Morgunblaðið - 17.11.1965, Page 21

Morgunblaðið - 17.11.1965, Page 21
Miðvikudagur VT. Tiðv. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 2! — Minningarorb Framhald af bls. 6 hjalaði rétt við hlustir okkar. I>á man ég eftir því að Sigfús sagði eitt sinn: „Þetta er Chop- in íslands en í Dettifossi hlusta ég á Wagner. „Þannig mæla að- eins þeir, sem eru skáld í sínu innsta eðli, þeir, sem skilja land sitt og þjóð niður í grunninn og elska hvorttveggja. Og nú er Sigfús Blöndahl fall- inn, horfinn sjónum okkar yfir hin ókunnu og torráðnu landa- mæri lífs og dauða. Nú á ég ekki oftar von á því að mæta þessum elskulega vini, beinum í baki og kvikan á fæti á miðju Austur- stræti, þennan sérstæða persónu- leika, sviphreina og aðsópsmikla manni, er setti svo mikinn svip á bæinn. Reykjavík, sem hann unni hugástum, er orðip fátæk- ari. Austurstræti drúpir höfði. En hinir mörgu vinir hans heyra enn og hlusta með honum á árniðinn mikla, sem vekur spurnina: „— hvert mun sá straumur halda, hvað mun upptökum valda?“ f dag, þegar Sigfús Blöndahl er kvaddur og til moldar borinn, er okkur efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir drengskapinn, tryggðina og kærleikann, sem hann gaf okkur í einlægri og fals- lausri vináttu sinni. Við horfum á eftir honum með djúpum sökn- uði og biðjum honum góðrar ferðar og Guðs blessunar. Við sendum systur hans, frú Krist- jönu og bústýru hans, Steinunni, alúðarfyllstu samúðarkveðjur. Megi oddviti alls, bæði tíða og þjóða, vera með ykkur, standa ykkur við hilið og styrkja ykk- ur. Guð blessi ykkur öll. Jakob V. Hafstein. t SIGFÚS M. Blöndahl er dáinn. Þá fregn höfum við heyrt og séð. En viljum ekki falla í hryggð. Þreifum heldur til gleðj- andi minninga um mannkosti hans og þá augljósu fyrirmynd er mun endast öllum vel. Sigfús Blöndahl var landskunn ur maður og víða um Norðurlönd átti hann vini er munu minnast hans stóru verka í félagsmálum, framkvæmda og allsstaðar heið- arlegra viðskipta. Sannast þar sú staðreynd að allt geymist vel — frá grænum stofni. Svo vil ég minnast á „hið lnnra“ í eðli þessa einkennilega manns, sem var oft svo strangur í viðmóti en jafnan bróðir og vinur síns náunga, þó einkum þeirra er stóðu í skugga ein- hverra vandræða frá sjálfum sér eða öðrum. Glöggur var Sigfús á verðmæti hvers einstaklings er hann kynntist og vildi verðlauna þau ríflega: Ég var svo lánsöm að kynn- ast Blöndahls fólkinu, sem bjó hér í Lækjargötu 6. Sá strax að þar var stórbrotið höfðingjaset- ur, fólk alveg dramblaust og vin- gjarnlegt, svo sem er háttur allra mikilmenna. Þeir hlíða boðum herra síns, þeim eðliskjarna er Guð hefur þeim gefið. Það eru mörg ár síðan einn vinur Sigfúsar sagðist oft vera í skemmtilegum ferðalögum með honum. Einu sinni kom það fyr- ir að hestur Sigfúsar datt á vond- um vegi, lá með krepptan fót og blæðandi kaun. Þarna var margt hraust og góðviljað fólk sem gat ekki neitt. — En Sigfús vissi eina ráðið til bjargar — hann kraup við höfuð hestsins og bað almátt- uga lækninn að „hjálpa þessum slasaða vini sínum, meistaraverk inu, sem vitnar um sinn skapara, með eðli sínu og afli.“ Og krafta- verkið kom. Hesturinn stóð upp og gat staulast laus til næsta bæjar. Þar var sárið hreinsað og greri ótrúlega fljótt. Kristindómur hvers manns er náðargjöf. Þá sælu hefur Sigfús fengið í fullri stærð sinna marg- víslegu staðreynda. Þess vegna skulum við nú gleðjast. Þakka Guði fyrir líf og dauða Sigfúsar Blöndahls. Og vera viss um, að það er alveg óhætt að trúa Guði fyrir framtíð allra vorra látnu vina. Kristín Sigfúsdóttir frá Syðri-Völlum. t Þ E I M fer nú óðum fækkandi, mönnunuín af yngri kynslóðinni, sem „settru svip sinn á bæinn“ eftir lok fyrri heimsstyrjaldar- innar, um það bil er ég fluttist hingað til Reykjavíkur með for- eldrum mínum. Sigfús Blöndahl fyrrv. aðal- ræðismaður, sem var tvímæla- laust í hópi þessara manna, and- aðist eftir uppskurð í Landsspít- alanum 7. þ.m., rúmlega áttræð- ur að aldri. Með honum er til moldar bor- inn einn hinn bezti og tryggasti frændi og vinur, sem ég hef átt. Aðrir munu rita ágrip um líf og starf þessa ágætismanns, sem vegna meðfæddra hæfileika, mannkosta og menntunar var á bezta skeiði ævi sinnar einn af mestu og framsýnustu athafna- mönnum þessa lands og braut- ’ ryðjandi á ýmsum sviðum. Ég ætla mér aðeins að þakka honum fyrir vináttu hans og órjúfandi tryggð við mig og fjöl- skyldu mína, fyrir margar ánægju og fræðslustundir, sem hann veitti mér og konu minni, bæði á laxveiðiferðum okkar í Borg- arfirði fyrr á árum og á heim- ilum okkar. Hann hafði ferðazt víða um lönd og dvalizt erlendis svo ár- um skipti. Kunni hann því frá mörgu að segja og sagði mæta vel frá. Alls staðar ferðaðist hann um með opinn huga og hik- aði ekki við að koma í fram- kvæmd hér heima þeim nýjung- um, sem hanii sá og hugði að þjóð okkar myndi til hagsbóta verða, þó að allmikla fjárhags- lega áhættu hefði það stundum í för með sér. Komu þær venju- lega fyrst fyrirtækjum hans og síðan allri þjóðinni að góðum notum. En ógleymanlegust verður mér tryggð hans og vinátta. Fáir munu vinir hans hafa veikzt og verið lagðir á sjúkrahús, að hann kæmi ekki í heimsókn til þeirrá, þrátt fyrir oft nauman tíma, til að stytta þeim stundir, ef hann vissi um það. Og fáir munu hafa tekið það óstinnara upp en hann, ef hann var þar staddur, sem menn skemmtu sér við að tala illa um og níða náunga sína, hvort sem hann þekkti þá róg- bornu eða ekki. Ég samhryggist Kristjönu syst- ur hans, sem nú lifir ein þeirra systkina og öðrum nánustu vandamönnum hans, svo og Stein unni ráðskonu hans, sem kom sem ung stúlka á heimili hans og konu hans, Áslaugar, sem því miður andaðist eftir alltof skamma en ástríka sambúð, og hefur staðið fyrir heimili hans síðan af hinni mestu umhyggju og prýði. Vertu sæll, vinur minn og frændi. Lárus Jóhannesson. — Velvakandi Framhald af bls. 6 eins og bréfritari tekur rétti- lega fram. Boeing-slysin hljóta a'ð vekja athygli og ugg allra þeirra, sem með flugmálum fylgjast, þóy; þau sanni engan veginn að eitt- hvað sé bogið við þotuna. Boeing-727 er að flestu leyti áþekk Boeing-707, sem hefur reynzt afburða vel — og er talið eitt öruggasta farartæki, sem nú flýgur. Fyrrnefnda þotan er aðeins minni en 707, búkurinn ögn styttri, en í grund vallaratriðum sá sami. Aðal- munurinn er fólginn í því, að hreyflunum á stærri þotunni er komið fyrir undir vængjunum, en á aftanverðum búknum á þeirri minni. ir Flugslys fátíð Að svo komnu máli er varla meiri ástæða til að „af- skrif“ Boeing-727 fremur en að segja, að Volkswagen sé lé- legur bíll, ef þrír fara út af Þingvallaveginum sama daginn. Þessi þota er notuð geysimikfll í Bandaríkjunum — og Boeing- 727 fjölgar stöðugt í öðrum hlut um heims. Eigendur þotanna eru sennilega langtum hrædd- ari við almenningsálitið og það umtal, sem slysin valda, en að einhverjir gallar séu í þotunum sjálfum. Þróunin í farþegafluginu er sú, að sífellt stærri þotur eru smíðáðar, flutningarnir aukast — og fargjöldin munu lækka. Ég sé ekki nokkur rök fyrir því að við höldum okkur við smáþotur, ef stærri þotur hæfa okkur betur. Óhugsandi er að girða fyrir flugslys með öllu fremur en önnur slys — og flugslysin eru miklu fátíðari en fólk gerir sér yfirleitt í hugar- lund, þegar miðáð er við þá geysimiklu flutninga, sem fram fara í loftinu nú orðið. * 20 vélstjórar til Danmerkur SÍÐASTLIÐINN laugardag héldu tuttugu islenakir vélstjórar til Danmerkur í boði Sabo-verk- smiðjanna, sem greiða allan dvalarkostnað þeirra þar. Vélstjórarnir, sem flestir eru starfandi við hraðfrystihús víða á landinu, munu dvelja sjö daga í Danmörku og kynna sér rekst ur Sabo- og Dannebrog-verk- smiðjanna og ýmsar tæknilega nýjungar í hraðfrystivélaiðnað- inum þar. NYTT Ótrúlega lágt verð á vönduðum prjónanœlonskyrtum — Krónur 198.— Margir litir — Allar stœrðir Austurstræti 9. Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna Verður í Sjálfstæðishúsinu í kvöld 17. nov. kl. 20,30 Sjálf stæðisf ólk! Takið þátt í góðri skemmtun Sœkið spilakvöldin Ávarp kvöldsins flytur Magnús L. Sveinsson skrifstofustjóri Verzl- unarm.fél. Reykjavíkur húsið opnað kl. 20 'k Veitt verða góð spilaverðlaun og happdrætti verður að vanda. ir Kvikmynd: „Eiðfesting“ með íslenzku tali. ■jr Þá verður endursýnd kvikmynd úr sumarferð Varðar 1965, vegna fjölda áskorana. 'k’ Sætamiðar afhentir á skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins á venjulegum skrifstofutíma. SKEMMTINEFNDIN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.