Morgunblaðið - 04.01.1966, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
í>riðjudagur 4. janúar 1966
Fólk mcð áramótahatta og blys við Miklatún á gamlárskvöld.
Áramótafréttir víða af landinu
Róleg áramót um land allt
Veður gott nema fyrir
norðan og austan
☆
m
í HEILD verður ekki annað
sagt en áramót hafi verið góð
um land allt, nema hvað veð-
ur var heldur slæmt um aust-
anvert Norðurland og Austur
land. Slysfarir voru óveruleg
á sjálfum áramótunum og
fagnaði þeim er jafnan fylg-
ir. Hinsvegar urðu slys bæði
á gamlársdag og nýársdag og
er þeirra getið á öðrum stað.
í höfuðborginni var veður-
blíða mikii og um 70 brennur
tendraðar og brunnu þær í
hægviðrinu við fögnuð áhorf-
enda sem voru í þúsundatali.
Mikil umferð var um borgina.
Blysum var skotið á loft að
venju og sýna tvæi myndir
hér í blaðinu flugelda bæði í
Reykjavík og Keflavík.
Hér fara á eftir frásagnir
fréttaritara frá ýmsum stöð-
um af landinu.
Með brunagöt á buxna-
skálmunum
Akranesi, 3. jan.
STÆRSTA brenna í bænum og
stærsta áramótabrenna landsins.
'Auðvitað var hann að norðan.
Reykinn lagði niður yfir allan
vestur Skagann, gneistaflug og
eldglæringar léku sér eins og
rísavaxin maurildi á milli hús-
anna allt níður fyrir Lyndar-
brekku.
Viðarkösturinn rauk út í veður
og vind á gamlárskvöld frá kl.
9.30 — og fram eftir nýársnótt:
4 gamlir nóta- og árabátar, 250
hjólbarðar, mýgrúfur af graut-
fúnum síldabátarimlum, 700
lítar af Esso-olíu, tvær tunnur
af svartolíu, allt í einni kös.
Bílar stóðu í röðum á Esju-
braut og Vogabraut, 2000 manns
horfðu á logana m. a. 4 lögreglu-
þjónar og slökkviliðsmenn í
tveimur bílum. Strákarnir voru
svo áfjáðir og gættu sín ei er
eldur komst í sinuna við köstinn
a.m.k. tveir hrukku frá í dauð-
ans ofboði með brunagöt á buxna
skálmunum. Það voru smellir,
dynkir, brestir og eldblossar
herfilegir svo að sjálfum Dante
hefði ofboðið.
Flugeldum var skotið um allan
bæ og sprengjuhvellir dundu alla
liðlanga nýársnótt fram undir
morgun. Kl. 1 á nýársnótt höfðu
skátarnir blyseldasýningu fram-
an við félagsheimilið Rein og
skutu hvorki meira né minna en
60 flugeldum í loft upp og þá
6kellihló karlinn í tunglinu.
— Oddur.
Fagurt áramótveður
* á Snæfellsnesi
Stykkishólmi, 3. janúar.
VEÐUR var hér á Snæfellsnesi
eins og bezt verður á kosið um
þessi áramót, frost um eitt stig
heiðskýrt og stjörnubjart og hæg-
ur andvari.
í Ólafsvík var dansleikur á veg
um leikfélagsins þar sem haldið
hefir slíka dansleiki um árabil.
Hann fór ágætlega fram. Lítið
var um sprengingar. Ein stór
brenna var í bænum sem allir
sameinuðust um. Messað var á
gamlárskvöld, séra Hreinn Hjart
arson. Heilsufar var ágætt.
Á Hellissandi voru margar
brennur, dansleikur var á vegum
ungmennafélagsins í félagsheim-
ilinu Röst. Var þar húsfyllir og
góð skemmtun. Skreytingar voru
miklar á Hellissandi um þessi
jól.
í Grundarfirði var engin
áramótaskemmtun og ekki mikil
umferð á götum og allt fór ró-
lega og vel fram. Skreytingar
voru með miklu meira móti en
vant er, einnig voni þar brennur.
Hér í Stykkishólmi voru þrjár
brennur. Séra Hjalti Guðmunds-
son messaði um kvöldið og Lúðra
sveit Stykkishólms hafði ára-
mótadansleik. Var húsið skemmti
lega skreytt og mjög margt, sem
sótti dansleikinn, sem fór einnig
ágætlega fram. Um kl. 12 á mið-
nætti var flugeldasýning á Bók-
hlöðuhöfða, sem félagar í lúðra-
sveitinni sáu um og setti það
mjög mikinn svip á áramótin.
— Fréttaritari.
Ungur piltur brenndist
nokkuð við brennu
Patreksfirði, 3. janúar.
HÉR var allt frekar rólegt um
áramótin, og engin slys fyrir
utan þa’ð. að ungúr piltur hlaut
nokkur brunasár á læri og hendi.
Mun pilturinn hafa verið að
skvetta olíu á bálköst, er hann
hrasaði nálægt eldinum með fyrr
greindum afleiðingum. Liggur
hann nú á sjúkrahúsi og líðan
hans allsæmileg eftir atvikum.
Tvær brennur voru hér, og auk
þess var hér haldinn dansleikur,
sem fór vel fram. M.bl. Jón Þórð-
arson er farinn héðan 1 fyrsta
róðurinn. — Trausti.
Róleg áramót á ísafirði
ísafirði, 3. janúar.
GOTT veður var hér um ára-
mótin, sem fram fóru með ró og
spekt. Margar brennur voru í
bænum og mikið skotið af flug-
eldum. Skip sem voru í höfninni,
blésu gamla árinu og hringt var
klukkum kirkjunnar. Dansleikir
voru í samkomuhúsinu og fóru
þeir vel fram. Engin slys urðu
á mönnum.
Talsvert mikið hefur verið um
skipakomur hingað undanfarna
daga, bæ'ði kaupskip og erlendir
togarar. Vetrarvertíð er að hefj-
ast um þessar mundi og fóru
bátarnir í fyrsta róðurinn í gær-
dag. Afli var fremur tregur mest
5—6 lestir, enda var veður
slæmt. Lítið er um snjó hér og
vegir í byggðarlagi flestir vel
færir. — H. T.
Friðsamleg áramót
Sauðárkróki,- 3. janúar.
GAMLÁRS- og nýársskemmtun
var hér haldin, og fór hún vel
í n. Tvær brennur voru hér,
saft)' ðist mikill mannfjöldi i
kringum þær, og miki’ð var um
flugeldaskot. Annars fóru ára-
mótin hér mjög friðsamlega fram.
— Guðjón. •
Mikil ljósadýrð á Siglufirði
Siglufirði, 3. janúar
ÁRAMÓTIN varu hér með líku
sniði og verið hefur undanfarin
ár. Raflýstum blysum hafði veri’ð
komið fyrir á brún Hvanneyrar-
skálar, og einnig á fjallstindum
beggja vegna skálarinnar. Enn-
fremur var ártalið 1965 myndað
í fjallshlíðinni með raflýstum
blysum, en á miðnætti var slökkt
á þeim en síðan tengdrað ártalið
1966.
Þrjár brennur voru í fjalls-
hlíðinni fyrir ofan bæinn, og
dansleikir voru í þremur sam-
komustöðum. 1 stuttu máli fóru
áramótin mjög vel fram, veður
var ágætt á gamlárskvöld, en á
nýjársnótt og nýjársdag kyngdi
niður miklum snjó og urðu götur
víða illfærar og sumstaðar ófærar
í gær. f dag hefur svo verið unn-
ið við að ryðja þær. — Stefán.
Fögur og friðsæl áramót
Akureyri, 3. janúar.
AKUREYRINGAR fögnuðu ára-
mótunum að vanda með miklu
flugeldaskrauti og hófsamlegri
gleði. Um 20 brennur logúðu
glatt víðs vegar um bæinn, og
safnaðist þar saman fjöldi fólks.
Dansleikir voru í öllum samkomu
húsum í bænum og fór þeir yfir-
leitt vel fram og friðsamlega.
Veður var kyrrt og milt, en
skýjaður himinn. Varð því skinið
af Ijósadýrð flugeldaskrautsins
enn skærara en ellá. — Sv. P.
Ekki kveikt í bálköstunum
vegna veðurs
Húsavík, 3j janúar.
HÉR var leiðindaveður um ára-
mótin, og er ekki ennþá farið
að kveikja á bálköstunum tveim-
ur, sem eru hér í bænum. Verður
reynt að kveikja á þeim, þegar
birtir, sem vonandi gerist áður
en árið er liðið. Flugeldar voru
þó hér með almesta móti á gaml-
árskvöld. — Fréttaritari.
Mannfátt orðið á Raufarhöfn
eftir áramótin
Raufarhöfn, 3. janúar.
HÉR var allt rólegt um nýjárið,
en veður var slæmt, kalsastorm-
ur að austan. Ein brenna var
hér — myndarleg mjög, — og
voru þar tveir ónýtir bátar
brenndir, en auk þess mikið af
tunnutimbri. Þá var líka mikið
um flugeldaskot.
Hingað komu í dga tvær flug-
vélar til þess að sækja mann-
skap á báta fyrir sunnan og
skólafólk. Er nú orðið heldur
mannfátt hér — fólkið flest farið
— og bara börn og gamalmenni
eftir heima. — Einar.
Gáfu þorpinu jólatré
Vopnafirði, 3. janúar.
ÁRAMÓTIN hér fóru mjög frið-
samlega fram, en leiðinlegt veð-
ur var — norðaustan vindur og
snjókoma. Vegir eru illfærir
orðnir við héraðið en þó hafa
mjólkurflutningar enn ekki
stöðvazt.
Kvenfélagið hér sá um
skemmtun og dansleik á annan
í jólum, en á gamlársdag efndi
bridgefélagið til fagnáðar. Milli
jóla og nýjárs sá svo kvenfélagið
um jólatrésskemmtun fyrir börn.
Utanbæjarmenn, sem hafa unnið
hér að undanförnu, gáfu þorpinu
fallegt jólatré, sem þeir settu
sjálfir upp og lýstu. Stendur það
við félagsheimilið. Brennur voru
hér þrjár talsins á gamlárs-
kvöld og margir flugeldar á
lofti.
Síldarverksmiðjan hér hætti
bræðslu fyrir jól, en á í þrónni
nokkur þúsund mál. Mun hún
hefja bræðslu aftur í þessari
viku. — Fréttaritari.
Leiðindaveður á Héraði
Fljótdalshéraði, 3. jan.
MJpG kalt en fremur stillt var
á milli hátíða og snjólítið um
Hérað. Frostlítið var um ára-
mótin, en austan strekkingur og
éljaveður. Dálítið skóf saman i
nótt en í dag er stillt og heið-
ríkja í kvöld, hörkufrost og fag-
urt veður.
Vegir voru sæmilegir umferð-
ar hér um Miðhérað fram til ára-
móta en ögn hefur þurft að
hreinsa snjó í dag og í gær. Mikið
er alltaf að gera við flugið og
flesta daga hefur verið flugveð-
ur og því engar tafir.
Ekki er mikið um hátíðahöld
hér en barnaskemmtanir á Rauða
læk og Egilsstöðum. Miklar
brennur voru haldnar á gaml-
árskvöld, þrátt fyrir leiðinda-
veður. Þá voru einnig dansleikin.
— J. P
Heyra illa í útvarpinu
á Seyðisfirði
Seyðisfirði, 3. janúar.
HÉR var sérstaklega rólegt um
jólin og áramótin. Bærinn var
mikið skreyttur og fallega upp-
lýstur. Aftur á móti voru brenn-
ur færri og minni núna á gaml-
árskvöld en verið hefur, en tals-
vert var um flugeldaskot. Hjá
lögreglunni var sérstaklega ró-
legt og mun enginn hafa gist
þar steininn.
Tíðarfar hefur verið fremur
stirt, talsvert mikill snjór og
frost, og vegir illfærir. Hefur
Fjarðarheiði t. d. verið teppt síð-
an fyrir jól. Fyrir nokkru var
skýrt fá því í Mbl. að menn hér
á Austurlandi væru nú farnir
að heyra mjög vel í útvarpinu,
en sem kunnugt er hefur verið
mikið ólag á því undanfarin ár.
Þessu er þó ekki svo farið hér
á Seyðisfiiði, því að hlustunar-
skilyrði eru slæm, og talsverð
óánægja hér með það. — Sveinn.
Fjölmenni á áramótadansleik
í Sindrabæ
Höfn í Hornafirði, 3. janúar.
HÉRNA voru tvær brennur um
áramótin, og var önnur sérlega
stór og vegleg. Á gamlárskvöld
var haldinn dansleikur í Sindra-
bæ, og var þar saman kominn
svo mikill mannfjöldi að sam-
komuhúsið rúmaði þa'ð vart. Um
miðnæturskeið á gamlárskvöld
mátti svo sjá heilt haf af flug-
Framhald á bls. 31
Aramót í Keflavik. — (Ljósm. Heimir Stígs)