Morgunblaðið - 18.12.1965, Page 3

Morgunblaðið - 18.12.1965, Page 3
Laugardagur 18. des. t965 MORCUNBLAÐID 3 Merkir Islendingar Nýr flokkur IV. Jón Guðna- son fyrrv. skjalavörður bjó til prentunar. Bókfellsútgáfan lk.f. Reykjavík 1965. ÞEÍTTA vinsæla og ágæta ritsafn kveður enn dyra hjá íslenzkum bókavinum með fjórða bindi ann afs flokks eða ef talið er frá byrj un með tiunda bindi í röðinni. Útgáfan hófst með sex binda flokki, sem kom út á árunum 1947—1957 undir umsjón Þorkels ■ál. Jóhannessonar prófessors og var tengdur í heild með sameig- inlegu registri' og efnisyfirliti í eíðasta bindinu. í þessum flokki komu út 96 ævisögur látinna ís- ienzkra merkismanna, margar iítt kunnar og sumar mjög tor- fengnar, og var þetta þá þegar orðið stórmerkilegt safnrit. Eftir það varð nokkurt hlé á útgáf- unni, en árið 1962 hóf nýr flokk- ur göngu sina undir umsjón hins eljumikia fræðimanns- Jóns Guðnasonar fyrrverandi skjala- varðar, sem hefir um langt skeið verið einhver ótrauðasti áhuga- maður um íslenzka ættvísi og mannfræði, enda lagt þar mikið af mörkum, sem kunnugt er. Síð en hefir eitt bindi komið út á ári hverju og verið ein af þeim ■— ekki allt of mörgu — jóla- bókum, sem margir bíða með til- hlökkun og fagna sem góðum gesti. f nýja flokknum hafa þeg- ar birzt 48 ævisögur, tólf í hverju bindi. Sá er munur á þessum flokki og hinum fyrri, að nú fylg ir registur hverju bindi, svo að þau eru hvert um sig algerlega sjálfstæð heild. Útlit bands og kjölur er mismunandi á flokkun- um til betri affgreiningar, en let- urgerð og brot hið sama á báð- um, og sama er að segja um til- högun útgáfunnar yfirleitt. Góð- ur frágangur innra sem ytra hef- ir auðkennt ritsafnið Merka ís- lendinga frá upphafi, enda er maklegt, að saman fari merkilegt efni og góður búnaður. f hinu nýja bindi er fremst í flokki sevisaga Jóns Ögmunds eonar helga biskups á Hólum eft- ir Jón biskup Helgason. Hún er eð 'sjálfsögðu byggð á hinni fornu Jónssögu eftir Gunnlaug munk á Þingeyrum (d. 1218), enda er hún eirxa heimildin sem til er um ævi og störf hins helga manns. Því miður er þessi frum- heimild óáreiðanleg og mjög hlutdræg, en öðru er þó ekki til eð tjalda. Hefir Jón biskup Helga 6on sýnilega gert sér far um að vinza það úr, sem tækilegast var, og fjalla um efnið eins og góð um sagnfræðingi sómir. Hér er og eftir sama höfund ævisaga Skúla Gíslasonar prófasts á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Hún er vel samin og skemmtileg af- iestrar og minnir á hinn marg- fróða biskup, Jón Helgason, sem hafði oft lag á því að krydda fróðleikinn með léttri gaman- eemi, sem vinum hans er minnis- stætt. Þá er einnig í bindinu ævi- saga Jóns Helgasonar biskups eftir dr. Eirík Albertsson, all Málflutningsskrifstofa Vagn E. Jónsson Gunnnr M. Guðmundsson Austurstræti 9 Símar 21410 og 14400. SPILABORÐ VERÐ kr. 1.610,00 KRISTJAN SIGGEIRSSON H.F. Laugavegi 13. Símar 13879 — 17172. rækileg ritgerð, er fjallar mest um hann sem guðfræðing og kirkjuhöfðingja. Halldór Her- mannsson prófessor ritar um sagnfræðinginn fræga og ævin- týramanninn Þormóð Torfason, er gerðist sagnaritari Danakon- ungs og samdi hina miklu Nor- egssögu sína á latínu og studdist mest við íslenzk fornrit, — sam- tímamaður og vinur Árna Magn- ússonar, litlu eldri. Hér er og ævisaga Jónasar Hallgrímssonar eftir Hannes Hafstein, sú er hann birti framan við 2. útgáfu af ljóð um Jónasar í Khöfn 1883 og var endurprentuð í næstu útgáfu ljóðmælana. Jón Þorkelsson þjóð skjalavörður ritar stuttorða og gagnorða ævisögu Oddgeirs Step liensens, er var um skeið forseti stjórnardeildar þeirrar, er fór með málefni íslands í Khöfn, en Hannes Þorsteinsson ritar ævi- sögu Jóns Þorkelssonar þjóðskjala varðar. Enn eru í bindinu ævi- sögur þessara merkismanna: Gunnars Gunnarssonar prófasts á Svalbarði eftir. Björn Halldórs- son prófast í Laufási, Þorvalds Jakobssonar prests í Sauðlauks- dal etfir Lúðvík Kristjánsson, áð- ur óprentuð, Guðmundar Hann- essonar prófessors eftir Níels Dungal prófessor, Þorsteins Gísla sonar ritstjóra eftir Alexander Jóhannesson og Björns Bjarna- sonar frá Viðfirði eftir dr. Guð- mund Finnbogason. Þessi upp- talning sýnir, að efni bindisins er fjölbreytt og kemur víða við. Hér skal ekki lagður neinn alls- herjar dómur á ævisögurnar. — Þær eru auðvitað nokkuð sitt með hverju móti eins og við er að búast, en óhætt er að full- Jón Guðnason yrða að hver hafi til síns ágætis nokkuð, sumar mikið, aðrar að vísu ekki mikið. Nafn þessa ritsafns „Merkir íslendingar" er vel valinn bók- artitill, sem setur markið hátt. En hann leggur útgefanda mik- inn vanda á herðar, þann vanda að skera úr um það, hverjir skuli teljast í flokki merkra fslend. inga. Hingað til hefir lítt á þetta reynt, með því að af nógu hefir verið að taka og svo mun verða enn um skeið. En haldi útgáfan nógu lengi áfram, hlýtur svo að fara, að þurrð verði á sögunum og útgefandi verði að leita út fyrir raðir lærðra manna og þjóðmálaskörunga. Og þá mundi vandast valið. Enn þarf útgef- andi þó engu að kvíða í þessu efni. Ég sé til dæmis, að engin kona hefir komizt á skrá með þeim 144 merku íslendingum, sem fylla þau 10 bindi, sem út eru komin. Og mér er spurn: Er þetta hægt, Matthías? Hvernig væri að gera nú yfirbót og helga íslenzkum merkiskonum fram- vegis nokkurt rúm í þessu ágæta ritsafni? Guðni Jónsson. NOKKRAR UPPSKRIFTIR BREAKFAST KIPPERS — MORGUNRÉTTUR Látið eina dós aí King Oscar Kipper Snacks í grunna pönnu. Dreifið á síldina einhi matskeið af óbráðnu smjör! og ena- fremur tveimur teskeiðUm af sítrónusafa. Glóðarsteikið í meða’hita, par tii rétturinn er orðinn heitur og freyðandi. Snúið ekki. Borið fram með spældum eða „scrambled4* eggjum. Nægir lyrir <vo. KIPPER „CANAPES“ Saxið eða hakkið eina dós af King Oscar Kipper Snacks og blandið með rinni matskeið af mayonnaise, einni teskeið af sítrónusafa os hálfri teskeið af lauksafa. Lagt i form yfir g þunnar tneiðar af óhýddum gúrkum. Skreytið yfirborðið með steinseljulaufum, eða niðursneiddum fylltum olívum. Nægir fyrir 8 „canapes". 1 KIPPERS Á RISTUÐUM OSTI 2 ,muffins* eða sneiðar af franskbrauði 4 sneiðar af osti 1 matskeið af niðurskorinni steinselju 3 matskeiðar af bræddu smjöri 1 dós af Kipper Snacks Fjórðungar af sítrónusneiðum Skiptið f sundur og ristið „muffins'* eða brauð. Þekið hvert stykkl með sneið af osti. Skiptið innihaldinu úr King Oscar Snacks dós og leggið ofan á. Dreifið smjörinu bræddu yfir 05 setjið aftur inn í glóðarofninn. Hitið við meðalstraum, pang.ið tii orðið er heitt og freyðandi. Skreytið með steinselj u. Berið fram með sítrónusneiðafjórðungum. Nægir fyrir tvo. BRAUÐSNEIÐAR MEÐ KIPPER Smyrjið fjórar brauðsneiðar lítillega með mayonnaise og petið með saladlaufum. Lálið tvö niðursneidd, eða fjórðungs- skoiin harðsoðin egg, eða tómata ofan á og eina dós af King Oscar Kipper Snacks. Skerið í hæfilega bita. Skreytið með punnura laukhringjum og þunnum grænum piparhringjum. Nægir fyrir fjóra. KIPPER HORS D OEUVRES 1 dós af King Oscar Kipper Snacks 1 teskeið af sítrónusafa 8 þunnar sneiðar af óhýddum gúrkum 8 þunnar sneiðar af rúgbrauði 1 matskeið mayonnaise /z teskeið af lauksafa Steinselja, eða niðursneiddar olívur Mayonnaise Hrærið inniliald Kipper dósar með mayonnaise, sítrónusafa og lauksafa. Leggið í mót yfir sneiðar af óhýddum gúrkum, sem setlar hafa verið á þunnar sneiðar af rúgbrauði. Látið lítið eitt af mayonnise ofan á. Skreytið með steinseljulaufum eða sneiðum af fylltum olívum. Nægir fyrir 8 hors d'oeuvres. KIPPER SPREAD OR DIP 1 dós King Oscar Kipper Snacks 1 teskeið af sítrónusafa 2 teskeiðar af slnnepi 1 dós (pk.) smurostur (3oz.) 90 gr. fá teskeið af uppbleyttum (inslant) laukflögum Fylltar olívur eftir eigin smekk. V Hrærið innihald Kippers dósar saman við ostinn. Hristið í sítrónusafa með laukflögum og sinnepi, þar til orðið er vel blandað. Setjið á disk. Setiið í kæli, þar til fram er borið, e n þá n\á skreyte með niðursneiddum fylltum olívum. Má einnig nolast seu ídýfa: Látið þá standa í herbergishita í 15 minútur. Nægir fyrir nokkurnveginn 2/3 úr bolla. CREAMED KIPPERS 1 dós af þykkri (condensed) sveppasúpu 300 gr. 2 harðsoðin egg, grófsöxuð 4 stk. af hraðristuðu franskbrauði 1 dós af King Oscar Kipper Snacks 2 pimientos (kryddber) söxuð Steinselja Setjið sveppasúpuna í efrihlutann á tvöföldum suðupotti yfir heitu vatni. Hlutið í sundur innihaldið úr einni dós af Kippers Snacks og hrærið saman við. Lokið pottinum og hitið. Notist ofan á harðristað franskbrauð. Skreytið með stein- selju. Nægir fyrir fjóra. FÆST I NÆSTU MATVORUBUÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.