Morgunblaðið - 17.11.1965, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 17.11.1965, Qupperneq 1
32 slðiir RÚSSAR RJUFA 14 MANAÐA ÞÖGN UM AGREININGINN — við st|órnina í Peking Moskvu, 16. nóv. — NTB-AP — ») Sövélstjórnin rauf í dag fjórtán mánaða þögn á op- inberum vettvangi um ágrein ing sinn og stjórnar Kín- verska alþýðulýðveldisins — ®g réðist með hörku gegn af- stöðu og árásum Pekingstjórn arinnar í garð Sovétstjórnar- innar, en þær hafa farið vax- andi að undanförnu. Birtist í dag í „PRAVDA“, málgagni sovézka kommúnistaflokks- ins, 700 orða grein, þar sem svarað er lið fyrir lið árásar- greinum þeim, er birzt hafa í kínverskum blöðum síðustu daga. Segir „PRAVDA“ stað- hæfingar Kínverja þar stað- lausa stafi og uppspuna frá rótum, til þess ætlaðan að ala á sundurþykki og klofningi innan hins kommúníska heims. Greininni í ,.PRAVDA“ mun fyrst og fremst beint gegn árás- uiri er fram komu í síðustu viku í blaðinu „Dagiblao Alþýðunnar“ og tímairitinu „Rauði fáninn“. Þar var Sovétstjórninni fundið margt til foráttu en sérstaklega var hún fordaemd fyrir að hafa haft samvinnu við Bandaríkja- stjórn um stefnuna í Vietnam- málinu og fyrir að hafa reynt að bjarga Bandaríkjastjóm úr vandasamri aðstöðu í því máli. Stj órnmálafréttar i tarar í Moskvu segja, að greinin í „PRAVDA“ sé óvenju harðorð og bendi til þess, að Sovétstjórn in hafi gersamlega geifið upp alla von um að komast að sam- komulagi við Pekingstjórnina. Segja fréttarita.rar að þess hafi sézt merki að undanförnu, að ágreiningurinn færi vaxandi — meðal annars hafi Kínverska Aliþýðulýðveldið ekki verið á lista þeim yfir ,,eilífa“ vini Sov- étríkjanna, sem birtur var í til- efni 48 ára afmælis sovézku bylt ingarinnar. Einnig hafa þeir fyr- ir satt, að Sovétstjórnin hafi uppi Framhald á bls. 31. Landstjóri Breta í Ródesíu, Sir Humphrey Gibbs. Mynd- in var tekin, er hann kom úr kirkju sl. sunnudag. Var það í fyrsta sinn, sem hann fór út úr húsi eftir að Ian Smith lýsti yt'ir sjálfstæði Ródesíu. Dregur til úrslita i deilu Moskvu og Peking? „Viö treystum ykkur ekki“ — segir Pekingstjómin í bréfi til Sovétstjórnar- nnnar, sem OB8ERVER hefur borizt í hendur | Sovézkírog kínverskir komniúnistar virðast nú komnir út á yztu nöf í deilum sínum, sem staðið hafa síðustu sjö árin, að minnsta kosti. Brezka blaðið OBSERVER ræðir sl. sunnudag um hinar geysihörðu árásir „Dagblaðs alþýð- itínnar“ í Peking á Sovétstjórnina að undanförnu og segir jafnframt frá tveimur hréfum, sem farið hafa með leynd á milli deiluaðilanna og bárust blaðinu í hendur fyrir skömmu frá herbúðum kommúnista í Austur-Evrópu. t í bréfum þessum ber hvor aðilinn hinn þyngstu sök- um og Pekingstjórnin lýsir því yfir berum orðum, að hún treysti ekki Sovétstjórninni vegna þjónkunar hennar við Vesturveldin og þá einkum Bandaríkin. Rökstyður Peking- stjórnin þessa afstöðu með ýmsum afar athyglisverðum dæmum, sem meðal annars varpa nýju ljósi á þátt Rússa í Víetnam-málinu. Segir nánar frá bréfum þessum á blaðsíðu 10 í blaðinu í dag. ♦ Edward Crankshaw, sem er helzti sérfræðingur OBSERVERS í málum er varða kommúnista- ríkin og hefur frá upphafi fylgzt náið með deilum Kínverja og Rússa, segir, að Kínverjar hafi nú gengið lengra í árásum sínum á Sovétstjórnina en dæmi séu til þau sjö ár, sem liðin eru frá því deilur ríkjanna urðu háværar. Hafi „Dagblað alþýðunnar" í Peking birt illskeyttar árásar- greinar á Sovétstjórnina að und- anförnu og Pekingstjórnin þar með tekið frumkvæðið úr hönd- um ráðamannanna í Kreml, sem hafi unnið að undirbúningi þess að rjúfa vopnahléið,er þeir hafa haldið nú í rúm.t ár. Létu þeir verða af því i gær, svo sem sjá má í fréttinni hér að ofan. ♦ Crankshaw segir Kínverja einkum harðorða um framkomu Sovétstjórnarinnar í Víetnam- málinu. Segi þeir hana beinlínis hafa svikið kommúnista í hend- ur bandarískum heimsvaldasinn- um og saki hana jafnframt um að hafa gert tilraunir til hernaðar legrar ihlutunar bæði í Norður- Víetnam og sjálfu Kína. í „Dag- blaði alþýðunnar" segir meðal annars, að þessi framkoma Rússa hafi flett ofan af hræsni þeirra og uppgerð er þeir ræði um ein- ingu kommúnistaríkjanna og jafn framt sýnt fram á beinan fjand- Framhald á bls. 31. Orsök myrkvun- - arinnar Toronto, 6. nóv. — NTB I Frá því var skýrt í Tor- onto í dag, að bilun á raftengsli í rafstöð í Queen ston í Ontario hafi verið or- sök hinnar víðtæku myrkv unar í austurríkjum Banda ríkjanna og Kanada í síð- ustu viku. Hafði bilun þessi i för með sér, að stór hluti öryggiskerf- isins för úr sambandi og þar með fjöldi annarra tengsla. Sú truflun olli því, að 1.600.000 kílówatta straumur, umfram þann, sem venjulegur er, dreifðist í bandaríska rafnet- ið, sem aftur varð til þess að öryggiskerfi þess brast. Rafmagnsleysið náði yfir 204.000 ferkilómetra svæði, þar sem búa um 40 milljónir manna. hafa hagnazt mest landbúnaðarstefnu EBE Frakkar jT a Briissel, 16. nóv. NTB-AP í SKÝRSLU Efnahagsbandalags Evrópu, sem birt var í Brússel í dag kemur fram, að Frakkar hafa mestan hag aðildarríkjanna af stefnu bandalagsins í land- búnaðarmálum. 1 NTB-frétt segir, að skýrsla þessi kunni að hafa einhver á- hrif á forsetakosningarnar í Frakklandi, sem fyrirhugaðar eru 5. desember nk. Hafi land- Alexei Kosygin, forsætisráð- herra Sovétríkjanna og Chou En-lai, forsætisráðherra Kín- verska alþýðulýðveldisins. búnaðarsamtök í Frakklandi gagnrýnt allharðíega stefnu frönsku stjórnarinnar í landbún- aðarviðræðum bandalagsins að undanförnu og hvatt til þess að greiða atkvæði gegn de Gaulle, forseta af þeim sökum. Óttast samtökin, að sögn NTB, að stöðn un verði aftur í frönskum land- búnaði, falli Frakkland frá sam starfinu innan bandalagsins. í skýrslunni segir, að frá því bandalagið var stofnað árið 1958, hafi útflutningur Frakka á land- búnaðarafurðum til hinna aðild- arríkjanna aukizt svo að þeir standi nú næstum því jafnfætis Hollendingum, sem eru stærsti útflutningsaðilinn. Ennfremur megi þakka það stefnu Efnahags- bandalagsins, að útflutningur Frakklands til ríkja, er ptan bandalagsins standa, hafi farið svo mjög í vöxt, að þeir standi þar þegar framar Hollendingum. f AP-frétt segir, að viðskipti Efnahagsbandalagsríkjanna á ^ sviði landbúnaðar hafi aukizt úr 1.2 milljörðuim dollara árið 1958 í 2.8 milljarða doliara árið 1964. Innflutningur V-Þjóðverja á land búnaðarvörum frá hinum fimm aðildarríkjunum hefur aukizt á þessu árabili úr 636 milljónum dollara í 1300 milljónir dollara, og er V-Þýzkaland nú stærsti kaupandi landbúnaðarafurða af bandalagsrík j unum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.