Morgunblaðið - 17.11.1965, Page 30

Morgunblaðið - 17.11.1965, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 17. nóv. 1965 Valsstúlkur keppa um Evrópublkar Mæta norsku meisturunum I keppni um eitt af 8 sætum í úrslitum VALUR er meðal félaga þrettán þjóða sem tilkynnt hafa þátttöku í keppni kvenna um handknattleiksbikar Evrópu. Aðeins meistaralið hvers lands hefur rétt til þátttöku. Lið Vals hefur verið íslandsmeistari undanfarin ár og hefur í haust sýnt meiri yfirburði en sennilega eru dæmi til í keppni kvenna í handknattleik. Valsliðið má hiklaust telja mjög gott félagslið. Innan vé bandi liðsins’ • eru flestar „beittustu“ stjörnur landsliðs- ins. Það hefur sýnit sig í síð- ustu landsleikjum kvenna að ©kkar landslið stendur að baki þeim beztu i Evrópu. Það er hins vegar ólíklegt að okk- ar dómi að Valsliðið, sem nú er okkar langbezta félagslið, standi langt að baki beztu fé- lagsliðum erlendis. Hér dreif- ost stjörnumar á færri félög en erlendis og hér nýtur Val- ur þess nú að eiga kjamann í kvennahandknattleik lands- ★ Fyrirkomuiag Eins og fyrr segir höfðu meistaralið 13 landa tilkynnt þátttöku er fresturinn rann út. Ákveðið er að 10 þeirra taki þátt í undankeppni. Spartacus frá Ungverjalandi og HG frá Dan- mörku þurfa ekki að leika í und ankeppninni og ein þjóð til við- Olympíuleikur í Montreul? MONTREAL í Kanada mun saekja um að fá að halda Olym- píuleikana (sumarieikana) 1972, að því er borgarstjórinn þar upp lýsti á blaðamannafundi í dag. Sagði borgarstjórinn að umsókn- in yrði fyrst send kanadisku Olympíunefndinni, en fyrir 1. jan. rynni út umsóknarfrest- urinn til að halda OL-leikana og þá yrði umsóknin að vera komin til alþjóða Ol-nefndarinnar. Á fundi þeirrar nefndar í Lausanne í apríl 1966 verður tekin ákvörð un um hvar Ol-leikarnir 1972 fara fram. bótar verður „valin“ af Evrópu- sambandinu til að losna við und ankeppnina. Ákvörðun hefur ekki verið tekin um hver hún verður. Hinar þjóðirnar verða eftir drætti að keppa saman tvær og tvær og þær fimm sem með sigur fara af hólmi komast ásamt hinum þremur fyrrnefndu í loka keppr.ina. ★ Valur og Noregsmeistarar Danska blaðið Politiken skýrir svo frá á dögunum að þó enn sé ekki ákveðið til íullnustu um framkvæmd undankeppninnar, sé það þegar fastmælum bundið að Valsstúlkumar og Noregs- meistaramir keppi sín á milli um eitt af 8 sætum í lokakeppninni. Segir blaðið að dönsku meistar- arnir HG andi léttar við þá frétt, því að þeir hafi óttast að íslend- ingar og Danir lentu saman, en slíkt hefði leitt af sér meiri kostn að en Danmerkurmeistararnir hefðu auðveldlega getað staðið straum af. Fréttaritari Politiken segist og vita það að í öðrum undanúrslit- um mætist meistaralið V-Þýzka- lands og Austurríkis. Þátttakendur í strákamótunium í stjórn knattspyrnudeildar F. H. Hafnarfirði, ásamt Albert Guðmundssyni og meðumum ur Strákarnir í Hafnarfirði KEPPENDUR í’ strákafélaga- mótunum í Hafnárfirði komu saman s.l. sunnudag í Alþýðu húsinu í Hafnarfirði, þar sem þeir sátu ' eftirmiðdagsboð (Appelsin, rjómnterta og aðr- ar kræsingar) er Albert Guð- mumdsson og Axel Kristjáns- son buðu þeim til, en þeir gáfu bikara þá sem keppt var um í mótunum, en bikarana, sem eru fagurlega ágrafnir, afhenti Alebrt Guðmundsson, en auk þess voru sýndiar knatt spyrnumyndir. Þetta er atimað sumarið sem knattspyrnudeild F.H. efn ir til keppni milli hinna ýmsu strákafélaga í Hafnarfirði. — 1 ár var keppni þessi mun formmeiri, þar sem Albert Guðmtmdsson og Axel Krist- jánsson höfðu gefið bikara til að keppa um vor og haust. I vormótinu var keppt í 6 manma liðum og tóku þá þátt í mótinu fjögur félög, Sparta, Spyrnir, Sprettur og Fálkinn og sendu félögin aogb lið tii keppninnar, en leikirnir fóru fram á strákavellinum á Hamarskotstúninu. Keppnin Judo-hókin FYRIR nokkru kom út bók, sem ber hið látlausa nafn: JUDO- BóKIN. Þetta er fyrsta bókin, sem kemur út á íslenzku um japönsku glímuna judo. Hún er þýdd úr ensku af Torfa Ólafs- syni og hefur þýðingin tekizt vel, en Bókaútgáfan Suðri gefur hana út. Þetta er snotur bók, 181 bls., prentuð á góðan pappír. og inn- bundin. Höfundar bókarinnar eru tveir mjög kunnir judo-kapp Þróítur vann IR 13-i ÞRÓTTUR og ÍR mættust í mfl. karla í Rvikurmótinu í hand- knattleik á sunnudaginn.. Þetta eru liðin sem neðstu sætin skipa í mótinu að þessu sinni og varð lengi framan af jöfn barátta, en á síðustu mínútum leiksims tóku Þróttarar af skarið og sigruðu 13—8. Þróttur hafði forystu allan fyrri hálfleikinn, komst m. a. í 4—1 í byrjun. En í leikhléi var staðan 6—4. Eftir hlé kom ungur en efni- legur leikmaður Ólafur Tómas- son inn á hjá ÍR. Hann skoraði 3 fyrstu mörkin, þannig að ÍR háði forystu 7—6. Halldór Braga - son jafnaði fyrir Þrótt en Ólafur náði aftur forystu fyrir ÍR úr vítakasti. En þar með var leikurinn all- ur hjá ÍRingum. Það er eins og hið unga lið félagsins þoli ekki jafnan leik éða eygja möguleika á sigri. ír-ingar skoruðu ekki eft- ir þetta en Þróttur bætti 6 mörk- um við og vann 13—8. Hjá Þrótti voru þeir Axel Ax- elsson og Haukur Þorvaldsson beztu menn en hjá ÍR vakti Ól- afur Tómasson mesta athygli. Einnig vakti Vilhjálmur Sigur- geirsson athygli fyrir góðar send- ingar inn á línu. En ÍR liðið er ungt og án efa vaxandi. Þar heí- ur næstum algerlega verið skipt um „áhöfn“ frá því fyrir 2 árum og mest þó á síðasta ári ar, R. Bowen 4. dan, tók þátt 1 heimsmeistarakeppni í judo 1956 og stóð sig mjög vel; hann er nú þjálfari hjá Budokwai í London. Hinn er ungur læknir í London og hefur hann getið sér góðan orðstír, einkum í judo keppni háskólamanna. Höfundarnir segja í foimála, að bókin sé einkum skrifuð fyrir byrjanda, sem nemur judo undir handleiðslu kennara, en þótt svo sé, tel ég hana betri til sjálfs- náms (ef hægt er að tala um sjálfsnám í íþróttum) en flestar judobækur sem ég hef séð, sér- staklega fyrir þá, sem hafa ekki mikla reynslu í judo, því að hún gefur svo góða skýringu á hvað felst að baki æfingunum og íþróttinni sjálfri, t.d. hvernig hægt er að samhæfa þjálfunina markmiðum manna í judo. Kafl- inn um sjálfsvörn opnar áreiðan lega augu ýmissa, sem á slíku hafa áhuga, hvað sjálfsvörn raun verulega er og sveipar burtu þeim „rómantíska dularhjúpi" sem auglýsingar og kvikmyndir hafa ofið um þá hlið judo. Judo-bókin skiptist í 9 aðal kafia, og er drepið á sögu judo- íþróttarinnar og hvað judo er, undirbúningsæfingar, fallbrögð, judoþjálfun judo fyrir lengra komna, sjálfsvörn o.fl., þá er í henni orðasafn, en við judo- kennslu eru jafnan notuð hin jap>önsku heiti á æfingunum og brögðunum. í henni eru 65 skýr- var mjög jöfn og tvisýn, en sigurvegari varð A-lið Spretts. Fimm félög tóku þátt í haustmótinu: Sparta, Sprett- ur, Elding, Geysir og Fálkinn. Keppt var í 11 manma liðum og fóru leikimir fram á knatt spyrnuvellinum í Hafnarfirði. — Leiklrnir voru mjög skemmtilegir, enda leikmenn margir mjög góðir þótt ungir séu, hámarksaldur 15 ára. Sprettur og Fálkinn reynd- ust sterkustu liðin og kepptu því til úrslita. Staðan var 1:1 í hálfleik, en að lokum sigraði Fálkinn 5-: 3 og þóttu það mjög sanngjörn úrslit. í mótum þessum munu hafa tekið þátt um 100 til 120 strákar úr öllum bæjarhlutum Hafnarfjorðar. Þórir Jónsson fyrirliði Spretts tekur við vormótsbikarnum. ingamyndir auk þess eru 24 ljósmyndir, innlendar og eriend- ar, þar af eru 12 myndir af hin- um heimsfræga judokappa Kisa- buro Watanabe, og eru með þeim skýringar eftir hann sjálfan sem hann sendi mð myndunum, sér- staklega í tilefni af hinni ís- lenzku útgáfu bókarinnar. Á myndunum sést Watanabe m.a. vera að kenna ísl. judomönnum. Það er mikill fengur fyrir ís- lenzka judomenn að fá þessa bók, og vil ég benda þeim á að útvega sér hana, en hún fœst í öllum bókabúðum, og lesa hana vel. í henni eru mjög góðar leið- beiningar um æfingar og undir- stöðu judo. Bókin er skrifuð af mönnum sem hafa mikla þekk- ingu á judo og gera sér glögga grein fyrir hvar skórinn kreppir að varðandi kennslu og æfingar. Sigurður H. Jóhanflsson. Þjóðverjor í loknbeppnina V-Þjóðverjar tryggðu sér rétt til lokokeppninnar um heims- meistaratitil í knattspyrnu á sunnudag með sigri yfir Kýpur. Unnu Þjóðverjar með 6-0 í leik á Kýpur. Þeir hljóta með því 1. sætið í sínum riðli undankeppn- innar með 7 stigum, en Svíar hlutu 5 stig. Kýpur hlaut ekkert stig í keppni riðilsins. Sviss í úr- slitakeppninn? SVISS sigraði Holland með 2—1 í knattspyrnulandsleik s.l. sunnu dag. Kom sigurmarkið 2 mín. fyrir leikslok. Leikurinn fór fram í Bern og var liður í undan- keppni um heimsmeistaratitilinn. Eftir þessi úrslit bendir allt til þess að Sviss og N-írland verði að leika aukaleik um það, hvort landanna komizt í úrslita- keppnina. S viss hefur nú forystu í 5. riðli, hefur 9 stig eftir að hafa lokið öllum sínum leikjum. N-írar hafa 7 stig en eiga eftir að mæta lakasta liði riðilsins, liði Albaníu. í leiknum á sunnudag léku Svisslendingar með 10 manna lið mestan hluta síðari hálfleiks er v. framv. varð að yfirgefa völl- inn vegna meiðsla. Sviss hafði forystu í hálfleik, 1—0 en fljótt náðu Hollendingar að jafna. Und- ir lokin voru 48000 áhorfendur mjög samtaka um að hvetja heimaliðið og hlutu laun í sigur- markinu 2 mín. fyrir lok leiksins. VILHJALMUR ÁRNflSON hrl. TÓMAS ÁRNASON hdl. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA lbaabarbankalHisiiiu. Síuiar Z4G3S 0910307

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.