Morgunblaðið - 04.01.1966, Síða 25

Morgunblaðið - 04.01.1966, Síða 25
Þriðjuðagwr 4. janúar 1966 M0RGUNBLAÐ1Ð 25 Fólk úr víðri veröld DANA Á NÝJUM SLÓDUM. Stúlkan með gitarinn langar nú til að reyna nýjar slóðir. Fyrst öðlaðist Dana Gillespie frægð fyrir snilli sina á sjóskíðum. Hún yarð kvennameistari Breta á sjó skíðamóti er háð var fyrir ári. Eftir það, að hún gerðist land- krabbi og hóf að syngja þjóð- ' Maður nokkur kom til sóknar- prestsins og sagði: — Faðir, er rétt að hagnast á glappaskotum annarra? — Nei, það er meira að segja injög illt. — Þá ætla ég að biðja þig um að endurgreiða dollarinn sem ég lét þig fá í fyrra fyrir að gifta mig. ' i— Ég er að hugsa um að slíta trúlofuninni við hann Sigga, hann er svo ruddalegur. — Hvað er að heyra. Hvað ger- Ir hann? — Hann kann svo mikið af dónalegum vísum. — Og syngur hann þær fyrir þig? — Nei, hann blístrar þær. ® © 7T ?vo 'W & f — Það lítur ekki út fyrir að þú gerir þér grein fyrir, hvor hlið brauðsneiðarinnar er smurð. söngva og spila undir á gítar, að ráði Donovan’s, sem „uppgötv- aði“ hana. En nú vill Dana reyna hæfi- leika sína í leiklist. Hún hefur þegar fengið hlutverk í ítalskri kvikmynd, sem nú er verið að gera og nú er bara að bíða og sjá , . , , FYRSTA RÆÐAN Á meðfylgjandi mynd sézt Lalla litla Amina prinsessa, 1:1 ára gömul systir Hassans kon- ungs í Marokkó, halda fyrstu opinberu ræðuna sína við skóla- slitaihátíð í Rabat. Þykir nokkr- um tíðindum sæta, að svo ung stúlka skuli „troða upp“ fyrir helzta tignarfólki þar um slóðir en Amina prinsessa segist sjálf ekki vera neitt blávatn. Þess má geta að systir hennar Aieha prins essa, 36 ára göimul er fyrsti sendiherra Marokkó í Bretlandi. Tóku Japanir land í Ameríku ca. 4.500 árum á undan Kólumbusi? New York, 3. jan. NTB. TVEIR bandariskir mann- fræðingar, hjónin Betty Megge og Clifford Evans sem starfað hafa við Smithsonian Institute í Washington telja sig hafa fundið fyrir því sterkar líkur, að Japanir hafi tekið land og haft búsetu í Ameríku, a.m.k. 4.500 árum áður en Kolumbus kom þang að fyrst. Hafa hjónin birt grein í timaritinu „Scientific American“ um leirkerabrot, sem fundust árið 1961 og sið- ari rannsóknir, er þau telja benda til þess, að japanskir fiskimenn hafi hrakizt fyrir stormi og straumum og tek- ið land í Ameriku u.þ.b. 3000 árum fyrir Krists burð. Fyrstu merki þess, að Jap- anir hafi tekið land í Amer- íku, fundust í Equador árið 1961. Var það áhugamaður um fornleifafræði, Emilio Estrada, sem þar gróf upp bólstað, sem mun hafa verið í notkun á árunum 3.000 — til 3.200 fyrir Krist. Var stað- ur þessi í nágrenni Valdivia. Þar fann Estrada rauðleit leirkerabrot með sérkenni- legu flúri á köntum — en það flúr mun hafa verið sjald- gæft mjög nema á hinu forn- sögulega Jomon-tímabili i Japan. Við síðari rannsóknir þeirra á umræddum stað í Equador ,hafa þau komizt að þeirri niðurstöðu, að óhugs- andi sé, að sams konar stíll hafi þróast sjálfstæður eftir Jomon tímabilið, í 13.000 km fjarlægð frá Japan. JAMES BOND James Bond IY IAN FUMIN6 DRAWING BY JOHN McLUSKY Eftir IAN FLEMING — Það getur verið, að þeir hafi heyrt skotið. Við getum ekki farið til baka til bátsins í nótt, Quarrel. — Það er gamall kofi á sandrifi við vatnið . . , — Við gætum falið okkur þar í nótt og á morgun brotið okkur leið í gegnum sefið til bátsins. — En þú verður að segja mér hvað er JtJMBÖ -V- að ske! Ég trúi því ekki, að þú sért að leita að sjaldgæfum fuglum, James! — Nei . . . þetta er allt saman dálítið ótrúlegt,.er það ekki? Ég skal segja þé' allan sannleikann í nótt, Honey. TeiknarL- J. MORA — Það fyrsta sem mér datt í hug var að grípa til axarinnar og koma þér til hjálp- ar, hélt Spori áfram. — Ég hélt í fyrstu að mannæturnar hefðu snúið aftur til eyjarinnar, og væru kannski byrjaðar að borða þig. Nú, og ég greip svo öxina án þess að vita eiginlega hvað gera skyldi . .. . . . því að ef liðsmunurinn var eins mikill og Fögnuður hélt fram, þá var það nú ekki mikið sem ég gat til málanna lagt. Svo vel vildi til að Fögnuður hafði gert mjög sniðuga björgunaráætlun, svo góða, að ég gat ekki annað cn samþykkt hana. — Að vísu var ég ekki með á nótumim strax, en ég verð að segja, að ég var þó ekki lengi að átta mig. — Ah, það skiptir engu, maður borðar þær báðar hvort sem er. Hnefaleikarinn: — Er ekki langt frá hringnum til búningsherberg- isins? Mótleikarinn: — Jú, að vísu, en þú skalt ekki taka það nærri þér, því að þú þarft ekki að ganga nema aðra leiðina. Sjúklingurinn: — Ég elska yð- ur svo mikið að mig langar ekk- ert til þess að verða frískur. [ Hjúkrunarkonan: — Þú verð- ur það heldur ekki. Læknirinn elskar mig nefnilega líka og hann sá þig kyssa mig í nótt. f; Hún (í leikhúsinu): — En það er óréttlátt að maðurinn skuli vera látinn út fyrir að hlæja. i Hann: — Það er misskilning- lir. Honum var ekki hent út, heldur vildi leikstjórinn aðeins Ifá upplýsingar hjá honum, hvað hefði verið svona sniðugt. í DAUÐANN MEÐ BROS Á VÖR Franska skáldið og háðfugl- inn Paul Scarron (1610—60) var í bernsku frægur æringi. En tæplega þrítugur að aldri fékk hann sársaukafullan gigt- arsjúkdóm og varð alla ævi síð- an að halda sig við hjólastólinn eða rekkjuna. Sjúkdómurinn og sársaukinn megnuðu þó aldrei að buga meðfædda lifsgleði hans og frábæra kímnigáfu, og ber hálfur tugur verka hans, sem hann lét eftir sig, þess ljósan vott. Þegar hann var 42 ára gamall kvæntist hann hinni fátæktu, ungu stúlku Francoise d’Aubigne, sem eftir dauða manns síns var barnfóstra kon- ungsfjölskyldunnar. Þegar hún stóð grátandi við dánarbeð Pauls Scarronsf, ásamt nokkr- um vinum hans, sagði Scarron: „Kæru vinir mínir, ég er þess fullviss að þig eigið ekki eftir að gráta næátum því eins mikið yfir mér og þið eigið eftir að hlæja að verkum minum“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.