Morgunblaðið - 23.11.1965, Qupperneq 30
30
MQkZUNSLABIÐ
T>riðjudagur 23. nóv. 1965
Ármann jafnaði 6 marka
forskot Vals á 15 mínútum
KR vann BR 12-10 og Vikfingur
vann Þrótt 18-10
ÞRÍR leikir voru leiknir í meist
araflokki karla í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik á sunnu-
daginn. Hörkubarátta var milli
Vals og Ármanns, ]>ar sem Ár.
menningar unnu upp 6 marka
forskot Vais frá fyrri hálfleik.
Hins vegar átti Víkingur öll völd
í leiknum við Þrótt og vann meö
yfirburðum.
KR : ÍR 12—10
J>að kom á óvaent hve ÍR-liðið
stóð í KR-ingum. Var leikur
liðanna oft skemmtilegur en
eigi var alltaf um að ræða vel
leikinn handknattleik.
KR liðið náði forystunni og
hélt henni yfirleitt í fyrri hálf-
leik og í hléi var staðan 5 — 4
KR í vil. 1 síðari hálfleik náðu
ÍR-ingar nokkrum sinnum að
jafna, en náðu aldrei forystu í
leiknum.
Undir lokin voru KR-ingar
heldur sterkari og tryggðu sig-
ur sinn 12—10. En víst mega
KR-ingar vera uggandi um hag
sinn í 1. deild í vetur. Það verð-
ur ekki auðhlaupið að >ví að
tryggja sig gegn fallinu ef dænoa
má af núverandi getu liðsins.
Tveir gamlir og reyndir leik-
menn ÍR sem ekki hafa verið
með að undanförnu styrktu lið-
ið.
Valsmenn voru sannarlega í
Fyrsta sundmótið I kvöld:
Keppt í 6 greinunt
og í sundknattleik
FYRSTA sundmót vetrarins fer
fram i Sundhöll Reykjavíkur í
kvöld og nefnist það „Haustmót
SRR.“ Fer þar fram keppni í 6
sundgreinum, karla, kvenna og
unglinga, og auk þess fer fram
úrslitaleikur í haustmóti sund-
knattleiksmanna og stendur úr-
slitabaráttan nú sem undanfar-
in ár milli Ármanns og KR.
ir Sundkeppnin
Sundgreinarnar sem í verður
keppt eru 200 m Skriðsund karla,
100 m skriðsund kvenna, 100 m
bringusund karla og 100 m bak-
sund kvenna. Þá fer fram keppni
hildur Kristjánsdíóttir Á, sem á
dögunum setti tvö ísi. sundmet
eins og skýxt er frá á öðrum stað
í blaðinu.
■ár Sundknattleikurinn
í sundknattleiksmótinu hafa
farið fram tveir leikir. KR vann
Ægi með 9 mörkium gegn 1 í
fyrsta_ leiknum og í gærkvöldi
áttu Ármenningar að keppa við
Ægi. Úrslitin verða svo í kvöld
milli KR og Ármanns og nú er
spurningin: Tekst KR að brjóta
óslitna sigurgöngu Ármenninga
um meir en 2 áratugi?
essinu sínu framan af gegn Ár-
manni og juku forskot sitt
jafnt og þétt svo að leit út fyrir
stórsigur þeirra. í hálfleik höfðu
þeir 6 marka forskot 10—4.
En Ármenningar höfðii ekki
gefizt upp og með Hörð Kristins
son í broddi fylkingar tóku Ár-
menningar að saxa á forskotið
og varð leikurinn undir lokin
mjög spennandi. En svo fór að
Ármenningum tókst að jafna og
tryggja sér stig og jafnframt að
binda endi á veikar vonir Vals
um sigurmöguleika í mótinu.
Má furðulegt heita, hvernig
Valsliðið féll og fékk ekki
tryggt sigurinn með 6 marka
forskoti á 15 mínútum.
Víkingar höfðu tögl og hagld-
ir í leiknum við Þrótt. Munaði
þar mestu að Guðmundur Gúst-
afsson vantaði í mark Þróttar..
Var aldrei um keppni að ræða
heldur sívaxandi forskot Vík-
ings og sigurinn varð 18—10.
Fram er nú efst á mótinu
með 8 stig (alla leiki unna),
KR hefur 6 stig, Valur og Ár-
mann 5, Víkingur 4, Þróttur 2
og ÍR ekkert.
„Ég er tilbúinn ef hann er til“
í GÆRKVÖLDI (að ísl. tíma)
voru leiddir á vigtina hnefa-
leikakapparnir Clay og Patt-
erson sem í nótt (aðfaranótt
þriðjudags) kl. 3,30 að ísl.
tíma áttu að hefja keppni um
heimsmeistaratitilinn. Clay vó
95.25 kg. en Patterson 89.24
kg. —
Þegar Clay mætti hjá vigt-
armanninum fylgdu honum
hópar múhameðstrúarmanna.
Vakti það athygli. Friðsælla
var kringum Patterson, sem
nú stendur á þrítugu og er
fyrsti maðurinn sem reynir
að vinna heimsmeistaratitil í
þungavigt þriðja sinn.
Veðmálin standa Clay í hag
3 móti 1. Búizt var við því
er sól rann í Las Vegas keppn
isdaginn að útselt yrði og inn
kæmu 300 þús. dalir i kass-
ann í aðgangseyri — auk
annarra tekna.
Á nýafstöðnum blaðamanna
fundi hafði einn fréttamanna
spurt Clay: „Af hverju raup-
ar þú svona mikið“. Clay
vafðist ekki tunga um tönn
en svaraði: „Til þess að þú
haldir atvinnu þinni.“
Cassius Clay hafði lofað að
segja keppinaut sínum, sem
hann kallar „kanínuna" eitt-
hvert spaugsyrði við vogar-
skálina. En það loforð sveik
hann og var hljóður. Er vigt-
armaðurinn sagði: „Ertu til-
búinn“, svaraði garpurinn:
„Ég er tilbúinn ef hann er til-
búinn.“
Clay er allur stærri en Patt
erson. Hæð hans er 190 sm.
móti 183 sm. hjá Patterson. —
Faðmur Clays er 200 sm. móti
183 hjá Patterson og þannig
. mætti lengi telja. Aðeins um-
mál ökla þeirra eru eins, eða
24 sm. —
3. deild í knattspyrnu
stofnuð - Keppt fyrst 1967
drengja í 50 m bringusundi og
stúlkur keppa í 50 m bringu-
sundi.
Meðal keppenda í þessum
greinum verða flestir eða allir
beztu sundmenn og konur
Reykjavikur að sögn fonmanns
Sundráðsins og m.a. hin ný'baik-
aða 14 ára „metsitjarna“ Hrafn-
Sigríður i
100. leiknum
VALSSTÚLKURNAR eru al-
gerlega í sérflokki m.fl.
kvenna á yfirstandandi Rvík-
urmóti og vinna hvern leik-
inn af öðrum með miklum
yfirburðum. Á laugardags-
kvöldið sigruðu þær lið Fram
með 6 mörkum gegn 2. Ekk-
ert virðist geta skyggt á ör-
uggan sigur þeirra í mótinu.
Á laugardagskvöldið léku
einnig lið Víkings og KR og
vann Víkingur með 10—4.
Á laugardagskvöldið lék
Sigríður Sigurðardóttir sinn
100. Ieik með Val. Ung stúlka
úr Val, Hildur Sigurðardóttir
færði henni blómvönd í leik-
byrjun sem þakklæti frá Vals
mönnum /
i 1
ÁRSÞING KSÍ var haldið um
helgina og þar teknar til um-
ræðu ýmsar tillögur og mál
er framvindu knattspyrnunnar
varða. Merkasta þeirra má telja
tillögu er samþykkt var um
stofnun 3. deildar í knattspymu
hér. Eftir keppni 2. deildar
næsta sumar verður úr því skorið
hvaða 6 lið sitja í 2. deild 1967 og
er þá komið fast mót á ísl. deilda
keppnirnar.
Björgvin Schram var endur-
kjörinn form. KSÍ í 12. sinn og
aðrir stjórnarmenn er úr stjórn
áttu að ganga voru endurkjörnir.
Mikil áherzla var lögð á þjálf-
aramálið en minna varð um um-
ræður en ætla hefði mátt vegna
klaufalegrar niðurröðunar dag-
skrármála.
Næstu daga verður hér nánar
rætt um þingstörfin en hér fer
á eftir tillagan sem samþykkt
var um stofnun 3. deildar.
í landsmóti 1. aldursflokks skal
þátttakandi liðum skipt í 3 deild-
ir. 1. deild skal skipuð 6 liðum,
2. deild 8 liðum og 3. deild skal
skipuð þeim aðilum, sem ekki
eiga lið í 1. og 2. deild.
I öllum deildum er leikin tvö-
föld keppni og leikur hvert lið
2 leiki gegn hverju hinna lið-
anna, heima og heiman.
í 2. deild skal skipa liðunum
í 2 riðla. í 3. deild skal skipta
liðunum í riðla eða svæðakeppni
viðhöfð, ef þátttaka er það mikil.
Keppni er stigakeppni. Verði
tvö eða fleiri lið jöfn og efst
eða neðst í 1. deild og 2. deild
eða efst í 3. deild, skulu þau
leika einfalda stigakeppni eða
úrslitaleik, þar til úrslit fást.
Mótsstórn ákveður keppnisstað.
Sigurvegari í 2. deild færist
næsta leikár upp í 1. deild og
sigurvegari í 3. deild upp í 2.
deild. Það lið, sem fæst stig hlýt-
ur í 1. deild færist næsta leikár
niður í 2. deild, og neðstu liðin
í hvorum riðli 2. deildar leika
aukaleik um þátttökurétt í -2.
deild næsta leikár. Liðið, sem
tapar, færist næsta leikár niður
í 3. deild.
Taki aðili í 1. eða 2. deild
ekki þátt í keppninni, færist
hann sjálfkrafa niður í næstu
deild fyrir neðan næsta leikár.
(Fyrsta leikár 1966 skulu öll
lið, sem luku keppni í 2. deild
1965 hafa keppnisrétt í 2. deild.
Taki 9 lið þátt í 2. deildinni 1966
falla 2 neðstu liðin niður i 3.
deild næsta leikár á eftir).
Bómoraínndur
DÓMARANEFND H.S.Í. efnir til
fundar með handknattleiksdóm-
urum í félagsheimili Vals, mið-
vikudaginn 24. nóvember kl.
8.30.
Fundarefni: Breytingar á
handknattleiksreglum. Þess er
vænst að dómarar fjölmenni.
Dómaranefnd H.S.I.
Enskn
knnttspyrnon
18. UMFERÐ ensku deildar-
keppninnar fór fram s.l. laugar-
dag og urðu úrslit leikja þessi:
1. dcild.
Arsenal — West Ham 3—2
Burniey — Aston Villa 3—1
Chelsea — Sunderland frestað
Everton — Leeds 0—0
Manchester U. Sheffield U. 3—1
Newcastle — Leicester 1—5
Northampton — Tottenham 0—2
N. Forest — Blackpool 2—1
Sheffield W. — Fulham 1—0
Stoke — Liverpool 0—0
W.B A. — Blackpool 2—1
2. dcild.
Birmingham — Coventry 0—1
Bolton — Manchester City 1—0
Chailton — Norwich frestað
Crystal P. — Southamton 1—0
Hudderfield — Derby 1—3
Ipswich — Bristol City 0—0
Leyton O. Carlisie 2—1
Middiebrough — Cardiff 3—4
Plymouth — Wolverhamton 2—2
Portsmouth — Rotherham 1—1
Preston — Bury 2—1
f Skotlandi urðu úrslit m. a.
Celtic — Hamilton 5—0
Rangers — Kilmarnock 5—0
St. Mirren — Partic 2—0
Dundee — St. Johnstone 3—1