Jónssonar við f járlagaumræð- urnar sl. mánudagskvöld, og vissulega má með sanni segja, að báðir aðilar, þeir sem stjórna fjármálum ríkisins og almenningur, sem leggur féð fram, endurskoði að ýmsu leyti afstöðu sína til þessara mála. Þeir, sem sýsla með opin- bera fjármuni verða að gera sér þess grein, að hér er um peninga skattgreiðenda í land inu að ræða, og þeim ber skylda til að gæta fyllstu hag- sýni og ráðdeildar í meðferð þeirra. Stjórnmálamenn verða einnig að gera sér þess grein, að þótt þeir séu í stjórnarand- stöðu er það ábyrgðarlaus leikur, sem ekki á að þekkj- ast í þroskuðu lýðræðislandi, að heimta aukin útgjöld ríkissjóðs um leið og lagt er til að tekjur ríkisins minnki. Og almenningur, sem á að krefjast þess af opinberum sýslunnarmönnum að með fé hans sé ekki bruðlað, á jafn- framt að veita bæði embættis mönnum og stjórnmálamönn- um ríkt aðhald í þessum mál- um, þannig að ábyrgðarlaus afstaða tækifærissinnaðra stjórnmálamanna gagnvart fjármunum almennings verði almennt fordæmd. Það ber því vissulega að fagna því, að fjármálaráð- herra, Magnús Jónsson, hef- ur lagt svo mikla áherzlu á þessi atriði, sem raun ber vitni í fyrstu fjárlagaræðu sinni, og ítrekað nauðsyn þess, að hugarfarsbreyting verði hjá hinum almenna borgara til f jármála ríkisins. Ræða fjármálaráðherra var mjög yfirgripsmikil, og í henni er geysilegur fróðleik- ur um fjármál ríkisins á und- anförnum árum og í framtíð- inni. M.a. kemur fram ,að stjórnsýslukostnaður er áætl- aður 10,5% af ríkisútgjöldum á yfirstandandi ári, og hefur heldur farið lækkandi á und- anförnum árum. Eru þessar upplýsingar mjög athyglis- verðar í ljósi þess, að gjarna hefur verið deilt á ríkið fyrir vaxandi útþenslu ríkisbákns- ins. Af ræðu fjármálaráðherra, Magnúsar Jónssonar, má glögglega sjá, að ríkisstjórnin hefur tekið föstum tökum þann vanda, sem upp hefur komið í ríkisbúskapnum síð- asta ár og í ár, og er staðráð- in í að koma á ný á greiðslu- hallalausum ríkisbúskap, enda er það nauðsynleg for- senda þess, að efnahagslegt jafnvægi ríki í landinu. STJÓRNARAND- STAÐA Á UNDANHALDI TTeildarmvnd útvarpsum- *■*■ ræðnanna sl. mánudags- kvöld var greinilega sú, að ríkisstjórnin hefur algerlega frumkvæðið í stjórnmálabar- áttunni, hvort sem það er í sambandi við fjármál ríkisins, eða önnur mál. í ræðu full- trúa Alþýðuflokksins, komu fram mörg mjög athyglisverð atriði, sem íhugunarverð eru. Hann benti m.a. á þá stað- reynd, að 73% af útgjöldum ríkisins fara til félagsmála, niðurgreiðslna á vöruverði innanlands, útflutningsupp- bóta, menntamála og atvinnu- mála. En á sama hátt og ræður fjármálaráðherra og fulltrúa Alþýðuflokksins vöktu at- hygli fyrir glöggan og skýran málflutning, munu menn al- mennt sammála um, að frammistaða stjórnarandstöð- unnar hafi verið með slíkum hætti, að henni sé lítill sómi að. Sérstaklega var ræða Ey- steins Jónssonar með þeim hætti, að furðulegt má telja, að maður, sem verið hefur fjármálaráðherra lengur en nokkur annar hér á landi, skuli láta sér sæma slíkan málflutning, enda varð það svo, að f jármálaráðherra hrakti í svarræðu sinni full- yrðingar Eysteins lið fyrir lið og stóð ekki steinn yfir steini í ræðu Eysteins að því loknu. Stjórnarandstaðan er nú greinilega á algeru undan- haldi í stjórnmálabaráttunni. Hún hefur nákvæmlega ekk- ert nýtt fram að færa, annað én almennt orðaskrum um ný viðhorf og nýjar leiðir, en Sigur Nyerere DR. JULIUS Nyerere hlaut 98% greiddra atkvæða í ný- afstöð'num kosningum í Tanga nyika og Zanzibar, og verður þvi forseti Tanzaniu næstu fimm árin i viðbót. Þrátt fyrir hina hlægilega háu hundraðs tölu og þrátt fyrir þá stað- reynd, að hann var eini fram- bjóðandinn við forsetakjörið, þá eru niðurstöður kosning- anna mikilvægtar einkum á öðru sviði. Þessa ályktun má m. a. draga af því, að enda þótt Nyerere væri eini frambjóð- andinn, þá gátu hinar fjórar millj. kjósenda látið í ljós ánægju sína eða óánægju með endurkosningu hans með því að neita að greiða honum at- kvæði sitt. Að þessu marki voru kosningarnar fullkom- lega frjálsar og þetta frelsi var sýnt á ýmsan hátt. Sums staðar greiddu margir kjósendur atkvæði gegn Ny- erere. Forsetakosningarnar fóru einnig fram samtímis kosningum til nýs þjóðþings og kosning hinna nýjil þing- manna sýndi svo ekki varð um villzt, hversu ánægðir kjósendur Tanzaniu voru með að fá tækifæri til þess að gera upp reikningsskil sín við hina gömlu þingmenn sína með því að láta mjög marga þeirra ekki ná endurkjöri. Hvað yngri ráðherrana í stjórninni snertir, má segja, að þar hafi verið um fjölda útrýmingu að ræða. Af hin- um tólf fyrstu þeirra, sem úr- slitin voru kunn um, voru aðeins þrír endurkosnir. Af átta hinna eldri ráðherra, biðu þrír ósigur, og af 21 þing- manni, sem bauð sig fram til endurkjörs, tókst það ein- ungis þremur, en um niður- stöður kosninganna í þremur kjördæmum er ekki vitað ennþá. Hið mikla atkvæðamagn, sem Nyerere hlaut, verður af þessum sökum miklu at- hyglisverðara, og þá sérstak- lega vegna þess, að margir traustustu félagar hans urðu að lúta í lægra haldi. Niður- stöður kosninganna sýna enn- fremum, að kjósendurnir, en meirihluti þeirra býr í sveit- um landsins, hafa þann þroska eins og kjósendur víða annars staðar að geta greint á milli þeirra fyrri stjórnmálaleið- toga, sem rétt er að velja aftur til forystu og hverja ekki. Sú staðreynd, að meiri hlut inn af hinum eldri ráðherrum í stjórn Nyereres var endur- kjörinn, gefur til kynna að úrslit kosninganna voru ekki einföld mótmæli gegn stjórn- Dr. Julius Nyerere. inni. Enda þótt það kynni að verða auðvelt að búar til dæmi þess, að kjósendur hefðu not- fært sér vald sitt innan tak- marka stjórnarskrár hins nýja „lýðræðislega eins flokks ríkis" til þess að mótmæla þeim hætti, sem viðhafður hefur verið við að stjórna þeim, þá myndi slíkt verða mjög yfirborðskennt. Hinn trausti meirihluti Nyereres og endurkosning flestra af eldri ráðherrum hans sýna, að dóm ur kjósendanna er flóknari en sýnist í fljótu bragði. Tvær alhæfingar virðast þó standast. Hin fyrri er, að deilumál, sem snerta einstök héruð virðast skipta meira máli en mál, sem snerta þjóð ina í heild. Enda þótt það eigi einnig réttilega við flestar kosningar í öllum löndum, þá hljóta andstæðurnar milli hagsmuna héraðanna og þjóð- legra hagsmuna að verða miklu meiri og alvarlegri í þróunarlöndum eins og Tanza niu. í öðru lagi kom fram mikil andúð á hinum nýja „þjóðflokki", sem fram hefur komið í hinum nýfrjálsu lönd um Afríku, þ.e. Wa-Benz. Til hans teljast þeir, sem skipa helztu embætti hjá ríkisstjórn inni og flokknum og aka um á Mercedes Benz — en sá bíll er álitstákn í ýmsum hlutum Afríku. Ríkisstjórninni var Wa-Benz andúðin ljós jafnvel þegar fyrir kosningarnar og nú um skeið hefur Nyerere forseti látið í ljós opinberlega áhyggjur vegna þess fjölda er til staðar er í hinu fátæka lýðveldi hans af bílum og þá einkum lúxusbílum. • Svo virðist samt, sem Wa- Benz muni líklega hljóta sess í nútíma pólitískum orðaforða 1 Afríku ásamt orðum eins og ,,bræðrasemi“, en það þýðir atvinna handa þeirri fjöl- skyldu viðkomandi Pólitísk hugtök sem þessi, sem venju lega verða til í munni hins ómenntaða Afríkumanns, kom ast auðveldlega á hvers manns várir. Þau veita innsýn með einföldum hætti inn í almennt viðhorf gagnvart leiðtogum þjóðarinnar, en það á ekki ófrávíkjanlega við alla þá sem aka í Mercedes-Benz eða sem eiga bræður, sem svo vill til urn, að þeir skipa háar stöður. Á meðal þess sem svip sinn setti á þessar kosningar, var geta til þess að gera mun á einum leiðtoga og öðrum. Það var ekki eingöngu kosið gegn öllum þeim sem völd höfðu. Að undanskildum iþessum alhæfingum, ákváðust niður- stöður kosninganna mjög af deilumálum einstakra héraða. Það er gagnlegra að líta á þessar kosningar þjóðarinnar a’lrar. eins og þar væri um að ræða ekki bara einar kosn ingar heldur 101 kosningu, þ. e. jafnmargar og fjöldi kjör- dæmanna var. Mismunandi at riði réðu úrslitum í sérhverju þeirra. Nyerere byrjar nú nýtt fimm ára tímabil sem forseti með nýju ráðuneyti og grund völlur þess verður það álit, sem tilraunir hans til þess að koma fram með sitt eigið lýð- ræðislega kosningafyrirkomu- lag hafa skapað honum. Þýtt úr „The Observer". fæst ekki til þess að láta uppi hverjar þær nýju leiðir séu. Útvarpsumræðurnar um fjárlögin hafa því sýnt svo greinilega, að ekki verður um villzt, að ríkisstjórnin hef- ur nú algjört frumkvæði í stjórnmálabaráttunni, og að stjórnarandstaðan er þar á hröðu undanhaldi. RHÓDESÍUMÁLIÐ A ð undanförnu hafa staðið yfir árangursl-ausar til- raunir til þess að ná sam- komulagi milli Bretlands og Rhódesíu um sjálfstæði hins síðarnefnda. Segja má að það, sem deilt er um í Rhódesíu sé ekki mál, sem varði miklu þá, sem búa langt fjarri því landi. En sannleikurinn er nú sá, að atburðirnir í Rhódesíu geta haft hinar alvarlegustu afleið ingar og í versta tilfelli blóðs- úthellingar í Afríku, og þess vegna er full ástæða til þess fyrir fólk annars staðar að fylgjast með því, sem þar ger- izt. Brezka stjornin hefur neit- að að veita Rhódesíu sjálf- stæði, nema réttindi hins fjöl- menna svarta meirihluta, verði tryggð. Hinn hvíti, fá- menni minnihluti hafnar al- gerlega þeim tilmælum, og hyggst lýsa yfir sjálfstæði landsins í trássi við Breta og án þess að veita svörtum mönnum nokkrar réttarbæt- ur. Rhódesía getur þannig fyrr en varir orðið að nýrri Suð- ur-Afríku, en því miður eru líkur til að Rhódesíumálið verði enn alvarlegra, þar sem ýmsar svartar þjóðir í Afríku muni ekki sætta sig við það möglunarlaust að svo verði, og því kynni að koma til hern aðarátaka ef sjálfstæðisyfir- lýsing verður gefin án sam- þykkis Breta. Nú orðið virðist mjög lítið svigrúm til athafna í þessari deilu, og hljóta menn að bíða með nokkrum ugg þess, sem fram vindur inni í miðri Afríku. Arekstur ■ Hvalfirði AKRANESI, 18. október. —. Læknisjeppi norðan frá Hvamms tanga var á leið suður til Reykja- víkur og mætir kl. 8—9 á sunnu- dagskvöld einkabíl Magnúsar Maríussonar, forstjóra í Olíustöð- inni í Hvalfirði, í illfærri hvomsu á þjóðveginum milli Miðfells og Kalastaðakots. Geysiharður á- rekstur varð, því læknisjeppinn hentist úr hvarfinu og inn á veg- inn á bíl Magnúsar. Bíll hans er talinn ónýtur. En læknisjeppinn, sem er Landrover, var fluttur mikið skemmdur á drátlarbíl Vöku suður til Reykjavíkur. Læknirinn meiddist lítils há'tt- ar. Með Magnúsi var öll fjöl- skylda hans, Hulda kona hans og fjórir synir þeirra. Vörin sprakk á Magnúsi, Hulda skarst á hné, skrámur hlutu Viðar, 13 ára og Ásgeir, 12 ára og í báðum brotiuðu tennur. Þriðji bróðir- inn, Skúli, slapp ómeiddur, en sá yngsti Þorsteinn, 3 ára, skarst á höfði. Gert var að sárum þeirra á sjúkrahúsinu -— Oddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.