Morgunblaðið - 23.10.1965, Blaðsíða 30
30
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. október 191
iiR býr sig undir
Evrópukeppni í
körfuknattleik hér
Erfiðasta raun hinna
*
ungu Islandsmeistara
ÍSLANDSMEISTARAR KR i körfuknattleik 1965, búast nú af full-
nm krafti undir átökin i stærstu raun íslenzkra körfuknattleiks-
liða, Evrópukeppni meistaraliða.. Eins og menn rekur minni til urðu
KR-ingar Islandsmeistarar 1965 eftir geysiharða og skemmtilega
keppni við ÍR.
Síðan hafa þeir æft mjög vel í
sumar undir handleiðslu hins
bandaríska Philips Benzings, en
Sveltur,
CASSIUS Clay heimsmeistari
í hnefaleikum, sté á vigt
í gær og sýndi hún að
hann hafði létzt um 7.7 kg á
tveimur vikum. Þakkaði meist
arinn það ströngu mataræði
sínu.
Fyrir tveim vikum vó Clay
104.7 kg. 1 gær vó hann 97 kg.
„Ég hef haldið í matinn við
mig“, sagði hann. „Allt sem
ég borða í dag eru baunir og
smá kjötsneið. Það er miklu
auðveldara að létta sig með
ströngu mataræði en puða og
puða í Iíkamsæfingum“.
Clay ver titil sinn 22. nóv.
n.k. i Las Vegas móti Floyd
Patterson.
það eru einmitt hann og fyrir-
rennari hans, Robertson, sem
hafa skapað þetta sterka lið sem
KR hefur nú á að skiþa. Um
tíma leit út fyrir að Benzing yrði
að láta af þjálfun liðsins vegna
brottfarar af landinu, og hafði
hinn þekkti þjálfari, Helgi Jó-
hannsson, heitið aðstoð sinni til
þess að KR gæti mætt sem sterk-
ast til leiks, en úr því rættist
þannig að dvalarleyfi Benzings
fékkst framlengt og heldur hann
áfram að þjálfa liðið.
» LIÐ KR
KR-liðið er óþarfi að kynna
fyrir lesendum blaðsins, það var
lengi vel alltaf nefnt ihið unga og
efnilega lið KR, og hefur sannar-
lega fyllt upp allar vonir sem
við það voru tengdar og er ekki
lengur ungt og efnilegt, heldur
ungt og mjög sterkt lið, tvímæla-
laust langsterkasta liðið á land-
inu í dag. Það er mjög vel leik-
andi lið, hittni þess í körfuskot-
um er mikil, og hraðupphlaup
Hér er sundfólk ÍR, sem mesta frægð hefur aflað félaginu. Frá
vinstri er Jónas Halldórsson þjálfari í meir en 20 ár. Þá Hörður
Finnsson, Norðurlandamethafi í bringusundi, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, mesta afrekskona Islands í sundi og Guðmundur
Gíslason, sem sett hefur um 70 íslenzk sundmet.
Nýkjörnir íslandsmeistarar KR ásamt þjálfara sínum, Philip Benzing, til hægri.
þeirra eru mjög skæð vopn. Helzti
ókostur liðsins er skortur á
breidd, þ.e.a.s. einungis fimm eða
sex menn eru af þeim styrkleika,
sem liðið þarf á að halda. Þetta
veikir að vonum átakamátt liðs-
ins, sérstaklega í hörðum og
hröðum leikjum, þar sem þörf
er á að skipta um menn til hvíld-
ar. Er ekki að efa að þessi galli
liðsins verður því fjötur um fót
í keppni sem þeirri er framund-
an er, á móti þrautþjálfuðum
mótherjum. En vonandi dugar út-
hald máttarstólpa liðsins og þarf
þá ekki að óttast um árangurinn.
Endurheimti
DIOK Tiger frá Nigeríu er aftur
heimsmeistari í millivigt hnefa-
leika. Eftir harða keppni í 16
lotu leik hans við meistarann
Joey Giardello frá Bandaríkj-
unum var úrskurður dómaranna
um sigur Tigers einróma.
Dick Tiger hafði beðið og bar-
izt fyrir að fá þennan leik í 2 ár.
Hann tapaði fyrir Giardello í
jöfnum leik og voru dómarar
ekki sammála um hvorum sigur
bæri. En nú fékk hann tæki-
færið — og titilinn. 17.064 áhorf-
endur sáu leikinn í Madison Sq.
Garden.
I SÆNSKA LIÐIÐ
Mótherjar KR-inga í fyrstu
umferð Evrópukeppninnar að
þessu sinni eru'sænsku meistar-
arnir Alviks-Boldklub, Bromma,
Stokkhólmi. Þeir hafa verið
sænskir meistarar 1964 og ’65 og
tóku við tigninni frá félaginu
KFUM Söder, sem hafði verið
sænskur meistari um margra
ára skeið, og voru í því liðið
menn eins og bræðumir Bo og
Staffan Widen, sem 1 mörg ár
voru aðalstoðir sænska landsliðs-
ins, svo og Klinteberg og margir
aðrir leikmenn á landsliðsmæli-
kvarða. í Alviks-liðinu eru a.m.k.
þrír landsliðsmenn, sem léku
með Svíum á Polar Cup mótinu í
Helsinki 1964, þeir Kai og Egon
HSkonson og Lars Grönlund,
allt sterkir og mjög fljótir leik-
menn. Liðið er fremur ungt að
árum, líkt og KR-liðið, en leik-
menn þess hafa mikla reynslu í
alls kyns stórleikjum. Alvik tók
þátt í Evrópukeppninni sl. ár og
sigruðu liðið Wolve s,sem var
hollenzkur meistari, í 1. umferð,
en töpuðu svo með miklum
mun gegn Júgóslavíumeisturun-
um OKK Beograd í 2. umferð.
I ÚTLITIÐ
Vafalítið er að keppni þessara
tveggja liða verður jöfn og spenn
andi og skal ósagt látið hvor
verður sterkari aðiiinn. Þó er
ekki frá því að óhætt sé að gera
sér allgóðar vonir um að KR-
ingar nái í 2. umferð þessarar
keppni og verði þar með annað
íslenzka liðið, sem nær þeim á-
fanga, en ÍR-ingar náðu, eins og
menn muna, í 2. umferð keppn-
innar í fyrra með sigrinum yfir
Irum.
Fyrri leikur liðanna fer fram
í.íþróttahúsinu á Keflavíkurflug-
velli sunnudaginn 7. nóvember og
seinni leikurinn verður leikinn
um það bil viku seinna í Bromma
í Svíþjóð. Því miður verður ekki
hægt að bjóða þessum ágætu gest
um upp á leik í hinni síðbúnu
íþróttahöll í Laugardal, heldue
verður að notast við milljón doll-
ara húsið suður í herstöð Banda-
ríkjanna, og er ekki vanzalaust
að nýja íþróttahúsið sé ekki til—
búið ennþá þrátt fyrir fögur fyrií
heit forráðamanna íþróttamála á
íslandL
Innanféla«;smót
í Kastgreinum
FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD ÍR
efnir til innanfélagsmóts 1 kast-
greinum frjálsíþrótta í dag, laug
ardag 23. okt. kl. 1.30 á Mela-
vellinum.
Annað innanfélagsmót I sömtl
greinum verður á vegum deildar-
innar kl. 4 síðdegis á mánudag
26. okt. á sama stað.
Tveir fræknustu sundmenn
landsins gerast þjálfarar
Guðmundur G'islason og Hörbur
B. Finnssson t>jálfarar ÍR
GUÐMUNDUR Gíslason og Hörð
ur B. Finnsson, tveir beztu sund-
menn íslands frá upphafi og þeir
einu, sem sett hafa Norðurlanda-
met í sundi, hafa nú tekið að sér
þjálfun hjá sunddeild ÍR, en í
nafni félagsins hafa þeir keppt
undanfarin ár og munu einnig
taka þátt í keppni áfram. Hafa
ÍR-ingar uppi áform um að gera
átak til eflingar sundíþróttinni
og bjóða öllu ungu og efnilegu
sundfólki og unglingum, sem á-
huga hafa á sundkeppni, til æf-
inga undir stjórn þessara ágætu
sundmanna. Æfingarnar eru hafn
ar, en næsta æfing er á mánu-
dagskvöldið kl. 8 í Sundhöllinni.
Á undanförnum árum hafa þeir
Guðmundur og Hörður ásamt
Hrafnhildi Guðmundsdóttur unn-
ið félagi sínu flestar og oft allar
sundgreinar fullorðinna á sund-
mótum hér. Minna hefur verið
um þátttöku unglinga af hálfu
ÍR. Nú hafa afreksmennirnir tek-
ið að sér þjálfun hjá deildinni og
má því ætla að bæði áhugasamt
sundfólk og þjálfararnir leggist á
eitt um að nú myndist ný „kyn-
slóð“ innan félagsins, sem setji
markið eigi lægra en sú, er verið
hefur og enn er, hefur náð.
Guðmundur Gislason og Hörð-
ur B. Finnsson eru ásamt Hrafn-
hildi í fremstu röð íslenzks sund-
fólks og eru þessi þrjú hand-
hafar langflestra íslenzkra sund-
meta. Einnig hafa æft innan
deildarinnar ýmsir unglingar,
sem náð hafa sæmilegum ár-
angri.
En nú er þeir Guðmundur og
Hörður hafa failizt á að verða
leiðbeinendur hina yngri er það
von forráðamanna sunddeildar
ÍR, að sem ^lestir, er áhuga hafa
á sundkeppni noti tækifærið og
hljóti tilsögn hjá hinum reyndu
sundgörpum.
Æfingar deildarinnar eru á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum (fyrir keppendur)
kl. 8. Ný stjórn hefur tekið við
störfum innan sunddeildar ÍR.
Formgður hennar er Örn Harð-
arson en aðrir í stjórn, Jónas
Halldórsson, Sigurjón Þórðarson,
Guðmundur Gíslason, Hörður B.
Finsson og Atli Steinarsson.