Morgunblaðið - 22.10.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 22.10.1965, Síða 8
8 MORGUN3LAÐID Föstudagur 22. október 1965 t n . 4 V1 t* IC í ^ í Frumvarp um verðtryggingu fjárskuldbindinga rædd á Alþingi í gær í NEÐRI deild var tekið fyrir atjórnarfrumvarp til laga um verðtryggingu fjárskuldbindinga og fylgdi menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason því úr hlaði. Sagði Gylfi að frumvarp þetta væri samið í Seðlabankanum i framhaldi hinnar almennu vaxta breytingar, sem tók gildi í upp hafi ársins, en þá hefði banka- stjórn Seðlabankans beint þeim tilmaelum til ríkisstjórnarinnar, að undirbúin yrði almenn lög- gjöf um noktun verðtryggingar- ákvæða í samningum, eftir því sem heilbrigt væri talið á hverj um tíma og undir traustu eftir- liti. Meginefni frumvarpsins væri verðtrygging, þar sem annað hvort væri miðað við vísitölu eða annan hliðstæðan grundvöll, og næði það til fjárskuldbindinga, Barnaverndarnefnd Reykjavík- ur hélt stjórnarfund í dag (21. októtoer) og kom þá m.a. í ljós, að í heimiliesjóði taugaveiklaðra harna er nú rúmlega ein milljón krórta, en sjóðurinn samanstend- nr af fjárframlögum og gjöfum velunnara Barnaverndarfélags- ins. Sjóður þessi hefur það markmið að hrinda í fram- kveemd. byggingu hjúkrunar- heimilis taugaveiklaðra barna, sem þarfnast sálfræðilegrar með- ferðar. Er áætlað að reisa heimili þetta hér í Reykjavík. Lóð fyrir heimilið hefur ekki fengizt enn, eo dr. Matthías Jónasson, sem ræddi við fréttamenn blaðsins taidi að lóðaleyfi mundi fást nú á næstunni. Kvað hann byggingu sliks heimilis mundi bæta úr brýnustu þörfinni, en Geðvernd- ardeild Heilsuverndarfélagsins og Sálfræðideild skólanna gætu ekki sinnt nærri öllum þeim börnum, I efri deild í gær fylgdi Eggert G. Þorsteinsson úr hlaði frum- varpi ríkisstjórnarinnar um breyt ingar á lögum nr. 19. 10. maí 1965 um Húsnæðismálastofnun ríkLsins. Sagði hann að frumvarp þetta væri flutt í samræmi við yfirlýsingu þá um húsnæðismál, sem ríkisstjórnin gaf í sumar í sambandi við samninga verka- lýðsfélaganna um kjaramálin. >á væri ennfremur lagt til, að fast- eignamat til eignaskatts yrði sex- faldað, þar sem framlag ríkisins hefði verið ákveðið 40 milljónir, en tekjur þœr er fasteignaskatt- urinn hefði gefið af sér hefðu hinsvegar ekki numið nema 16—19 milljónum króna. Með því að sexfalda fasteignamat mætti hinsvegar ætla að hæfilega mik- ið fengist til þess að mæta fram- laginu. Ólafur Jóhannesson (F) sagði, að vissulega væri nauðsynlegt að gera umbætur á húsnæðis- bæði þeirra, sem ákveðnar væru í peningum, og einnig í öðrum verðmæli. Væri það meginstefna frumvarpsins að verðtrygging væri aðeins leyfð, þegar ákveðn- um skilyrðum væri fullnægt. Gert væri ráð fyrir sjálfstæðri en takmarkaðri heimild til verð tryggingar hjá lífeyrissjóðum og fjárfestingarlánstofnunum. Verð trygging á innlánum og útlánum yrðu háðar ákvörðun Seðlabank ans, svo og verðtrygging í samn ingum milli annarra aðila. Með þessu væri í raun og veru verið að marka leið til þess að draga úr einni tegund áhættu þ.e.a.s. óvissunni um framtíðar- gildi peninga í viðskiptum spari fjáreigenda og annarra eigenda fjármagns annars vegar og lán takenda hins vegar. Reyndin hefði verið sú að óvissunni um er aðstoðar þyrftu við, sökum iþess meðal annars að lækningin er mjög tímafrek. Dr. Matthías taldi að skilning- ur fólks fyrir þessum vandamál- um væri að vakna verulega og möguleikar til að veita tauga- veikluðum bömum lækningu hefðu vaxið stórkostlega síðustu ár vegna aukinnar þekkingar. Barnaverndardagurinn er fyrsti vetrardagur, eða næstkomandi laugardagur, og hann um leið fjáröflunardagur félagsins. Er fólk eindregið hvatt til að leggja þessu mikla nauðsynjamáli lið, með því að kaupa merki félags- ins og bók þess Sólhvörf og hvetja börn sín til merkjasölu. S t j ó r n Barnaverndarfélags Reykjavíkur skipa eftirtaldir menn: Dr. Matthías Jónasson formaður, Jónas B. Jónason fræðslustjóri, Sigurjón Björns- son sálfræðingur og séra Ingólfur Ástmarsson gjaldkerL málalöggjöfinni. Á síðasta þingi hefðu komið fram tillögur frá Framsóknarmönnum þess efnis, en þær hefðu ekki náð til eyrna stjómarliðsins. Hann sagðist vera andvíkur sexföldun fasteigna- matsins, það mundi stuðla að aukinni dýrtíð og hækkaðri húsa Ieigu. Ýmis önnur ráð hefðu ver- ið til tekjuöflunar og mætti nefna til að nauðsynlegra hefði verið að ganga milli bols og höf- uðs á þeim skattsvikum er nú viðgangast og auka sparnað. Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, sagði að enn sem fyrr væru Framsóknarmenn fylgjandi auknum útgjöldum ríkissjóðs, en andvígir tekjuöflun. Vissulega væri rétt að taka þyrfti skatt- svik og sparnað föstum tökum en það yrði ekki gert á einni svipstundu. Lítið hefði a.m.k. borið á því að Framsóknarmenn bentu á leiðxr til úrbóta. Eðlilegt framtíðina hefði verið mætt með hærri vöxtum. Með þessum ráð- stöfunum væri líklegt, að sparn- aður mundi vaxa og framboð láns fjár aukast. Frumvarpið gerði ráð fyrir, að verðtrygging væri því aðeins leyfð, að fjárskuld- binding standi í a.m.k. þrjú ár, en með því mundi vera komið í veg fyrir að „vísitölukrónan“ ryðji sér til rúms í almennum peningaviðskiptum. Hin almennu skilyrði verð- tryggingarinnar sagði ráðherra að væru í meginatriðum þessi: 1. Að verðtryggingu skyldi yf irleitt miða við vísitölu fram- færslukostnaðar, eins og hún væri reiknuð á hverjum tíma. Seðlabankanum væri þó heimilt að leyfa, að verðtryggingin sé miðið við aðra vísitölu eða við breytingar tlitekins vöruverðs. Væri ekki um opinbera, skráða vísitölu eða verðlag að ræða skyldi Seðlabankinn í samráði við Hagstofu íslands, setja sér- stakar reglur um þann verðtrygg ingargrundvöll, sem miðað væri við. 2. Að verðtrygging skyldi fyrst og fremst heimiluð í fjárskuld- bindingum, sem tengdar væru öflun fasteigna eða annarra fjár- muna, sem ætla mætti að hækk- uðu í verði með almennum verð lagsbreytingum. Verðtryggð lán skyldu ætíð vera tryggð með veði í slikum eignum eða öðrum verð tryggðum kröfum. 3. Fjárskuldbindingin skal vera gerð til eigi skemmri tíma en þriggja ára, og er þá miðað við greiðslu í einu lagi eftir á. 4. Ekki má reka peningavið- skipti með þeim hætti að endur lána með verðtryggingu fé, sem fengið er með öðrum kjörum. Benedikt Gröndal (A) sagði það vera í lögum um verka- mannabústaði, að þá væri eigi heimilt að endurselja með verð- bólgugróða. Kom hann síðan með breytingartillögu við 4 .grein frumvarpsins, og kvað á í henni að verðtrygging skyldi ekki ná til lána út á íbúðir ef endursala þeirra væri takmörkuð í lögum. Einar Ágústsson (F) sagði að lög þessi gætu haft heillavænleg áhrif ef vel tækist til, og væri verðtrygging sparifjár mikið nauðsynjamál. Þingmenn Fram- byggðu á góðum tímum frá fjár- hagslegu sjónarmiði hjálpuðu til með hinum sem byggðu á erfiðari tímum. Alfreð Gislason (K) taldi að sú ráðstöfun ríkisstjórnarinnar að sexfalda fasteignamatið til þess að ná inn því er á skorti þær 40 milljónir er ríkisstjórnin skuldbatt sig til að greiða, væri hæpin. Um margar aðrar leiðir hefði verið að ræða. í>á taldi hann að ekki hefði verið rétt að afnema lögin um hámark húsa- leigu, heldur hefði átt að semja önnur ný. Ólafur Jóhannesson (F) talaði aftur og taldi það verkefni stjórn arinnar að finna leiðir til úr- bóta varðandi skattsvik og sparnað og leggja þær fram til umræðna. Vel gæti verið rétt það sem fjármálaráðherra hefði sagt, að ekki væri um að ræða neinar stórupphæðir sem hægt væri að en það skapaði samt sem sókna-rflokksins hefðu oft hreyft þessu máli og síðast með þings- ályktunartillögu á síðasta Al- þingi, sem ekki hefði fengið neinn hljómgrunn þá. Hún hefði samt sem áður borið árangur, því frumvarp þetta væri henni mik- ið til samhljóða. Brýna nauðsyn bæri til að bæta hlut sparifjáreigenda og draga úr dýrtíðarspennunni. Ekki væri það einsdæmi að spari fé væri verðtryggt heldur væri það nú gert í ýmsum löndum. Ýmis atriði þessa frumvarps þyrftu athugunar við og nefndi hann m.a.: Að breyta þyrfti upp setningu frumvarpsins, svo skír- ar kæmi í lós að verðtrygging sparifjár væri aðalatriðið. Gæta þyrfti þess að viðskiptabankarn ir lentu ekki í þeirri aðstöðu að þurfa að taka inn mikið af verð tryggðu sparifé, en útlán þeirra væru óverðtryggð. Gæta yrði þess að mönnum yrði ekki skömmtuð migjöfn kjör af Seðla í EFRI deild fylgdi Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmála- ráðherra úr hlaði stjórnarfrum- varpi til laga um atvinnuréttindi vélstjóra á íslenzkum skipum. Sagði ráðherra að forsaga þessa frumvarps væri sú, að 1964 hefði menntamálaráðherra skip- að fimm manna nefnd til at- hugunar á menntunarkröfum og atvinnuréttindum vélstjóra. Eft- ir nokkurra mánuða undirbún- ingsstarf hefði nefndin samið frumvarp til laga um vélstjóra- nám, og í kjölfar þess hefðu orð- ið að koma fram nýjar reglur um atvinnuréttindi vélstjóra. Námið skildi nú skiptast í fjögur stig. Vélstjóranám 1. stigs svarar til minna námskeiðs Fiskifélags íslands, vélstjóranám 2. stigs er svarar til meira námskeiðs Fiski- félags íslands. vélstjóranám 3. stig er svarar að nokkru til vél- skólanáms án rafmagnsdeildar, en vélstjóranám 3. stigs er svarar að nokkru til vélskólanáms án rafmagnsdeildar, en vélstjóra- nám 4. stigs ásamt sveinsprófi í vélvirkjun svarar til þriggja vetra náms í vélskólanum að undangengnu iðnnámi í járn- smíði. Fjórða og síðasta stig vél- stjóranáms mundi ekki veita nein atvinnuréttindi samkvæmt frum- áður góð áhrif ef að það væri hið opinbera sem á undan gengi með góðu fordæmi. Þá taldi hann að ekki væri um að ræða í frumvarpi þessu neina afger- andi útgjaldahækkun fyrir ríkis- sjóð en hinsvegar væri tekjuöfl- unin aukin. Eggert G. Þorsteinsson tók að lokum til máls og kvað það vera að um útgjaldaaukningu yrði að ræða. Með lögum þessum yrði opnaðir möguleikar fyrir sveita- félögin sem þau myndu senni- lega nota sér og það þýddi aukin útgjöld. Til þess væri ætlast að þær íbúðir sem sveitafélögin byggðu yrðu leigðar út fyrir sannvirði, en það væri ekki hægt ef gömlu húsaleigulögin væru í gildi og gætu þau þannig dregið úr framkvæmdum. Að umræðum loknum var mál- inu vísað til annarrar umræðu og heilbrigðis- og félagsmála- nefndar með 17 samhijóða at- kvæðum. bankanum, en hætta yrði á að slíkt kæmi fyrir ef verðtrygging lánaua væri ekki alltaf miðuo við hið sama. Lúðvík Jósefsson (K) sagðl að nauðsynlegt væri að grafast fyrir um það hver orsök verð bólgunnar væri í raun og veru. Enginn vafi hefði leikið á því að verðbólguáhugi hefði staðið á bak við ýmsar framkvæmdir fjár málamanna að undanförnu og svo gæti orðið, þrátt fyrir þessi lög, þar sem ekki væri kveðið á um að öll lán yrðu verðtryggð. Það yrði að gera sér grein fyrir því, hvort þessi löggjöf í raun og veru stuðlaði að því að draga úr verðbólgu og til þess að hútt næði tilætluðum árangri yrði að felast í henni víðtæk verðtrygg- ing og ráðstafanir til hömlunar gegn dýrtíðinni. Að lokinni umræðu var frum- varpinu vísað til annarrar um- ræðu og fjárhagsnefndar með 25 samhljóða atkvæðum. varpi þessu, nema viðkomandi vélstjóri hefði einnig lokið sveina prófi í vélvirkjun. Reglur þær er kveðið væri á í frumvarpinu um lámarksfjölda vélstjóra á skipum, væru ekki mikið breyttar frá ákvæðum nú- gildandi laga, þó væri yfirleitt um lækkun að ræða á skipum með undir 4000 hestafla vélar. Talsverðar breytingar væru gerð ar á ákvæðum um starfstíma eða siglingatíma sem miðuðu í þá átt, að veita réttindi eftir styttri starfstíma en áður, við vélar með lágri hestaflatölu. Því hærra námstigi sem vélstjóri hefði lok- ið, þeim mun fljótari yrði hanti að vinna sér inn réttindi til yfir- vélstjórnar á sömu vélastærð. 1 frumvarpinu væri gert ráð fyrir að vélstjórastarfið greind- ist í þrjá flokka, yfir vélstjóra, undirvélstjóra og aðstoðarvél- stjóra. Aðstoðarvélstjórar skyldu einungis vera á þeim skipum, þar sem krafizt væri fjögurra vél- stjóra, þ. e. einn aðstoðarvélstjóri á skipum með fimm vélstjóra, tveir aðstoðarvélstjórar á skiputn með sex vélstjóra og þrír aðstoð- arvélstjórar á skipum með sjö vélstjóra. Væri aðstoðarvélstjóra hugtakið því þrennt frá gildandi lögum. >á gerði frumvarpið ráð fyr- ir að réttindi minnanámskeiða manna yrði aukið úr 400 hest- öflum í 500 hestöfl á fiskiskip- um, en meira-námskeiðs manna úr 900 hestöflum í 1000 hestöfl á fiskiskipum og úr 600 hestöfl- um í 800 hestöfl á flutningaskip- um. Þá væru réttindi vélavarða aukin úr 15 hestöflum í 50 hest- öfl. Á FUNDUM alþingis í gær var lögð fram tillaga til þingsálykt- unar um, að framfylgt verði lög- um um það hlutverk Seðlaibank- ans að tryggja atvinnuvegunum. hæfilegt lánsfé. Flutningsmenn tillögunnar eru Þórarinn Þórar- insson, Ingvar Gíslason og Hall- dór E. Sigurðsson. Tillaga til þingsályktunar um athugun á samdrætti í iðnaði. Flutningsmenn Einar Ágústsson, Ingvar Gíslason, Jón Skaftason og Þórarinn Þórarinsson. Frumvarp til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að selja eyðijörðina Hálshús í Reykja- fjarðarhreppi. Flutningsmenn: Hannibal Valdimarsson, Sigurður Bjarnason og Sigurvin Einarsson. mætti það teljast, að þeir semspara, Barnaverndardagurinn á laugardaginn 1. umræða um breytingar á lögum um Húsnæðismálastofnunina Frumvarp um atvinnu- réttindi vélstjóra rætt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.