Morgunblaðið - 23.10.1965, Page 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. október 1965
Alfa Ásgeirsdóttir —
Nú andar naeturblær um bláa
voga,
við'bleikan himin daprar stjörn-
ur loga.
Og þar sem forðum vor í sefi
•söng,
nú svífur vetrarnóttin dimm og
löng.
Tómas Guðmundsson.
ÞEGAR ég kom frá útlöndum sl.
mánaðamót, var komið haust en
engin voru þá enn komin sval-
viðri, þótt blóm væru tekin að
flöna og lauf tekin að falla af
trjánum hér úti í garðinum. Trén
stóðu enn I miklum skrúða, nú
voru laufblöðin purpurarauð og
bleik og allt þar á milli, og þau
sem fallið höfðu mynduðu í garð
inum litríkt málverk, hvílík blæ-
brigði og fegurð. Og enn var
svanurinn ekki þagnaður. En í
ríki náttúrunnar og í hugum
manna bjó um sig haustsstemmn
ingin, sumarið var á enda runn-
ið. Það mátti búast við kóln-
andiveðri, því að eftir haust kem
ur vetur, oft kaldur og bitur.
Ég kom utan af landi fyrst í
ágúst og kom við hjá Ölfu, þar
sem það er í leiðinni heim til
mín. Ég átti ekki von á slíkri
aðkomu, því tveim mánuðum áð-
ur var hún hress og kát, þótt ég
vissi, að hún hafði verið meira
og minna undir læknishendi í
vetur, vegna „giktar eða kölkun-
ar í baki.“ — „Skjótt hafði sól
brugðið sumri.“ Mér duldist ekki,
að hér þurfti skjótra aðgerða.
En hvers vegna var Alfa ekki á
sjúkrahúsi, svo aðfram komin?
Hún varð að styðja sig við það
sem hendi var næst til þess að
geta hreyft sig um stofuna, með
brostin augu og veika rödd. Hún
fagnaði komu okkar innilega, því
að vissulega var hún hjálpar-
þurfi. Tveim dögum áður hafði
góður læknir komið til hennar,
sem sá að hér mátti engan tíma
missa og að hún yrði að fara
strax á sjúkrahús. Alfa yildi nú
ekki gera mikið úr þessum
„kvilla“ sínum, þótt hún værí
eins og sjúklingur nýkominn af
spítala eftir mikla óperasjón og
langa legu. Ég þurfti einkis að
spyrja. Ég sá. Alfa fór svo á
Landspítalann þar sem gerð var
á henni mikil aðgerð eins fljótt
og þora þótti, og tókst það út af
fyrir sig vel, — en of seint —
Chancer — malingt — metastasis
— of seint! Samt sem áður hjarðn
aði hún furðu fljótt við eftir að-
gerðina. Hún bar sig eins og
setja, „nú færi henni fyrst að
batna.“ Yfirleitt talaði Alfa ó-
gjarnan um veikindi sín eða
sinna. Hún hefur altlaf verið
þannig, ávallt æðrulaus. Hún
hafði gengið í harðan skóla og
lært að aga sjálfa sig .
Ég flaug til útlanda eftir að
hafa fengið „vissu“ fyrir að fá
að sjá systur mína á lífi við
heimkomuna eftir mánaðartíma.
Ég fór um nokkur lönd og hafði
nokkurra daga dvöl í sex borg-
um. Alfa var alltaf efst í huga
mínum, því sendi ég henni kort
eða bréf frá hverjum dvalarstað,
ef það mætti gleðja hana, enda
reyndist það svo. Einhvern veg-
inn hafði ég það á tilfinningunni
að ég hefði flúið land til þess að
þurfa ekki að horfa á systur mína
þjást. Ég reyndi því að bæta fyr-
ir þetta „brot“ mitt með því að
senda henni eina eða tvær kveðj-
ur frá hverjum stað, sektarmeð-
vitundin mildaðist við það.
En í vor hafði ég ákveðið þessa
för mína vegna kennslustarfa
minna við Háskólann. Jú, ég kom
heim eftir mánuð með konu og
dóttur. Alfaðir hafði vissulega
verndað okkur í lofti og á láði
og legi. Við heimsóttum Ölfu á
Minning
spítalann, jú ,guð hafði vissulega
bænheyrt mig svo langt sem það
náði. Hún var hress að sjá og
tók ökkur opnum örmum. Nú
var hún komin aftur á Lands-
spítalann eftir að hafa verið
heima um tíma, þar sem allt sótti
í sama horfið. Ég held að hún
hafi þá enn verið sigurviss.
Og nú er svanurinn þagnaður,
enda blóm öll fölnuð og skóg-
gyðjan hefur fellt allt sitt hár.
Að leiðarlokum koma fram marg
ar minningar, sem geymast. Þetta
verður ekkert æviregistur, held-
ur bróðurkveðja. Frá fyrstu tíð,
er ég man eftir henni, var hún
falleg, tápmikil og góð systir.
Sérstaklega man ég hana í Hafn-
arfirði, þegar við vorum ungl-
ingar, táp hennar og dugnað, og
systurlegan kærleika. Man ég
eina vetrarnótt í marz 1930, er
við grúfðum okkur niður í stól-
ana í setustofunni á Vífilsstöðum
meðan. mamma var að yfirgefa
þennan heim eftir sjö ára veru
þar. Þótt lítill aldursmunur væri
á okkur var hún þá stóra syst-
irin, sem verndaði og huggaði
litla bróður. Hún eignaðist ynd-
isleg börn, sem hún ól upp svo
til fyrirmyndar var. Svo líða ár-
in. Þá man ég hin þungbæru ár
meðan Geiri sonur hennar háði
árum saman baráttunna við þung
bæran sjúkdóm, oftast á sjúkra-
húsum, þar slokknaði það ljós,
er skærast brann í hennar ranni.
Aldrei var æðrast, hvorki af hans
né hennar hálfu. Þar féll hetja
19 ára, sem hafði ætlað sér lang-
skólagöngu. Enn líða nokkur ár.
Þá er það, að Þorkell sonur
ihennar, yndislegur og reglusam-
ur drengur, á bezta aldri, lézt
eftir hroðalegt slys í Hvalfirði,
þegar bíll hans rann af svell-
bunka niður fyrir veginn. Alfa
var þá fljót að bregða við upp
á Akranes, eftir að sonur henn-
ar hafði fundizt rétt fyrir myrk-
ur, þar sem hann hafði legið á
köldum klakanum daglangt.
Hún vakti svo yfir honum daga
og nætur, unz yfir lauk og kom
óbuguð og æðrulaus í bæinn aft-
ur. Þó getur ekki farið hjá því,
að þessi áföll ásamt ýmsu öðru
mótlæti í lífinu grópuðu djúp sár
í sálarlíf hennar, þótt enginn
mætti merkja það. Á síðustu
myndinni sé ég Ölfu yfir mold-
um föður okkar 15. maí sl. vor.
Ég sá þá fyrst raunverulega, að
henni var brugðið, svo að eitt-
hvað meira en lítið hlau tað hrjá
hana. — Ég get ekki hugsað
mér betri né trúrri eiginkonu og
móður.
í æsku blasti lífið við ungri
og gjafvaxta mær, en Alfa var
stillt og siðprúð í æsku og gekk
hinn beina, mjóa veg dyggðar-
innar, þótt hún ætti margra kosta
völ. Seinna kom svo lífið með
öllum sínum þunga og ábyrgð
gagnvart heimilinu, það tóku að
skiptast á skin og skúrir. Sér-
staklega voru örlögin henni þung
í skauti hin seinni árin.
Og nú systin mín góð, hefur
þú verið kölluð héðan meira að
starfa guðs um geim. Það er hugg
un harmi gegn, að skjöldur þinn
var hreinn og óflekkaður, og þú
lætur okkur eftir hugljúfar minn
ingar. Ég veit, að þú kvaddir
þennan heim í þeirri trú og vissu,
sem birtast í orðum Hallgríms
Péturssonar:
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himinninn upp ég líta má,
Guðs míns ástarbirtu bjarta
bæði fæ ég að reyna og sjá.
Hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
Guðmundur Hraundal
Sfjórn kosin
í Rithöfunda-
félagi Islands
AÐALFUNDUR var haldinn 1
Rithöfundafélagi íslands sunnu-
daginn 17. þ.m. Stjórnin var
endurkjörin. Hana skipa Ragn-
heiður Jónsdóttir formaður,
Friðjón Stefánsson gjaldkeri,
Sveinbjörn Beinteinsson ritari og
meðstórnendur Halldóra B.
Björnsson og Þorsteinn Valdel
marsson. í stjórn Rithöfunda-
sambands íslands voru kjörnir
Björn Th. Björnsson, Kristinn
Reyr Pétursson og Þorsteinn
Valdemarsson.
Framlciðum áklæði
á allar tegundir bíla.
Otnr
Simi 10659. —Hringbraut 121
urumrni Rosenborg með 3:1 í sáðarl
lerk félaganxba í E v r ópukepp n inni
(14).
Reykjavíkurmeistaramótið í frjál©-
fþróttum haldið (14).
Færeyskt knattspyrnuifélaig heim»-
•ækir Reyni í Sandgerði (15).
Skarphéðinn vann UMSK í íþrótta-
.keppni (15).
Ármann hlýtur flest stig á Unglinga
meistaramóti íslands (17).
ÍR „bezta frjálsíþróttaíélag Reykja-
víkur 1965“ (21).
íslandsmótið 1 knattspyrnu, 1. deild:
Akranes—Keflavík 1:2 (21). — KR—
Keflavík 3:3 (28). — KR og Akranes
eru jöfn að stigum í deili/inni, með
13 stig, og verða að leika úrslita-
leik.
AFMÆLI
Vigdís Magnúsdóttir, Stokkseyri,
löO ára (1).
Prentnemafélagið í Reykjavik 25
ára (15).
Gideonifélagið hér á landi 20 ára
(25).
ÝMISLEGT
Sk í rnarf ontur gefinn Miklaholts-
kirkju (1).
Kartöflur seldar úr bifreiðum þar
•em kaupmenn neita að selja þær (1).
Fjórtán skipsmenn á Langjökli játa
á sig smygl (1).
Útlit fyrir sæmilega kartöfluupp-
■keru (1).
Rannsókn á ferðakoetnaði rfkis-
ty rirtækja að frumkvæði fjármála-
ráðherra (1).
3230 dilkum slátrað til 1. sept. (2).
Heimilissjóður taugaveiklaðra barna
lær 100 þús. kr. að gjöf (2).
Vöniskiptajöifnuðttrinn óhagstæður
uan 481.762 millj. kr. fyrstu 7 mán-
uði ársins (2).
Prestsembættin í landinu nú H20
talsins (3).
Skeiðará í vexti (3).
117 af 57 læknishéruðum landsins 6-
veitt (5).
Surtseyjarkvikmynd Ósvalds Knud
•ens fær ágæta dóma á Edinborgarhá-
tiðinni (5).
Susanna Reith í lögbann (7).
Kalnefndin áætlar að bændur á
Austurlandi þurfi að fá um 3000 lestir
wi heyi (8).
Leifar norræns manns firmast á
Austurströnd USA? (8).
Sætanýting Flugfélags íslands al-
drei jafngóð óg nú (9).
Góð nýting hótelanna í Reykja-
vik (10).
Karlakór Reykjavíkur undirbýr
Miðj arðarhafsferð (10).
Vatnsskortúr seinkar skólasetn-
lngu í'Hafnarfirði (10).
Jöklamenn fara leiðangur til Grín)s
vatna (ÍO).
Loftleiðir óska uppsagnar loftleiða-
samningsins við Norðurlönd (11).
Meðalafurðaverð til bænda hækk-
ar um 11,2% miðað við verð 1964
(14).
Mannabein úr heiðnum sið finnaet
í Eyjafirði (14).
Vatnajökulsleiðangur snýr aftur
vegna ófærðar á jökulinn (14).
Ekið yfir Berufjarðarskarð í fyrsta
sinn (14).
Viðurkenning veitt fyrir fagra
garða í Kópavogi og Hafnarfirði (15).
Nær 1,5 millj. kr. atf innstæðulaus-
um ávísunum í bönkunuim (16).
Syrtlingur orðinn 624 m að lengd
og 67 m hár (16).
Mánaðar ótíð í Skagatfirði eftir gott
sumar (16).
Surts-mynd Ósvalds Knudsens fékk
flest atkvæði sem bezta fræðslukvik-
myndin á fræðslukvifcmyndaviku
Evrópuráðsins (17).
Dauðar gæsir í þúsundatali á af-
rétti (17).
43 laxar gegnir í eklisstöðina í
Kollafirði í sumar (17).
Farmgjöld á stykkjavöru hækka
um 15% (17).
40—50 lestir veiddust í Veiðivötn-
um í sumar (18).
Fyrsti bíllinn fer fyrir Ólafsfjarð-
armúla (18).
Mjóikurvörur hækka í verði (21).
Verð landbúnaðarafurða ákveðið
(22).
Skipastóil íslendinga um 150 þús.
brúttólestir (22).
Vatnsvandræði í -Hafnarfirði (24).
Nýtt vikublað, „Nýr Stonmu:“, hef-
ur göngu sína (24).
Kornuppskera með lakara móti á
Héraði (24).
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu 8
mánuði ársins óhagstæður um 407,6
millj. kr. (25).
Sunnlenzkir bændur gefa austtfirsk-
um bændum allt að 1000 hestum
heys hver (26).
Nær 1000 farþegar á dag um Kefla-
vikurflugvöll í ágúst (28).
50 Ie9tir af kísiigúr fluttar út (29).
Krabbameinsfélaginu berast stór-
gjatfir (30).
Sovézk hatfrannsókna rskip í Reykja-
víkurhöfn (30).
ÝMSAR GREINAR
Samtal við dr. Bjarna Heígason (1).
Samtal við Gabriel Axel, leikstjóra
(1).
Næturfrost og matjurtarækt, eftir
Einar í. Sigurgeirsson (2).
Síðasta sj óslysið, etftir Hjálmar
Bófðarson (2).
Auðarminni, eítir sr._ Eggert Ólafe-
spn* Kvennabrekku f2)..
Langavatnsctoto, eftir Tómas Ein-
arsson’ (2). ^ . ,.;v
18ÖOO bíiar fara um Fossvog — Vega
skattur á Suðurnesjaveg (3).
Samtal við ívar Guðmundsson (5).
Samtal við í»orstein Eyvindsson,
togaraskipstj óra (5).
Kosningar í Noregi eftir Skúla
Skúlason (5).
Albert Schweitzer, iítf hans og störf
(7).
Athugasemd, eftir Guðjón Jónsson
frá Hermundarstöðum (7).
Norður Kaldadal, eftir Harald Sig-
urðseon (8).
Samtad við Metúsalem Ólafsson,
Vestur-íslending (9).
Flatey á Skjáifanda (10).
Frá Rhodesíu, eftir Viggó Oddsson
(11).
Úr erindi dr. Bjarna Helgasonar á
aðaltfundi Skógræktarfélags íslands
(íi).
Á smokkfisveiðum fyrir vestan,
eftir Friðrik Sigurbjörnsson (12).
Á flugi, rætt við einkaflugmenn
(12).
Hross og lömb flutt \$r landi (14).
Fögur hugsun — og önnur, eftir
Valdimar Guðlaugsson (15).
Um fjörð og nes, eftir sr. Gísla
Brynjólfsson (15).
Spjall við fulltrúa á þingi SUS (16).
Lauk- og hnúðjurtir, eftir Óla V.
Hannsson (16).
Að fljóta eða sökkva, eftir Bjarna
Guójóns&on (17).
Um trjávöxt á Vestfjörðum, eftir
Hákon Bjarnason (17).
Samtal við Kjartan Mohr, lögþings
mann í Tórshavn (17).
Greinargerð frá Sigurgeiri Jóns-
syni, bæjarfógeta 1 Kópavogi (18).
Um Laxveiði, eftir Gunnar Bjarna-
son, formann SVFR (18).
Frá umræðuam og tiilögum SUS-
þings um menntamál (18).
Hversdagsganga um borgina, eftir
Matthías Johannessen (18 og 19).
Samtal við Jónas Pálsson, sAifxæðing
(18).
Rabb úr Rússlandstferð, eftir Mar-
gréti R. Bjarnason (19, 21, 25)
Afmæiisrabb við Lárus Halldórseon
á Norðfirði (19).
„Bændaílokkurinn** í Búlgaríu (21).
Skyggnzt i.m á Snæfellsnesi, eftir
Magnús Finnsson (21).
Eiríkur H. Finnbogason skrifar frá
Svíþjóð (21).
Um myndskreytingu í Skógasfcóla
(21).
Saontai við stjórn Flugfólags Föroya
og forstjóra Föroya Ferðamannatféiag
(24) .
Síldarflutningar frá AusturlancU,
etftir Sigurjón Jónsson, . Vopnatfírði
(25) .
Nokkrar órökkstuddar hugleiðjng-
ar um einangrun Reykjavíjtu^ eftiir
Háikon H. Kristján®son (25).
Tólgarfeiti í nútímabúsfcap og gjald-
eyrissparnaðuT, eftir Gunnar Bjama-
son (25).
Rányrkja, ofveiði og tækniþróun,
eftir Axel Jóhanneson (26).
Vegatollur á Keflavíikurvegi, eftir
In.gv ar Guðmundsson (25).
Samtal við dr. Bjöm Sigfússon, há-
skólabókavörð (26).
10 leikhúsgestir segja álit sitt á
sjónleiknum „Eftir syndafallið'* (26).
Greinargerð dóms- og kirkjumála-
ráðuneytis vegna kaupa á húsi Guð-
mundar í. Guðmundssonar (29).
Skógrækt að Stálpastöðum (29).
Eiríkur H. Finnbogason skrifar frá
Svíþjóð (29).
Að haustnóttum í skrúðgarðinum,
ecftir Ólaf Björn Guðmundsson (30)
Þjóðverjar leggja mikið upp úr
gæðuiYv fisksins, samtal við Ernst
Stabel (30).
MANNALÁT
Guðmundur Jónsson frá Hunda-
stapa, Mýrum.
Elísabet Guðmundsdóttir, Melum
Árneshreppi.
Gissur Baldursson, Snorrabraut 40.
Sigurður Sigurðsson, fyrrv. verk-
stjóri, Norðurstig 5.
Þórunn Þórðardóttir, Vamialæk,
Hveragerði.
Elín Steindórsdéttir Briem, fyrrom
húafreyja Oddgeirshólum.
Sigurlín Kristjánsdóttir, Skipholtl
39.
Jóhann M. Kristjánsson fró Lága-
felli Syðra.
Hulda Jónsdóttir, Akranesi.
Guðfinnur tórðarson frá Vest-
mannaeyjum.
Guðrún Á. Þorkelsdóttir, Ásvalla-
götu 53.
Herdís Jónsdóttir fró Þverhamri,
Breiðdal.
Jón Jóhannesson, bræðsluimaður
Hringbraut 116.
Unnur Ólafsdóttir, Safamýri 34.
Helga Jónsdóttir, Einimel 11.
Steinunn Jóhannesdóttir, Hofsvalla-
götu 18.
GísJi J. Johnsen, stórkaupmaður.
Geir Gíslason frá Gerðum.
Jóhann Jónsson, Valbjarnarvöll'um.
I>órður Karlsson, Heigamagrastræti
56, Akureyri.
Helgi Jónsson, Drápuhlíð 3.
Rannveig Jónsdóttir, Eyri, Eyrar-
bakka.
Helga Gísladóttir, Elliheimilinu,
Akranesi.
Sigurður Kristjánsson, véletjóri,
Hamarðu.uUt 11, Hatfnarfirði.
Jóhanna Bjarnadóttir, ísafirðl.
Sigurður Guðmundsson frá Kirkju-
bóii Arnarfirði. Valgerður Bjarna-
dóttir frá Gyllastöðum.
Herúifur Björnsson, Grettisgötu 45A
Andrés J. Johnsen, minjasainari,
Asfoúð, Hafriartfirði.
Þorsteinn Þorsteinsson, kaupmaður
frá Vik.
Guðni Guðnason, Blönduhldð 24.
Sigrún Jónsdóttir frá Súðavik.
Sigurður Eyþórsson, umsjónarmað-
ur Langholtsskóla.
María M. Andrésdóttir, Stykkis-
hólmi.
Sigurveig Ámadóttir frá Arnarnesl.
Rannveig Jónodóttir, Eyri, Eyrar-
bakka.
Rannveig Þórarinsdóttir, Hvolstfiolti.
Jafcob Jónasson, Vatnsnesvegi 11.
Keflavik.
Ársæll Jónsson, múrarameistari,
X>jórsárgötu 2.
Sverrir Jónsson, prentari, Óðinsgötu
3. Rvík.
Ólafur Þ.Þ. Ágústsson, Njarðvíkur-
braut 4, Innri-Njarðvík.
Sveinbjöm Kristjánsson, bygginga-
meistari, Samtúni 2.
Margrót Jóhannesdóttir, Kleppsvegl
104.
Eirífcur Eiríksson frá Breiðunni.
Emilía Björg Pétursdóttir, Stýri-
mannastíg 12.
Guðmundur Ólafsson frá Hrafna-
gili 1 Vestmannaeyjum.
Sigurbjörg Hailvarðodóttir, Mána-
götu 14, Reykjavík.
Agnes Gestsdóttir, Laugarnesvegi
104.
Eggertína Ásgerður Guðmundsdótt-
ir, Grundargötu 7B, Siglutfirðh
Þórunn Gróa Ingvarsdóttir frá
Eyrarbakka.
Anna Jónsdóttir, Laxailóni.
Sigurður Halldórsson, skriflstofu-
maður, Vesturgötu 36, Akranesi.
Gísli Jónsson, Mundakoti, Eyrar-
bakka .
Björn Lárusson, Ósi.
Jón Bjamason, trésmiður frá Klúku
í Hjaltastaðahreppi.
Kristján Ásgeirsson, fyrrv. verzl-
unanstjóri, Flateyri.
Jón Ólafur Möller, stórkaupmaður.
Benóný Baldvinsson, Fjarðarstræti
47, ísatfirði.
Gestur Benediktsson, framreiðslu-
maður, Vesturgötu 50.
Sigurbjörg Hallvarðsdóttir, Mána-
götu 14.
Hólmtfríður Jóhannsdóttir frá Hest-
eyri.
Jóhanna Jörgensdóttir Heiðdal.
Guðmundur Vilhjálmsson, fyrrv.
f ramkvasmd a st jórf.
Árni Ingvarsson, Brávallagötu 48.
Veróníka Guðrún Jensdóttir, Hörpu
götu 4.
Ben-tína Stefánsdóttir, Grjótagötu
4. Rvík.
GuðbjÖrg Guðlaug Pálsdóttir frá
Hjörtsbæ.
Ólafur Guðnason frá Brú,
Rannveig Jónasdóttir, Bergþóru-
götu 4.