Morgunblaðið - 22.10.1965, Page 18

Morgunblaðið - 22.10.1965, Page 18
18 MORGUNBLAÐHÐ FSstudagur 22. október 1965 Athugasemd varðandi mjófkurumbúðir 3ÞAÐ verður ekki hjá því komizt eð gera athugasemdir við upp- lýsingar um mjólkurumbúðir, eem Gylfi Hinriksson og Kristján Jóh. Kristjánsson birta í Morgun- biaðinu þann 17. þ.m., þar eð þær eru, að einni undantekinni, al- rangar og villandL 1. t>að er ekki „þversögn Mjóikursamsölunnar“ að bannað er að selja mjólk úr brúsum í mjólkurbúðum, en leyft að senda bana í þeim umbúðum til ýmissa stofnana til eigin nota. Um mjólk urbúðirnar gengur daglega margt iólk, og ekki er ómögulegt, að eraitberar séu á meðal þess. Stöð vgt er verið að opna út á götu ©g hleypa ryki inn, og aftur eru brúsarnir opnaðir til að mæla úr þeim. Við slíkar aðstæður er mikil hætta á, að mjólkin óhireinkist, og um smithættu get- ur verið að ræða. í stofnunum, «v« sem mötuneytum og sjúkra- busum, er lítil hætta á, að mjólk in óhreinkist, enda getur not- endinn sjálfur gætt hennar þar. íæssar sömu reglur um notkun twúsamjólkur gilda á Norðurlönd EYJAFLUG MK> HELGAFELLI NJÓTis >ÍR ÓTSÝNIS, FLJÓTRA OG ÁN/CGJULEGRA FLUGFERÐA. AFGREIÐSLURNAR OF'NAR ALLA DAGA. REYKJAVÍKURFLUGVElll 22120 unum og í Bandaríkjunum að minnsta kosti. 2. í greinargerð Mjólkursam- sölunnar var gerður samanburð- ur Hagstofunnar, lét oss fá þess- umbúðum. Eins lítra hyrna kost- ar 58 aura, en scholle 88 aura á lítra. Með þennan samahburð var rétt farið, í sumum blöðun- um, t.d. í Morgunblaðinu. í hug- leiðingum sínum um greinargerð ina gerði eitt af blöðunum rang- an samanburð. Þar var borið sam an verð á hyrnu og verð á Scholleumbúðum með áfyllingar- kostnaði. Vér hringdum strax til blaðsins og óskuðum eftir, að þessi mistök yrðu leiðrétt. 3. Mjólkursamsalan greiðir ekkert einkaleyfisgjald af hyrn- unum. Á slíkt gjald hefur aldrei verið minnst í sambandi við þær. Hyrnuvélarnar eru ekki seldar heldur leigðar. Greidd er stofn- leiga og framleiðsluleiga, sem koma á móti afskriftum af vél- um, sem keyptar eru. 4. „Gylfi og Kristján sögðu, að Þeir gerðu ráð fyrir, að hægt væri að framleiða Pure-pak um- búðirnar með mjög svipuðu verði og er á hyrnunum", stendur í Morgunblaðinu. Varla er þetta mikið athugað af þeim félögum, og Mólkursamsalan getur ekki byggt neinar fyrirætlanir á slík- um spádómum. Fyrirtækið Elo- pak í Osló framleiðir Pure-Pak umbúðirnar á lisens fyrir Norð- urlöndin og ísland. Samkvæmt bréfi frá Elopak, dagsettu 16. þ.m., kostar 1/1 ltr. Pure-Pak f.o.b. Oslo 69,3 aura. Hingað kom in mundi hún kosta 86 aura og vera 28 aurum dýrari en hyrnan. f viðtali þann 19. þ.m. tjáði Harald Riiber, sölustjóri Elopak oss, að islenzkt fyrirtæki mundi ekki fá lisens til að framleiða þessar umbúðir, og að engar iik- ur væru á, að hér væri hægt að framleiða þær á verði, sem væri samkeppnisfært við Eiopak, sökum þess, að hér yrði fram- leiðslan svo lítil miðað við það, sem þar er framleitt. Þessar upp- iýsingar leyfði Harald Riiber að hafðar væru eftir sér í blöðum. 5. í greinargerð Mjólkursamsöl- unnar eru tölur um stærð fjöl- skyldna í Reykjavík því miður rangar. Áki Pétursson, starfsmað ur á verði á hyrnum og Scholle- ar tölur, og höfðu honum þá orð- ið á mannleg mistök. Áki telur rétt, að nafns hans sé getið í sambandi við þessi mistök, svo að öðrum sé ekki um kennt. 6. Upplýsingar Gylfa og Krist- jáns um pökkunarkostnað í Scholleumbúðir eru rangar. Af- köst Schollevélanna, sem eru í notkun hér á'landi, eru 1200 ltr. á klst., en ekki 2000 ltr. Á Akur- eyri, þar sem pakkað er í 10 ltr. umbúðir, vinn^i tveir menn við vélina allan dáginn, en ekki einn maður. Af fenginni réynslu er komið í Ijós, að pökkunarkostnað urinn er nokkru hærri í Scholle- umbúðir en í hyrnur, og er véla- kostnaður þá að sjálfsögðu með- talinn. 7. Samkvæmt prentuðum heim ildum frá síðastliðnu sumri, er notkun Scholleumbúða 7%% af heildarnotkun hliðstæðra um- búða í Bandaríkjunum, og stend ur þetta ekki í neinu sambandi við tölu mjólkurbúa, enda hefi ég engan slíkan samanburð gert. Gylfi og Kristján láta hafa eftir sér, að tilgreindar mjólkurstöðv- ar í Woodstock og Boston noti nær eingöngu Schollepakka, að- eins til viðbótar „1/10 lítra hyrn- ur undir þann rjómaskammt, sem nægir út í kaffibolla". Hér er við hendina nákvæm lýsing á hinni umræddu mjólkurstöð í Wood- stock. Þar eru taldar upp 17 átöppunarvélar af ýmsum tegund um, sem stöðin hefur í notkun. Aðeins 4 af þeim eru Scholle- vélar. Tekið er fram, að með þeim séu fylltar 2ð lítra umbúð- ir til annarrar notkunar. Auðsætt er því, að í Woodstock er aðeins lítill hluti þeirrar mjólkur, sem ætluð er til heimilisnota, seldur í Schollepökkum. Stefán Björnsson. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu SfLDARVERKSMIÐJUR * Með okkar löndunarkerfum getum við boðið yður — Mikil afköst — 300 tonn á klukkutímann — Fullkomna nýtingu aflans og SÍLDINA vigtaða um leið. Sjáum um uppsetningu og veitum alla tæknifræðilega þjónustu. LEITIÐ NÁNARI IJPPLÝSINGA. Útvegum með stuttum fyrirvara fullkomin löndunarkerfi til löndunar á SÍLD frá Banda- ríkjunum. Löndunarkerfi þessi hafa áratuga reynslu að baki sér og hafa gefið sévstaklega góða reynslu. SJÓVEff* HF. AUSTDRSTRÆTI 14 REYKJAVÍK SÍMI 22870. Vélaverkstædi Sig. Sveinbjörivsson SKÚLATÚNI6 REYKJAVÍK SÍMAR 15153, 23520. Kækjukassi við Þiðriksvallavatn. Furðulegt hirðuleysi og sóðaskapur við Þiðriksvallavatn ÞEGAR fréttamaður Mbl. átti leið um Strandasýslu fyr ir skömmu frétti hann af furðulegum atburði. í sumar, þegar fólk var að veiðum við Þiðriksvallavatn, komu þrír bílar frá Kaupfélaginu á Hólmavík með fullfermi af pappakössum og losuðu ofan í vatnið. Að því er blaðinu var sagt mun hafa verið kveikt í a.m.k. einhverju af kössunum. í kössunum var rækja og kann að vera, að hún sé gott æti fyrir silunginn í vatninu en hins vegar hefði verið hreinlegra að losa kassana hvern fyrir sig í stað þess að kasta þeim öllum í vatnið Hefði þá fiskurinn náð til æt isins, auk þess sem mikill ó- þrifnaður er að kössunum við þetta fagra vatn. Kassi sá, er myndin er af lá fyrir utan veginn, sem liggur upp að vatninu og er svo sannar- lega allt annað en þrifnaður að honum. Ástæða er tíl þess að spyrja: Hvers vegna var all miklu magni af ópillaðri rækju úr frystihúsi Kaupfé- lagsins á Hólmavík kastað í Þiðriksvallavatn? Hvers vegna voru rækjurnar ekki pillaðar og frystar? Ef þér fíiíjiií myndir stækkum við þær og málum í eðlilegum litum. Stærð 18x24. Kostar kr. 15,00. ólitað ar kosta kr. 8,00. Póstsendið vinsamlega mynd eða filmu og segið til um liti. Foto Kolorering, Dantes Plads 4, Köbenhavn V. Rest bcst kodilar Enduriiýjum gömlu sær.gurn- ar, eigum dún- og fiðurheld ver, æðardúns- og gæsadúns- sængur og kodda af ymsum stærðum. — Póstsendlum — Dún- og fidurhreinsun Vatnsstíg 3. — Sími 18740. (Orfá skref frá Laugavegi). [ Skorradalsvatn fullt Akranesi, 20. okt. Skorradalsvatn er nú fullt, enda hafa fódæmabýsn stiæymt úr loftinu undanfarna óveðurs- daga. Flóir nú vatn óspart yfir | fyrirhleðsluvegginn, sem lokar j vesturenda vatnsins. Haft er eft | ir Þórði bónda í Haga, syni ! Runólfs bónda á Hálsum, að I vatnsbor’ð Skorradalsvatns hafi aldrei í mannaminnum staðið lægra en það hefði gert á þessu sumri. Þetta kemur og heim við vatnsmælingar í ósnum, sem annazt er frá Andakílsárvirkjun allan ársins hring. — Oddur. Félagslíf lR - Frjálsíþróttadeild Innanhússæfingar deildar- innar fram að áramótum verða sem hér segir; Karlar: Mánudaga kl. 9—10. Miðvikudaga kl. 6.20-—8. Föstudaga kl. 7.20—8.50. Laugardaga kl. 2.50—5. og sunnudaga kl. 2.50—4 verða léttar æfingar og leik,ir. Stúlkur: Mánudaga kl. 10—10.30. Föstudaga kl. 6.20—7.20. Drengir (13—15 ána): Þriðjudaga og föstudaga kl. 5.20—6.20. Sunnudaga kl. 4—5. Þjálfari er Jóhánnes Sæmunds son. Mætið vel og stundvis- lega. — Æfingargjald fyrir hvern tíma er kr. 10 fyrir fullorðna og kr. 5 fyrir drengi. Nýir félagar eru velkomnir og geta látið skrá sig í æfjngartímunum. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.