Morgunblaðið - 18.12.1965, Side 10
10
MORGUNBLADIÐ
Laugardagur 18. des. 1965
Olafsvíkurkirkju
gefnar klukkur
SÓKN ARNEFND Ólafsvíkur
boðaði fréttaritara dagblaða og
útvarps hér á staðnum til fundar
við sig 2. des. sl. Á fundinum
Var og mætt kirk j u'byggingar-
neÆnd fyrir hinni nýju kirkju-
byggingu sem hér er verið að
reisa. Tilefni fundarins var að
skýra fréttamönnum frá því, að
jþá um daginn hefði kirkjunni
borizt mjög höfðingleg gjöf frá
einum velunnara kirkjunnar. Eru
það kirkjuklukkur í hina nýju
kirkju. Gefandi klukknana er
hinn góðkunni borgari Guðjón
Sigurðsson vélsm. búsettur hér í
Óláfsvík. Ekki þanf að kynna
Guðjón fyrir Snaefellingum, svo
kunnur sem hann er af starfi
eínu sem vélsmiður hér á Nesinu,
því hann setti hér á stofn árið
1919 Vélsm. Sindra. Er smiðjan
ein sinnar tegundar hér á utan-
verðu Snæfellsnesi. Rak hann
smiðjuna allt til ársoins 1942, að
hann seldi bróður sínum, Bjarna
Sigurðssyni, helming sinn í
smiðjunni. — Ráku þeir hana
saman allt til um síðustu áramót,
að þeir bræður seldu smiðjuna.
Fyrir utan að vera forstj. at-
hafnamikils fyrirtækis hafði
hann og hefur á hendi kennslu
í akstri bifreiða, og er óhætt að
segja, að hann hafi kennt meiri-
hluta Ólafsvíkurbúa, sem bílprótf
hafa, að aka bifreið. Þó hefur
Guðjón látið kirkjunnar mál mik
ið til sín taka. Árið 1921 var
hann ráðinn hringjari ólafsvík-
urkirkju og gegndi því í fjöimörg
ár og var einnig meðhjálpari í
forföllum, þar til hin síðari ár,
að hann hefur gegnt meðhjálp-
arastörfum að staðaldri.
Form. sóknarn. Alexander
Stefánsson svo og sóknarprestur
sr. Hreinn Hjartarson þökkuðu
Guðjóni þessa stórgjöf. Ennfrem-
úr gat form. þess að Eimskipa-
félag fslands hefði geíið flutn-
ing á klukkunum hingað til
landsins, og bað hann fyrir
beztu þakkir til E.í. Klukkumar
eru keyptar frá V-Þýzkalandi og
útvegaði þær Ásgeir Long verk-
stj. Reykjalundi og eru þær 3 og
eru rafkniúnar. Vigta þær 850
kgr. Þær kostuðu 126 þús kr.
Grópað er í þær „Gefandi Guð-
jón Sig“. og „Ólafsvíkurkirkja
1965“.
Saga kirkjúbyggingarinnar var
og rakin í stórum dráttum.
Fyrsta skóflustunga fyrir
byggingunni var tekin sumarið
1961, en aðallega unnið að bygg-
ingunni 1963 og síðan.
Kirkjuna teiknaði Hákon Hert-
ervig arkitekt, Reykjavík, og
verkfræðingar voru Eyvindur
Valdimarsson og Bragi Þorsteins-
son.
Stærð kirkjunnar er 346 ferm.
og 2ö40 rúmmetrar auk þess
safnaðarheimili 170 fermetrar
ásarnt eldhúsi.
Kirkjuskipið á að taka 220-200
manns í sæti, auk þess 120-150 í
safnaðarh.
Byggingarmeistari frá upphafi
hefur verið Böðvar Bjarnason,
Ólatfsvík, ennfremiur Sveinbjörn
Sigtryggsison, byggingarm. 1964.
Á sl. ári var lokið við að steypa
upp sjálft kirkjuskipið og í ár
var turmnn steyptur og frágeng-
inn, en hann er 32 metrar að
hæð uppsiteyptur, auk þess kross
3 metrar. Jafnhliða hafa allir
gluggar verið smíðaðir og er nú
unnið að einangrun og múrhúð-
un innan.
f dag er byggingarkostnaður
kirkjunnar orðinn kr. 3 milljónir
45 þús. kr. Fjármagns hefur
til þessa verið aflað þannig:
Ólafsvíkurkirkja.
Föst lán til langs tíma, kr.
1.175.000.00. Gjafir og söfunarfé
og óafturkræft framlag 1.425.
000.00 Eigin sjóðir kirkjunnar
445.000.00.
Yfir 100 einstaklingar og fyrir-
tæki hafa gefið kirkjunni gjafir
allt upp í krónur 20.000.00 frá
einstaklingum.
Áætlað er að kirkjan fullsmið-
uð kosti um 5 milljónir. Gert er
ráð fyrir að áframhaldandi fram-
kvæmdir verði við bygginguna í
vetur. Arkitektinn er að ganga
frá innréttingarteiikningum þessa
dagana. Standa vonir til þess, að
byggingu hennar verði lokið á
næsta ári og að hægt verm að
vígja hana í byrjun árs 1967.
Góðar horfur eru á því að fjár-
magn verði nægjanlegt, þar sem
reynsla hefur þegar sannað, að
velunnarar kirkjunnar nær og
fjær færa henni sífellt gjafir sem
gera þetta fært. Fyrir þennan
mikla og almenna áhuga þakkar
kirkjunefndin sérstaklega.
I sóknarnefnd eiga sæu nú:
Alexander Stefánsson form.
Guðni Sumarliðason og Böðvar
Bjarnason. Auk þess eru í bygg-
ingarnefnd þeir Vigf. Vigf. og
Guðjón Sigurðsson.
Stulka
óskast til starfa á skrifstofu í miðbænum frá
nk. áramótum. Umsóknir sendist Morgunblað-
inu, merktar: „8049”.