Morgunblaðið - 04.01.1966, Side 8

Morgunblaðið - 04.01.1966, Side 8
8 MORGU NBLAÐIÐ Þriðjudagur 4. janúar 1966 ☆ STUNDUM eru mistök svo auð- sæ að menn taka eiginlega ekki eftir þeim. Kannski er það þess vegna sem hin misheppnaða bylting í Indónesíu og hið al- gera hrun öflugs kommúnista- flokks þar í landi kom flatt upp á marga og virðist enn ekki með öllu ljóst, meira að segja nokkuð dtiarfullt. í septemberlok sl. var enginn kommúnistaflokkur í hinum „frjálsa" heimi betur til þess fallinn en sá indónesíski að skapa „byltingarástand" það, sem sann- ir marxistar telja nauðsynlega forsenda allra byltinga. Komm- únistaflokkur Indónesíu var stærsti og elzti kommúnistaflokk ur í Asíu, stofnaður árið 1920. Félagatala hans hafði vaxið stór- um undanfarna áratugi, úr 5000 „Og líka miður holl ráð“ — Myndin er tekin í haust sl. er Chou En-lai, forsætisráðherra Kína, kom í heimsókn til Djakarta og Sukarno forseti tók á móti honum. Öfarir kommúnista flokks Indónesíu árið 1948 í 3 milljónir árið 1965 og innan ýmissa fjöldasamtaka átti flokkurinn vísar nær 12 milljónir stuðningsmanna. í bæjar- og sveitarstjórnar- kosningunum 1956, hinum síð- xistu- sem haldnar hafa verið í Indónesíu, jók flokkurinn fylgi sitt gífurlega í hafnarborgum og kaupstöðum á Jövu og varð eftir kosningarnar stærsti flokkur landsins. Hinir ungu, dugmiklu og hæfu leiðtogar hans höfðu verið svo klókir að gera banda- lag við samtök þeirra manna sem voru á báðum áttum í stjórn- málabaráttunni og tvístígandi og höfðu með því einangrað and- kommúnista og íhaldssinna. Há- værar kröfur Indónesa um full yfirráð yfir hinum hollenzka (vestri) hluta Nýju Guíneu og baráttan gegn Malaysíu veittu flokknum kjörið tækifæri til for- ustu hinna atkvæðamiklu afla þjóðernissinna, þeirra er börðust gegn nýlendustefnu og öll þjóð- in fylkti sér um. Kommúnistar höfðu einnig vit á því, að sýna Sukarno forseta hollustu í orði og á borði, en hann sá sér ekki síður hag í því og halda að njóta stuðnings þeirra gegn hernum og samtök- um Múhameðstrúarmanna. Þar kom að þeir náðu slíkum tökum á Sukarno, fyrst með blíðmælgi en síðar með hótunum, að þeir neyddu hann til þess að vopna bæði bændur og verkamenn (og var látið heita að þeim vopna- búnaði væri stefnt gegn Mal- aysíu), skipa fleiri kommúnista í embætti ráðherra (hann hafði þegar tekið þrjá kommúnista í ríkisstjórnina) og til að lofa að halda almennar kosningar, sem vafalítið hefðu leitt til mikillar fylgisaúkningar flokksins. Örlög 105 milljóna manna Kommúnistar höfðu búið um sig í flestum stjórnardeildum og dregið mjög úr áhrifum and- kommúnista innan hersins með því að beita sér fyrir afnámi neyðar- og hemaðarástands þess er sett var í landinu 1963 og veitti hernum nær óskoruð völd. Það virtist því svo sem ekki vant aði nema herzlumuninn á að kommúnistar hefðu í hendi sér öll völd í Djakarta og örlög 105 milljóna manna og að Suðaust- ur-Asía yrði innan skamms eins og milli steins og sleggju þar sem Kínaveldis og sigð væri hamar Indónesíu. Þá hafði Kommúnistaflokkur- inn einnig tryggt sig gegn hugs- anlegu fráfalli Sukarnos forseta. Hann hafði á að skipa frambjóð- anda hlynntan flokknum, sem var þó jafnframt maður virtur vel og ekki talinn kommúnisti. Sá var dr. Subandrio, fyrsti vara forseti landsins. Flokksforingj- arnir vissu sem var, að þeir myndu ekki geta seilzt til beinna valda í Indónesíu án þess herinn sneri vopnum sínum gegn þeim. Formaður kommúnistaflokks- ins, Dipa Nusantara Aidit, hafði í varúðarskyni lagt á það á- herzlu 1963 að vopnuð uppreisn væri því aðeins framkvæmanleg að skæruhernaður í sveitum landsins hefði verið vandlega undirbúinn fyrirfram, skipulögð hefðu verið allsherjarverkföll og mótmælaaðgerðir 1 borgum og bæjum og völd flokksins innan hersins endanlega tryggð. Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu var strax ljóst, að kommúnista- flokkurinn studdi hina fífldjörfu byltingartilraun Ungtungs of- ursta hinn örlagaríka föstudag, 1. okt. sl. Málgagn flokksins hyllti Ungtung samstundis sem „föð- urlandsvin og byltingarsinna“. Sendiherrar Rússlands og Kína voru ekki heldur viðstaddir mik ilfenglega opinbera útför hers- höfðingjanna sex, sem hinir svo nefndu „Gestapo“-uppreisnar- menn myrtu. Aidit hvarf og var sagður dveljast á Mið-Jövu en fór huldu höfði. Ungtung ofursti var handtek- inn og var það eftir honum haft, að Byltingarráð það, sem hann reyndi að koma á fót, hefði að- eins átt að vera skálkaskjól kommúnista og að Sukarno of- ursti hefði að vísu átt að sitja áfram í embætti. svona til mála- mynda, en sýndi hann einhvern mótþróa hefði átt að setja hann tafarlaust í „örugga gæzlu“ ein- hvers staðar. Þá sagði Ungtung og að mörg þúsund konur og ungmenni innan kommúnista- flokksins hefðu verið þjálfuð í vopnaburði fyrir byltinguna. Síð ar kom í ljós, að kommúnistar höfðu fengið send vopn frá Kína og hafði talsverðu magni þeirra verið smyglað inn til Indónesíu um stærstu haínarborgir lands- ins sem byggingarefni. Forsetahollusta hersins En að því er bezt verður séð, hafði bylting Aidits í Indónesíu ekki verið nægilega skipulögð né nógu vel um hnútana búið varð- andi ýmis smáatriði. Innan hers- ins kom ekki til bardaga og her- menn gengu ekki kommúnistum á hönd hópum saman. Fallhlífar- sveitir þær, sem blekktar höfðu verið til fylgilags við Ungtung ofursta undir því yfirskyni að þeir væru að vernda líf Sukarn- os forseta gegn afturhaldssinn- uðum samsærismönnum komust fljótlega að raun um svikin og gengu nær undantekningarlaust í lið með andstæðingunum — eins og kommúnistar hefðu raun- ar mátt búast við. Nokkrir hermenn hafa síðan gengið í lið með kommúnstum á Mið-Jövu, 'ein herdeild hefur gert nokkurn usla í Djogjakarta, fjórir ofurstar hafa verið lýstir liðhlaupar yfir til kommúnista og einhver hreinsun hefur átt sér stað meðal herforingjanna í höfuðborginni. Abdul Haris Nasution, hershöfðingi og land- varnaráðherra hefur sagt, að kommúnistaflokknum hafi tekizt að múta 10% yngri liðsforingja til fylgis við sig og ef til vill fleirum á Mið- og Austur-Jövu, á Celebes og Borneo. En hitt er og ljóst, að áróður kommúnista hefur mátt sín lítils í liði Nasu- tions sjálfs (sem telur 350.000 menn, ef varalið er einnig með reiknað), þrátt fyrir digurbarka- legar yfirlýsingar þeirra um hið gagnstæða. Njoto, framkvæmdastjóri komm únistaflokksins í Indónesíu sagði eitt sinn í trúnaði, að a.m.k. 8 hermenn af hverjum 10 væru hlynntir kommúnistum og ákafir fylgismenn Sukarnos forseta. í þessum orðum kann að leynast undirrót mistaka kommúnista: þ.e. í tilraunum þeirra til að blekkja ókunnuga um fylgi flokskins með því að telja eitt og hið sama flokksfylgi og hollustu við Sukarno forseta og beita fyrir sig röngum tölum því til sönnunar. Að hve miklu leyti kunna líka uppörvandi skýrslur útsendara flokksins úti á lands- Þyggðmni, sem aðeins reyndu með þeim að gera til hæfis herr- um sínum í höfuðborginni, að hafa villt um fyrir kommúnista- leiðtogunum í Djakarta svo að þeir freistuðust til að álíta að þeir gætu splundrað hernum sem fúnu flaki? Er á reyndi snerist herinn á sveif með þeim her- foringjum, sem stjórnuðu í nafni Sukarnos, en þessir menn voru svarnir andstæðingar „Gestapo"- uppreisnarmannanna, og stuðn- ýigsmanna þeirra innan komm- únistaflokskins. Kommúnistar höfðu hreiðrað harla vel um sig innan flughers- ins og yfirmaður hans, flugmar- skálkurinn Omar Dani, átti í fá hús að venda er uppvíst varð um tengsl hans við byltingarmenn. En þessi aðstaða kom kommún- istum að litlu haldi. Nasution sagði einhverju sinni: „Ég hræð- ist ekki flugherinn. Sá sem hefur landherinn á sínu bandi hefur úrslitavaldið. Það er litlum vand- kvæðum bundið að einangra nokkra herflugvelli, hefta elds- neytisflutninga og jafna MIG- þotur við jörðu.“ Orð hans hafa reynzt orð a ðsönnu. Hinn mikil- vægi stuðningur flughersins við kommúnista hefur verið orðum aukinn og reyndist haldlítill er til kastanna kom. „Hrísgrjóna-marxistar" í meirihluta Meginstyrk sinn hlýtur komm- únistísk bylting jafnan að sækja til fjöldans, til alþýðunnar, til öreiganna. En alþýðan brauzt ekki fram til baráttu þessu sinni. Kommúnistaflokkurinn hefur i sífellu otar að herforingjunum því vopni sem þeir töldu sig eiga skæðast, vopni, sem talið var að lamað gæti allt atvinnulíf lands- manna ef beitt yrði, allsherjar- verkfalli flutningaverkamanna 1 hafnarborgum og stórborgum Indónesíu. En allsherjarverkfall var ekkert gert — hins vegar hefur SOBSI, samband flutn- ingaverkamanna, sem laut stjórn kommúnista og taldi um þrjár milljónir félaga, verið leyst upp ,af frjálsum vilja“ félaganna. Sú spurning hlýtur að vakna með þeim er þetta yfirvegar, hvort kommúnistaflokur Indó- nesíu hafi þá 1 raun og veru ver- ið nokkuð annað en sjálfsbirg- ingslegur smákarl? Flokksforingj arnir sögðu að vísu að í flokkn- um væru 3 milljónir félaga, en sú tala var töluvert ýkt. Árið 1963 var frá því skýrt, að skráð- ir félagar í flokknum væru 400. 000, virkir félagar nú er taldir 30 til 40 þúsund. Flokksstarfið er seinvirkt og þungt í vöfum enda um langa vegu og oft tor- færa að fara þar sem eru hinar ótal eyjar — þrjú þúsund að sögn — sem til Indónesiu telj- ast. Lítill vafi leikur á því, að meirihluti flokksmanna hefur verið fáfróðir og óupplýstir „hrísgrjóna-marxistar", bændur og verkamenn, sem gengu í flokk inn vegna fátæktar og jarðnæðis- skorts eða lágra launa, menn sem höfðu meiri áhuga á því að bæta afkomu sína, eignast örfáa aura til viðbótar en að gera bylt- ingu. Og eftir byltinguna hafa þúsundir manna brennt flokks- skírteini sín opinberlega. Þrátt fyrir vopnasendingar þær frá Kína sem áður var frá sagt, hefur mestur hluti uppreisnar- manna reynzt búinn spjótum, lurkum og hnífum. Og kjami hins æpandi skríls á fjöldafund- unum í Djakarta — þeim er feng ið hafði fjölda manna út um allan heim til þess að halda, að Indónesía væri í þann veginn að verða kommúnistum að bráð, að þess myndi ekki langt að bíða að þar yrði upptekið kommúnist- Framhald á bls. 21 Frá fjöldafundi í Djakarta. Andk ommiinlstar gera hróp að stjórninni og krefjast aðgerða gegu kommúnistum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.