Morgunblaðið - 23.10.1965, Blaðsíða 15
Laugarð'agw 23. október 1965
MORGUNBLAÐIÐ
15
— Kristján, minnirtg
Framhald aí bls. 11.
varð að gera á þeim tímum, enda
var hann greindur maður og
glöggur, traustur og farsæll í
störfum. Kristján var ekki stór
vexti né mikill að burðum, en
það vann hann upp með verk-
lagni sinni og seiglu, svo að
hiutur hans varð sizt minni en
annarra. Hann var góður smiður
og oft til hans leitað með ýmis-
legt, sem laga þurfti. Og örugg-
lega mátti treysta því, að hvert
það verk, sem honum var falið,
var vel af hendi leyst.
Lengst af ævi var Kristján í
vinnu hjá öðrum, en um nokk-
Urt árabil bjó hann á Eyri við
ísafjörð í sambýli við bróður
einn, Sigurð. Þá átti ég heimili
hjá þeim móðurbræðrum mínum
«m tiu ára skeið á uppvaxtar-
érum minum. Það var mér mik-
iis virði að eiga þess kost, að
njóta samvista og hollra ráða
þessara mætu manna. Ég á
þeim margt að þakka og marg-
ar góðar minningar frá þeim
árum.
Aidrei varð bú Kristjáns stórt,
en skepnur sinar annaðist hann
af mikilli umhyggjusemi, enda
var hann mjög mikill dýravin-
ur.
Kristján var hógvær maður,
nokkuð dulur í skapi og ekki
margorður. Gat sumUm fundizt á
stundum, að hann væri nokkuð
kaldlyndur, en við nánari kynni 1
kom annað í ljós. Þá fundu menn
að „hjartað var hlýtt, sem und-
ir sló.“ Og barngóður var Kristj-
án. Hann kvæntist aldrei og átti
engin börn sjálfur, en börn hænd
ust að honum og voru vinir hans.
Mörg ár var hann virkur þátt-
takandi í ungmennafélagshreyf-
ingu sveitar sinnar og hann hélt
áfram að vera ungur í anda, þótt
árin færðust yfir hann.
Seinustu æviárin dvaldist
Kristján í Reykjarfirði hjá þeim
hjónunum Steinunni Ingimund-
ardóttur og Hákoni Salvarssyni.
Þá var heilsa hans farin að bila
og kraftar að þverra. En hjá
þeim hjónum átti hann öruggt
athvarf og þökk sé þeim fyrir þá
umhyggju, sem þau sýndu hon-
um.
Það kann að vera að ekki
þyki neinn ' héraðsbrestur, þótt
gamall maður falli í valinn.
En með Kristjáni er farinn einn
hinna óeigingjörnu, mætu manna,
sem um langan tíma hafa mynd-
að hinn trausta kjarna íslenzks
þjóðfélags og óbrotgjarnir staðið
í lífsins straumL
Kæri frændi. Ég vil að leiðar-
lokum þínum þakka þér það,
sem þú gerðir fyrir mig. Ég veit,
að þótt þú sért horfinn yfir móð-
una miklu, mun minningin lifa
um góðan mann og drenglynd-
an, í hugum þeirra, sem þekktu
þig bezt.
ÓIi Kr. Jónsson.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN 1500
©
f sr
ARGERÐ 1966
Rúmgóður og þœgilegur.
$4 ba. vél, fottkœld, sparneytin,
staðsett atturí.
Biskahemlar að tramain.
Endurbœttur framöxull og gírkassi.
Tvœr farangurs geymslur.
Frábœr vandvirkni á öltum
innri og ytri búnaði
Volkswagen 1500 er fyrírliggjandi
VERÐ KR: 189.200.-
SýníngerbíEI á staðmim
S'imi
21240
HEILÖVIRZLUNIN
HEKLA hf
Skólasetn. í Skógaskóla
HÉRAÐSSKÓLINN að Skógum
undir Eyjafjöllum var settur
þriðjudaginn 12. okt. Skólastarf
var þá fyrir nokkru hafið, því
að nemendur 3. bekkjar komu í
skólann hinn 1. okt. og nemend-
ur yngri deilda 10. okt.
Séra Sigurður Einarsson í Holti
flutti bæn. Síðan flutti skóla-
stjórinn Jón R. Hjálmarsson setn
ingarræðu. Minntist hann sér-
staklega Williams Th. Möller
kennara, er andaðist hinn 19.
júlí sl. William Möller hafði ver-
ið kennari við skólann frá því
haustið 1950 og notið mikils álits
og vinsælda samkennara sinna
og nemenda. Kennslugreinir hans
höfðu einkum verið stærðfræði
og eðlisfræði. Rakti skólastjóri
helztu æviatriði Williams og
fór miklum viðurkenningarorð-
um um ágætt starf hans í skól-
anum. Að endingu bað hann alla
að heiðra minningu hins látna
með því að rísa úr sætum.
Önnur breyting á kennaraliði
var sú, að Finnur T. Hjörleifs-
son hvarf frá skólanum, en hann
hafði kennt þar íslenzku um
tveggja ára skeið. Þakkaði skóia-
stjóri starf hans og bauð vel-
komna nýja kennara, þá Guð-
mund Magnússon frá Brúarlandi
í stærðfræði og Matthías Jóns-
son frá Reykjavík í íslenzku. Þá
bauð hann og velkomna nýja
ráðskonu mötuneytis, frú Magn-
eu Gunnarsdóttur, og þakkaði
frú Ragnheiði Hákonardóttur. er
gegnt hafði því starfi sl. vetúr.
Nemendur í skólanum í vetur
verða 104 og skiptast þeir , fjór-
ar bekkjardeildir. Flestir nem-
enda er úr Rangárvallasýslu og
Vestur-Skaftafellssýslu eða 91
samtals. Allmikla verklegar fram
kvæmdir hafa verið við skólann
á liðnu sumri. Lokið er við að
fullgera nýbyggingu með tveim-
Framih. á bls. 18
Verzlun til sölu
Kven- og barnafataverzlun við eina af aðalgötum
bæjarins er til sölu. Tilboðum sé skilað á afgreiðslu
blaðsins íyrir þriðjudagskvöld, merkt: „Trúnaðar-
mál — 2799“.
Ungur maður
getur fengið atvinnu við akstur og afgreiðslustörf.
Aðeins reglusamur og trúverðugur maður kemur
til greina. Upplýsingar í verksmiðjunni, Þverholti 17.
Vinnufatagerb Islands hf.
ÞEGAR ÞÉR ÞURFIÐ AÐ STÖÐVA SNÖGG-
LEGA GETIÐ ÞÉR TREYST
G E N E R A L SNJÓHJÓLBÖRÐTJN UiVJL.
★ Höfum flestar stær#-
ir af snjóhjólbörð-
um.
★ Eigum einnig nýju
staerðirnar á ame-
ríska bíla.
<685-15, 735-15,
775-15, 815-15,
855-15, 645-15,
695-14, 735-14,
775-14, 825,14.)
tkr Stórt úrval af felg-
um á mjög hagstæðu
verði.
★ Neglum snjónagla
í hjólbarða.
á. Skiptum undir bíf-
reið yðar meðan þér
biðið.
★ l’óstsendum hvert
á land sem er.
★ Hafið samband við
okkur strax í dag.
hjóibarðinn hf.
1ADCAV1C 178 M 3S8C0
Úff, Það var
eins gott að
hann var á
G E N E R A L
snjódekkjum.